Morgunblaðið - 29.05.1986, Side 68
68
MORGUNBLAÐID, PIMMTUDAGUR 29. MAÍ1986
+
!
i
t
I
f
I
I
I
I
t
»
I
I
Dagrún
Boliingarvík:
Dagrún með 150 lest-
ir af grálúðu eftir
hálfan þriðja sólarhring
Bolungarvík.
TOGSKIPIÐ Dagrún landaði
hér nýlega um 150 lestum af
grálúðu sem skipið fékk á
aðeins tveimur og hálfum sólar-
hring.
Það eru hinir aflasælu skip-
stjórar Víðir Jónsson og Há-
varður Olgeirsson sem skiptast
á um að fara með stjómina á
Dagrúnu.
Skipstjórí í þessari veiðiferð var
Hávarður. Fréttaritari Morgun-
blaðsins spurði hann tíðinda af
þessum' skjótfengna afla. „O þetta
er svosem ekkert merkilegt,"
sagði Hávarður. „Þetta er alltaf
að gerast, en maður er kannski
svolítið ánægðari núna, því við
erum búnir að vera að elltast við
þessa grálúðu síðan í byijun maí
og maímánuður hefur alltaf verið
besti mánuðurinn á þessari físk-
tegund.
Þennan afla fengum við á svo
kölluðu Hampiðjutorgi, en það er
svona 115 til 120 mílur héma
frá Deildinni. Það gerði þama
bara mok þegar norðaustanáttin
gekk niður. En það er aldrei togað
lengi þama ekki lengur en svona
klukkutími og aflinn í hveiju togi
var allbreytilegur hjá okkur. En
við fengum tvisvar 30 tonna höl
sem er feikigott á grálúðuslóð."
Hávarður var spurður hvemig
úthaldið hefði gengið á þessu ári.
„Það er búið að vera mjög gott,
raunar svo gott að maður hefiir
eiginlega áhyggjur af áframhaid-
inu, að þorskkótinn verði búinn
fyrr en varir," segir hann. „Á
þessu skipi er búið að afla 2100
lestir frá áramótum, og þar af
hefur verið landað í gáma um 500
lestum. Hitt hefur farið til vinnslu
í frystihúsinu.
Við fengum úthlutað um 2100
lesta þorskkvóta þannig að við
emm rúmlega hálfnaðir með
hann.
Ætli aflaverðmæti aflans frá
áramótum sé ekki farið að nálgast
Hávarður Olgeirsson i brúnni.
55 milljónir, en þá er ótalið það
sem við höfum landað í svokallaða
meltu. í hana fer slóg og annar
úrgangur úr aflanum og það em
orðnar um 300 lestir sem við
höfum landað af slíku hráefni frá
áramótum."
Hávarður sagði að það væri
kannski athyglisvert að það hefði
verið landað úr skipinu í hverri
einustu viku það sem af er þessu
ári þannig að hér er ekki um
langar veiðiferðir að ræða.
— Gunnar
Frettabréf úr Bjamarfirði:
A
Atak gert í bygg-
ingu sundskýla
við Gvendarlaug
Bjamarflrði.
SAUÐBURÐUR stendur nú sem hæst hér um sveitir nú þegar vika
er eftir af maí. Nokkuð er um að arður af ám sé ekki alveg eins
góður og búist var við. Þ.e. ekki eins mikið um tvílembur. Kannske
eru væntingar bænda á stundum meiri en eðlilegt gæti talist. Aðeins
bestu bú sem rekin eru af mikilli nákvæmni, skila þeim arði sem
af þeim er ætlast.
Ekki er enn hafín bygging sund-
skýla við Gvendarlaug að Laugar-
hóli. Að vísu hefír hreppsnefnd
samþykkt að taka tilboði heima-
manna um bygginguna, en á ein-
hveijum atriðum virðist standa.
Þama er ekki aðeins um hags-
muni sveitarinnar og hreppsfélags-
ins að ræða, heldur einnig stærri
hluta sýslunnar. Ekki var hægt að
kenna sund í Gvendarlaug á síðast-
liðnu ári, vegna skorts á sundskýl-
um. Féll því niður sundkennsla við
Ijóra skóla í sýslunni. Hafa nú
Hólmavíkurhreppur og Kaldrana-
neshreppur brugðist við með því að
leggja fram 250 þúsund krónur
hver, til þessa máls, úr sýslusjóði
voru veittar 30 þúsund krónur á
síðastliðnu ári, á fjárlögum hinsveg-
ar 155 þúsund krónur. Með þessu
^ármagni mætti komast langt með
byggingu skýlanna. Hæfir menn
hafa gert bindandi tilboð í verkið
og verði hafíst handa næstu daga,
mætti jafnvel ljúka því svo sund-
kennsla gæti hafíst að nýju í haust.
Því þótt vorhretin séu oft bitur hér,
geta haustin verið góð, og þá má
nýta tímann til sundiðkana og
annarra íþrótta.
Nú er hafist handa um að bera
ofani veginn milli Bjamarljarðar
og Drangsness. Þar er um að ræða
vegarhlutann milli Kaldrananess-
bæjanna og Drangsness. Er þetta
vegabót sem beðið hefír verið með
óþreyju um áraraðir. Styttir hún
vegferð Bjamfírðinga í næstu
mjólkurbúð um 10 kílómetra, eða
meir. Því miður var mér tjáð af
umdæmistæknifræðingi Vegagerð-
arinnar að hér væri aðeins um
venjulegt vorviðhald að ræða, en
engin varanleg uppbygging vegar-
ins stæði til.
Bjamfírðingar sækja verslun
ýmist að Hólmavík, eða á Drangs-
nes. Gróft reiknað em 20 kílómetrar
til Drangsness, en 30 kflómetrar til
Hólmavíkur. Að vísu verslar Kaup-
félag Steingrímsfjarðar á báðum
stöðum, en öllum er ljós sú stað-
reynd hversu mikil hagsbót það
væri að hafa tryggan veg til
Drangsness. Það verður hinsvegar
að segjast eins og er, að vegurinn
þangað hefur oftar en ekki orðið
að teljast á mörkum þess að vera
bflfær fyrir alla bfla. Hveiju um er
að kenna, að hér fæst ekki bót á
skal ósagt látið. En staðreyndin
blasir við, betri vegur fæst ekki
þama á milli. Kannske eiga Bjam-
firðingar ekki betra skilið.
Nú, en öll él birtir upp um síðir.
Vorhretið er á undanhaldi, og kann
að vera að nýr vegur verði kominn
hér um allt fyrir aldamótin. Þá
væri heldur ekki verra, að sundskýli
yrðu byggð áður en Strandamenn
fæm að teljast ósyndir.
Fréttaritari
Skarfurinn
á Geilo
SVALA Ólafsdóttir hafði samband
vegna fréttagreinar sem birtist í
Fólk í fréttum hinn 28. maí: Skarf-
urinn á Geilo, íslenskur veitinga-
staður í norsku skíðalandi. Vildi
Svala að fram kæmi að það hefði
ekki verið að fmmkvæði hennar eða
Sigurðar að grein þessi birtist.
Greinin er þýddi úr norska blaðinu
Nationen.
WNLÁNASJÓÐUR
breytt útlánakjör
Sjálfstæðisfélagið á Vopnafirði:
Nýir menn í framboði
og breyttar áherzlur
Frá og meö 15. maí 1986 kom til framkvæmda breyting
á útlánakjörum lönlánasjóðs og eru þau sem hér segir:
Vélalán undir kr. 700.000,00
og byggingalán undir kr. 5.000.000,00 bera
6.5%
vexti og eru bundirvlánskjaravísitölu.
Vélalán yfir kr. 700.000,00 og byggingalán
yfir kr. 5.000.000,00 bera
8.0%
vexti og eru bundin gengi SDR.
Lán til vöruþróunar og markaðsleitar bera
5.0%
vexti og eru bundin lánskjaravísitölu.
Frá og með samadegi varð samsvarandi breyting á
útistandandi lánum, þarsem ákvæði skuldabréfa
heimila slíkt.
IÐN LÁIMASJÓÐU R
Vopnafirði.
FÉLAG sjálfstæðismanna á
Vopnafirði hefur um árabil
átt tvo fulltrúa í sveitar-
stjórn. Félagið býður nú
fram nokkuð breyttan lista
frá því sem verið hefur
undanfarin kjörtímabil.
Einnig hefur all nokkur
breyting orðið á áherzluatr-
iðum í stefnuskrá félagsins
og má þar nefna atriði eins
og atvinnumál, hafnarmál
og dagvistunar- og skóla-
mál. Eru þetta að mati sjálf-
stæðismanna hvað mest
aðkallandi mál nú á næs-
tunni.
Listi sjálfstæðismanna á
Vopnafírði er þannig skipaður:
Hilmar Jósefsson, verkstjóri,
Þórður Helgason, framkvæmda-
stjóri, Björn Bjömsson, bifvéla-
virkjameistari, Heiðbjört Bjöms-
dóttir, húsmóðir, Helgi Þórðarson,
verkamaður, Þórdís Jörgensdóttir,
verslunarmaður, Rúnar Valsson,
lögregluvarðstjóri, Ásta Ólafs-
dóttir, bankastarfsmaður, Guðjón
Jósefsson, bóndi, Þóroddur Áma-
Þórður
Helgason.
Bjöm
Björasson.
Heiðbjört Helgi Þórdis Rúnar
Björasdóttir. Þórðarson. Jörgensdóttir. Valsson.
son, bifreiðastjóri, Sveinn Karls- Stefánsson, bóndi, Alexander
son vélvirkjameistari, Siguijón Ámason, rafvirkjameistari.
Ámason, rafvirkjameistari, Guðni — BB.
j