Morgunblaðið - 18.11.1986, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.11.1986, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1986 Má ég í fang þér færa Hljómplötur Egill Friðleifsson Fyrir nokkru kom út hljómplata er ber titilinn „Má ég í fang þér faera" og hefur að geyma 24 söng- lög eftir Selmu Kaldalóns. Söngvaramir, sem flytja lögin, eru Kristinn Sigmundsson, Elísa- bet F. Eiríksdóttir, Elín Sigurvins- dóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson og Guðrún Tómasdóttir. Undirleikar- ar eru þeir Jónas Ingimundarson og Ólafur Vignir Albertsson. Allt eru þetta þjóðkunnir listamenn og hefur auðsjáanlega verið van- dað til plötunnar eftir föngum. Selma Kaldalóns fæddist árið 1919, dóttir hjónanna Margrethe og Sigvalda S. Kaldalóns tón- skálds, sem stundum hefur verið nefndur hinn íslenski Schubert. Hún ólst því upp á menningar- heimili, þar sem tónlistin sat í öndvegi. „Ég vaknaði oftast við músík á morgnana og sofnaði við músík á kvöldin" er haft eftir Selmu og þau áhrif er hún varð fyrir í æsku fylgdu henni alla æfi. Selma nam píanóleik hjá föð- ur sínum og Else Stender og síðar um eins árs skeið við Tónlistar- skólann í Reykjavík. En lengst af var Selma önnum kafin hús- móðir á bammörgu heimili þar sem tónlistin var iðkuð í stopulum frístundum. „Tónlistin átti mjög sterk ítök í henni og hún spilaði mikið á hverjum einasta degi“ er haft eftir Jóni Gunnlaugssyni lækni, eiginmanni Selmu, en þeim hjónum varð níu bama auðið, svo nærri má geta að á því heimili var í mörg hom að líta. í lagasmíð sinni getur Selma Kaldalóns hvorki talist frumleg né nýjungagjöm. Hún fetar dyggilega vegi hefðarinnar og fínnur ekki hvöt til að breyta þar um. Áhrif foðurins em augljós, en þar er ekki leiðum að líkjast. Lögin em haganlega gerð, falla yfírleitt ágætavel að textunum og þar sem henni tekst best upp glitt- ir í ótvíræða skáldgáfu. Lögin bera með sér ást Selmu til tónlist- arinnar og ríka tjáningarþörf. Selma Kaldalóns var tónelsk í þess orðs bestu merkingu. Hún er einlæg og sönn í tjáningu sinni. Um það efast enginn, sem heyrir þessi lög. Sem fyrr segir koma fram fímm valinkunnir söngvarar og tveir af okkar reyndustu undirleikumm á þessari piötu. Það er óþarfí að gera þar upp á milli. Öll skila þau ágætu verki og flytja þessi lög Selmu Kaldalóns af alúð og smekkvísi. Sömuleiðis verður ekki fjallað um einstök lög af þeim 24 sem á plötunni em. Þau bera tón- elsku höfundarins fagurt vitni og falla vel að hrynjandi ljóðanna sem fyrr segir. Upptöku annaðist Halldór Víkingsson og tókst all- vel, þó áferðin sé dálítið mött. Umslagið er prýtt mynd eftir Selmu Kaldalóns sjálfa, en um útlit umslags sá Sigurþór Jakobs- son. Jon Gunnlaugsson á þakkir skildar fyrir að koma lögunum á framfæri og áreiðanlega verður platan fengur þeim, sem unna ljúfum lögum, því það em þau öll með tölu. Selma Kaldalóns tónskáld. DRAUMASIQLING UM KARABISKA HAFID Sigling um Karabíska hafið er stórkostleg upplifun sem hefst með beinu flugi til Orlando. Þaðan er flogið til Miami og lagt upp í sjö daga ógleymanlega siglingu um Karabíska hafið með viðkomu á Bahamaeyjum, Puerto Rico og hinum óviðjafnanlegu Jómfrúareyjum. Skipið er 48 þúsund tonna sælustaður með þremur sund- laugum, spilavíti, tveimur næturklúbbum, diskóteki, heilsu- rækt, tennisvöllum og aðstöðu fyrir golf, svo lítið sé nefnt. Matsveinarnir um borð eru sannir listamenn og aö sjálfsögðu eru allar máltfðir innifaldar í verðinu. Íburður, fjör og ferskleiki eru einkunnarorð ferðarinnar því fjörið er alls ekki á enda þegar siglingunni lýkur. Þá eru eftir 4 dagar í Orlando með heimsókn í Sea World, Epcot Center og Disney World. Síðasti leikur ferðarinnar er viku afslöppun í St. Petersburg undir Floridasól eins og hún gerist best. Þar er gist á Alden hótelinu sem margir íslendingar þekkja. Einnig er hægt að dvelja á Florida án þess að sigla um Karabíska hafið, þá er slappað af og lífsins notið í 18 daga á Alden hótelinu. Brottfarír eru 13/12, 1/1, 17/1, 22/1 og 29/1. ' Innifalit5 (öllum veröum er flug og gisting (2ja manna (búöum /herb. Flugvallaskattur er ekki innifalinn. FERÐASKRIFSIOFAN POLAR/S ^ Kirkjutorgi4 Sími622 011 Iferð í 18 daga ferð frá kr. 64.500,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.