Morgunblaðið - 18.11.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1986
3
Morgunblaðið/Úlfí
Forval Alþýðu-
bandalagsins í
Suðurlandskj ör-
dæmi:
Margrét
Frímanns-
dóttir hæst
MARGRÉT Frímannsdóttir á
Stokkseyri varð hæst í fyrri
umferð forvals Alþýðubanda-
lagsins í Suðurlandskjördæmi,
sem fram fór um helgina. 191
tók þátt í forvalinu, gild atkvæði
voru 182 og hlaut Margrét at-
kvæði 163.
Ragnar Óskarsson í Vestmanna-
eyjum varð annar í forvalinu og
fékk 96 atkvæði. Margrét Guð-
mundsdóttir, Vatnsskarðshólum
varð næst með 60 atkvæði. Þá kom
Unnar Þór Böðvarsson, Reykholti,
með 51 atkvæði og Anna Kristín
Sigurðardóttir á Selfossi hlaut 45
atkvæði.
Síðari umferð forvalsins fer fram
4.-5. desember næstkomandi.
ísafjörður:
Brimið þeytti
þara og grjóti í
gegnum gluggann
ísafirði.
MIKIÐ BRIM gerði á norðanverðum Vestfjörðum um helgina. Á
morgunflóðinu á sunnudag náði það hámarki á ísafirði. Aðeins er
þó vitað um skemmdir á einu húsi hér i briminu, er þari og gijót
gekk inn um kjallaraglulgga á Oldunni, gömlu járnslegnu timbur-
húsi, sem stendur við ofanvert Fjarðarstræti.
Höskuldur Guðmundsson sem
þar býr sagði fréttaritara, að hann
hefði verið að þurrka upp sjó af
kjallaragólfinu um hálf sjöleytið á
sunnudagsmorgninum, þegar alda
braut þar glugga og þeytti þara og
gijóti inn svo buldi í veggnum and-
spænis glugganum.
Höskuldur taldi að þetta væri
mesta brim sem þama hefði komið
síðan hann flutti í húsið 1953. Hann
sagðist vera búinn að gefast upp á
að biðja bæjaryfírvöld um að ganga
ftá brimvöm þama fyrir framan,
þeir ypptu vanalega öxlum og segðu
að engir peningar væru til. „Ég hef
verið að laga til í kringum mig og
hef tyrft á hveiju sumri norðanvert
við húsið, en brimið hefur alltaf séð
fyrir þvf næsta vetur, þótt aldrei
hafí það verið í líkingu við það sem
nú var,“ sagði Höskuldur Guð-
mundsson.
Mjög mikill þari er í allri fjörunni
norðanvert á Skutulsfjarðareyri,
sem hreinsa þarf áður en flugur
fara að lifna.
Úlfar.
Höskuldur Guðmundsson til hægri, eigandi hússins og Gunnar Þórð-
arson yfirfiskimatsmaður kanna skemmdirnar á húsinu — Öldunni.
Austurstræti 22 — Laugavegi 30 — Laugavegi 66
Sími frá skiptiborði 45800
Glæsibæ.
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
Fataval, Keflavik — Mata Hari, Akureyri — Nina, Akranesi — Sparta,
Sauðárkróki — Adam og Eva, Vestmannaeyjum — Eplið, ísafirði — Bár-
an, Grindavík — Homabær, Höfn i Homafirði — Lindin, Selfossi —
Nesbær, Neskaupstað — ísbjörninn, Borgamesi — Þórshamar, Stykkis-
hólmi — Viðarsbóð, Fáskrúðsfirði — Kaupfélag Húnvetninga, Hvamms-
tanga — Kaupfélag Rangæinga, Hvolsvelli — Díana, Ólafsfirði — Skóg-
ar, Egilsstöðum — Zikk Zakk, Garöabæ.