Morgunblaðið - 19.06.1987, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.06.1987, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1987 TRYGGÐU GÆÐIN -TAKTÁ KODAK... Mazda eigendur Bestu kaupin eru hjá okkur! Hjá okkur fáiö þið original pústkerfi í allar gerðir MAZDA blla. Við veitum 20% afslátt ef keypt eru heil kerfi með festingum. Kaupiö eingöngu EKTA MAZDA pústkerfi eins og framleiðandinn mœlir meö — þau passa í bílinn. BÍLABORG HF. FOSSHÁLSI 1.S.68 12 99. Samkeppni í sjávarútvegi eftirSigurð Tómas Garðarsson í kjölfar ummæla forustumanna stóru sölusamtakanna SH og SÍF á ársfundum sínum, sem haldnir voru nýlega með stuttu millibili, hefur nokkur umræða orðið í fjölmiðlum um meinta óstjóm útflutnings á sjávarafla. Því miður gafst mér ekki tækifæri til að sitja þessa fundi, þrátt fyrir réttindi til þess, og því er skilningur minn á mál- flutningi þeirra byggður á ummæl- um í fjölmiðlum undanfarið. Tvö atriði hnýt ég helst um og langar að gera hér að umræðuefni. Annað er óskin um ein samtök sjávarútvegsins og hitt er umræð- an um orsök og afleiðingu hins svokallaða „gámaútflutnings". Einhvern veginn leggst þetta í mig, eins og verið sé að fara í öfuga átt. Menn hanga í pilsfaldi opin- berrar vemdar og þora ekki að sleppa. Hins vegar krefjast þeir þess, að fá ekki aðeins betra hald í pilsfaldinum, heldur vilja hengja alla aðra í hann líka, í stað þess að sleppa og standa á eigin fótum. Sölumenn í hags- munagæslu Friðrik Pálsson, forstjóri Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna, hittir naglann á höfuðið þegar hann, í ræðu sinni á ársfundi SH, minnti á reikula hagsmunagæslu innan sjávarútvegsins. Það gefur augaleið að þegar söludeild fyrirtækisins, í þessu tilfelli SH og SÍF, er sett í launasamninga, vöruinnkaup og fjárfestingaskipulag, svo dæmi séu tekin, þá situr eitthvað á hakanum. Mér er ekki kunnugt um hve mörgum nefndum og ráðum þeir félagar Magnús Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri SÍF, og Friðrik sitja í fyrir okkur fiskframleiðendur, en vel má leiða líkur að því að sölu- störf þeirra líði fyrir nefndimar. Þeir sitja kannski ekki í hverri nefnd og ráði, en þeim er ætlað að fylgj- ast með og gæta hagsmuna okkar víðast hvar, þó svo að í flestum til- fellum séu félagsmenn samtaka þeirra einnig félagar í Vinnuveit- endasambandi íslands eða Sam- bandi fiskvinnslustöðvanna, þar sem þessi hagsmunagæsla ætti að fara fram. Reyndar vill svo til, að þar sitja sérstakir fulltrúar sö- jusamtakanna eins og fulltrúar fyrir þvem annan hagsmunahóp. Já, þeir hafa í mörg hom að líta, og eðlilegt að ræður þeirra um starf liðins árs séu skrautlegar. Það skal engan undra þótt fyrr- greind vandamál kalli fram hugmyndir um ein stór heildarsam- tök til lausnar, því okkur sem emm Sigurður Tómas Garðarsson „Ekki veröur um g’áma- fiskinn fjallað nema skoða þátt sölusamtak- anna sjálfra í þessari þróun. I rúmt ár hafa seljendur í Verðlags- ráði sjávarútvegsins boðið fiskkaupendum upp á frjálsa verðlagn- ingu á fiski og þar með tækifæri til að jafna aðstöðumun íslenskra fiskframleiðenda í sam- keppninni um fiskinn. Þessu boði hefur nú loks verið tekið.“ úti í litlu fískvinnslufyrirtækjunum, er yfirleitt hlíft við því að hugsa um hagsmuni okkar eða taka sjálf- stæðar ákvarðanir í rekstrinum. Sölumennimir sjá um þetta eða stóru félagar okkar í bransanum, eftir því hvort við á. Sérleyfin Þrátt fyrir ofangreinda gagnrýni á málflutning forustumanna sölu- samtakanna, veit ég að þeim gengur gott eitt til. Vandamálin em mörg og flókin. Það atriði sem þeir em sérstaklega bundnir af em sér- leyfín í útflutningi. Vegna þeirra liggja þeir undir stöðugu ámæli, ef eitthvað bjátar á, þó svo að ekki verði annað betra gert í stöðunni. Leiðir allra fiskframleiðenda liggja að samtökum þeirra með einum eða öðmm hætti, út af þessum sérleyf- um, og því eðlilegt að leiðir vandamálanna liggi um skrifstofur þeirra líka. Af alkunnri þjónustu- lund og greiðvikni ganga þeir í málin, án þess að hafa raunvemlega þann tilgang að leysa þau. Stjóm- völd á hverjum tíma hafa falið sölusamtökunum ýmis erindi, sem réttilega ættu að vera í höndum VSÍ eða Sambands fiskvinnslu- stöðvanna. Með þá hættu yfir höfði sér að missa sérleyfin, ef þau neita eða vísa á aðra, taka þau öllum erindum stjórnvalda eins og hverri annarri þegnskyldu. Sá alkunni misskilningur margra manna í sjávarútvegi að sölusam- tökin þurfi sérstaka starfsvemd til að halda velli er, eins og hér hefur verið rakið, keyptur dým verði. Afskipti sölusamtakanna af fisk- verðsákvörðunum, starfsemi opin- berra fjárfestingasjóða og launasamninga, binda samkeppnis- stöðu þeirra og sveigjanleika í starfi. Þau verða stöðugt að gæta hagsmuna og ábyrgðar samtak- anna í þessum málaflokkum. Sölumennimir hafa ekki starfsfrið og eyða kröftum sínum í allt annað en til stendur. Tilfinning þeirra fyr- ir samkeppni slævist, því þeir komast aldrei í sama návígi við aðra og keppinautar þeirra erlendis. Að lokum leggja sérleyfin sölu- mönnunum þær skyldur á herðar, að taka við öllu sem framleitt er, án tillits til þarfar. Eins verða þeir að millifæra og jafna allar greiðsl,- ur, þó svo að mikill munur geti verið á gæðum og verði milli fram- leiðenda innbyrðis og kaupenda á mörkuðunum. Gámaútflutningnr Gámaútflutningurinn er líklega undirrótin að öllum þessum vanga- veltum og þá fyrst og fremst vegna þess að íslensku fiskvinnslufyrir- tækin hafa staðið berskjölduð gagnvart þessari þróun. Jafnaðar- verð fyrir fiskinn hefur verið hærra erlendis en greitt er hér á landi. Skiptaprósenta til áhafna er hærri. Skortur er á vinnuafli í fiskvinnslu- fyrirtækjum og margar tegundir sem sendar hafa verið í gámum hafa skilað svo lélegri afkomu í vinnslunni hér heima að besti kost- urinn hefur verið að senda þann físk á uppboðsmarkaði. Eins er það svo að á stórhátíðum og yfír sum- artímann, þegar verð hefur verið hvað lægst á „gáma“-fískinum, er oft ekki aðeins erfitt að fá fólk til vinnu heldur eru kjarasamningar og vinnulöggjöfín svo stíf að físk- vinnslufyrirtæki eiga erfitt með að taka við miklum afla vegna tak- markana á vinnutíma og óhagstæð- um launakostnaði ef unnt er. Af þessari upptalningu má sjá að margt kemur hér við sögu, en fyrst og fremst eru það okkar innri mál sem hamla en ekki einhver belli- brögð útlendinga, eins og gefíð er til kynna í umræðunni. Meirihluti íslenska fískiskipaflot- ans er með einum eða öðrum hætti tengdur fískvinnslufyrirtækjum. Eignarhald er á sömu hendi og jafn- vel misjafnt hvort gámafiskur hefur verið seldur í nafni útgerðar eða fiskvinnslu. Eigendur gámafísksins skoða jafnan þá kosti sem fyrir eru í sölumálum og meta stöðuna með tilliti til margra þátta. Verðlag veg- ur væntanlega þungt við ráðstöfun aflans. Erfítt mannahald, miklar birgðir, fjármagnskostnaður og aðrar aðstæður koma þama oft til sögunnar. Reyndar má segja að tvö Hefjið veiðiferðina hjá Veiðimanninum HAFNARSTRÆTI 5 SÍMAR 16760 og 14800
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.