Morgunblaðið - 10.09.1987, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987
Utanríkismálanefnd fund-
aði um hvalveiðideiluna
sýnt sveigjanleika í þessu máli af
sinni hálfu, eins og hún gerði með
sinni ákvörðun 27. ágúst með því
ma. að breyta sinni áætlun, og sú
breyting er í engu virt þá eigum
við auðvitað að taka slíka ákvörðun
út af borðinu. og mótmæla þeirri
lítilsvirðingu sem okkar utanríkis-
ráðherra er sýnd með því að skipa
mann úr viðskiptaráðuneytinu
formann nefndarinnar sem fundar
í Ottawa. Við höfum fengið mjög
alvarleg skilaboð frá Bandaríkja-
stjóm og það hefur kannski skýrt
stöðu málsins," sagði Hjörleifur.
Höldum á málinu
með reisn
„Mín skoðun er sú að það hefði
verið eðlilegra og betra að viðræðu-
nefndin yrði undir forustu utanrík-
isráðuneytisins en þessi skipan
nefndarinnar endurspeglar það sem
virðist hafa komið fram áður að það
sé viðskiptaráðuneytið sem hafí náð
yfírhÖndinni í þessu máli og þess-
vegna þurfum við ekki að vera svo
undrandi yfír því að Bandaríkjafor-
FRÉTTIR af ákvörðun
íslensku ríkisstjórnarinnar um
að Steingrímur Hermannsson
utanrikisráðherra sæti ekki fund
viðræðunefnda íslands og
Bandaríkjanna, bárust inn á fund
utanríkismálanefndar Alþingis
sem boðaður hafði verið til að
ræða um hvalamálið að beiðni
Hjörleifs Guttormssonar alþing-
ismanns. A fundinn mættu einnig
Haildór Ásgrimsson sjávarút-
vegsráðherra og Arni Kolbeins-
son ráðuneytisstjóri. Engar
ákvarðanir voru teknar á fundin-
um en rætt var um þær ákvarð-
anir sem teknar höfðu verið af
hálfu rikisstjórnarinnnar undan-
farna daga.
Rætt var við fulltrúa stjóm-
málaflokkanna í neftidinni að
fundinum loknum og fara viðtölin
hér á eftir:
Trúi því að
málið leysist
„Ég er alltaf bjartsýnn og trúi því
að þetta mál leysist eins og alltaf
þegar svona vinaþjóðir leysa sín
málefni," sagði Eyjólfur Konráð
Jónsson formaður utanríkismála-
nefndar og fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins. „Þótt þetta mál sé stórt
í augum manna þá er það ekki stór-
mál miðað við öll þau stóru mál sem
í gangi em í veröldinni svo ég efa
ekki að þetta leysist farsællega,"
sagði Eyjólfur Konráð síðan.
Snýst ekki lengoir
um hvalveiðar
„Mér sýnist að þetta mál sé nú
þannig statt milli ríkjanna að það
snúist ekki lengur um hvalveiðar
heldur sé þetta spuming um almenn
samskipti milli sjálfstæðra ríkja og
þar hefur verið komið fram á mjög
gróflegan hátt gagnvart íslending-
um,“ sagði Hjörleifur Guttormsson
fulltrúi Alþýðubandalagsins..
„Það er alveg ljóst að Banda-
ríkjastjóm ætlar að koma fram við
okkur núna eins og bananalýðveldi.
Ég tel að þegar ríkisstjómin hefur
VEÐURHORFUR í DAG, 10.09.87
YFIRLIT á hádegi í gær: Hæð yfir Grænlandi og iægð milli Islands
og Noregs.
SPÁ: í dag verður norðankaldi víða um landið, en líklega hægari
vindur austanlands. Um norðanvert landið veröur dálítil rigning og
3—7 stiga hiti, en bjart veður að mestu og 8—12 stiga hiti sunnan-
lands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Norðan- og norðaustanátt með
skúrum um noröanvert landið en bjart syðra. Hiti 4—8 stig norðan-
lands en 8—12 stig á Suður- og Suðvesturlandi.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyrl Reykjavík hitl 7 12 veður skýjaö skýjaö
Bergen 12 skýjað
Heislnki 16 skúr
Jan Mayen 8 rlgn.ogaúld
Kaupmannah. 17 skýjað
Narssarssuaq 4 skýjsð
Nuuk 3 þokafgr.
Osló 17 hálfskýjaö
Stokkhólmur 16 hálfskýjað
Þórshöfn 10 alskýjað
Algarve 28 sltýjað
Amstardam 18 skýjað
Aþena 28 léttskýjað
Barcelona 27 hálfskýjað
Berlln 17 skýjað
Chlcago 14 helðskfrt
Feneyjar 23 skýjað
Frankfurt 20 hálfskýjað
Glasgow 13 rigning
Hamborg 17 skýjað
Las Palmas 28 skýjað
London 18 skýjað
Los Angeles 18 þoka
Lúxemborg vantar
Madrfd 31 skýjað
Malaga 27 skýjað
Mallorca 31 lóttskýjað
Montraal 18 rlgn.ás. klst.
NewYork 23 léttskýjað
Parfs 21 skýjað
Róm 28 hátfskýjað
Vín 18 alskýjað
Waahington 22 léttskýjað
Wlnnlpeg 7 reykur
Morgunblaðið/KGA
Frá fundi utanríkismálanefndar Alþingis um hvalamálið í gær.
seti skyldi velja fulltrúa úr
viðksiptaráðuneytinu til að fara
með umboð sitt,“ sagði Kjartan
Jóhannsson fulltrúi Alþýðuflokks-
ins.
„Ég treysti mér ekki að spá hver
lendingin verði í þessu máli en ég
hef verið harður á að við hefðum
sjálfsákvörðunarrétt í því og við
höldum á þessu máli af reisn gagn-
vart erlendum aðilum og ef við
föllum þá föllum við standandi,"
sagði Kjartan. „Ég er þeirrar skoð-
unar að það sem í raun hafí gerst
er að við höfum sýnt Bandaríkja-
mönnum ákveðna tillitssemi en þeir
koma ekki til móts við okkur á
móti og þessvegna sé engin ástæða
til að halda við tilboð sem við höfum
gert. Við hljótum að leitast við að
halda okkar striki."
Viljum sjá hvað
gerist í málinu
„Við höfum ekki tekið opinbera
afstöðu í þessu máli og viljum sjá
hvað meira kemur upp á borðið
áður,“ sagði Hreggviður Jónsson
fulltrúi Borgaraflokksins.
Hreggviður tók fram að hann
væri áheymarfulltrúi í nefndinni og
þingflokkur Borgaraflokksins
myndi komast að niðurstöðu þegar
þessi mál yrðu rædd á Alþingi.
Tvennt skiptir
sköpum nú
„Það er tvennt sem skiptir sköp-
um eins og málið stendur núna. Það
er það að breytingar á hvalveiði-
áætluninni hafa ekki greitt fyrir
málinu og Bandaríkjamenn láta þá
breytingu sem vind um eyrun þjóta,
og hitt er að þeir hafa fylgt þessu
eftir með því að skipa fulltrúa við-
skiptaráðuneytisins formann við-
ræðunefndarinnar. Þetta tel ég
mjög alvarlegan hnút í samskiptum
ríkjanna sem verður að ræða hvem-
ig við verður brugðist," sagði Jón
Kristjánsson fulltrúi Framsóknar-
flokksins.
Jón sagðist aðspurður ekki vera
sammála að mál þetta væri hætt
að snúast um hvalamálið en það
væri farið að snúast um fleira.
„Þetta snýst um hvalamálið og al-
menn samskipti ríkjanna; ég held
að þama verði ekki skilið á milli
og með því að senda utanríkisráð-
herra til viðræðna er málið auðvitað
farið að snúast um það af okkar
hálfu," sagði Jón.
Sterk skilaboð
til íslendinga
„Mér hefði fundist bæði rétt og
skynsamlegt að haft hefði verið
samráð við utanríkismálanefnd eins
og verið hefur í þessum málum fram
að þessu þannig að hún hefði getað
fýlgst með þeim ákvörðunum sem
teknar voru, og sérstaklega þegar
málið tók aðra stefnu þegar bréfa-
skipti hófust milli forsætisráðherra
og Bandaríkjaforseta. Ég hefði talið
eðlilegt að nefndin hefði verið með
í þeirri ákvörðun hvort slíkt ætti
að gerast og með hvaða hætti,"
sagði Guðrún Agnarsdóttir fulltrúi
Kvennalistans.
„Úr því sem komið er er greini-
legt að átök eru milli ráðuneyta
Bandaríkjastjómar um það hver
eigi að hafa forystu í þessu máli
og ég álít það vera mjög sterk skila-
boð til íslendinga þegar fulltrúi úr
viðskiptaráðuneytinu, sem þegar
hefur rætt við Islendinga um þetta
mál, er sendur til fundar við ut-
anríkisráðherra þegar okkar
forsætisráðherra hefur gefíð í skyn
að óskað sé eftir viðræðum við ut-
anríkisráðherra um málið. Þetta
álít ég vera ákveðin skilaboð til ís-
lendinga. Hinsvegar er þetta flókið
mál og þegar og ef Islendingar
gera hlé á sínum hvalveiðum eða
hætta þeim fínnst mér að það eigi
að vera af sjálfsdáðum, eftir yfír-
vegun og með reisn með tilliti til
umhverfisvemdarsjónarmiða en
ekki að láta aðra kúga sig til þess,“
sagði Guðrún.
Fimmtungi f leiri
sóttu Veröld nú
en í fyrra
FORRÁÐAMENN Kaupstefn-
unnar segjast hæstánægðir með
aðsókn að sýningunni Veröld ’87.
Þegar sýningunni Iauk i Laugar-
dalshöll um síðustu helgi höfðu
46.300 manns greitt aðgangseyri.
„Þetta er stórkostlegt. Við gerð-
um okkur hæstar vonir um að fá
Qörutíu þúsund gesti," sagði Guð-
mundur Jónsson framkvæmda-
stjóri. „Á sýningunni Heimilinu '86
voru gestir þijátíu og átta þúsund
þannig að aðsóknin var umtalsvert
meiri í ár.“
Skipulagning sýningarinnar Ver-
öld ’88 er þegar komin langt á veg.
Fyrirspumir um sýningarpláss eru
orðnar margar og sagði Guðmundur
að ánægja þátttakenda með sýning-
una í ár spillti ekki fýrir.
Næstkomandi vor efnir Kaup-
stefnan til vörusýningar undir
heitinu Sumarið ’88.
Héðni var
ekki boðið
MORGUNBLAÐINU hefur
borizt eftirfarandi frá
Steingrími Baldurssyni, föður
Héðins Steingrímssonar skák-
manns:
„í Morgunblaðinu, föstudag-
inn 4. þ.m., er sagt frá þvi, að
Birgir ísleifur Gunnarsson,
menntamálaráðherra, hafí dag-
inn áður haldið hóf til heiðurs
skákmönnunum Jóhanni Hjart-
arsyni, Margeiri Péturssjmi og
Héðni Steingrímssyni.
í skýringarorðum undir mynd
af menntamálaráðherra, eigin-
konu menntamálaráðherra,
Jóhanni Hjartarsyni og Margeiri
Péturssyni stendur.
„Héðinn Steingrímsson gat
ekki verið viðstaddur."
Þetta er rangt. Héðni
Steingrímssyni var ekki boðið
í hóf menntamálaráðherra."
Reykjavík, 9. september
1987.
Steingrímur Baldursson