Morgunblaðið - 18.11.1986, Side 49

Morgunblaðið - 18.11.1986, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1986 49 Stjörnu- Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Kæri stjömuspekingur. Vildur þú vera svo góður að lesa úr korti mínu. Ég er fædd 4.6.'60 kl. 19 í Reykjavík. Einnig hefði ég áhuga á að vita hvaða áhrif stjömumar hafa á líf mitt nú og á næstunni. Með fyrir- fram þökk. Tvíburi." Svar: Þú hefur Sól og Venus í Tvíbura í 7. húsi, Tungl í Vog í ll. húsi, Merkúr í Krabba í 8. húsi, Mars í Hrút í 6. húsi, Sporðdreka og Neptún- us Rísandi og Plútó og Meyju saman á Miðhimni. Félagsmál Það leikur enginn vafí á því að þér hentar best að vinna að félagsmálum. Samvinna við annað fólk, upplýsinga- miðlun og einhverskonar móttaka og hópsamvinna á vel við þig. Þú verður þreytt, leið og slöpp ef þú hefur ekki mikið af fólki í kringum þig og tekur þátt í fjölbreytilegu félagslífí. Veikleikar Það sem getur háð þér er að merkin sem snúa út á við, Rísandi Sporðdreki og Meyja á Miðhimni, em bæði lokuð og dul. Því er sú hætta fyrir hendi að framkoma þín sé lokaðri en þinn innri maður segir til um. Þér getur því hætt til að bæla þig niður. Auk þess fylgir Rísandi Nep- túnusi næmleiki sem getur haft þau áhrif að landamærin milli þín og annarra verða óljós. Þú getur því verið í óvissu um sjálfa þig, hvað sé þitt og hvað komið frá öðrum. Þú þarft þvi að varast áhrifa- gimi. Þrátt fyrir félagslyndið þarft þú því að draga þig í hlé og vera ein annað slagið. Lifandi starf Sporðdreki Rísandi og Plútó á Miðhimni táknar að þú hefur sálfræði- og rannsókn- arhæfíleika og gætir því notið þín í vinnu með fólki að sálfræðilegum félagsmál- um. Mars í Hrút bendir hins vegar til að starf þitt þurfí að vera lifandi og fela í sér átök og hreyfíngu. Langt og þungt skólanám á því ekki sérlega vel við þig. Hreinsun Það sem er að gerast í korti þínu á þessari stundu er að Plútó er að fara yfir Rísingu. Það táknar að þú ert að hreinsa til í sálarlífí þínu og losa þig við neikvæða þætti sem hindra þig. Yfirstand- andi eru því töluverðar breytingar, margt að hverfa úr lífi þínu og annað að koma í staðinn. Stórar áœtlanir í desember verða athyglis- verðar afstöður. Júpíter verður í 4. húsi í spennu- afstöu við Sól og Satúmus í Bogmanni í 2. húsi í mót- stöðu við Sól. Það gefur til kynna mikla orku, vinnu, stórhug og áætlanagerð. Það gæti t.d. verið góður tími til að kaupa ibúð eða fjárfesta á annan hátt. Fjármál verða töluvert í sviðsljósinu á næstu 2—3 árum og þarft þú að vera varkár, skipulögð og öguð á þvi tímabili. AukiÖ nœmi Neptúnus er í öðru húsi og fer að mynda afstöðu við Tungl, eða nánar tiltekið 1988—89. Það táknar að þú verður mun tilfinninganæm- ari og opnari en áður. Fyrir vikið þarft þú að gæta þín, dvelja í jákvæðu umhverfí og fást við uppbyggileg andleg eða listræn mál. X-9 _ e/£> y/sr ApAbT/i erA//ooA fv - 1 ClVtS Klng FmI •ur» Syndlcate, Inc. World rights reserved. GRETTIR TOMMI OG JENNI í HÚ,V F/F/ /VUN EKOF (300 FyF/H Fb/MAVt v HÚN HEFUF FEgOAsr OM / AULAN HB/U 1 / 1 • i$LJÖ A \ 1 o, 12/11 —*-XAyy ER EKKl l/y <0 Tl'l ni én Utrc- ucvpr/ FR twB KnMAM HAMS FAMKÍ^ LJOSKA I ERFlÐLEIKU/y iEINKALÍF- / . <NLI GÖ/V1UVW 'ASTAH - ÖKÉRJM S NAFPI <Æ ° J... A~2S— JZLLai FERDINAND SMAFOLK BA5EBALL 15 OUR COUNTRV'5 NUMBER ONE SPECTATOR SPORT! H0R5E RACING 15 5ECONP.. Á ég að segja þér nokkuð? Hafnabolti er vinsælasta Veðreiðar koma næstar Ég er jafnvíg í báðum þjóðaríþrótt okkar! greinum_____ BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Spegilskipting er það kallað þegar skiptingin er sú sama á hendi sagnhafa og i blindum. Slík spil spilast yfírleitt illa þótt styrkurinn sé töluverður í há- punktum talinn. Möguleikamir á að fjölga slögunum með tromp- unum eða með því að fría langa liti em litlir, og raunar engir nema til komi nokkur hjálp frá andstæðingunum. Vesturgefur; enginn á hættu. Norður ♦ Á3 ¥ K85 ♦ KG876 ♦ Á75 Vestur Austur ♦ DG108752... ♦öá ¥104 1 ¥ DG932 ♦ 432 ♦ - ♦ 8 ♦ DG10964 Suður ♦ K9 ¥ Á76 ♦ ÁD1095 ♦ K32 Vestur Norður Austur Suður 3spaðar Dobl Pass 6 tíglar Pass Pass Pass Vestur spilar út spaðadrottn- ngu. I þessu spili á sagnhafi 11 - tökuslagi á kröftum, en virðist hvergi eiga von í þann 12. Helst kemur til greina að reyna kast- þröng á austur í laufí og hjarta. En „tempóið" fyrir kastþröngina er ekki rétt nema vömin fái fyrst einn slag. Og hvemig er hægt að gefa vöminni slag án þess að eyðileggja hótunina í laufí eða hjarta? Svarið liggur í spumingunni. Vömin á ekki fræðilegan mögu- leika á tígulslag, svo það er ekkert nema spaði sem kemur til greina. Til að eiga vinningsvon er því nauðsynlegt að drepa fyrsta slaginn á spaðaás og láta kóng- inn detta undir! Taka svo þrisvar tromp, tvo efstu í hjarta og lauf- ásinn. Spila síðan vestri inn á spaða. Vestur verður að skila slagn- um til baka með því að koma út i tvöfalda eyðu. Það trompar sagnhafi heima og hendir laufi eða hjarta úr borðinu. Spilar svo tveimur síðustu tíglunum og þvingar austur í „mjúku" litun- um. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Á stórmótinu í Tilburg um dag- inn var skák sovézku stórmeistar- anna Karpovs og Beljavsky ein sú tilkomumesta. Hér sjáum við úrslitaaugnablik skákarinnar. Karpov, sem hafði hvítt hafði rétt lokið við að leika gróflega af sér, með 31. Dc2 — c3??, en nauðsyn- legt var 31. Dc2 — b2. 31. — Hxc5! (Vinnur lið því 32. dxc5? er auðvitað svarað með 32. — d4+) 32. Dxc5 — Dxd3 og Beljavsky vann auðveldlega. Hann sigraði á mótinu, hlaut 8‘/« v. af 14 mögulegum, Ljubojevic varð næstur með 8 v. og þriðji Karpov með 7'/« v. Þetta var því skákin sem skipti sköpum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.