Morgunblaðið - 19.06.1987, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1987
59
Þessar ungu stúlkur söfnuðu 1050 krónum og afhentu Rauða krossi
íslands peningana. Þær heita Jóhanna Bjarnadóttir og íris B. Helga-
dóttir.
Þessir krakkar héldu hlutaveltu og afhentu ágóðann, 3480 krónur,
Samtökum um kvennaathvarf. Þau heita: Vigdís Hrefna, Eygló Rós,
Kolbrún Ýr og Óskar.
Til Velvakanda.
Ferðasöguþulan sem birtist í
blaðinu föstudaginn 5. júní sl. er
eftir Guðbjörn Bjömsson, Tungu-
gröf, Kirkjubólshreppi, Stranda-
sýslu. Hann dó 1912. Foreldrar
hans bjuggu á Gróustöðum í Geira-
dal áður en þau fluttu að Tungu-
gröf. Frá ferð til fyrri átthaga
þeirra og e.t.v. hans greinir fyrr-
nefnd þula. Hún mun svona rétt
vera með skýringum.
Fór ég að fmna frændur mína
sólardaginn í sultardyrum.
Sól er sunna öðru nafni. Sultur
er fasta, dyr em inngangur. Þetta
er því sunnudaginn í föstuinngangi.
Skundaði eftir skipsbotni
Skipsbotn er kjölur, sem er ör-
nefni á milli Kirkjubólshrepps og
Geiradals.
eftir það ofan öfuga rófu.
Öfug rófa er Ranghali, einnig
ömefni á sömu leið.
kom um bakhlut til kunningjanna
Bakhlut er aftan. Kom því síðla
dags eða um kvöldið.
hitti þá óskerta á hestfæti.
Heila á hófi.
Gisti á bæ þeim er greiðir ull nefnist
Ull var kembd á þeirri tíð. Bæjar-
heitið er Kambur.
hafði þar nægar hjúastöður.
Hjúastöður em vistir.
Var þar einn réttur af vatni ströngu
samnefndur fiskimiði Sunnlendinga.
Sunnlenska miðið er Svið. Vatnið
stranga er á. Hann hefur því feng-
ið ærsvið.
Fugla klyfjar og fjöldi af skottum
Klyfjar em baggar. Þetta hafa
Verðlauna-
verð skilvísi
Kæri Velvakandi.
Mig langar til að koma á fram-
færi þakklæti til bamsins sem fann
budduna mína, með peningum og
ávísun í, og hafði fyrir því að skila
þessu ósnertu, en ég missti budduna
við stoppistöðina við Engjasel.
Svona skilvísi er verðlaunaverð en
ég hitti bamið ekki þegar það skil-
aði buddunni og gat ekki gefíð því
fundarlaun.
Berglind Berghreinsdóttir
verið lundabaggar. Fjöldi af skott-
um hafa verið rófur.
einnig andvana afkvæmi sálar.
Sálin er önd, afkvæmið egg.
Þetta hafa verið andaregg.
Fékk ég þar eftir ferðlítið pláss
og svo þeyttist ég ofarlega.
Ferðlítið er hægt, þeyttist er
hraut. Hann hefur fengið þægilegt
rúm og hrotið hátt því ofarlega er
hátt.
Dignuðu drengir er dags-svört litu
Að digna er að vökna. Svart er
oft nefnt brúnt. Þeir hafa vaknað
er þeir litu dagsbrún.
strax fór ég þá í stórar tunnur.
Stórar tunnur em oft nefnd föt.
Frændur mér buðu byltu sauðar
Bylta er fall. Sauðarfall.
en ég hafði ei íþrótt á öðru en húsum.
íþrótt er oft list (lyst). Hús em
stundum kofar. Afkvæmi lundans
heitir kofa. Hann hefur því ekki
haft lyst á öðm en kofum.
Hélt ég svo þaðan, er hafði ég brýnt
Talað var um að hvetja ljái og
önnur eggjám. Hann hefur því að
góðum sveitasið kvatt áður en hann
hélt heim á leið.
fór eftir sætum, svörtum og tijám.
Sæti em bekkir. Svart er brúnt
sem áður segir. Svörtum er því
brúnum. Tré geta verið ásar. Hann
hefur gengið eftir bekkjum, brúnum
og ásum.
Streymdi þar oft á stórum nagla
Það sem streymir rennur. Stór
nagli er líka nefndur gaddur. Hann
hefur því flýtt för sinni með því að
renna sér á gaddi, þ.e. harðfenni.
uns fann ég tóman fataspilli.
Tómur getur verið auður. Fata-
spillir er mölur, einnig nefndur
melur. Hann hefur fundið auðan
mel.
Flýtti sá fyrir ferðum mínum
heim að málfæris hinsta rúmi.
Málfæri er tunga. Hinsta rúm
flestra er gröfín. Hann var kominn
heim að Tungugröf.
Guðfinnur Finnbogason
Miðhúsum,
Strandasýslu.
Tryggið öryggi þeirra sem aka dráttarvélum ykkar.
Dráttarvélar og stórvirk vinnutæki eru hættuleg í
meðförum, ef ekki er farið að öllu með gát. Hugsið
ykkur tvisvar um áður en þið látið slík verkfæri í
hendur unglingum eða jafnvel börnum.
Þessar stúlkur héldu hlutaveltu og gáfu ágóðann til Rauða kross
íslands, 665 krónur. Þær heita Elísa Margrét, íris Eik, Lovisa Rut
og Ragnheiður.
Þessar ungu stúlkur söfnuðu 5.936 krónum og gáfu samtökunum
Vimulaus æska. Þær heita Líf Sigurðardóttir og Fríða Maria Harðar-
dóttir.
Þessar ungu stúlkur, Ólafía og Guðbjörg, héldu tombólu og söfnuðu
250 krónum sem þær gáfu Ferðasjóð íbúa Hátúni 12.