Morgunblaðið - 18.11.1986, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 18.11.1986, Qupperneq 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 1986 fclk f fréttum Ánægður guðfaðir Fyrir skömmu voru níu mánuðir liðnir frá því að sovéski andófsmaðurinn Anatoly Sharansky fékk að fara í frelsið, þar sem kona hans, Avital, beið hans. Ekki stóð á árangrinum, því að þá fæddist þeim hjónum dóttir. í sömu viku gerðist Anatoly einnig guðfaðir, sandak, sonar góðvinar síris og fyrr- um samviskufanga, Marks Nasphitz. Hér sjást þeir við þá skímarathöfnina, brit mila. Paul Simon og Joseph Shabalala. Saman sömdu þeir Homeless og brúuðu þannig bilið milli banda- riskrar og suður-afriskrar tónlistar. Paul Simon sýnir samstöðu með suður-afrískum Paul Simon, sem eitt sinn var helmingur dúettsins Simon & Garfunkel, er nú orðinn 43 ára gamall, en hefur síður en svo slak- að á. Hann er nýbúinn að gefa út. pjötu, Graceland, sem notið hefur töluverðra vinsælda að undanfömu. Plötuna tók Paul upp að nokkru leyti í Suður-Afríku, en Paul segist hrífast mjög að ferskleika suður- afrískrar tónlistar. Paul kom upphaflega að ósk fé- lags svartra tónlistarmanna og segist Paul hafa farið þangað sem tónlistarmaður, en ekki í pólítískum tilgangi. „Vissulega eru sumir til sem vilja banna allan samgang við Suður-Afríku, en ég held að það sé ekki leiðin til lausnar vanda Suð- ur-Afríku. Suður-Afríkanar verða að fá að umgangast heiminn. Bæði til þess að þeir geti heyrt og skilið sjónarmið annarra, en líka til þess sið við getum skilið sérstök vanda- mál þeirra.“ „Eg vissi að ég yrði gagnrýndur áður en ég fór þangað, en ég fór ekki til þess að styðja ríkisstjóm landsins eða til þess að leika fyrir hvíta áheyrendur eingöngu. Ég hef áður neitað boðum um að leika í Sun City þó svo að milljón dollarar væru í boði.“ í Suður-Afríku kynntist Paul öðrum stefnum, en hann hafði áður vanist. „Hér er tónlistin að sumu leyti frumstæð, en að sumu leyti þróuð. Umfram allt er hún þó fersk og minnir mig um margt á blúsinn, eins og hann gerðist á sjötta ára- tugnum." „Það sem e.t.v. var undarlegast var samstarfíð við suður-afríska tónlistarmenn. Þeir þekktu ekki tónlist mína og gátu því ekki gert ráð fyrir neinu. Annað var að flest- ir eru þeir ómenntaðir, svo að það þýddi ekki neitt að ætla að nota tæknilega frasa. Yfirleitt endaði þetta með því að hver söng með sínu nefi og það gekk alveg frábær- lega.“ Erfiðlegast gekk Paul að semja fyrir tíumanna kirkjukór, sem kall- ast Ladysmith. Að lokum samdi hann lagið Homeless og sendi það til Josephs Shabalala, tónskálds og forsöngvara kórsins. Hann bætti síðan við Iagið á eigin móðurmáli, Zulu-máli, og útskýrði lagið fyrir kómum. Árangurinn má heyra á plötunni. Þessi vægast sagt smávaxni apaköttur heitir Skansen og er að- eins vikugamall. Hann fæddist í dýragarðinum í Stokkhólmi fyrir nokkru og er eftirlæti gesta hans, serstaklega hinna yngri. Skansen er af svokall- aðri silkiapaætt, sem er mjög smávaxin að upp- lagi og því ekki mikil von til þess að mjög togni úr kauða. Hann lætur sér þó fátt um finnast og rígheldur sér í þumalfingurinn á einum varða sinna. Tumi þumall Rjómi lastasveitar Miami. Stephanía Mónakóprinsessa fær hlutverk í Miami Vice Ekki alls fyrir löngu var sagt frá ástamálum Stephaníu Món- akó-prinsessu. Aðdáendur hennar geta nú kæst enn frekar, því til stendur að hún komi fram í saka- málaþættinum Miami Vice, en hann er sem kunnugt er sýndur á fostu- dagskvöldum á Stöð tvö. I Miami Vice kemur iðulega fram frægt fólk, eða leikarar úr öðrum sjónvarpsþáttum. Stephanía hefur oft lýst því yfír að hún hafi áhuga á að feta í fótspor móður sinnar, a.m.k. hvað leiklistina varðar. „Við höfum þegar samið sögu- þráðinn. Stephanía, sem er tísku- hönnuður sjálf, mun leika tískuhönnuð, sem lendir milli steins og sleggju í eiturlyfjaheiminum", er haft eftir örruggum heimilda- manni. Auk þess hafa framleiðend- ur þáttanna fallist á að nota eitt af lögum Stephaníu í þættinum, en henni hefur vegnað vel í dægurtón- list, sem öðru. „Hún óskaði einskis umfram aðra. Það eina sem hún vildi var að hún yrði nefnd Stephanie Grim- aldi í kynningunni og að hvergi kæmi fram að hún væri prinsessa." Að sjálfsögðu samþykktu framleið- endumir það. Að undanfömu hefur Stephanía dvalist í Los Angeles ásamt kær- asta sínum, leikaranum Rob Lowe. Henni höfðu boðist nokkur boð frá sjónvarpsstöðvum og kvikmynda- verum, þegar henni var boðið hlutverkið í Miami Vice. Hún sam- þykkti það nær umhugsunarlaust. Góðvinur Stephaníu hefur sagt að miklu hafi ráðið um ákvörðun hénnar, að framleiðendumir vom tilbúnir til þess að leika lag með henni í þættinum, en Stephanía er mjög áfjáð í að ná sama árangri á bandarískum tónlistarmarkaði og í Evrópu. Samkvæmt öruggum heimildum á Stephanía að leika tískuhönnuð, sem kemur til Miami að setja á svið tískusýningu. Á meðan undir- búningi sýningarinnar stendur, verður hún vitni að eiturlyfjamis- ferli og að morði á fíkniefriasala. Morðinginn veit hins vegar að vitni var að morðinu og sækist því eðlilega eftir lífi hennar. Þeir Croc- kett og Tubbs komast að því að hún veit meira en hún vill gefa
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.