Morgunblaðið - 04.12.1986, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986
Deiliskipulag
Kvosarínnar
Nokkrar athugasemdir
eftir Ragnheiði H.
Þórarinsdóttur
Nýlega hefur verið samþykkt í
skipulagsnefnd Reykjavíkur deili-
skipulag að Kvosinni. Höfundar
skipulagsins, þau Dagný Helgadótt-
ir og Guðni Pálsson arkitektar, hafa
fengið erfitt og vandasamt verkefni
— og sitt sýnist hveijum um árang-
urinn. Markmið deiliskipulagsins er:
„Að miðbær Reykjavíkur skuli vera
miðstöð stjórnsýslu, þjónustu, sér-
verslana, viðskipta og vettvangur
fyrir íjölskrúðugt mannlíf. Eins, að
hann skuli skapa góð skilyrði fyrir
alls kyns mannamót, menningar-
starfsemi og skemmtanir." (Kvosin
86, bls 3.) I greinargerð tillögunnar
segir ennfremur: „Mjög mikilvægt
er, að hann hafi glæsilegt og virðu-
legt yfirbragð, sem sæmir miðborg
höfuðborgar íslands." (Bls. 3.)
Skipulagshöfundarnir koma með
tillögur um það hvemig þessum
markmiðum verði best náð, t.d. með
því að gera stóran hluta svæðisins
að göngusvæði og með skjólmynd-
un, með því að hreinsa bakgarða
og leggja stíga gegnum þá, með
gróðursetningu trjágróðurs og fleiri
aðgerðum, sem verða að teljast
mjög jákvæðar. Allt miðar þetta að
því að gera miðbæinn samkeppnis-
hæfan við önnur borgarhverfí.
Ein megin tillagan að endurreisn
Kvosarinnar er sú, að byggt skuli
í skörð og eyður með húsum, er
hafa yfirbragð borgarhúsa og gera
Kvosina að heilsteyptum miðbæ,
eins og það heitir í tillögunni. —
Það er við úrvinnslu þessarar til-
lögu, sem ég vil gera nokkrar
athugasemdir.
Kvosin og sögn-
legar minjar
Ekki skal um það deilt að endur-
bóta er þörf í miðbænum. Ekki er
þó vandalaust að hreinsa þar til,
því í Kvosinni eru margar merkustu
söguminjar borgarinnar. Þar má
finna leyfar af elstu byggð, allt frá
9. og 10. öld. Þar eru einnig bygg-
ingar, sem eiga upphaf sitt hjá
Innréttingum Skúla Magnússonar
og fyrstu árum kaupstaðarins
Helgi Þórsson frá Reiknistofnun
Háskóla íslands kynnir Tölvuþing
Reiknistofnunar og þær ráðstefnur,
fundi og umræður sem þar eru í
gangi.
Björn Friðfinnsson formaður
Sambands ísl. sveitarfélaga opnar
nýjan vettvang á Tölvuþingi: Um-
ræður um sveitarstjómarmál og
stefnu Sambands ísl. sveitarfélaga
fram til ársins 2000.
Reynir Hugason skýrir frá teng-
ingarmöguleika við SKÝRR um
tölvunet Pósts og síma.
Ásrún Rúdólfsdóttir fjallar um
Upplýsingabanka SKÝRR og þær
fjölþættu upplýsingar sem hann
hefur að geyma.
Póstur og sími kynnir módöld og
Reykjavíkur. í Kvosinni má lesa
sögu Reykjavíkur í húsum. Þar eru
hús frá elstu tíð og þar em hús,
sem enn minna á það, að með bygg-
ingu þeirra var bryddað upp á
nýjungum í byggingarlist. Svo eru
þar glæsileg eintök frá timbur-
húsatímabilinu, svokallaða, fyrir og
um síðustu aldamót. Þessi háreistu,
oft skrautlegu, bámjámsklæddu
timburhús, em borgarhús eins og
þau gerðust best í Reykjavík. Þau
vom byggð af efnafólki, embættis-
mönnum, kaupmönnum og iðnaðar-
mönnum og alls ekki af vanefnum,
eins og svo margir halda. Gömlu
húsin í Kvosinni endurspegla sinn
tíma — og það er kostur en ekki
ókostur í borgarhluta þar sem 200
ára saga hefur orðið til.
Skipulagið og
söguminjar
Skipulagshöfundamir nefna þá
staðreynd í greinargerð sinni að
Reykjavík á ekki mörg gömul og
sögufræg hús og vilja því að gæti-
lega sé farið, þegar Ijarlægja á elstu
húsin úr miðborginni. Húsin eigi
að skoða vandlega með eftirfarandi
atriði að leiðarljósi: Menningar-
sögulegt gildi — uppmnalegt útlit
— formfegurð — svipmót þeirra
fyrir borgina — hvemig þau sam-
ræmast aðliggjandi húsum og
umhverfí.
Þrátt fyrir þessar ágætu leið-
beiningar og það, að hér er um að
ræða ákaflega viðkvæmt svæði í
borginni og því ástæða tii sérstakr-
ar varfæmi, leggja höfundar til að
Ijarlægð verði um 25 hús, ásamt
nokkmm skúrbyggingum á baklóð-
um. — Upphaflega var ætlunin að
láta Lækjargötu 2 og Austurstræti
22 hverfa, en skv. staðfestu deili-
skipulagi frá 1981 átti svo að vera.
Horfið var frá því ráði og er það
vel. Um endanlega lausn á því horni
má þó deila.
Höfundar segjast leggja ríka
áherslu á að halda í menningar-
sögulega mikilvæg hús en vilja að
sama skapi ekki halda í hús, „sem
löngu em búin að lifa sitt skeið“.
(Greinargerð, bls. 5.) Þetta tel ég
all vafasama röksemdafærslu, því
annan búnað sem nauðsynlegur er
til fjarvinnslu.
Ennfremur er kynnt verð á tengi-
búnaði og kostnaður við að tengjast
og nota einstök tölvukerfi.
Með neti Pósts og síma og Mál-
þinginu em að opnast nýjir mögu-
leikar til að undirbúa mál og halda
fundi þótt fundarmenn séu dreifðir
um landið.
Kynningin er sérstaklega ætluð
sveitarstjómarmönnum og starfs-
mönnum sveitarfélaga. Þeir geta
þá einnig sótt ráðstefnu Skýrslu-
tæknifélagsins nk. föstudag um
Tölvunetið til að öðlast dýpri þekk-
ingu á málinu og heyrt um reynslu
annarra af því, segir í frétt frá
Tölvuþjónusta sveitarfélaga.
hver getur dæmt um það hvort
menningarsögulega merkilegt hús
hefur lifað sitt skeið eða ekki? Hvort
vegur þá meira sú staðreynd að
húsið hefur menningarsögulegt
gildi eða að það hefur lifað sitt
skeið? f skipulagstillögunum er lögð
áhersla á að ekki sé um niðurrif
að ræða í öllum tilvikum, heldur
eigi að flytja viðkomandi hús á
annan stað í borginni. Eitt meginat-
riðið í húsvemdun er að hús beri
að varðveita á sínum uppmnalega
stað. Ef það er ekki hægt, t.d. vegna
landþrengla, á að flytja húsið á
annan stað þar sem það fær notið
sín. Hús ætti ekki að flytja á safn
nema það sé eina leiðin til að bjarga
því frá tortímingu og sögulegt gildi
þess sé ótvírætt. I Árbæjarsafni
hefur verið ieitast við að sýna mis-
munandi húsagerðir. Þar á hvert
hús að vera hlekkur í ákveðinni
keðju — byggingarsögu Reykjavík-
ur. Þar á ekki að vera tilviljunar-
kennt samansafn húsa heldur safn
þar sem geymd eru sýnishorn, sem
endurspegla söguna. Það er því
engin lausn að safna saman mörg-
um húsum af svipaðri gerð í
Árbæjarsafni heldur ber að setja
þar upp hús, sem eru einstök í sinni
gerð og/eða eru fulltrúar ákveðins
byggingarmáta.
Hús sem eiga að hverfa
Hús þau, sem hverfa eiga skv.
tillögunni em þessi: Austurstræti
8, 10 og 20; Lækjargata 4, 6A, 6B
og 8; Aðalstræti 3, 4, 7 (ásamt við-
byggingu við Hótel Vík), 16;
Hafnarstræti 2, 21 og 23, ennfrem-
ur 17 og 19 er snúa að Tryggva-
götu, Tjarnargata 3C, 5B og 11,
hús á lóð Vesturgötu 2 er snúa að
Tryggvagötu, Suðurgata 3A, Vall-
arstræti 4 og gamli kvennaskólinn
(Sjálfstæðishúsið) við Austurvöll. í
skipulagstillögu höfunda Kvosin 85
var gert ráð fýrir því að Kirkju-
stræti 8, 8B og 10 fengju að standa
en Alþingi hefur nýlega samþykkt
byggingu þinghúss, sem gerir ráð
fýrir niðurrifi þessara húsa. (Grein-
argerð, bls. 6.)
Ekki er tækifæri í stuttri blaða-
grein að gera grein fyrir öllum
þessum húsum. I sumum tilfellum
má segja að niðurrif sé réttlætan-
legt. Ónnur hús hafa slíka þýðingu
fyrir miðbæinn og Reykjavík að
niðurrif þeirra er alls ekki réttlæt-
anlegt. Verður nú drepið stuttlega
á sögu þeirra.
Austurstræti 20. Þetta er eitt
elsta hús borgarinnar, byggt 1805
sem embættisbústaður sýslumanns-
ins í Gullbringu- og Kjósarsýslu.
Þar bjó lengi Ámi Thorsteinsson
landfógeti og fjölskylda hans rækt-
aði 1862 skrúðgarð þann bak við
húsið, sem enn kallast Fógetagarð-
urinn. 1932 var innréttingu hússins
breytt fyrir veitingasölu. Það ætti
tvímælalaust að varðveita á staðn-
um.
Lækjargata 4. Húsið var byggt
1852 en það ár vom lóðirnar Lækj-
argata 2, 4 og 6 mældar út. Þar
hefur búið margt merkismanna,
m.a. Benedikt Gröndal og hjónin
Ingibjörg og Þorlákur O. Johnson.
í þessu húsi var Verslunarmannafé-
lag Reykjavíkur stofnað 1891.
Húsið er með elstu tvílyftu húsun-
um í bænum og á því em einar
elstu svalir borgarinnar. Sé alls
ekki hægt að varðveita það á staðn-
um ætti að varðveita það í Árbæjar-
safni.
Lækjargata 6A og 6B. Húsið
er reist árið 1907 af tveimur iðnað-
armönnum. Það er dæmi um
myndarlegt borgarhús, byggt við
eina af aðaigötum bæjarins. Mikið
var lagt upp úr framhliðinni á sínum
tíma og gæti hún sett svip á götu-
Ragnheiður H. Þórarinsdóttir
„Gömlu húsin í Kvos-
inni endurspegla sinn
tíma — og það er kostur
en ekki ókostur í borg-
arhluta þar sem 200 ára
saga hefur orðið til.“
myndina yrði hún færð í uppruna-
legt horf. Þetta hús ætti hiklaust
að fá að standa á sínum stað.
Lækjargata 8. Húsið sem þar
stendur var byggt árið 1870 af
Jónassen landlækni. Það þótti afar
veglegt á sínum tíma og var eitt
af fyrstu húsunum í bænum með
kvist. Nú nýtur útlit þess sín lítt
enda búið að gera á því miklar
breytingar. Ef húsinu yrði komið í
fyrra horf, myndi það undirstrika
götumynd Skólabrúar, sem er hald-
ið svo til óbreyttri í skipulaginu.
Komi þar nýtt hús, ætti það ekki
að vera hærra en svo að útsýn inn
í Skólabrú yrði opin.
í kringum Hótel íslandsplanið —
öðru nafni Hallærisplanið — eru
nokkur timburhús frá síðari hluta
19. aldar og/eða aldamótum. Þau
mynda nokkurs konar keðju kring-
um opna svæðið þar sem áður voru
Hótel ísland og Veltan. Húsin tengj-
ast timburhúsabyggðinni í Gijóta-
Jjorpi og húsunum í Grófinni, sem
ætlað er að varðveita samkvæmt
skipulagstillögunum. Þau gætu
myndað virðulegan og hlýlegan
ramma um „borgartorgið" og
menningarmiðstöðina, sem áætlað
er að reisa á Steindórsplaninu. í
skipulagstillögunni er gert ráð fyrir
að tvö þessara húsa fari, þ.e. Aðal-
stræti 7 og Vallarstræti 4 (Hótel
Vík). Höfundar telja þó að halda
beri þessum húsum ef mögulegt er.
Ég tek undir það sjónarmið og tel
að þessi hús eigi tvímælalaust að
varðveita á staðnum.
Aðalstræti 7 er byggt árið 1881.
Það var í mörg ár í eigu Brynjólfs
H. Bjarnasonar kaupmanns, eins
af forvígismönnum kaupmanna-
stéttarinnar hér í borg. Þetta
rúmlega aldargamla hús er vel
byggt og vandað og ástand þess
ágætt. Við hlið þess stendur hús,
sem upphaflega var reist sem pakk-
hús, óvíst hvenær. Því hefur verið
breytt töluvert og virðist í lélegu
ástandi. Það mætti því að ósekju
fara.
Vallarstræti 4 eða Hótel Vík
hefur verið reist í áföngum. Þegar
það var byggt árið 1884 var það
einlyft á hiöðnum kjallara. Viðbót
var byggð vestan við árið 1896 en
1905 var byggð hæð ofan á allt
húsið og settar skrautlegar svalir
á, ásamt gluggaskrauti. Talið er
að Stefán Eiríksson skurðmeistari
hafi skorið gluggaskrautið, sem er
úr eik. Lagfæra þarf súlur og skraut
frá 1905 auk þess sem margt þarf
að gera við húsið til að bæta það
að innan. Skrautið setur á húsið
glæsilegan svip. Viðbyggingar á
bakhlið ættu að hverfa, þannig
fengist birta inn í húsið. Yrði Vallar-
stræti 4 komið í gott horf, setti það
mikinn svip á fyrirhugað „borgar-
torg“.
Aðalstræti 16. Þetta hús má
telja eitt hið merkilegasta í allri
Kvosinni. Hluti þess er byggður á
grunni lóskurðarstofu Innrétting-
anna og er því sennilega með elstu
byggingarhlutum í borginni, frá
miðri 18. öld. Þar var fyrsti bama-
skóli Reykjavíkur starfræktur á
árunum 1831 til 1848. Þar bjó lengi
Jón Guðmundsson ritstjóri Þjóðólfs
og í hans tíð var húsið vettvangur
mikillar þjóðmálaumræðu. Jón Sig-
urðsson var þar tíður gestur, svo
og Sigurður málari. Á þessum
tímum voru mikil umbrot í íslensku
þjóðlífi og gegndi Jón Guðmundsson
stóru hlutverki í sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar. Húsið var fullbyggt á
árunum 1895—1898. Vegna sögu
sinnar á þetta hús tvímælalaust að
varðveitast á staðnum. Það hefur
einnig mikla þýðingu fyrir sitt nán-
asta umhverfi, svo sem gamla
kirkjugarðinn og Gtjótaþorp.
Tjarnargata 3C. Húsið var byggt
árið 1880. 1887 komst það í eigu
Indriða Einarssonar, eins af stofn-
endum Leikfélags Reykjavíkur
1897. Hann bjó í húsinu ásamt fjöl-
skyldu sinni í mm 50 ár. Þetta er
með elstu húsunum á Alþingis-
hússreitnum. Það átti upphaflega
að standa við götu í framhaldi af
Veltusundi og átti hún að ná suður
að tjörn. Sú gata var aldrei lögð
og því stendur húsið all einkenni-
lega. Það er allmerkt og færi vel á
því að leyfa því að standa á sínum
stað. Sé þess ekki kostur, ætti að
varðveita það á safni.
Tjarnargata 5B. Það var byggt
árið 1895 af Geir Zoega kennara
og síðar rektor MR. Það er lítið og
látlaust en stendur mjög eitt eftir
að nærliggjandi hús em horfin.
Austurstræti 8. Það var byggt
árið 1886 af Birni Jónssyni ritstjóra
Ísafoldar og síðar ráðherra. Það var
mjög veglegt með skrauti yfir
gluggum. Þar var Morgunblaðið til
húsa frá 1913 fram í seinna stríð.
Það ætti helst að standa á sínum
stað, en vegna þess hve að því er
þrengt, mætti finna því annan stað
í Kvosinni, t.d. á þinghúsreitnum.
ísafoldarhúsið er tvímælalaust mið-
bæjarhús og á hvergi heima nema
þar. ...-
Hafnarstræti 21. Húsið sem þar
stendur var byggt af athafnamann-
inum H. Th. A. Thomsen kaup-
manni 1875. Bakvið það em gömul
pakkhús. Þetta em ein elstu versl-
unarhús bæjarins, leifar af miklu
kaupmannaveldi. Húsin á þessum
reit þarf að kanna vel og þau ættu
að fá að standa sem minnisvarði
þeirrar stéttar, sem Reykjavík hefur
löngum átt allt sitt undir. Sé ekki
hægt að varðveita þau, ætti að fínna
þeim stað á safni.
Kirlgustræti 8, 8B og 10. Þetta
em timburhús frá því um aldamót
eða fyrr. Númer 10 er elsta húsið
á Alþingishússreitnum eða frá því
árið 1879. Samkvæmt tillögum
skipulagshöfunda áttu þessi hús að
fá að standa. Þau em dæmigerð
bæjarhús í Reykjavík og mynda
fallega götumynd með Dómkirkj-
unni og Alþingishúsinu, ef þau yrðu
gerð upp. Nú hafa alþingismenn
samþykkt að láta byggja yfír sig
mikið stórhýsi, sem að mínu mati
mun raska öllum stærðarhlutföllum
í miðbænum. Við emm ýmsu vön,
sbr. Morgunblaðshöllin, en það er
miður að stofnun allrar þjóðarinnar
skuli ætla sér að riðla svo ímynd
Kvosarinnar að hún ber vart sitt
barr á eftir. Svona stórhýsi myndi
algjörlega bera þinghúsið og Dóm-
kirkjuna ofurliði. Væri nær að
Alþingi væri með í að undirstrika
þýðingu miðbæjarins fyrir sögu
Reykjavíkurborgar og þjóðarinnar
allrar, og nýttu sér þau gömlu hús
sem fyrir em á reitnum og léti
byggja nýtt hús, sem tæki fullt til-
lit til þeirrar byggðar sem fyrir er.
Lokaorð
í hinu nýja skipulagi að Kvosinni
er lögð mikil áhersla á samræmt
útlit og glæsilegan heildarsvip. í
greinargerðinni segir m.a.: „í öllum
nýbyggingum leggja höfundar
áherslu á að húsin hafi glæsilegt
yfírbragð miðborgarhúsa og séu í
háum gæðaflokki. Höfundar telja
miðbæinn það mikilvægan borgar-
hluta að gera þurfí mjög strangar
kröfur varðandi samræmt útlit
húsa, sérstaklega þar sem Kvosin
er ekki stærri en hún er og þolir
illa ósamræmi í húsagerð." (Bls. 7.)
Um efnisval segir: „Gera skal
hæstu gæðakröfur varðandi efnis-
Kynning á tölvu-
neti Pósts og síma
og fjarvinnslu
DAGANA 3.-5. desember kl. 9.30-12.00 er kynning á tölvuneti Pósts
og síma og fjarvinnslu að Háaleitisbraut 11 á vegum Tölvuþjónustu
sveitarfélaga: