Morgunblaðið - 04.06.1987, Page 73
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987
73
PSG býður
Hoddle 380
þúsund í
vikulaun!
Frá Bob Hennessy f Englandl.
FRANSKA knattspyrnuliðið
Paris St. Germain hefur boðið
Glenn Hoddle, enska landsliðs-
manninum hjá Tottenham,
tveggja ára samning en nú
strandar á að félögin nái að
semja um kaupverðið. Frakk-
arnir eru tilbúnir að borga 500
þúsund pund, 600 þúsund í
mesta lagi, en Spurs vill fá eina
milljón punda fyrir Hoddle.
Þess má geta að Parísar-liðið
hefur Hoddle 6.000 pund í laun
á viku - en það er andvirði um
380 þúsund íslenskra króna!
Það er ríflega helmingi meira
en Hoddle hefur í laun hjá
Spurs.
McQueen stjóri
GORDON McQueen, skoski
landsliðsmaðurinn fyrrverandi
sem lék með Leeds og Manc-
hester United á sínum tíma,
hefur verið ráðinn stjóri í knatt-
spyrnuliðs í fyrsta skipti. Hann
tók við Airdrie í skosku 1. deild-
inni, samdi við liðið til tveggja
ára, eftir að hafa dvalið í 18
mánuði í Hong Kong. McQueen
er sá fyrsti í 20 ár sem verður
í fullu starfi hjá Airdrie sem
stjóri.
ORIENT, sem leikur í 2. deild,
mun héðan í frá heita Levton
Orient, eins og félagið hét í
upphafi. 21 ár er nú síðan Lev-
ton var skorið af en nú hafa
forráðamenn félagsins ákveðið
að taka það upp aftur.
DENNIS Smith hefur ráðinn
stjóri hjá Sunderland. Hann er
mikill harðjaxl, lék með Stoke á
sínum tíma, og var þá einna
frægastur fyrir hrakfallasögur -
hafði brotið nánast hvert bein
í líkamanum a.m.k. einu sinni
áður en hann lagði skóna á hill-
una. Hann kemur til Sunder-
land frá York City, og lækkar
launum. Hafði 45.000 pund á
ári en fær 40.000 hjá Sunder-
land. Ef hann kemur liðinu upp
í 2. deild bíða hans svo meiri
peningar.
Stapleton til Ajax?
JOHAN Cruyff, stjóri Ajax, seg-
ir að fljótlega verði gengið frá
kaupum félags síns á írska
landsliðsframherjanum Frank
Stapleton frá Manchester Un-
ited. Stapleton er þrítugur að
aldri. Alex Ferguson er að end-
urskipuleggja United-liðið og
Ijóst er að ekki verður lengur
pláss fyrir Stapleton lengur á
Old Trafford.
Beardsley til Li-
verpool?
Háværar raddir eru nú uppi um
það í Englandi að Liverpool
kaupi enska framherjann Peter
Beardsley frá Newcastle áður
en næsta keppnistímabil hefst.
Liverpool bauð 1,4 milljón
punda í hann í síðustu viku en
forráðamenn Newcastle höfn-
uðu því boði. Kenny Dalglish,
stjóri meistaranna fyrrverandi,
hefur fengið leyfi frá stjórn fé-
lagsins, til að eyða þremur
milljónum punda til kaupa á
nýjum mönnum fyrir næsta
tímabil - það á sem sagt að
leggja allt í sölurnar til að ná
titlinum frá nágrönnunum aftur.
Þess má geta að heyrst hefur
að Ray Houghton, miðvallar-
leikmaður Oxford, sé einnig á
innkaupalista Dalglish, svo og
Kenny Sansom, enski lands-
liðsbakvöröurinn hjá Arsenal.
Liverpool vantar vinstri bak-
vörð í stað Jim Beglin sem
brotnaði illa í fyrra, en Ronnie
Whelan lék í stöðu bakvarðar
síðari hluta síðasta keppn-
istímabils.
Opna franska meistaramótið ítennis:
Evert og Navratilova
mætast í 72. skipti
Keppa í undanúrslitum mótsins. Lendl gegn Mecir, Becker gegn Wilander
NÚ er langt liðið á opna franska
meistaramótið í tennis; komið er
að undanúrslitum bæði f einliða-
leik karla og kvenna.
„Gömlu" kempurnar Chris Evert
og Martina Navratilova mætast
annars vegar í undanúrslitunum
og hins vegar hinar ungu og upp-
rennandi Steffi Graf, Vestur-
Þýskalandi, og Geraldina Sabatini,
Argentínu. í undanúrslitunum í
karlaflokki leika Tékkinn Ivan
Lendl, Svíinn Mats Wilander, Boris
Becker frá Vestur-Þýskalandi og
Tékkinn Miroslav Mecir. Lendl,
sem er besti tennisleikari heims í
dag skv. lista alþjóöasambands-
ins, mætir landa sínum Mecir í
undanúrslitunum og Wilander leik-
ur gegn Becker.
Til gamans má geta þess að
viðureign Navratilovu og Evert í
undanúrslitunum verður sú 72. í
röðinni síðan þær mættust fyrst
árið 1973. Navratilova hefur vinn-
inginn, 37:34. Þær hafa mætst í
úrslitum opna franska meistara-
mótsins í tvö síðustu skipti og
Evert hefur sigrað í bæði skiptin.
Leikið er á leirvöllum á þessu
móti og samtals hefur Evert vinn-
inginn, 10:2, í leikjum þeirra á
lein/öllum.
í átta manna úrslitum sigraði
Lendl Andres Gomez frá Ekvador
(5:7, 6:4, 6:1, 6:1), Mecir sigraði
landa sinn Karel Novacek (7:6, 6:1,
6:2), Becker sigraði Jimmy Con-
nors, gömlu stjörnuna frá Banda-
ríkjunum (6:3, 6:3, 7:5), og
Wilander sigraði Frakkann Yannick
Noah (6:4, 6:3, 6:2). Tveir síðar-
nefndu leikirnir fóru fram í gær,
tveir hinir fyrri í fyrradag. Leið
kvennanna í undanúrslit var þann-
ig: Martina Navratilova sigraði
Claudie Kohde-Kilsch, Vestur-
Þýskalandi (6:1, 6:2), Chris Evert
bar sigurorð af Raffaella Reggi,
Italíu (6:2, 6:2), Gabriela Sabatini
sigraði Arantxa Sanches, Spáni
(6:4, 6:0) og Steffi Graf vann
Manuela Maneeva frá Búlgaríu.
Óvænt úrslit
ÍSRAEL kom heldur betur á óvart
í úrslitum Evrópukeppni landsliða
í körfuknattleik, sem hófust f
Aþenu í gær. ísraelsmenn gerðu
sér lítið fyrir og unnu Tékka 99:83
í fyrsta leik f B-riðli.
Tékkar höfnuðu í 2. sæti á eftir
Sovétmönnum 1985, en þjálfari
þeirra, Pavel Petera, sagðist ekki
hafa gert ráð fyrir Tékkunum svo
sterkum. „En við lékum líka illa,
bæði í vörn og sókn," sagði Pet-
era, sem var ósáttur við tímasetn-
inguna, en leikurinn hófst klukkan
10 í gærmorgun.
Tímasetningin féll ísraelsmönn-
um ekki heldur í geð, en Svi Sherf,
þjálfari þeirra, var að vonum án-
ægður með sína menn. Doron
Jamchee var þeirra stigahæstur,
skoraði 37 stig.
Pólland vann Holland 91:84 og
í þriðja leiknum í B-riðli sigraði ít-
alía Vestur-Þýskaland 84:78. í
A-riðli vann Spánn Frakkland
111:70.
Chris Evert gefur upp og eins og
sjá má vantar ekki einbeitnina.
Það er líka elns gott að slaka
ekki á f tennismótum - mlklir pen-
ingar og heiður eru f veði. Evert
mætir Martinu Mavratilovu f und-
anúrslitunum - Navratilova hefur
vinninginn samanlagt f viðureign-
um en Evert hefur verið betri á
möl hingað til, en leikið er á möl
f París.
Ivan Lendl, einbeittur á svip,
sendir knöttinn áleiðis yfir til
Andres Gomez í fyrradag.
Símamyndir/Reuter
• Boris Becker, sigurreifur, eftir að hafa lagt Bandarikjamanninn
Jimmy Connors að velli f gær.
A
Leiðrétting
ÞAU mistök urðu hjá okkur f gær
að við birtum mynd af stúlkum f
3. flokki UMFN og sögðum þær
vera íslandsmeistara f hand-
knattleik. Njarðvfkurstúlkur urðu
meistarar f fyrra en Vfkingar f ár
og er það hér með leiðrétt.
Verð kr. 3.430.- Stærðir 3-9 — Litir:
Hvítir/grænir — Hvítir/bláir
smmwmsLUN
INGÖLFS
ÓSKARSSONAR
Klapparstfg 40
ÁmwnLMmncs
og mmsGóni
s:im