Morgunblaðið - 18.11.1986, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1986
„Umræður byggð-
ust á bjartsýni“
- sagði Þorsteinn Pálsson að loknum
flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins
FLOKKSRÁÐSFUNDI Sjálfstæð-
isflokksins lauk undir kvöld á
laugardag með samþykki stjórn-
málaályktunar. Voru flokksráðs-
menn ánægðir með fundinn, en
hann var lokaður f réttamönnum.
„Þetta var mjög góður fundur og
umræður byggðust á bjartsýni manna
um það að við gætum haldið áfram
á þeim grundvelli sem lagður hefur
verið," sagði Þorsteinn Pálsson for-
maður Sjálfstæðisflokksins í samtali
við Morgunblaðið að afloknum
flokksráðsfundi.
Þorsteinn sagði að í stjómmála-
ályktun þeirri sem samþykkt var á
fundinum kæmi fram ótviræður
stuðningur við þá efnahagsstefnu
sem fylgt hefur verið og leitt hefði
til meira jafnvægis og betri kaup-
máttar en áður. Áhersla væri Iögð
á, að áfram yrði haldið á þeirri braut
og að menn misstu ekki þann árang-
ur sem náðst hefur úr greipum sínum.
„Ég nefni líka stuðning við þær
hugmyndir sem uppi eru um heildar-
uppbyggingu á nýju skattkerfí og í
þriðja lagi þá nefni ég ótvíræðan
stuðning við þær tillögur sem fram
eru komnar um að stofnaður verði
hér öflugur einkabanki," sagði Þor-
steinn, „í framhaldi af því áfalli sem
við höfúm orðið fyrir með Útvegs-
bankann."
Þorsteinn var spurður hvort hann
teldi raunverulega ástæðu til bjart-
sýni, þegar höfð væri í huga niður-
staða skoðanakönnunar um fylgi
stjómmálaflokkanna, frá því í síðustu
viku, en samkvæmt henni missir
Fjörutíu punda hængnr
Páll Gústafsson, framkvæmda-
stjóri fiskeldisstöðvarinnar
ÍSNÓ hampar hér rúmlega 40
punda hæng sem alinn var í
lóni stöðvarinnar í Keldu-
hverfi. Hann var valinn ásamt
öðrum laxi árið 1982 með þvi
augnamiði að hann mætti nota
til undaneldis. Þegar fram liðu
stundir kom í ljós að það átti
ekki fyrir laxinum að Iiggja að
verða kynþroska. „Hann dó
núna um helgina, líklega vegna
þess hnjasks sem hann hefur
orðið fyrir þegar við höfum
verið að háfa laxana til kreist-
inga,“ sagði Páll. „Þegar laxar
eru orðnir svona stórir verða
þeir mjög viðkvæmir og þarf
lítið að bera útaf til þess að
þeir gefi upp öndina." Á mynd-
inni gefur einnig að líta tvær
stúlkur Völu Pálsdóttur (t.v.)
og Guðrúnu Tinnu Ólafsdóttur
og sést stærð laxsins í samban-
burði við þær. í lóni þvi sem
laxinn yfirgaf eru að sögn Páls
Uðlega 4000 fiskar til undaneld-
is, af báðum kynjum.
Sjálfstæðisflokkurinn talsvert fylgi í
tveimur stærstu kjördæmum landsins
Reykjavfk og Reykjanesi:„Það er auð-
vitað verulegt áfall ef kosningaúrslit
verða í samræmi við þessa könnun
og sú vísbending sem þama kemur
fram veldur okkur vissulega áhyggj-
um,“ sagði Þorsteinn. Hann sagði á
hinn bóginn að kjami málsins væri
sá að breytt efnahagsstefna og betri
ytri aðstæður í þjóðarbúskapnum
hefðu leitt til þess að þjóðin gæti
horft með verulegri bjartsýni fram á
við.
„Það er fyrst og fremst sú pólitíska
stefna sem Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur lagt í þetta stjómarsamstarf, sem
hefur skilað þeim árangri. Þess vegna
getum við lagt okkar mál undir dóm
kjósenda með fullri reisn og höfum
málefnalega ástæðu til þess að vera
bjartsýnir. Við skulum spyija að
leikslokum," sagði Þorsteinn, „Við
verðum ekki dæmdir í skoðanakönn-
unum, heldur í kosningum. Úrslit
þeirra verða á annan veg, en þessi
alvarlega vísbending gefur tilefni til.“
MorKunblaðið/Sigurgeir
Stálþilið gekk inn og kom stórt gat á það þannig að jarðvegur rann
------------------ í sjóinn og bryggjudekkið féll niður á kafla.
Milljónatjón þegar Lax~
foss sigldi á bryggjukant
Vestmannaeyjum.
STÓRTJÓN varð á Naustham-
arsbryggju í Vestmannaeyjum
þegar Laxfoss sigldi á bryggjuna
laust eftir klukkan 5 í gærmorg-
un. Skipið renndi beint á austur-
enda bryggjunnar þegar það
kom siglandi á hægri ferð inn
úr hafnarmynninu og kom stórt
gat á stálþil bryggjunnar svo
mikið af jarðvegi rann út í höfn-
ina og bryggjudekkið hrundi
niður á all stórum kafla. Engar
skemmdir voru sjáanlegar á Lax-
fossi eftir áreksturinn og hélt
skipið áfram ferð sinni til
Reykjavíkur eftir losun. Hafn-
sögumaður var um borð i skip-
Sighvatur Amarsson, bæjar-
tæknifræðingur, sagði í samtali við
Morgunblaðið að þama hefði orðið
milljóna tjón. Manngengt gat kom
á bryggjuþilið sem nær niður fyrir
sjólínu á stórstraumsfjöru. Sagði
Sighvatur að hver metri í nýju stál-
þili kostaði um 200 þús. kr. og þilið
væri ónýtt á um 5 metra löngum
kafla. Perustefni skipsins fór í
gegnum þilið og lenti á ljósamast-
urshúsi sem steypt var niður í
bryggjuna. Masturshúsið gekk inn
og braut upp malbikað bryggju-
dekkið og gólf í hrognatökuhúsi
FES þama á bryggjunni. Mikið af
jarðvegi rann út um gatið og út í
höfnina, bryggjudekkið hrundi nið-
ur svo myndaðist stór gjóta.
Öll tæki í hrognatökuhúsinu fóm
meira og minna úr skorðum og nið-
urgrafin hráolíuleiðsla í bryggjunni
fór í sundur svo olían vætlaði upp
um gólf hússins. Rafmagn fór af
bryggjunni og mun það valda töfum
á loðnulöndun. Ljósamastur keng-
bognaði og fjarlægja varð masturs-
húsið úr gjótunni áður en
bráðabirgðaviðgerð gat hafist.
Ekki er ljóst hvað olli þessari
ásiglingu. Veður var gott en há-
flæði og mikið sog í höfninni. Þegar
ljóst var að hveiju stefndi létu skip-
veijar bæði ankeri skipsins falla og
settu á fulla ferð afturábak.
Því má bæta við að fyrr á þessu
ári sigldi Laxfoss á Þómnni Sveins-
dóttur VE í Vestmannaeyjahöfn og
olli miklu tjóni. Sjópróf munu fara
fram í Reykjavík.
- hkj.
Ellefu innbrot í
skóla upplýst
síðan í ágúst
BROTIST var inn í tvo skóla í
Reykjavík um helgina og unnin
mikil skemmdarverk.
Á sunnudagsmorgun var tilkynnt
um innbrot í Ölduselsskóla. Þar höfðu
átta hurðir verið eyðilagðar með öllu
og að auki hafði dyraumbúnaður um
allan skóla verið skemmdur verulega.
Litlu sem engu var þó stolið. Þá var
einnig brotist inn í Langholtsskóla,
en lögreglan náði þar fjómm piltum
áður en þeir höfðu gert mikið af sér.
Samkvæmt upplýsingum Rann-
sóknarlögreglu ríkisins hafa 11
innbrot í skóla á höfuðborgarsvæðinu
verið upplýst síðan í ágúst. Þeir sem
þessa iðju stunda em flestir á aldrin-
um 15-17 ára.
Suðurey VE við bryggju á Eskinrði
Morgunblaðið/Ingólfar Friðgeireson
Eldur í Suðurey YE
Eskifirði.
ELDUR kom upp í vélarrúmi Vestmannaeyjabátsins Suðureyjar þar
sem hann var staddur á síldveiðum í mynni Reyðarfjarðar undir
kvöld á sunnudag. Gaus þegar upp mikill eldur svo að ekki var við
neitt ráðið og tók áhöfnin til þess ráðs að loka af vélarrumið ef það
mætti verða til þess að kæfa eldinn.
Áhöfn Suðureyjar var ekki í
inni hættu þar sem hún var sam-
komin í borðsal skipsins, en
lurinn gaus upp í matartíma skip-
ija. Gífurlegt eldhaf mjmdaðist
gar í vélarrúminu svo að ekki var
I komið neinu slökkvistarfi utan
byrgja eldinn af og var vélarrúm-
inu þegar lokað. Ljósavél bátsins
hélst í gangi eftir að vélarrúminu
hafði verið lokað og mun það hafa
hjálpað tii við að eyða súrefni frá
eldinum.
Nærliggjandi sfldarbátar komu
Suðurey til hjálpar og drógu hana
inn til Eskifjarðar þangað sem kom-
ið var um kl. 21.00 á sunnudags-
kvöld. Þá var eldurinn að mestu
kafnaður, en hafði þó náð að hita
svo gólf á neðra þilfari að talið var
að ekki hefði mátt miklu muna að
eldurinn læstist um það. Hefði þá
ekki verið að sökum að spyija að
hann hefði fljótt breiðst út um allt
skip. Skemmdir á Suðurey eru tald-
ar miklar, einkum á raflögnum
bátsins. Bráðabirgðaviðgerð fer
fram á Eskifírði þannig að sigla
megi bátnum til heimahafnar. Elds-
upptök eru ókunn. Ingólfur
Símalínum lögreglu
haldið uppteknum
SÍMALÍNUM lögreglunnar í
Reylqavík var haldið uppteknum
á laugardagskvöld og aðfaranótt
sunnudagsins. Einhverjir stund-
uðu þann leik að hringja í lögregl-
una, en þegar svarað var reyndist
enginn vera á linunni.
Grétar Norðfiörð, varðstjóri á fjar-
skiptamiðstöð lögreglunnar, sagði að
þessi ljóti leikur hefði byijað á laugar-
dagskvöld. „Fyrst hringdi síminn um
kl. 20 og ég svaraði, en það var eng-
inn á línunni. Skömmu seinna varð
félagi minn fyrir þessu sama og þetta
endurtók sig allt kvöldið," sagði Grét-
ar. „Við höfðum samband við
Landsslmann, en þeir hafa ekki næt-
urvaktir til þess að rekja síma um
helgar. Þá ákváðum við að halda einni
línu þar til á sunnudagsmorgun, svo
hægt væri að komast að því hvaðan
hefði verið hringt. Þegar klukkan var
orðin eitt eftir miðnætti fannst mér
ekki forsvaranlegt lengur að hafa
eina línu af fiórum upptekna, enda
gengur öiyggi borgaranna fyrir.
Þessu linnti þó ekki fyrr en um kl.
þijú um nóttina."
Grétar sagði að sjálfsagt hefðu
þeir sem þama voru að verki talið
sig vera að stríða lögreglunni. „Okk-
ur er engin stríðni í þessu, en þeir
sem þetta gera ættu að hugsa til
þess að hingað hringir fólk t.d. út
af slysum og bruna og það er auðvit-
að hræðilegt til þess að hugsa ef það
nær ekki sambandi við lögreglu. Jafn-
vel þótt við höfum ekki séð okkur
fært að halda línu til að láta rekja
hana þá verður það alveg örugglega
gert ef þetta kemur fyrir aftur. Það
er ekki hægt að líða það að öryggi
borgaranna sé stefnt í hættu,“ sagði
Grétar Norðfiörð að lokum.