Morgunblaðið - 18.11.1986, Síða 20

Morgunblaðið - 18.11.1986, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1986 100 ára Afmælisreikningur Landsbankans er yfirburða ávöxtunarleið. Hann er verðtryggður og gefur að auki fasta 7,25% ársvexti. Samt er hann aðeins bundinn í 15 mánuði. Til dæmis samsvaraði ársávöxtunin frá afmælisdegi bankans 1. júlí sl., til septemberloka 19,9%. Stofnaðu Afmæiisreikiimg fyrir áramét Afmælisreikningurinn er bundinn við 100 ára afmæli Landsbank- ans. Þess vegna þarf að stofna hann áður en afmælisárinu lýkur um næstu áramót. Afmælisreikningurinn er innlánsform sem allir peningamenn geta mælt með. Peugeot hefur þegar tryggt sér heimsmeistaratitil bílaframleiðenda I rallakstri, en Finnarnir Juha Kankkunen á Peugeot og Marrku Alén á Lancia beijast um titil ökumanna. Peugeot 205 Turbo 16 Kankkunen er knúinn um 500 hestafla vél. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna 1100 ár fer fram fer í Englandi og lýkur 20. nóvember. Kokkurinn er Birgir Viðar Halldórsson, sem er kunnur rallökumaður. „Hugmyndin að þessu kom upp þegar Alistar Miller og Alan Douglas mynduðu Ljómarallið í sumar, en auk þess að vinna fyrir BBC reka þeir eigið myndbands- fyrirtæki. Var ákveðið að ég kæmi ásamt eldhúsbfl og eldaði ofan í þá, en þeir mynda RAC-rallið fyrir BBC,“ sagði Birgir í samtali fyrir Englandsferðina. “Ég verð staðsett- ur á flestum viðgerðarsvæðum, þar sem tugir keppnisbfla koma til við- gerða hveiju sinni. Það er mikið um að vera á svona stöðum, þús- undir áhorfenda streyma að til að sjá fagmannleg handtök, en mörg atvinnulið eru í keppninni", sagði Birgir. En hann er að gera fleira í þessari ferð. Eftir keppni sækir hann 300 hestafla Porsche 911 rally cross bíl til Folkstone. Verður það öflugasti rally cross bfllinn hérlend- is á næsta ári. „Ég ætla að reyna að hætta að keppa í rallakstri og fer því út í brautarkeppni eins og rally cross. En rallið hefur mikið aðdráttarafl, þess vegna fer ég og kokka ofan í þessa kappa í RAC- rallinu“, sagði Birgir. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson. Birgir tilbúinn i slaginn með pottasett og viðgerðarbíl sem breytt var í eldhúsbO. íslenskur eldhúsbíll á meðal meistaranna ÞAÐ ER harla óvenjulegt að kokkur með öllu hafurtaski sé pantaður frá íslandi tíl Englands til eldamennsku. Hvað þá að um sé að ræða kokk og sérstakan eldhúsbíl til eldamennsku í rall- keppni. En þetta er nú staðreynd, hvað varðar RAC-rallið, sem nú Morgunblaðið/Martin Holmes. BíU Alén er sömuleiðis knúinn tæplega 500 hestafla vél, en hann ekur fjórhjóladrifnum Lancia Delta S 4. Barist um titilinn á 500 hestafla bílum ÞAÐ er mikil barátta í RAC- rallinu í Englandi þessa dagana, sem lýkur 20. nóvember, en heimsmeistaratitill rallöku- manna er þar ( húfi. Peugeot hefur þegar tryggt sér heims- meistaratitU bOaframleiðenda, en finnamir Juha Kankkunen á Peugeot 205 Turbo 16 og Marrku Alén á Lancia Delta S 4 geta báðir hlotið titU ökumanna. Aðeins tvær keppnir eru eftir sem gilda til heimsmeistaratitils. Það verður þó engin hægðarleikur fyrir Kankkunen og Alén að ná árangri í RAC-rallinu. Um 150 keppendur eru í rallinu, þar af 10 ökumenn, sem gætu hæglega náð toppsæti. Það sem gerir keppnina óvenju áhugaverða er það að margir bflanna, sem þar keppa verða bann- aðir á næsta ári. Eru flestir bestu ökumenn heims því meðal keppenda til að taka þátt í svanasöng sér- hannaðra rallbfla frá Ford, Peugeot, Lancia og Leyland, sem ekki mega keppa á næsta ári. Allir eru þeir fjórhjóladrifnir og búnir 4-500 he- stafla vélum. Vegna hraðans og flókins tæknibúnaðar þykja þeir vera of hættulegir og RAC-rallið er þeirra síðasta keppni í Evrópu. Á hveiju ári fylgjast meir en tvær milljónir áhorfenda með keppninni auk tvö þúsund fréttamanna, frá öllum heimshlutum. Alén og Kankkunen hafa báðir sigrað nokkrar keppnir á þessu ári, en sá síðarnefndi hefur þó sýnt meiri yfírvegun. í síðustu keppni, sem fram fór á Ítalíu vann Alén eftir að Peugeot Kankkunen hafði verið dæmdur úr leik ásamt öðrum Peugeot bflum, fyrir að vera með ólöglega hlífðarpönnu. Varð það mikið hitamál sem setur meiri hörku í keppendur fyrir RAC-rallið. í mörg ár hefur Alen verið nærri tit- ilnum og verður því grimmur, en Kankkunen mun ekkert gefa eftir og virðist rólegri í keppnum. Tauga- stríðið verður í algleymingi og spuming hvor heldur haus. Greinargerð — í tilefni af uppsögn minni sem formanns stjórnar Hjálparstofnunar kirkjunnar eftirErling Aspelund Málefni Hjálparstofnunar kirkj- unnar hafa verið mjög í sviðsljósi að undanfömu. Síðastliðin tvö ár hef ég gegnt formannsstöðu í stjóm þessarar stofnunar og nafn mitt hefur því eðlilega tengst þessu máli. Það hef- ur fallið mér þungt að reynt hefur verið að sverta það og jafnvel hefur verið gefíð til kynna að ég hafí auðgast á þessu (sbr. DV 13.11. ’86). Sumir fjölmiðlar hafa fjallað þannig um þetta að hjálparstarfíð hlýtur að bíða hnekki af. Og nú hafa málin snúist þannig að þeir sem á hjálp þurfa að halda fá hana ekki við óbreyttar aðstæð- ur._ Ég lagði fram á fundi með fram- kvæmdanefnd Hjálparstofnunar kirkjunnar þann 10. nóvember sl. eftirfarandi tillögur. 1. Nýkeypt hús í Engihlíð yrði selt. 2. Skiþt yrði um endurskoðanda. 3. Bókhald gæfi betri upplýsingar. 4. Framkvæmdastjóri segði af sér. 5. Framkvæmdanefnd segði af sér. 6. Stjómarformaður segði af sér. Með þessum tillögum taldi ég mig opna leið til að skapa á ný það traust, sem Hjálparstofnuninni er nauðsynlegt til að geta unnið köll- unarverk sitt með árangri. Því miður náðu þessar tillögur ekki fram að ganga, nema að hluta. Ég ætlaði að framkvæma síðasta lið tillagnanna, en lét hins vegar undan beiðni framkvæmdanefndar- manna um að sitja áfram. Ég hef nú komist að raun um að það var ekki rétt og hef því sagt af mér formennsku með bréfi til biskups dags. 14.11. ’86. Stjóm sú, sem ég hef veitt for- mennsku, er skipuð 15 fulltrúum prófastsdæma landsins, 9 mönnum sem Kirkjuráð skipar og svo er bisk- up íslands sjálfkjörinn og er ævinlega varaformaður. Úr þessum 25 manna hópi em siðan kosnir 3 menn í framkvæmdanefnd og 2 til vara til eins árs í senn. Það er framkvæmdanefndar að annast ákvörðunartekt, sem hún svo felur framkvæmdastjóra og starfsliði öðru að útfæra. Stjómarformaður á ekki sæti í Erling Aspelund framkvæmdanefnd, en situr þó fundi öðm hvom. Hlutverk hans er að stjóma árlegum aðalfundi hinnar stóm stjómar, sem er nánast eins og trúnaðarmannaráð í verkalýðs- félagi, ráðgefandi aðili í meiri háttar málum og fyrir hana em lagðir ársreikningar og starfs- skýrsla framkvæmdanefndar. Auk þess að stjóma þessum árs- fundum er það hlutverk formanns að koma fram f.h. stofnunarinnar út á við. Framkvæmdanefndin semur um laun framkvæmdastjóra (149. lfl. BHM) en á þessum launum em ýmsir framkvæmdastjórar hjá opin- bemm stofnunum. Framkvæmda- stjórinn semur svo aftur við starfsmenn að höfðu samráði við framkvæmdanefnd. Komi upp gagnrýni á starf stofn- unarinnar fellur það í hlut formanns að svara þar fyrir. Undan því hef ég ekki vikist. En e.t.v. má gagn- rýna mig fyrir að hafa ekki verið nægilega vakandi á verðinum gagn- vart þeim atriðum, sem nú em mest um töluð. Það hefur hins veg- ar ekki verið venja samkvæmt þeirri starfsreglu, sem ríkt hefur, og sú regla hefur trúlega um of mótað starf mitt. Sjálfur hef ég aldrei tekið við einum eyri, hvorki stjómarlaunum né dagpeningum frá Hjálparstofn- uninni. Mig langaði til að gefa eitthvað af frítíma mínum í þágu minnstu bræðranna í samfélaginu. 7,25% fastir árs\ extir tmifram vfeátdlii aitan buidttummii

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.