Morgunblaðið - 19.06.1987, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1987
61
• Egill Eiðsson hljóp 400 metra
grinahlaup á 52,86 sek. og náði
fjórða besta árangri íslendings
frá upphafi.
Frjálsar íþróttir:
Egill bætir sig
í hverju hlaupi
EGILL Eiðsson náði sinum bezta
tíma í 400 metra grindahlaupi á
móti í Köln f Vestur-Þýzkalandi
um helgina, hljóp á 52,86 sekúnd-
um, sem er fjórði bezti árangur
íslendings frá upphafi. íslands-
met Þorvaldar Þórssonar ÍR er
51,38 sek.
Egill sigraði í hlaupinu í Köln,
en mótið, sem háð var sl. föstu-
dag, var héraðsmeistaramót
Nord-Rhein-héraðsins. Þetta var
þriðja 400 metra grindahlaup Egils
í sumar og hefur hann bætt árang-
ur sinn í hverju hlaupi.
Á sunnudag setti Egill síðan
persónulegt met í 400 metra
hlaupi, hljóp á 48,05 sekúndum á
móti í Essen. Egill varð þriðji í
hlaupinu. Hann átti áður 48,15
sek. frá 1984. Tími hans í Essen
er fimmti bezti árangur íslendings
í 400 metra hlaupi frá upphafi.
Oddur Sigurðsson, KR, á íslands-
og Norðurlandamet í greininni,
45,36 sek.
Nigel Manseil skrifar
í golfi eða kappakstri
ÞAÐ EINA sem ég fékk út úr Monaco-kappakstrinum að þessu sinni
var aukin reynsla. Það gekk vel á æfingum og eftir fyrstu fimmtán
hringina í sjálfri keppninni gekk allt eins og best verður á kosið. Á
augabragði var allt búið. Vélin bilaði.
var lánsamur á æfingu þegar Ferr-
ari Michele Alboreto splundraðist
í árekstri við bíl Chrisian Danner.
Brautin var öll í olíu, gírkassabrot-
um og plasti, tveir bílar voru
dreifðir um allt! Ég rétt slapp fram-
hjá þessum hlutum á mikilli ferð.
Ástæðan fyrir óhappinu var sú að
Alboreto ók á Danner sem var á
mun kraftminni bíl, án forþjöppu.
Munurinn á þessum bílum er mik-
ill og býður hættunni heim, helm-
ingur bílanna er öflugur og hinn
helmingurinn skapar hættuna.
Monaco-kappaksturinn er götu-
kappakstur og reynir mikið á
hendur ökumanna. Á hraðasta
kaflanum náði ég 284 km hraða,
Piquet 265 og Prost 256. Ástæðan
fyrir meiri hraða hjá mér var sú
að ég bremsaði síðast allra fyrir
langa beygju eftir beina kaflann.
Ég tók því rólega alla helgina
sem kappaksturinn fór fram, ef frá
er talinn æfingatíminn. Einn dag-
inn áttum við alveg frí og ég spilaði
golf. Ég spilaði á móti frönskum
blaðamanni og við reyndumst eftir
keppnina vera 13 undir pari. Ég
vissi aldrei hver vann, kannski við.
Á mánudeginum fór ég heim til
Isle of Man og keppti í golfmóti
þar. Daginn eftir fór ég til Eng-
lands að keppa í golfmóti með
Bernhard Langer í Dunlop-golf-
mótinu. Eftir það var ég tvo daga
að prófa dekk á Silverstone-kapp-
akstursbrautinni. Þá þegar virtist
Monaco-keppnin löngu gleymd og
tími kominn til að einbeita sér að
=g var fyrstur af stað úr rás-
markinu, sem er heppilegt í
Monaco-kappakstrinum, sem er
lagður á þröncjum götum byggðar-
innar frægu. Eg náði fljótlega góðu
forskoti og eftir fimmtán hringi sá
ég ekki nokkurn bíl í baksýnis-
speglinum. Bíllinn virtist í góðu
standi og ég bjóst satt að segja
við góðum árangri. Þá hikstaöi
vélin skyndilega, ég pumpaði
bensíngjöfina nokkrum sinnum og
vélin hélst í gangi. Ég náði að halda
áfram, hélt vélinni á eins litlum
snúning og hægt var og spáði í
hvað gæti verið að. Þrátt fyrir þetta
náði ég að halda forystu þangað
til vélin tapaði allt í einu öllu afli.
Mér tókst að skrölta einn hring
og inn á viðgerðarsvæðið. Þar var
mér sagt að pústflækja hefði
brotnað.
Það kom síðan í Ijós að léleg
suða á pústflækjunum hafði gefið
sig og minnti menn á hve mikil-
vægir allir hlekkir í keppnisliðum
eru. Hver þeirra 150 manna sem
vinna hjá keppnisbílum mega varla
gera mistök, ef sigur á að vinnast.
Eg varð náttúrulega hundfúll, miklu
erfiði lauk með smávægilegri bilun.
Ég fór á hótelið mitt og slakaði á.
Á meðan ég var í Monaco hafði
ég spilað golf annað slagiö, sem
hjálpar mér að slaka á.
Ég hafði spjallað við Ayrton
Senna á æfingu, en okkur lenti
saman nokkrum vikum áður. Við
sættumst eftir rólegt rabb um at-
vikið í belgíska kappakstrinum. Ég
Símamynd/Reuter
• Ástriða Mansell er kappakstur og golf. Hann spilaði golf á milli
þess sem hann æfði og keppti í Moncao-kappakstrinum.
þeirri næstu. Svo er alltaf gott að
spila golf á milli. ..
Úrslitin f Monaco-kappakstrinum
1. Ayrton Senna, Lotus Honda 1:57,54
2. Nelson Piquet, Williams Honda 1:58,27
3. Michele Alboreto, Ferrari 1:59,06
4. Gerhard Bergre, Ferrari hring á eftir
5. Jonathan Palmer,Tyrell Ford 2áeftir
6. Ivan Capelli, March 3 á eftir
Staðan f heimsmeistarakeppni öku-
manna:
stig
1. Alain Prost 18
2. AyrtonSenna 15
Körfubolti:
Bandarískt lið
leikur hér tvo leiki
Unglingalandslið karla í körfu-
bolta leikur tvo leiki um helgina
gegn úrvalsliði frá Kentuckyfylki
í Bandarfkjunum. Fyrri leikurinn
verður á morgun í Seljaskóla, en
sá seinni á sunnudaginn f
Njarðvík og hefjast þeir báðir
klukkan 19.
Þetta er í fjórða skipti sem Eddie
Ford, þjálfari bandarísku strák-
anna, kemur með úrvalslið til
íslands, en samskiptin hófust
1983. Að sögn Torfa Magnússon-
ar, sem þjálfar íslenska liðið ásamt
Jóni Sigurðssyni, eru bandarísku
strákarnir mjög góðir og því veröur
íslenska liðið styrkt með nokkrum
eldri leikmönnum.
Kentuckyúrvalið hefur jafnan á
að skipa frábærum leikmönnum.
Rex Chapman lék með þessu liði
þegar það kom síðast til íslands.
Hann er nú í liði Bandaríkjanna,
sem keppir í Pan American-leikun-
um, sem er nokkurs konar
Ólympíuleikar norður- og suð-
urríkja.
Unglingalandslið íslands verður
skipað eftirtöldum leikmönnum:
Falur Harðarson, fyrirliði ÍBK
Guöjón Skúlason ÍBK
Einar Einarsson l'BK
Júlfus Friðriksson ÍBK
Magnús Guðfinnsson ÍBK
Guðmundur Bragson UMFG
RúnarÁrnason UMFG
Teitur Örlygsson UMFN
Friðrik Rúnarsson UMFN
Hannes Haraldsson Val
Skarphéðinn Eirtksson Haukum
Herbert Arnarson ÍR
Þjálfari er Torfi Magnússon og
honum til aðstoðar er Jón Sigurðs-
son.
3. Stefan Johansson
4. Nelson Piquet
5. Nigel Mansell
6. Michela Alboreto
13
12
120
8
Morgunblaðið/Einar Falur
Keila:
Frítt
fyrir
konur
ídag
• í dag er kvenréttindadag-
urinn og Keilusalurinn sam-
fagnar konum með því að
bjóða öllum á aldrinum 17 til
70 ára í keilu í dag. Á mynd-
inni er Dóra Sigurðardóttir,
íslandsmeistari kvenna í keilu
undanfarin tvö ár.
Ólympíuhlaup
10 km
Fyrir almenning
Laugardaginn 20. júní kl. ló30
Fyrstu 1000 í mark fó óritað skjal fró forseta alþjóða
Olympíunefndarinnar J.A.Somaranch, og stuttermabol.
Dregið verður um20 pöraf adidas hlaupaskóm.
Hloupið hefst og því lýkur, ó frjólsíþróttavellinum Laugardal,
í tengslum við Flugleiðamót FRÍ.
Skróning hefst 17. júní í Hljómskólagarðinum,
og síðan í Iþróttamiðstöðinni Laugardal fram að hloupi.
Frjálsíþróttasamband íslands Ólympíunefnd íslands Trimmnefnd ÍSÍ