Morgunblaðið - 18.11.1986, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1986
39
Þátttakendur i keppninni um titilinn „Stjama Hollywood".
Stjarna Hollywood krýnd á fimmtudag
Blaðamannafélag Islands:
Lýsa furðu sinni á
ummælum ráðherra
MORGUNBLAÐINU hefur boríst
ályktun sem samþykkt var á
stjómarfundi Blaðamannafélags
íslands hinn 13. nóvember sl.
Ályktunin hljóðar svo:
„Stjórn Blaðamannafélags ís-
lands lýsir furðu sinni á þeim
ummælum Matthíasar Bjarnasonar
viðskiptaráðherra á Alþingi 12. nóv-
ember 1986 að hann myndi styðja
setningu laga er skylduðu blaða-
og fréttamenn til að brjóta trúnað
við heimildarmenn sína. Það er til-
ræði við fijálsa fjölmiðlun að setja
í lög skyldu fjölmiðlafólks til að
gefa upp heimildir sínar fyrir frétt-
um. Mörg mál, sem hafa verið til
umræðu upp á síðkastið, svo sem
mál Hafskips, Útvegsbankans og
Hjálparstofnunar kirkjunnar, ættu
að vera nægur rökstuðningur fyrir
nauðsyn frjálsrar og gagnrýninnar
ijölmiðlunar á Islandi."
A
RU V á engan hlut
að könnun Hagvangs
RÍKISÚTVARPINU hafa borist fyrirspumir um aðild þess að skoð-
anakönnun meðal sjónvarpsáhorfenda sem Stöð 2 tilkynnti í frétta-
bréfi sl. föstudag, að gerð yrði á vegum Hagvangs nú um síðustu
helgi.
í fréttabréfí Stöðvar 2, sem Jón
Óttar Ragnarsson, sjónvarpsstjóri,
hefur undirritað, segir að Ríkisút-
varpinu verði boðin þátttaka í
umræddri könnun. Af þessu tilefni
skal tekið fram, að Ríkisútvarpinu
hefur ekki borist neitt slíkt boð og
á engan hlut að könnun Hagvangs.
Þess skal getið að Ríkisútvarpið er
ásamt Stöð 2, Bylgjunni og Sam-
bandi ísl. auglýsingastofa aðili að
íjölmiðlakönnun Félagsvísinda-
stofnunar háskólans og ber fullt
traust til hennar.
Virðingarfyllst,
Markús Orn Antonsson.
Hlébarðiiin í Tónabíó
STJARNA Hollywood 86 verður
kjörin og krýnd á „Gala-kvöldi“
í veitingahúsinu Broadway
fimmtudaginn 20. nóvember
næstkomandi.
Húsið verður opnað klukkan
19.00 með veitingum og konfekti.
Þáttakendur koma fram í sund-
bolum og síðum kjólum. Dansarar
frá Dansstúdíói Sóleyjar sýna nýjan
dans eftir Shairlene Blake. Síðan
munu Hollywood Models sýna nýj-
ustu vetrartískuna. Liberty Mount-
en frá Bandaríkjunum mun flytja
„Elvis Presley-sýningu" sína ásamt
hljómsveit sinni De Soto.
Sú sem hlýtur titilinn „Stjarna
Hollywood" hlýtur í verðlaun bfl af
gerðinni Lancia 1986. Önnur verð-
laun verða í formi fatnaðar, ferða-
laga, skartgripa og snyrtivara.
Ragna Sæmundsdóttir, Stjama
Hollywood 85, mun koma sérstak-
lega frá Japan, þar sem hún er við
störf, til að vera viðstödd krýningu
Stjömu Hollywood 86. Heiðurs-
gestir verða Gígja Birgisdóttir og
Hólmfríður Karlsdóttir.
Dómnefnd skipa Ólafur Laufdal
forstjóri, Þómnn Gestsdóttir rit-
stjóri, Karl Sigurhjartarson fram-
kvæmdastjóri, Ragna Sæmunds-
dóttir Stjama Hollywood 85 og Sif
Sigfúsdóttir Ungfrú Skandinavia
1985.
TÓNABÍÓ sýnir um þessar
mundir þýsk - ítölsku kvikmynd-
ina Hlébarðann. Handritið er
eftir Roy Nelson, kvikmyndun
annaðist Peter Baumgartner og
leikstjórn er í höndum Anthony
M. Dawson.
Sagan gerist í ríki einu í Suður-
Ameríku, þar sem spillt eninræðis-
stjórn ríkir af mikilli hörku. Óflugur
hópur skæmliða berst gegn þessari
óstjóm og er foringi þeirra „E1
Leopardo" eða hlébarðinn. Með að-
alhlutverk fara, Lewis Collins,
Klaus Kinski, Manfred Lehmann,
Cristina Donadio, John Steiner,
Hans Leutenegger og Subas Herr- *
era.
50 ár liðin síðan sjúkrahús-
ið á Húsavík tók til starfa
Klaus Kinski og Lewis Collins, sem fara með tvö aðalhlutverkin í
Hlébarðanum.
Sigríður Dúna Jóhanna Salóme
Alþingismenn og borgar-
fulltrúar á aðalfundi FEF
Húsavfk.
FIMMTÍU ár voru liðin i gær,
17. nóvember, frá því að sjúkra-
húsið á Húsavík tók til starfa,
en áður hafði þar verið rekið
sjúkraskýli, eins og segpr í göml-
um heimildum.
Árið 1912 gerðist það á Húsavík
sem ekki var ótítt á sambærilegum
stöðum að ekkja í þorpinu „tók að
sér geymslu á nokkmm sjúklingum
er þurftu nauðsynlega hér að vera
til lækninga," en treysti sér ekki
síðan til að halda þeirri starfsemi
TVÖ íslenzk fiskiskip seldu afla
sinn í Bretlandi og Þýzkalandi á
mánudag. Þau fengu bæði mjög
gott verð fyrir hann. Enginn
fiskur úr gámum var seldur í
Ólympíunefnd ís-
lands:
Drætti frestað
Ólympíunefnd hefur ákveðið að
fresta drætti um 20 daga eða til
5. desember nk. í happdrætti,
sem nefndin efnir til, til stuðn-
ings væntanlegum ólympíuför-
um. Nefndin þakkar velunnurun
og stuðningsmönnum fyrir þátt-
tökuna og hvetur söluaðila um
allt land til að gera skil nú þegar.
áfram „fyrir það gjald eitt er hægt
var að leggja á sjúklingana." Var
þetta til þess að á næsta ári veitti
sýslunefnd Suður-Þingeyjarsýslu
100 krónu styrk til þessarar starf-
semi gegn jafnháum styrk saman-
lagt frá nærliggjandi hreppum.
Þetta var upphaf sjúkrahúshalds á
Húsavík.
Margt hefur breyst til batnaðar
síðan að gamla sjúkrahúsið tók til
starfa því þá var aðeins starfandi
einn læknir á Húsavík og er fram-
Hull og Grimsby á mánudag, þar
sem komu gámaskips til Imming-
ham við Humberfljót seinkaði.
Hólmanes SU seldi 94,3 lestir,
mest þorsk og grálúðu í Hull. Heild-
arverð var 6.836.400 krónur,
meðalverð 72,52. Samkvæmt
enskum mælieiningum og gjald-
miðli fékk Hólmanesið 78,12 sterl-
ingspund á kit (62,5) kfló) og er
það næst hæsta meðalverð, sem
fengizt hefur á þessum markaði.
Metið á Kambaröst SU frá því fyrr
í haust. Meðalverð fyrir þorsk í afla
Hólmanessins var 75,65 krónur og
fyrir grálúðu 63,57.
Vigri RE seldi 212 lestir, mest
karfa og grálúðu í Bremerhaven.
Heildarverð var 12.549.000 krónur,
meðalverð 59,22. Þá voru óseldar
6 stórlúöur, en innihald kvikasilfurs
í slíkum fiskum er ætíð rannsakað
sérstaklega fyrir sölu.
kvæma þurfti skurðaðgerðir þurfti
aðstoðarlæknirinn að koma úr
næsta héraði, Breiðumýri. Nú eru
starfandi sex læknar við sjúkrahús-
ið og heilsugæslustöðina á Húsavík
sem eru til húsa í sömu bygging-
unni.
Fréttaritari
Kristín Á. Sigrún
FÉLAG einstæðra foreldra held-
ur aðalfund sinn miðvikudag 19.
nóvember kl. 21.00 stundvlslega
í Skeljahelli, Skeljanesi 6. Þar
flytur Jóhanna Krisljónsdóttir,
formaður FEF skýrslu stjómar-
innar, endurskoðaðir reikningar
liggja frammi og siðan fer fram
stjómarkjör.
Að loknum aðalfundarstörfum
munu gestir fundarins, alþingis-
mennimir Jóhanna Sigurðardóttir,
Salóme Þorkelsdóttir og Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir og borgar-
fulltrúamir Kristín Á. Olafsdóttir
og Sigrún Magnúsdóttir, segja
nokkur orð og til þeirra má síðan
beina fyrirspumum.
í skýrslu stjómar FEF verður
allrækilega gerð grein fyrir rekstri
neyðarhúsa félagsins, að Öldugötu
og í Skeljanesi en þar hafa um þrjú
hundmð fjölskyldur fengið húsnæði
til skamms tíma á rúmum fimm
ámm. Húsverðir þar nú em Helga
Kristinsdóttir, fóstmnemi, og Marta
Jörgenssen, ritari. Á döfinni hjá
FEF er einnig opnun verslunar, sem
verður á Laugavegi 34B. Þar er
meiningin að hafa á boðstólum
„flóamarkaðsvaming á háu plani“,
eins og fyrirsvarsmenn FEF orða
það. Ætti verslunin að geta orðið
FEF góður tekjustofn ef vel geng-
ur, en mikil greiðslubyrði vegna
húsakaupanna á Öldugötu á sl. ári,
hefur verið FEF þung í skauti.
Á aðalfundinum verða einnig af-
hent jólakort FEF og kaffi og
meðlæti verður fyrir gesti.
Fundarstjóri verður Jódís Jóns-
dóttir og fundarritari Ingibjörg
Jónasdóttir. Stjóm FEF væntir
þess, að sem flestir mæti á fundinn
og komi stundvíslega.
Hátt verð á f isk-
mörkuðunum