Morgunblaðið - 18.11.1986, Síða 44

Morgunblaðið - 18.11.1986, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1986 Frá aðalfundi Vcrkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins. Guðmundur H. Garðarsson í ræðustól. Aðalfundur Verkalýðs- ráðs Sjálfstæðisflokksins Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins hélt aðalfund sinn 25. og 26. október sl. á Akureyri. Þetta er í fyrsta skiptið í 30 ár sem aðalfund- urinn er haldinn á Akureyri. Sigurður Óskarsson, Hellu var endurkjörinn formaður ráðsins, 1. varaformaður Sverrir Garðarsson, Reykjavík og 2. varaformaður Magnús L. Sveinsson, Reykjavík. Þá voru kjörnir 52 aðrir sljórnar- menn. Stjórn Verkalýðsráðs kýs síðan framkvæmdastjórn. fatlaða á frjálsum vinnumarkaði og fjölgað verði vemduðum vinnustöð- Á aðalfundinum voru samþykkt- ar ályktanir um kjara- og atvinnu- mál, einnig var samþykkt tillaga til miðstjómar Sjálfstæðisflokksins ' um að taka prófkjörsreglur flokks- ins til gagngerrar endurskoðunar. Á fundinum flutti Þorsteinn Páls- son formaður Sjálfstæðisflokksins ræðu um stjómmálaviðhorfíð í upp- hafi þings. Guðmundur H. Garðars- son flutti ræðu um lífeyrismál og Halldór Blöndal um húsnæðismál. Hér á eftir fer ályktun um kjara- og atvinnumál er samþykkt var á fundinum: Ályktun um atvinnu- og- kjaramál Aðalfundur Verkalýðsráðs Sjálf- stæðisflokksins haldinn 25. og 26. október 1986 leggur nú sem áður áherslu á nauðsyn þess að dag- vinnutekjur nægi til framfærslu meðalfjölskyldu. Með ömm vexti þjóðarfram- leiðslu, bættum þjóðarhag og al- hliða framfömm verður ekki vikist undan þessari réttmætu kröfu. Leggja ber höfuðáherslu á fulla atvinnu fyrir alla vinnufæra menn, aukið átak verði í vinnumiðlun fyrir um. Verkalýðsráð fagnar þeim árangri sem náðst hefur í hjöðnun verðbólgu og minnir á þátt laun- þega í þeim árangri. Laun lágtekju- fólks em ekki verðbólguhvetjandi, því ber að hafa að leiðarljósi í öllum efnahagsaðgerðum að þeir sem verst era settir líði ekki skort. Verkalýðsráð leggur áherslu á að enn verði aukið verðlagseftirlit launþegasamtakanna, sem frá síðustu samningagerð hefur skilað vemlegum árangri neytendum til góða. Með þeim kjarasamningum sem gerðir vom í febrúar sl. milli ASÍ og VSÍ og BSRB og ríkisvaldsins tókst þjóðarsátt í erfíðri kjaradeilu. Á samningstímabilinu til loka þessa árs hækka grunnlaun um rúm 13% auk þess sem sérstakar efna- hagsaðgerðir ríkisstjómarinnar áttu að koma öllum til góða og skiptu þá langmestu máli áhrifin af hraðminnkandi verðbólgu. Á síðustu mánuðum hafa ein- stakir hópar launþega gert samn- inga við vinnuveitendur sem fela í sér enn frekari launahækkanir. Því miður vom of fáir úr lágtekjuhópum á meðal þeirra. Þegar stórauknar þjóðartekjur em staðreynd, verður að kappkosta að allir fái sinn skerf af þjóðarkökunni. Ekki á að una við a sérhagsmunahópar í sterkri aðstöðu hrifsi of mikið til sín. Því ber að stefna enn á ný að þjóðar- sátt um sérstakar kjarabætur til lágtekjuhópa. Við gerð febrúarsamninganna mátti sjá að halli yrði á ríkissjóði. Því stenst ekki gagnrýni stjómar- andstöðunnar á fjárlagafmmvarp- inu nú, nema hún beinist að því að um of miklar kjarabætur hafí verið að ræða í febrúarsamkomulaginu. Verkalýðsráð leggur áherslu á að tekjuskattur verði einn. Hann komi í stað núverandi tekjuskatts og útsvars. Hann verði lagður á sem eitt skatthlutfall á allar tekjur, en tekjulægri hópum og þeim sem framfærslu hafa af tekjulausum fjölskyldumeðlimum verði endur- greidd útgjöld þeirra vegna. Félagslegar umbætur, aukin umönnun og hjúkmn aldraðra og öryrkja í heimahúsum verður að aukast og aðstandendum verði greitt fyrir umönnun þeirra. Aðalfundurinn leggur áherslu á verkmenntun á öllum sviðum at- vinnulífsins. Fjárframlög í þessu skyni verði svo rífleg að þau skipi sama sess og fjárframlög til svokall- aðrar æðri menntunar í landinu. Rallökumenn til Frakklands „SKYNSEMIN ER alltaf ofar öllu, þegar maður fer á ókunnar slóð- ir. Við stílum inn á það að ná árangri í okkar flokki, sem er fyrir óbreytta bíla“, sagði Úlfar Eysteinsson, en hann ásamt Hafsteini Aðalsteinssyni keppir í rallkeppni á Frönsku rivierunni dagana 28.-29. nóvember. Aka þeir óbreyttum Audi Quattro 80, sem þeir leigja í Vestur-Þýskalandi. Keppnin nefnist Rally du Var og er í Evrópumeistarakeppninni. Verða hátt í fjögur hundmð kepp- endur í rallinu, margir fremstu ökumenn Evrópu og fer keppnin fram í grennd við Cannes og Monte Carlo. Em allar sérleiðimar á mal- biki. „Hafsteinn fer til að ná sér í ákveðin akstursréttindi fyrir næsta ár“, sagði Úlfar „hann þarf ein- göngu að ljúka keppninni. Hann hefur reynt tvisvar áður en verið óheppinn, í annað skiptið fór hann útaf en bíll hans bilaði í hitt skipt- ið. Nú er hann ákveðinn að ljúka keppni. Mér líst vel á keppnina, þó ég sé að fara í fyrsta skipti erlendis í rallkeppni. Eg kvíði mest að Frakkar verði erfíðir í samskiptum, þeir em tregir til enskunnar og líklega verðum við duglegir að skýra hlutina með handapati". Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson. Hafsteinn og Úlfar keppa i Audi Quattro 80 í rallkeppni í Frakk- landi. Þeir hafa í tveim síðustu keppnum hérlendis náð þriðja sæti á Ford Escort RS. Háskóla tónleikar á miðvikudag FIMMTU háskólatónleikarnir á haustmisseri verða haldnir i Norræna húsinu miðvikudaginn 19. nóvember. Að þessu sinni leikur Blásarakvintett Reykjavíkur en það hefur verið fastur liður hjá honum að koma fram á Háskólatónleikum. Kvint- ettinn skipa: Bernharður Wilkin- son flauta, Daði Kolbeinsson óbó, Einar Jóhannesson klarinett, Joseph Ognibene hom og Haf- steinn Guðmundsson fagott. Verkin sem flutt verða em Blás- arakvintett í A-dúr op. 68 nr. 1 eftir Franz Danzi og Le Tombeau de Couperin eftir Maurice Ravel. Tónleikamir heijast kl. 12.30 og standa í um það bil hálfa klukku- stund. Blásarakvintett Reykjavíkur | raðauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar Hafnarfjörður Verkakvennafélagið Framtíðin Tillögur stjórnar og trúnaðarmannaráðs fé- lagsins um stjórn og aðrar trúnaðarstöður fyrir árið 1986 liggja frammi á skrifstofu fé- lagsins Strandgötu 11, frá og með þriðjudeg- inum 18. nóv. til fimmtudagsins 20. nóv. til kl. 17.00. Öðrum tillögum ber að skila fyrir kl. 17.00 fimmtudaginn 21. nóv. og er þá framboðs- frestur útrunninn. Tillögum ber að fylgja meðmæli 20 fullgildra félagsmanna. Verkakvennafélagið Framtíðin. Orðsending til sauðfjár- bænda frá landbúnaðar ráðuneytinu og Fram- leiðnisjóði landbúnaðarins Frestur til að gera samning um sölu og/eða leigu á fullvirðisrétti er framlengdur til 30. nóv. 1986. Jafnframt er vakin athygli á C-lið 12. gr. bú- vörusamnings um að Framleiðnisjóður bæti sauðfjárbændum afurðir vegna samnings- bundinnar fækkunar sauðfjár. Til þess að öðlast þennan rétt skal viðkomandi bóndi skuldbinda sig til að fjölga eigi ásettu fé til ársloka 1988. 14. nóvember 1986. Landbúnaðarráðuneytið. Framleiðnisjóður landbúnaðarins. Tilkynning um hundahreinsun í lögsagnarumdæmi Kópavogskaupstaðar Hundahreinsun fer fram í dag þriðjudaginn 18. nóvember 1986 kl. 17.00-19.30 í birgða- stöð Kópavogskaupstaðar að Kársnesbraut 68 (sama stað og í fyrra). Allir Kópavogsbúar sem eiga hunda eru skyldugir til að koma með þá til hreinsunar sbr. lög nr. 7 frá 1953, reglugerð nr. 201 frá 1957 og gildandi sam- þykkt um hundahald í lögsagnarumdæmi Kópavogs frá 1983. Komið tímanlega með hundana til hreinsunar. Heilbrigðiseftirlit Kópavogs.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.