Morgunblaðið - 29.05.1986, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1986
69
Bæjarstjómarmenn og embættísmenn luku siðasta bæjarstjóraarfundinum með kvöldverði í Tryggva-
skála. F.v.: Helgi Helgason bæjarritari, Guðmundur Kr. Jónsson, Guðfinna Ólafsdóttir, Guðmundur
Sigurðsson, Steingrimur Ingvarsson, Þorvarður HjaJtason, ÓIi Þ. Guðbjartsson, Stefán Ó. Jónsson
bæjarstjóri, Ingvi Ebenhardsson, Grétar Jónsson og Ora Grétarsson.
Síðasti bæjarsljórnar-
fundur kjörtímabilsins
— miklar breytingar verða á bæjarsljóm Selfoss
Selfossi.
SÍÐASTI bæjarstjóraarfundur bæjarstjórnar Selfoss þetta kjörtíma-
bil, sá 112. í röðinni, var haldinn mánudaginn 26. mai i Tryggva-
skála. Á fundinum voru reikningar veitustofnana m.a. teknir til
umfjöllunar og afgreiddir við síðari umræðu, en umræðu um þá
hafði áður verið frestað.
Kjörnir endurskoðendur bæjarins
og löggiltur endurskoðandi höfðu
gert athugasemdir við reikninga
áranna 1984 og 1985 og voru þeir
afgreiddir án þess að skýringar
kæmu fram hjá veitustjóra á at-
hugasemdunum. Við afgreiðslu var
hafður sá fyrirvari um samþykkt
reikninganna að skýringar kæmu
fram á athugasemdum endurskoð-
enda. Var bæjarstjóra, lögmanni
bæjarins og löggiltum endurskoð-
anda falið að leita skýringa á at-
hugasemdunum.
Miklar breytingar verða á bæjar-
stjóm Selfoss eftir næstu kosning-
ar. 5 bæjarfulltrúar eiga ekki sæti
á frambðslistum og hverfa því úr
bæjarstjóminni, Óli Þ. Guðbjartsson
sem setið hefur í hreppsnefnd og
bæjarstjóm samfellt í 24 ár, Ingvi
Ebenhardsson, Guðmundur Sig-
urðsson, Öm Grétarsson og Guð-
finna Ólafsdóttir, sem er eina konan
í bæjarstjóminni.
Þeir bæjarfulltrúar sem að öllum
líkindum sitja áfram í bæjarstjóm
Selfoss em Guðmundur Kr. Jóns-
son, Grétar Jónsson, Steingrímur
Ingvarsson og Þorvarður Hjaltason.
Af þessum Qómm em einungis tveir
sem setið hafa sem aðalfulltrúar,
Guðmundur Kr. og Steingrímur.
Grétar kom inn í bæjarstjóm sem
varamaður Hafsteins Þorvaldsson-
ar og Þorvarður sem varamaður
Sigurjóns Erlingssonar. Af kjömum
bæjarfiilltrúum við sfðustu bæjar-
stjómarkosningar 1982 munu því
aðeins tveir sitja áfram í næstu
bæjarstjóm, verði kjörfýlgi fram-
boðslista svipað og þá var.
SigJóns.
<A
Þau hætta i bæjarstjórn: öra Grétarson, Ingvi Ebenhardsson, Guð
finna Ólafsdóttir, Óli Þ. Guðbjartsson og Guðmundur Sigurðsson
Að baki þeim hangir mynd af Tryggva Gunnarssyni.
Skáldsaga
eftir Doris
Lessing
í TELEFNI af komu Doris Less-
ing á Listahátíð hefur Forlagið
gefið út fyrstu skáldsögu höf-
undarins í þýðingu Birgis Sig-
urðssonar rithöfundar. I frétta-
tilkynningu frá Foriaginu segir
m.a.:
„Doris Lessing fæddist í Persíu
árið 1919. Fimm ára gömul fluttist
hún með breskum foreldram sínum
til Suður-Rhódesíu, þar sem hún
ólst upp í sveit, líkri þeirri sem hún
lýstir í Grasið syngur. Arið 1949
fluttist hún til Englands og ári síðar
kom út fyrsta skáldsaga henar sem
nú birtist á íslensku. Grasið syngur
vakti strax mikla athygli og var
brátt þýdd á fjöldamörg tungumál.
Sfðan hefur hróður höfundarins
vaxið með hverri nýrri skáldsögu,
sem nú telja tæpa tvo tugi. Doris
Lessing hefur verið sýndur marg-
víslegur sómi fyrir ritstörf sín. Hún
hefur hlotið verðlaun og viðurkenn-
ingar víða um heim og oftsinnis
verið orðuð við Nóbelsverðlaunin.
Hún er nú búsett í London.
Um efni bókarinnar segir á kápu-
baki: „Grasið syngur er saga
Mary, hvftrar konu f Rhódesfu, sem
FOPWGIÐ
kveður tilbreytingarlaust líf í borg-
inni og hafnar f gæfusnauðu hjóna-
bandi með bónda nokkram. Hún
hefur andúð á lífinu í sveitinni og
lítur niður á þá innfæddu. Af of-
stækisfullri hörku snýst hún gegn
svörtum þjóni sfnum sem hún bæði
laðast að og fyrirlítur, uns valdið
snýst að lokum í höndum henn-
ar... Grasið syngur vitnar um
djúpan mannskilning og tilfinninga-
hita þessa mikla rithöfundar. Doris
Lessing lýsir sambandi hvítra og
svartra af hreinskilni og vægðar-
leysi en einstæðri réttlætiskennd."
Grasið syngur er 200 bls., unnin
í Prentsmiðjunni Odda hf. Ragn-
heiður Krisfjánsdóttir hannaði
kápu. Bókin er gefín út með styrk
úr Þýðingarsjóði.
^fvierra
Laugavegi 28,101 Reykjavik, símar 29740 -
621740. Kvöld- og helgarsfml 82489.
Sértilboð
Nú seljum við síðustu 12 sætin til
Hótel með hálfu fæði kr. 24.700 pr. mann í tvíbýli.
Hótel með fullu fæði kr. 25.900 pr. mann í tvíbýli.
íbúðagisting: Dæmi um verð: Hjón með 3 börn undir 12 ára aldri
greiða kr. 91.900 fyrir alla fjölskylduna.
Góðir gististaðir og vel staðsettir nálægt ströndinni
• og örstutt frá öllum helstu veitinga- og skemmtistöðum
á Rimini.
SACHS
Högg
deyfar
V-þýsk
gæðavara