Morgunblaðið - 10.09.1987, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987
51
Sjónvarpstrúboð og
„sértrúarsöfnuðir“
eftir Örn L.
Guðmundsson
Ef við fengjum virta erlenda gesti
í heimsókn sem hefðu áhuga á að
fræðast um stöðu kristinnar trúar
á íslandi, hvað væri þá heiðarlegt
svar? Hver gæti gefíð slíkt svar svo
að um sem sannasta mynd væri að
ræða?
Þegar talað er um trúmál hljótum
við að vera að tala um trúarafstöðu
einstaklings með fijálsan vilja til
að velja og hafna. Fyrir mörgum
er trú þeirra helg og dýrmæt. Trú-
in á Jesú er fyrir sumum mestu
verðmæti þeirra í lífínu. Svo eru
aðrir sem eiga sína bamatrú og
rækja trú sína í samræmi við það.
En þeir eru líka til sem segjast
engu trúa nema e.t.v. á sjálfan sig
og þróunina.
Fjölmiðlar hafa að undanfömu
dregið upp fyrir landann mynd af
stöðu trúmála í Bandaríkjunum
séða með augum fjölmiðlamanna.
Það væri mikil fljótfæmi að ganga
út frá því að tveir þættir í sjón-
varpi og fáeinar blaðagreinar gefí
fullnægjandi mynd af sannleikan-
um.
Komið hefur fram að forstöðu-
maður ákveðins safnaðar í Banda-
ríkjunum misnotaði stöðu sína og
hefur það mál verið gert upp. Sýnd
er í fýrmefndum þáttum mynd frá
söfnuði þessa manns ásamt mynd-
um frá öðmm söfnuðum og meðal
annars bent á mikil umsvif S fjár-
málum. Talað er um hægri hreyf-
ingar og sýnt frá stórum söfnuði
baptista í Dallas í Texas þar sem
aðskilnaður ríkir milli hvítra manna
og litaðra. Myndin sem dregin er
upp er á margan hátt dökk og hef-
ur eflaust vakið margar spumingar
og jafnvel hneykslan trúaðra sem
annarra. En ég vil benda á að var-
hugavert er að draga einhliða
ályktun út frá þáttum þessum og
blaðaskrifum um kristið starf í
Bandaríkjunum.
í beinum tengslum við þessa
þætti fengu landsmenn að skyggn-
ast inn í hina ýmsu kristnu söfnuði
hér heima og rætt var við forstöðu-
menn þeiira bæði í blöðum og
sjónvarpi. I söfnuði sem kennir sig
við Krist á ekkert að fara fram sem
þolir ekki opinbera umfjöllun, enda
em þeir söfnuðir sem hér starfa
opnir öllum sem vilja kynna sér það
sem þar fer fram.
En var það ætlun sumra í þess-
ari umfjöllun að skapa tortryggni
í garð hinna kristnu samfélaga hér
á landi t.d. með því að kalla þau
sértrúarsöfnuði og tengja þau um-
fyöllun um vafasama starfsemi í
Bandaríkjunum? Væri ekki eðli-
legra að meta starf kristins safnað-
ar út frá því sem Biblían kennir?
011 önnur viðmiðun hlýtur að teljast
ófullnægjandi og ósanngjöm.
Er það sértrú að játa Biblíuna
sem heilagt orð Guðs? Að sérhver
ritning sé innblásin af Guði og nyt-
söm til fræðslu, til umvöndunar, til
leiðréttingar, til menntunar í rétt-
læti, til þess að sá sem tilheyrir
Guði sé albúinn og hæfur gjör til
sérhvers góðs verks (2. Tím. 3.
16-17).
Er það sértrú að trúa og vilja
hlýða orðum Jesú þar sem hann
segir m.a. við lærisveina sína: „Far-
ið út um allan heim og predikið
fagnaðarerindið öllu mannkyni. Sá
sem trúir og skírist mun hólpinn
verða en sá sem trúir ekki mun
fyrir dæmdur verða. En þessi tákn
munu fylgja þeim er trúa: í mínu
nafni munu þeir reka út illa anda,
tala nýjum tungum ..." og síðar
„yfir sjúka munu þeir leggja hendur
og þeir verða heilir“. (Mark. 16.
15-18).
Er það sértrú að trúa því að ef
ég játa með munni mínum að Jesús
sé Drottinn og trúi í hjarta mínu
að Guð hafí uppvakið hann frá
dauðum þá muni ég verða hólpinn,
(Róm. 10.9)??
Er það sértrú að trúa því að Jes-
ús vilji leysa þá sem trúa á hann
undan ánauð_ synda. Jesús segir í
Lúk. 5.32: „Eg er ekki kominn til
að kalla réttláta heldur syndara til
iðrunar."
Orð Jesú Krists eru skýr og á
þeim eiga þau samfélög að vera
grundvölluð sem kenna sig við
hann. Þeir sem kjósa að trúa sumu
en hafna öðru bera með réttu nafn-
ið sértrúarfólk. Gerum okkur grein
fyrir því að við höfum fengið að sjá
smá myndbrot séð með augum fjöl-
miðlafólks af kristnum söfnuðum í
Bandaríkjunum og hér heima.
Heildarmyndin er mun stærri og
geymir sannleika sem þarf nær-
gætna og nánari skoðun grundvall-
aða á einlægum vilja til að komast
að raun um hveijar staðreyndir eru.
Tvær staðreyndir er vert að
nefna hér að lokum vegna sorglegs
misskilnings sem kemur fram í
grein í Alþýðublaðinu og einnig í
grein Morgunblaðsins 5. sept. Þar
hefur verið dæmt fyrirfram án þess
að kanna hvað satt er.
I fyrsta lagi: Kristnu samfélögin,
þ.e. forstöðumenn þeirra, voru
spurðir í fjölmiðlum um afstöðu
þeirra til kynvillu o.fl. Því var svar-
að með því að vísa í Guðs orð, þ.e.
Biblíuna og boðskap hennar. Það
kemur mjög skýrt fram í orði Guðs
að Drottinn er á móti synd og öllu
ranglæti en hann elskar fólk.
Hvatningin er að iðrast frammi fyr-
ir Jesú og fá fyrirgefningu og
hreinsun í blóði hans og með hans
hjálp fá lausn á sínum málum og
lifa nýju lífí sem miðast við það sem
Jesús kenndi.
í öðru lagi: Kirkja Krists er öllum
opin og fólk því velkomið. Kirkja
Krists er ekki stofnun heldur sam-
anstendur hún af fólki sem hefur
Örn L. Guðmundsson
„í söfnuði sem kennir
sig við Krist á ekkert
að fara fram sem þolir
ekki opinbera umfjöll-
un enda eru þeir
söfnuðir sem hér starfa
opnir öllum sem vilja
kynna sér það sem þar
fer fram.“
komið fram fyrir Jesú og heilshugar
iðrast og beðið um hreinsun og fyr-
irgefningu synda sinna. Kirkjan er
fólk sem játar Jesú Krist sem Drott-
in sinn og Herra.
Það hlýtur að vera fagnaðarefni
fremur en tilefni til ásteytingar og
óeiningar að í lifandi samfélagi við
Jesú sé að fínna fyrirheit um lausn
frá afleiðingum syndar, þ.e. fjötrum
sem valda sálarkvöl._ Hvers virði er
kirkja sem segir: „Ég veit að þér
líður illa, líf þitt er fullt af vanda-
málum, ég skal elska þig en ég get
ekki bent þér á lausn."
Höfundur er næturvörður.
Borgartúni 23
Tölvufræðslan mun í haust endurtaka hin vinsælu námskeið
fyrir skrifstofufólk sem haldin voru í haust og vetur.
Um er að ræða þriggja mánaða fjölbreytt nám í vinnuað-
ferðum á skrifstofum, með sérstakri áherslu á notkun
PC-tölvasemnúeruorðnarómissandi við öll skrifstofustörf.
í náminu eru kenndar m.a. eftirfarandi greinar:
Almenn tölvufræði, stýrikerfi, tölvusamskipti, ritvinnsla, gagna-
grunnur, töflureiknar og áætlanagerð, tölvubókhald, toll- og
verðútreikningar, almenn skrifstofutækni, grunnatriði við stjórn-
un, uppsetning skjala, útfylling eyðublaða, verslunarreikningur,
víxlar og verðbréf, íslenska og viðskiptaenska.
Nemendur útskrifast sem SKRIFSTOFUTÆKNAR og geta að
námi loknu tekið að sér rekstur tölva við minni fyrirtæki.
Uppselt á morgunnámskeiðið sem hefst 7. september. Örfá
sæti laus í námskeiðið sem hefst 14. september.
Fjárfestið í tölvuþekkingu — það borgar sig.
Innritun í símum 687590 og 686790
Tölvufræðslan
SkHfstofutæknir
Eitthvad
lyiirþig?
Alla daga vikunnar lil Evropu
Arnarflug hefur nú náð þeim langþráða áfanga að flogið er alla daga vikunnar til Evrópu. ■ Við
fljúgum fimm sinnum í viku til Amsterdam og tvisvar í viku til HamPorgar. ■ Brotffarir eru þannig settar
upp að við lendum á Schiphol flugvelli í Amsterdam á hádegi. ■ Þá er einmitt besti tíminn til að
ná tengiflugi áfram, til allra heimshorna. ■ Hjá Arnarflugi fœrðu farmiða hvert sem er í heiminum.