Morgunblaðið - 04.12.1986, Side 45
45
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986
Wolfgang Edelstein
„Ef nota á rannsóknar-
niðurstöður til að rétt-
læta pólitískar
ákvarðanir ber rann-
sóknarmönnum skylda
til að gera rannsóknir
þannig úr garði að þær
standist tæknilega
gagnrýni og að niður-
stöður standi undir
túlkun þeirra.“
lagshópi" (þ.e. lægsta hóp í lag-
skiptu stéttakerfí) er næstum
fjórfalt meiri en í „fyrsta hópi“ í
báðum töflunum. Hvers vegna birt-
ir höfundur ekki fleiri töflur um
þetta fróðlega efni, sem þó snertir
innviðu skólakerfisins meira en flest
það sem hann telur birtingarvert í
könnun sinni? Hér missir dr. Bragi
vænan spón úr aski sínum. Hver
svo sem skýringin er — „fýrsti þjóð-
félagshópurinn", efsti hópur stétt-
arlegrar skiptingar, er hlutfallslega
töluvert fjölmennari í „einkaskóla“
ísaks Jónssonar, en lághópurinn
nær ekki nema helmingi þess hlut-
falls, sem hann hefur í „ríkisskólun-
um“. Taflan mundi sýna mjög
marktækan mun, ef dreifing lág-
hóps og háhóps í skólana væri
prófuð, að slepptum miðhópnum
sem dreifist jafnt yfir allar skóla-
gerðir. Kannski er Isaksskóli meiri
einkaskóli hvað félagslegan upp-
runa nemenda varðar en marga
grunaði áður en dr. Bragi birti
könnun sína. En augljóslega getur
misræmið í dreifíngu foreldranna á
ólíkar skólagerðir haft áhrif, ísaks-
skóla í vil, sem höfundur hefur látið
undir höfuð leggjast að taka tillit til.
Að lokum er rétt að skoða áhrif
breytu sem virðist saklaus í fyrstu.
Það er aldursskipting bama eftir
skólaflokkum. Hvers vegna skyldi
aldursskiptingin skipta máli, þegar
munur milli skóla er skýrður? Eru
bömin ekki öll í 7 ára bekkjum?
Höfundur greinir á milli elsta hóps
(böm fædd fyrir áramót og á fyrsta
ársþriðjungi), miðhóps (böm fædd
á öðrum ársþriðjungi), og yngsta
hóps (böm fædd á þriðja ársþriðj-
ungi og eftir næstu áramót). Menn
skyldu ætla að þau dreifðust jafnt.
En viti menn — elstu bömin eru
töluvert fjölmennari í ísaksskóla
(13% fleiri hlutfallslega en í hinum
skólunum) og yngstu bömin eru
um 8% færri. Þessi tala er mjög
nálægt hefðbundnum marktækni-
mörkum (p = .06).
En hvaða máli skiptir þetta?
Menn vita að námsþroski á
bemskualdri fylgir aldri að verulegu
leyti. Hálft ár er langur tími af
ævireynslu 7 ára bams og getur
skipt verulegu máli í aðlögun að
námi og félagslegum venjum skól-
ans. Hvergi skiptir aldursmunurinn
þó meira máli en í upphafí skóla,
eins og fóstrur og kennarar vita
mæta vel. ísaksskóli nýtur því ekki
einungis lengra forskólanáms bam-
anna (2 ár í stað eins) heldur og
aldursmunar þegar bömin koma í
skóla. Og vissulega getur þessi
munur leitt til þess að færri neikvæð
svör berast Isaksskólanum en hin-
um.
Því miður fann ég hvergi töflur
sem prófa hvort aldur nemenda
skiptir máli í mati foreldra á starfí
skóla. Þar sem gengi bams í skóla
er tengt aldri þess í bemsku væri
nauðsynlegt að kanna áhrif þessa
þáttar — eins og annarra félags-
legra þátta — áður en ályktanir em
dregnar um áhrif annarra þátta sem
þessir gætu skýrt. Allar þessar
breytur — og einnig þær félags-
breytur sem hér hafa ekki verið
teknar til umræðu, hallast í sömu
átt, dreifíng þeirra og væntanleg
áhrif em Isaksskóla í vil, einkum
þegar samvirk áhrif þeirra em
metin. Höfundur hefur engar ráð-
stafanir gert til að jafna þennan
halla. Að öllu þessu athuguðu verð-
ur að álykta að allur sá munur á
viðhorfum foreldra (en ekki á námi
og starfí 7 ára nemenda, eins og
höfundur lætur í veðri vaka í inn-
gangi) sem dr. Bragi rekur til áhrifa
ólíkra skólagerða — ríkisskóla og
einkaskóla — fylgi félagslegum að-
stæðum foreldra og dvalartíð
nemenda í skóla.
Lokaorð
Hér skal ekki ijölyrt um ástæður
til þess að dósent í KHÍ geri — og
Skólaskrifstofa Reykjavíkur gefí út
— rannsóknir á meintum gæðamun
milli einkaskóla og annarra al-
mennra skóla. Þó virðast liggja til
þess augljósar hugmyndafræðilegar
ástæður. Því verður ekki á móti
mælt að rannsóknarefnið getur
verið forvitnilegt og jafnréttmætt
og ýmis önnur. Forsvarsmenn hins
opinbera skólakerfís yrðu að taka
sig á ef í Ijós kæmi, eins og oft
vill verða, að einkaskólar taki hinum
fram. Það verður að segja það skýr-
um orðum að engar slíkar ályktanir
verða dregnar af þeim niðurstöðum
sem um þetta hafa birst í könnun
dr. Braga. Hitt er annað mál, að
skýringar eru oftast auðfundnar á
mun milli skóla sem eru kostaðir
af opinberu fé, og einkaskóla:
Einkaskólar og forsvarsmenn þeirra
hafa meira fé handa á milli, njóta
fulltingis áhugasamra foreldra,
betri kennara sem þeir greiða hærri
laun, — og þeir ráða vali nemenda
sinna sjálfír. Isaksskóli nýtur sumra
þessara kosta. En hann nýtur þeirra
á grundvelli ríkisforsjár, sem gerir
honum kleift að tryggja uppeldis-
og námsframboð sitt með takmörk-
uðu viðbótarframlagi áhugasamra
foreldra. Umræða um þessi mál
hefur að mestu farið fram af tilefni
stofnunar Tjarnarskóla sem hlaut
starfsskilyrði sín á opinberan kostn-
að án þess að réttlætast af jákvæð-
um nýbreytnihefðum. Hvers vegna
valdi dr. Bragi þá ekki Tjarnarskól-
ann til samanburðar við hina
skólana? Spyr sá sem ekki veit. Ef
yfírvöld ætla að réttlæta frekari
tilfærslu íjármuna til einkaskóla
með rannsóknamiðurstöðum verða
rannsóknir að vera tæknilega óum-
deilanlegar. Túlkanir orka iðulega
tvímælis, en á tæknileg gæði og
aðferðafræði verður frekar sæst.
Ef nota á rannsóknamiðurstöður
til að réttlæta pólitískar ákvarðanir
ber rannsóknarmönnum skylda til
að gera rannsóknir þannig úr garði
að þær standist tæknilega gagnrýni
og að niðurstöður standi undir túlk-
un þeirra.
Það er augljóst að ísaksskóli
kémur vel út úr þessari könnun og
það kemur sjálfsagt engum á óvart.
Honum má á sama standa, hvort
einhveijar tilfærslur einstaklinga
milli reita á töflu breyti niðurstöðum
til eða frá. Honum er enginn greiði
gerður með því að rekja til réttar-
stöðu og eignarforms einkaskóla
(sem tæpast er réttnefni) þau upp-
eldisáhrif sem ljóslega stafa af
starfshefðum gróins skóla. En
vissulega væri uppeldi og skólum
hagur af því að starf þeirra væri
kannað og séreinkenni þeirra tíund-
uð í vel gerðum könnunum. Ekkert
hefur skort meira til að beina deilum
undanfarinna ára um skólamál í
skynsemisátt en vel gerðar rann-
sóknir á starfí skólanna.
Það er ljóst að ýmis fróðleikur
felst í töflum og tölum dr. Braga,
þó að hann hafí ekki kosið að beina
athyglinni að því sem helst skyldi.
Það er sorglegt að forvitnilegar
spumingar sem varða nám og
skólastarf eða sambandið milli við-
horfa foreldra og frammistöðu
bama skuli engin svör fá. En ef til
vill má segja að betur sé farið en
heima setið ef þessi tilraun verður
til þess að rannsóknir verði efldar
og rækt lögð við gæði þeirra. Hver
veit nema opinberir aðilar hjá ríki
og borg sjái sér meiri hag í því en
hingað til að binda ákvarðanir við
upplýsingu í stað ógmndaðra dóma,
og styrkja t.d. langsvelta rannsókn-
arstofnun uppeldismála til þess að
afla hennar.
Höfundur er stjómandi viðMax
Planck rannsóknarstofnun
menntamála i Vestur-Berlín.
GALLERl Borg opnar í dag, 4.
desember, jólasýningu sína í ár,
með því að bjóða viðskiptavinum
sínum, gestum og gangandi upp
á jólaglögg af þessu tilefni.
Á jólasýningu Gallerís Borgar
kennir ýmissa grasa. Þar verður
að sjá megnið af þeirri nýju grafík,
sem fram hefur komið í ár, nýjar
og gamlar vatnslita-, pastel- og
olíumyndir. Þá verður einnig til
í KVÖLD, 4. desember, verður
leikinn jass í Djúpinu, Hafnar-
stræti 15. Það er tríó Egils B.
Hreinssonar sem leikur ásamt
einleikurúm frá um kl. 21.30.
Tríóið skipa auk Egils, sem leikur
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Suðurnesja
Sveit Guðmundar Ingólfssonar
sigraði af öryggi í JGP-mótinu sem
lauk sl. mánudagskvöld. 10 sveitir
spiluðu í keppninni og vom spilaðir
tveir 16 spila leikir á kvöldi. Með
Guðmundi spiluðu í sveitinni: Karl
Hermannsson, Jóhannes Sigurðs-
son og Gísli Torfason.
Sveit Guðmundar Ingólfssonar
hlaut 201 stig en þar sem einum
leik er ólokið í keppninni er ekki
Ijóst hvemig lokastaðan verður.
Sveit Rúnars Baldurssonar er í öðra
sæti með 155 stig og á óspilaðan
leik gegn sveit Gests Auðunssonar
sem hefír 139 stig. Staðan fyrir
síðasta leikinn er þessi:
Guðmundur Ingólfsson 201
Rúnar Baldursson 155
Guðmundur Þórðarson 144
Gestur Auðunsson 139
Sigurður Steindórsson 139
Haraldur Brynjólfsson 137
Næstu tvo mánudaga verður spil-
aður barometer með peningaverð-
launum. Spilað er í Samkomuhúsinu
í Sandgerði kl. 20.
sýnis og sölu keramik og gler og
sitthvað eftir lifandi og liðna meist-
ara íslenskrar listsköpunar.
Sýningin í Galleríinu verður
breytileg, þ.e. í hvert sinn sem eitt-
hvað er selt og tekið úr húsi, kemur
annað og nýtt þess í stað. Sýning
þessi er sölusýning.
Gallerí Borg er opið frá kl. 10.00
nema á mánudögum frá kl. 12.00.
(Fréttatilkynning)
á píanó, Tómas R. Einarsson, sem
leikur á kontrabassa og Guðmundur
R. Einarsson sem leikur á tromm-
ur. Einleikarar verða m.a. Sigurður
Jónsson saxófónieikari og Edward
Frederiksen básúnuleikari.
* *♦
Bridsfélag- Akureyrar
Þegar Akureyrarmótið í sveita-
keppni er hálfnað hefír dregið
saman með efstu sveitum.
Staðan:
Grettir Frímannsson 164
Gunnlaugur Guðmundsson 152!
Ámi Bjamason 152
Símon I. Gunnarsson 140
ZariohHamadi 139
GunnarBerg 131
Hellusteypan 121
Næstu tvær umferðir verða spil-
aðar á þriðjudaginn kemur kl. 19.30
í Félagsborg.
Fyrirhugað er að halda eins dags
jólamót í Blómaskálanum Vín við
Hrafnagil 27. eða 28. desember nk.
Þetta verður opið mót og er öllum
heimil þátttaka hvaðanæva af
landinu.
Bikarleikir í bikarkeppni Norður-
lands em í fullum gangi en 1.
umferðinni á að ljúka um helgina.
Nýjar gardínur á 50 krónur!
Ef gardínurnar þínar þola vatn þá
þola þær líka Bio-tex - undraþvotta-
efni sem gerir gömlu gardínurnar
sem nýjar á 15 mínútum.
Þú setur ylvolgt vatn í bala eða
baðker og 1 dl af bláu Bio-tex í
hverja 10 1 af vatni. Þegar duftið
hefur blandast vatninu leggur þú
gardínurnar í. Eftir að hafa dregið
gardínurnar fram og til baka í
vatninu í u.þ.b. 10 mín. skolar þú
þær í hreinu vatni og hengir til
þerris. Arangurinn er augljós,
gardínurnar verða sem nýjar og
íbúðin fyllist ferskara lofti.
Blátt Bio-tex í allan handþvott og
grænt Bio-tex í þvottavélina
(forþvottinn).
Undraefni í allra hendur. Fæst í næstu verslun.
Halldór Jonsson hf. Dugguvogi 8-10, sími 686066
Jólasýning Gallerí
Borgar opnar í dag
Jass í Djópinu