Morgunblaðið - 04.12.1986, Síða 1
80 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
Paul Watson segir menn sína hafa skemmt frystigeymslur í Hvalfírði:
Varar Japani við
skemmdu hvaUdöti
„Frystigeymslurnar eru í Hafnarfirði, “ segir Krislján Loftsson
Frá Jóni Ásgeiri Sigurðssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Bandaríkjununi
höfum skyrt sendiraðum Japans í Kanada og í Bandaríkjunum
frá því, að talsvert af hvalkjöti hafi skemmst i frystigeymslum Hvals
hf. í Hvalfirði,“ sagði Paul Watson í viðtali við fréttaritara Morgun-
blaðsins i gær. Kanadíska stórblaðið Toronto Sun birti frétt siðastlið-
inn mánudag, þar sem því er einnig haldið fram, að hvalkjötið hafi
skemmst. Þegar Morgunblaðið leitaði álits Kristjáns Loftssonar, for-
stjóra Hvals hf., á þessum fullyrðingum, sagði hann, að allt kjöt
væri flutt til Hafnarfjarðar og ekkert geymt í hvalstöðinni.
Watson sagði, að megintilgangur
skemmdarverkanna hefði verið að
vinna sem mest tjón í hvalstöðinni.
Hvalbátunum hefði hins vegar verið
sökkt til að vekja sem mesta at-
hygli fjölmiðla. Sagði hann, að
37 falla í
Líbanon
Beirút, AP.
SKÆRULIÐAR Frelsissamtaka
Palestínu og sveitir amal-shíta
áttu í heiftarlegum bardögum í
Beirút og Suður-Líbanon i gær.
37 manns, aðallalega óbreyttir
borgarar, létu lífið og um 80
særðust.
374 hafa failið í bardögum fylk-
inganna tveggja síðustu tíu daga,
að sögn lögregluyfírvalda í Beirút.
11 óbreyttir borgara týndu lífí á
götum Beirút í gær þegar skærulið-
ar hófu storskotaliðsárásir á
úthverfí borgarinnar. Bardagar
höfðu Iegið niðri um nóttina og var
fy'öldí fólks á ferli þegar fallbyssu-
kúlum tók að rigna yfír borgina.
26 manns týndu lífi í bardögum
um bæinn Maghdousheh nærri
hafnarborginni Sídon í Suður-
Líbanon. Harðir bardagar geisuðu
einnig í nágrenni Rashadieyh-
flóttamannabúðanna, sem eru
skammt frá Sídon. í Rashadieyh
dveljast 30.000 palestínskir flótta-
menn og hafa amal-shítar setið um
búðimar frá 1. október.
frystivélar í hvalstöðinni hefðu ver-
ið skemmdar og frystigeymslur
opnaðar. Hefði þá talsvert af kjöt-
inu þiðnað þar eð ekki hefði orðið
vart við þetta í 30 klukkutíma og
þijá daga hefði tekið að koma
frystivélunum í gang aftur.
„íslendingar em að reyna að selja
japönskum neytendum skemmt
hvalkjöt," er haft eftir Craig Van
Note, talsmanni bandaríska Monit-
or-sambandsins, í upphafí fréttar-
innar í Toronto Sun á mánudaginn.
Van Note staðhæfir ennfremur í
fréttinni, að Islendingar haldi þessu
leyndu af ótta við að Japanir neiti
að kaupa hvalkjötið.
Toronto Sun hefur það eftir Jan-
et McGill, matvælafræðingi, að
endurfryst hvalkjöt geti valdið al-
varlegum veikindum eða jafnvel
dauðsföllum.
„Það er ekkert hvalkjöt geymt í
hvalstöðinni í Hvalfírði. Meðan á
vertíðinni stendur er fryst í litlum
frystiklefa og frystigám en síðan
er kjötið flutt strax í frystihúsið í
Hafnarfirði. Þessar yfírlýsingar eru
því uppspuni og út í hött," sagði
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals
hf., þegar Morgunblaðið leitaði álits
hans á ummælum Pauls Watson og
fulltrúa Monitor-samtakanna.
Sagði hann, að vertíðinni hefði lok-
ið 29. september og allt kjötið verið
komið til Hafnarfjarðar 3. október.
„Þetta sýnir hins vegar vel vinnu-
brögð þessara manna og einnig það
samspil, sem er á milli Monitor og
Sea Shepherd. Ýmis umhverfís-
vemdarfélög hafa svarið fyrir allt
samband við Watson en þess ber
að geta, að þessi sömu félög eru
aðilar að Monitor-samtökunum,"
sagði Kristján Loftsson.
/ VIGAMÓÐ
AP/Símamynd
Herínn í Punjabhéraði á Indlandi var kallaður út í gær til bæla
niður óeirðir sem brutust út eftir að fjórir síkar myrtu 24
hindúa á sunnudag. 646 menn hafa týnt Iífi í átökum í Punjab
það sem af er þessu ári. Myndin sýnir herskáan síka, sem hefur
dregið fram skjöld sinn og sverð og er reiðubúinn til átaka.
Vopnasalan til íran:
Reagan hvattur til að víkja
embættismönnum úr starfí
Washington, AP, Reuter.
BANDARÍSKIR þingmenn lýstu
ánægju sinni í gær vegna yfirlýs-
ingar Ronalds Reagan Banda-
ríkjaforseta um að skipa beri
óháðan rannsóknardómara til að
kanna vopnasölumálið til hlítar.
Jafnframt hvöttu nokkrir áhrifa-
miklir þingmenn forsetann til að
víkja fleiri embættismönnum úr
starfi. Dagblaðið The Washing-
ton Post skýrði frá því í gær að
greiðslur írana fyrir bandarísk
vopn hefðu runnið til afganskra
frelsissveita og Contra-skæru-
liða í Nicaragua.
George Bush varaforseti lýsti í
gær yfír fullum stuðningi við vopna-
söluna til íran en kvaðst ekki hafa
vitað um að greiðslurnar hefðu far-
ið í vasa skæruliða. Bush lagði
áherslu á að tilraunir til að bæta
samskiptin við írani hefðu hafíst
þremur árum áður en Bandaríkja-
menn voru teknir í gíslingu í
Líbanon.
Mjög er nú þrýst á Bandaríkja-
forseta að víkja fleiri embættis-
Sovétmenn fullsaddir af bjart-
sýnisrausi o g embættismönnum
- segir Yevtushenko, ljóðskáld og málsvari Gorbachevs
Stokkhólmi, Reuter.
GREIN eftir sovéska ljóðskáld-
ið Yevgeny Yevtushenko, sem
hefur verið dyggur talsmaður
umbótastefnu Mikhails
Gorbachev, leiðtoga Sovétríkj-
anna, birtist í gær í sænska
dagblaðinu Dagens Nyheter.
Þar hvetur skáldið til þess að
Sovétborgarar fái að fara
fijálsir ferða sinna auk þess
sem Yevtushenko segir almenn-
ing í Sovétríkjunum búinn að
fá sig fullsaddan af biðröðum
og matvælaskorti.
Greinin nefnist „Það sem Sov-
étborgarar vilja í raun“. Yevtus-
henko kveðst sannfærður um að
almenningur myndi ekki flykkjast
vestur yfir Jámtjaldið þótt ferða-
lög til útlanda yrðu leyfð. Þá lýsir
Yevtushenko því yfír að yfírvöld
eigi að gefa þeim sem vilja flytj-
ast frá Sovétríkjunum fararleyfí.
„Fólk er orðið langþreytt á að
þurfa að bíða í biðröðum eftir
nauðsynjavörum. Biðraðir minna
menn á stríðsárin," segir einnig í
greininni. Yevtushenko bætir við
að almenningur eigi rétt á að njóta
lífsins gæða og nefnir sérstaklega
skort á húsnæði og takmarkað
framboð á tískuvamingi máli sínu
til stuðnings.
Þá fullyrðir skáldið að Sovét-
menn hafí ævinlega verið áhuga-
samir um vestræna menningu og
hvetur til þess að heimiluð verði
útgáfa erlendra bóka og hljóm-
platna. „Sovétmenn vilja ekki lifa
samkvæmt forskriftum embættis-
manna og þeir kæra sig kollótta
um bjartsýnisraus í stefnuyfírlýs-
ingum kommúnistaflokksins,"
segir í greinin Yevgenys Yevtush-
enko.
Yevtushenko
mönnum úr starfi vegna vopnasölu-
málsins. Leiðtogi repúblikana í
öldungadeild Bandaríkjaþings
hvatti Donald Regan, starfsmanna-
stjóra Bandaríkjaforseta, til að
segja af sér í gær. Er þetta í annað
skiptið á jafnmörgum dögum sem
Regan berst slík áskomn.
Caspar Weinberger, vamarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði í
gær að embættismenn hefðu hugs-
anlega blekkt Reagan forseta og
ef svo væri ætti að refsa viðkom-
andi mönnum. Weinberger lét þessi
orð falla í útvarpsviðtali í Lúxem-
borg og lagði jafnframt áherslu á
að viðleitni Reagans til að bæta
samskiptin við Iran hefði á allan
hátt verið réttmæt.
The Washington Post skýrði frá
því í gær að greiðslur írana fyrir
vopnin hefðu runnið inn á reikning
bandarísku leyniþjónustunnar
(CIA) í Sviss. í blaðinu sagði að
hálfur milljarður Bandaríkjadala
hefði verið lagður inn á reikninginn
og að þeir peningar hefðu m.a.
runnið til afganskra frelsissveita
og Contra-skæruliða. Fullyrt var
að Bandaríkjaþing hefði samþykkt
250 milljóna dala fjárstuðning við
skæruliða í Afganistan í leynilegri
atkvæðagreiðslu og að Saudi-
Arabar hefðu lagt sömu upphæð
af mörkum.
Sjá einnig fréttir á bls. 30