Morgunblaðið - 19.06.1987, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1987
+
Eiginmaður minn,
BRYNJÓLFUR ÁGÚST ALBERTSSON,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður Sólvallagötu 24, Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 20. júní kl.
14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast
hans er bent á Krabbameinsfélag fslands.
Guðný Kristfn Halldórsdóttir.
t
Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
LIUA RANNVEIG BJARNADÓTTIR,
Skúlagötu 76,
er lést 12. þessa mánaðar, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 23. júnf kl. 13.30.
Jón Traustason,
Hörður Hólm Garðarson, Guðrún Ólafsdóttir,
Þóra Haraldsdóttir Larsen, Kaj A. Larsen,
Bjarni Jónsson,
og barnabörn.
+
ÞORBJÖRG K. SNORRADÓTTIR,
Aðalbraut 5,
Raufarhöfn,
verður jarösungin frá Fossvogskirkju, í dag, föstudaginn 19. júní,
kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaöir, en þeim sem
vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir.
Eirfkur Þorstelnsson,
Þorbjörg Steingrfmsdóttlr,
Anna Þ.Toher,
Arna Borg Snorradóttir,
Steingrfmur Snorrason,
Ævar Snorrason,
Pótur Steinn Guðmundsson,
Sighvatur Sveinsson,
Marfa Einarsdóttir,
Anna Jóna Haraldsdóttir.
+
Útför
SIGURÐAR P. TRYGGVASONAR,
Lækjargötu 3,
Hvammstanga,
fer fram frá Hvammstangakirkju laugardaginn 20. júní kl. 16.00.
Fyrir hönd aðstandenda.
Ásdfs Pálsdóttir.
+
RANNVEIG SIGRÍÐUR BJARNADÓTTIR,
fyrrum húsfreyja f Stóru-Sandvfk,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 20. júní kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigrfður Kristfn Pálsdóttir, Tómas Magnússon,
Rannveig Pálsdóttir, Kristinn Kristmundsson,
og fjölskyldur.
+
Alúðarþakkir fyrir hlýhug og veitta samúð við andlát og útför eigin-
manns míns, föður, tengdaföður og afa,
NIKULÁSAR MARELS HALLDÓRSSONAR,
Reynimel 61, Reykjavfk.
Drottinn blessi ykkur.
Rose E. Halldórsson,
Frank M. Halldórsson,
Betsy Halldórsson,
Georg Halldórsson, Stefanfa Guðmundsdóttir,
Eva Aldis Georgsdóttir, Ragnar Marel Halldórsson.
+
Alúðarþakkir færum við öllum sem heiöruöu minningu
EGILS TH. SANDHOLT,
Gullteigi 18,
við andlát hans og útför og sýndu samúð og vináttu.
Sigrfður M. Sandholt,
Stefán Sandholt, Marfa I. Áðalsteinsdóttir,
Gunnar M. Sandholt, Hólmfrfður K. Karlsdóttlr,
Egill, Gerða Björg, Slgrfður Svava, Anna Sigrfður og Kart Magnús.
+
Alúöarþakkir fyrir vinsemd og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR
fró Norður Götum f Mýrdal,
sfðast tll heimilis á Þrastargötu 7.
Bestu þakkir til starfsfólks Borgarspítalans á deild B-5.
Börn, tengdabörn og bsrnabörn.
Minning:
Jón Guðmundsson,
Hafnarfirði
Fæddur 2. januar 1933
Dáinn ll.júní 1987
Eg var að skrifa Jóni bréf þegar
síminn hringdi — og á næsta augna-
bliki vissi ég að hann fengi aldrei
tækifæri til að lesa það.
Mig langaði til að segja honum
hversu mikils virði vinátta hans
væri og hve vænt okkur þætti um
hann, nú get ég bara vonað að
hann hafí vitað það.
Hvers vegna eigum við svo erfítt
með að segja það sem okkur býr í
bijósti? Því getum við ekki sagt við
bestu vini okkar „ég elska þig“,
erum við hrædd við að verða mis-
skilin?
Ég kynntist Jóni fyrir nokkrum
árum og við urðum strax góðir vin-
ir. Ég þurfti ekki að vita neitt um
hann, hlýjan og hreinskilnin í fari
hans fullvissaði mig um að hann
væri allur þar sem hann var séður.
+
Þakka innilega alla vinsemd og samúð við andlát og útför móöur
minnar,
MARfU GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Lækjarbug.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigrföur Sveinbjörnsdóttir.
+
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu samúð og hlýhug við andlát
og jarðarför eiginkonu minnar og móður okkar,
UNNAR TRYGGVADÓTTUR.
Jakob T ryggvason,
Nanna Jakobsdóttir og fjölskylda,
Sofffa Jakobsdóttir og fjölskylda
Tryggvi Jakobsson og fjölskylda.
SVAR
MITT
eftir Billy Graham
Handleiðsla Guðs
Hvernig veistu þegar drottinn er að tala við þig og segja
þér hvað hann vill að þú gerir?
Þetta er mjög mikilvæg spuming því að öll þörfnumst
við handleiðslu Guðs um ævina. Þó er mjög auðvelt að
sneiða hjá leiðbeiningum hans eða misskilja það sem hann
er að segja okkur að gera.
Fyrsta skrefíð til að vita vilja Guðs varðandi okkur er
að minni hyggju það að við þráum af öllu hjarta að gera
vilja hans. Það kann að virðast mótsagnakennt — og það
er það — en of oft vill það brenna við að við biðjum Guð
að sýna okkur vilja sinn, þó að við ætlum okkur ekki að
fara eftir því nema það komi heim með áætlanir okkar
sjálfra. Hví skyldi Guð birta okkur vilja sinn ef við erum
ófús að hlýða honum? (Samt getur hann auðvitað sagt
okkur hvað hann vill svo að við séum án afsökunar ef við
óhlýðnumst honum. En við skulum aldrei vænta þess að
hann geri það ef við kærum okkur ekki um það.)
Þessu næst þurfum við að hafa hugfast að hann hefur
þegar birt okkur vilja sinn í Biblíunni. Biblían er orð Guðs.
Hún segir okkur ákaflega margt um vilja Guðs varðandi
líf okkar. „Þitt orð er sannleikur," segir Biblían (Jóh. 17,17.)
Ef þú þekkir ekki orð Guðs geturðu aldrei komist fullkom-
lega að raun um hvers Guð óskar er hann vill leiða þig. En
ef þú skilur undirstöðuatriði hennar og reynir að heimfæra
þau til lífs þíns, þá veistu hvað það er að lifa í samræmi
við vilja Guðs. Biblían segir t.d. að við eigum að vera „heil-
agir í allri hegðun". (1. Pét. 1,15.)
Eg þarf því ekki að spyrja hvort eg megi eða eigi að
skrökva eða svíkja eða gera eitthvað sem er óhreint. Guð
hefur þegar sagt mér að vera hreinn.
Við viljum biðja Guð að leiða okkur þegar við þurfum
að taka ákvarðanir í daglegu lífi. Hvemig gerir hann það?
Stundum lætur hann ytri aðstæður verða okkur til leið-
beiningar. Dyr lokast okkur, og aðrar opnast þegar við
leitum vilja hans. Stundum lætur Guð aðra kristna og þrosk-
aða menn veita okkur leiðsögn þegar við spyrjum þá ráða.
Loks getum við fundið til hvatningar innra með okkur er
heilagur andi leiðbeinir okkur.
Gleymdu aldrei fyrirheiti Guðs: „Treystu Drottni af öllu
hjarta en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit. Mundu til hans
á öllum þínum vegum, þá mun hann gjöra stigu þína
slétta.“ (Orðskviðimir, 3, 5—6.)
Og það kom á daginn. Jón reynd-
ist systur minni mjög góður og
elskulegur eiginmaður og gagnvart
bömum hennar var hann ávallt til-
litssamur og hjálpfús. Svo voru það
bamabömin — þau elskuðu hann.
Það var eitt sem ég gat aldrei
skilið. Jón var svo þakklátur fyrir
hvem smágreiða sem honum var
gerður, en virtist aldrei veita því
athygli hversu mikið hann gerði
fyrir aðra.
Hvemig áttum við að vita að
okkar kæri vinur væri á svo snöggri
ferð í þessum heimi? Og hvemig
stendur á að hann skilur eftir svo
stórt skarð í okkar litla hópi?
Eitt er víst, við sem höfum notið
heiðurs og ánægju af vinskap Jóns
munum ávallt minnast hans með
kærleika og söknuði því við elskuð-
um hann.
Helga mágkona
í dag er borinn til grafar vinur
okkar og félagi, Jón Guðmundsson,
er lést í Landakotsspítala 11. júní sl.
Jón er fæddur 2. janúar 1933 í
Hafnarfirði og bjó þar alla tíð.
Hann fór snemma að vinna og var
eftirsóttur vinnukraftur, vann fyrst
sem tækjastjóri þar til hann stofn-
aði sitt eigið fýrirtæki, sem var
Hjólbarðaverkstæði Hafíiarfjarðar,
og rak það í mörg ár. Þá vann hann
í Álverinu í Straumsvík í nokkur
ár, þar til hann gerðist vörubílstjóri
á Vömbílastöð Hafnarfjarðar.
Við kynntumst ekki „Jóni
dekkja", eins og hann var ávallt
kallaður í Hafnarfírði, fyrr en árið
1971. Við urðum góðir félagar og
vinir, hann var traustur og vin-
margur, enda einn þeirra sem aldrei
gat sagt nei, ef leitað var til hans,
svo ótrúlega greiðvikinn og hjálp-
fús. Það er ótrúlegt að þessi stóri
og hrausti maður skuli vera farinn
og munum við sakna hans úr vina-
hópnum.
Að lokum viljum við votta konu
hans, Margréti Lám Þórðardóttur,
bömum og bamabömum okkar
innilegustu samúð á þessari erfíðu
skilnaðarstund.
Marý og Birgir.
Kveðja frá Lionsfélögum
Góður Lionsfélagi okkar og vin-
ur, Jón Guðmundsson, lézt í
Landakotsspítala þann 11. júní sl.
eftir mjög stutta legu.
Jón var fæddur 2. janúar 1933
og því aðeins 54 ára er hann lézt.
Hann gekk í Lionsklúbb Hafnar-
fíarðar árið 1965 og hefur gegnt
mörgum trúnaðarstörfum fyrir
klúbbinn og var alltaf mjög áhuga-
samur klúbbfélagi. Af Jóni er mikil
eftirsjá, hið snögglega fráfall hans
kom okkur félögum hans í opna
skjöldu, þar sem hann hafði starfað
með okkur sl. vetur að mikilli kost-
gæfni.
Það er ómetanlegt fyrir sérhvert
félag að eiga innan sinna vébanda
trausta og starfsama menn, sem
leggja sig fram við lausn á sameig-
inlegum verkefnum. Slíkur félagi
var Jón í Lionsklúbbi Hafnarfjarðar.
Að leiðarlokum viljum við þakka
Jóni samfylgdina og varðveita
minningu hans þakklátum huga.
Lionsfélagar