Morgunblaðið - 18.11.1986, Page 55

Morgunblaðið - 18.11.1986, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1986 55 Airbus selur hundrað þotur í Bandar í kj unum EVRÓPSKA samsteypan Air- bus Industries hefur selt banda- ríska stórflugfélaginu Northwest Orient Airlines 100 þotur af gerðinni Airbus A 320 en þær eru 150 sæta. Það þykir miklum tíðindum sæta að þetta bandaríska flugfélag skuli velja evrópska flugvél. Northwest er traust, vaxandi fé- lag sem stendur fjárhagslega vel. Með því að ná samningi við það hefur Airbus styrkt verulega stöðu sína á Bandaríkjamarkaði því keppinautarnir, Boeing og McDonn- ell Douglas hafa verið iðnir við að benda á að einu stóru flugvélasölur Airbus í Bandaríkjunum hafi verið til flugfélaga í fjárhagserflðleikum einsog Pan American og Eastem. Nú getur Airbus látið þennan áróð- ur keppinautanna sem vind um eyru þjóta. Samkvæmt samningum mun Northwest í fyrstu kaupa 10 vélar og þá að öllum líkindum í gegnum banka og fjármögnunarfyrirtæki og leigja síðan vélamar af þeim. Félag- ið þarf að taka ákvörðun um þetta 1990—91. Afganginn eða 90 vélar, getur Northwest keypt beint eða í gegnum aðra aðila, en verður alltaf að taka 15 vélar í einu einhvemtíma á árunum 1991—95. Þá getur félag- ið hætt við þessar 90 vélar. Óstað- festar fregnir herma að andvirði samningsins nemi 3200 milljónum $ og þá innifalið varahlutir og þjálf- un tæknimanna og áhafna. Gróf- lega reiknað þýðir þetta að hver vél mun kosta um 32 milljónir $ (1,2 milljarð ísl. kr.). Þessi óvenjulegi samningur hefur mikið að segja fyrir Airbus en ekki síður fyrir Northwest. Bæði fær félagið magnafslátt og mikið svig- rúm viðgerð framtíðaráætlana og getur þannig séð til hver verður framvinda mála varðandi nýja „Prop-fan“ hreyfilinn sem á að vera tilbúinn til notkunar árið 1992. Airbus segir að þetta séu ekki óstaðfestar pantanir heldur hrein og klár pöntun á 100 vélum. Hins- vegar, segir Airbus, hefur North- west rétt á að taka ekki við vélunum 90 ef félagið vill þær ekki. „Þetta er óneitanlega staðfest pöntun, en ekki óstaðfest vegna þess að bæði er verðið ákveðið og eins afhending- ardagar vélanna. Þegar um óstað- festa pöntun er að ræða er aðeins afhendingardagurinn ákveðinn," segja talsmenn Airbús. Stórir flugvélasölusamningar með svipuðu sniði hafa áður verið gerðir en það er nýmæli að við- skiptavinurinn geti hætt við allt saman eins og í Airbus-Northwest samningnum. Þess er t.d. skemmst að minnast þegar McDonnell Dou- glas gerði samning við American Airlines árið 1984. American pant- aði 67 MD 80 þotur og lagði auk þess inn óstaðfesta pöntun á öðrum 100. Þá var mjög óvenjulegt að óstaðfestar pantanir væru hærri en staðfestar. Sæluhorn heimilisins SVEDBERG sturtuklefarnir eru sann- kölluð sæluhorn. Hvað veitir t.d. jafn mikla vellíðan og gott sturtubað - í morgunsárið eða eftir erfiði dagsins? Kostir Svedbergs SVEDBERG sturtuklefarnir eru vönd- uð sænsk framleiðsla. Þeir eru úr mynstruðu „glerplasti“, þ.e. efni með tærleika glersins og hörku plastsins. Utan með eru álprófílar og renna hurð- irnar til á því sem næst hljóðlausum kúlulegum. Þú getur valið um hvíta eða álgráa prófíla eftir því hvort fellur betur að litum baðherbergisins. Svedberg -sæluhornið eða hornsturtuklefinn hentar einkum vel litlum baðherberjum og jafnvel sumarhúsum. Kvnntu þér Svcdberg sturtuklefana og sjáðu svo til. verið einn tryggasti viðskiptavinur Boeing. Áður en Airbus samsteypan land- aði Northwest samningnum hafði hún selt 12 flugfélögum 134 A 320 þotur og að auki fengið 133 óstað- festar pantanir. Fyrsta A 320 þotan verður tilbúin ti! reynsluflugs í mars á næsta ári og reiknað er með því að hægt verði að taka fyrstu vélina í notkun snemma árs 1988. Fram til ársloka áætlar Air- bus að smíða 6V2 vél á mánuði en eftir að samningurinn við North- west náðist er farið að ræða um afkastagetu verksmiðjanna. Airbus A 320 þotan verður tilbúin til reynsluflugs í mars á næsta ári. Á myndinni er verið að vinna við fyrstu vélina, en þessi 150 sæta flugvélagerð þykir byltingakennd. Airbus samsteypan náði nú síðast að selja bandaríska Northwest Orinent flugfélaginu 100 svona vélar. Þar með hafa 367 A 320 selst. Airbus hefur rætt við Northwest í mörg ár og var enn mikilvægara fyrir Airbus að ná samningi við félagið eftir að Douglas gerði samn- ing við American Airlines og Boeing hafði samið við United Airlines. Northwest á 65 Boeing 727 þotur sem A 320 vélamar eiga að leysa af hólmi og Republic Airlines, sem Northwest tók yfir fyrir skömmu á rúmlega 100 DC 9 þotur og 18 Boeing 727 sem einnig þarf að endumýja á næstu árum. Að North- west skuli hafa valið Airbus flugvél- ar er meiriháttar áfall fyrir Boeing því fram til þessa hefur Northwest BYKÖ KÓPAVOGI SÍMI 41000 HAFNARFIRÐI SÍMI 54411 ¥

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.