Morgunblaðið - 10.09.1987, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1987
67
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI LANDSLIÐA
Tvö glæsimörk sendu
Norðmenn í neðsta sæti
ÍSLENSKA landsliðið vann í
gær það norska með tveimur
mörkum gegn einu eftir að
hafa verið 1:0 undir. Leikmenn
■slenska liðsins léku mjög
skynsamlega og uppskáru sig-
ur. Nýtingin hjá þeim var
einstök. Þeir fengu tvö mark-
tækifæri og skoruðu úr þeim
báðum. Norðmenn fengu fleiri
færi en þeim tóst ekki að nýta
þau eins vel og okkar mönnum.
Islensku strákarnir hafa leikið
betur en sigur er allt sem máli
skiptir og hann vannst með
skynsömum ieik og tveimur
glæsilegum mörkum Póturs
Péturssonar og Póturs
Ormslev. Með þessum sigri
skutumst við upp fyrir Norð-
menn í stigatöflunni.
Islenska liðið var lengi í gang í
gær og fyrstu tuttugu mínútum-
ar var það hreinlega yfírspilaðir af
frísku liði Norðmanna. Þeir sóttu
mun meira, héldu
SkúliUnnar boltanum vel og
Sveinsson Voru ákveðnari á all-
skrífar an hátt. Það voru
ekki liðnar nema ell-
efu mínútur þegar Norðmenn
skoruðu. Börre Meinseth fékk bolt-
ann frá Pétri Ormslev, sem blindað-
ist trúlega af sólinni, skaut frekar
lausu skoti sem Bjami varði. Bolt-
inn fór til Jöm Andersen sem
skoraði af öryggi í tómst markið.
Þama var íslenska vömin steinsof-
andi og hún átti eftir að sofna oftar
en sem betur fer ekki með sömu
afleiðingum.
Pétur Pétursson jafnaði metin á 21.
mínútu með glæsilegu marki. Sókn-
in hófst með því að Guðmundur
Torfason sendi með hælspymu á
Ragnar Margeirsson. Ragnar lék
aðeins fram yfír miðju, gaf á Pétur
sem bmnaði að markinu, lék lag-
Iega á einn vamarmann Norðmanna
og skaut utanfótar með vinstri í
nærhomið! Stórskemmtilegt mark.
Einn norsku vamarmannanna
gleymdi sér alveg og því slapp Pét-
ur við rangstöðugildru þeirra að
þessu sinni.
Norðmenn fengu tvívegis mjög góð
marktækifæri fyrir hlé. Bjami varði
vel í annað skiptið en í hitt skiptið
Staðan
Sovétríkin.....6 4 2 0 11:2 10
A-Þýskaland....6 2 2 1 8:2 6
Frakkland........6 1 8 2 3:5 6
ísland...........6 1 2 3 3:11 4
Noregfur.........5 113 2:7 3
Þessir leikir eru eftir í riðlinum;
23. Beptember. Noregur-tsland, 10.
október: Austur—Þýskaland-Sov-
étrfkin, 14. október: Frakkland-
Noregur, 28. oktéber: Sovétrikin-
tsland og Austur—Þýskaland-
Noregur og 18. névember:
Frakkiand-Austur—Þýskaland.
hittu norsku sóknarmennimir ekki
knöttinn.
Íslenska liðið lék mun betur í síðari
hálfleik og á köflum ágætlega og
á 60. mínútu skoraði Pétur Orms-
elv.
Atli gaf fram á Pétur Pétursson sem
gaf skemmtilega áfram á nafna
sinn Ormslev. Pétur var rólegur og
yfírvegaður, lék á einn vamamann
og skoraði með fallegu skoti í blá-
homið.
Gunnar Gíslason bjargaði á
marklínu skoti frá Jöm Andersen
eftir að hann slapp framhjá Bjama
sem hljóp út úr markinu á snarvit-
lausum tíma.
íslensku leikmennimir léku illa
framan af leiknum. Þeir virtust
taugaóstyrkir og sérstaklega var
vömin ósannfærandi. Rangstöðuað-
ferð Norðmanna gekk vel upp og
hvað eftir annað vom okkar sóknar-
menn leiddir í gildmna. Sem betur
fer var þetta þó aðeins upphafíð,
leikmenn náðu sér flestir á strik er
líða tók á leikinn.
Þeir héldu boltanum vel er líða tók
á enda þurftu Norðmenn þá að
gera eitthvað til að reyna að jafna.
A stundum fanst mér þeir full róleg-
ir en þeir vora ákveðnir í að taka
enga áhættu. Það kom ekkert ann-
að en sigur til greina.
Strákamir léku skynsamlega og
uppskám sigur gegn liði sem vann
FVakka 2:0 í Osló f júní. Ekki slæm-
ur árangur, og raunar mjög góður
þegar haft er í huga að þetta er í
sjötta sinn sem við vinnum Norð-
menn í landsleik í knattspymu.
Þeir hafa unnið 15 sinnum og einu
sinni hefur orðið jafntefli.
Norska liðið var nokkuð þokkalegt
og lék vel í fyrri hálfleik. Það verð-
ur erfíður leikur í Osló eftir hálfan
mánuð en þá mætast liðin að nýju
í keppninni. Bestu menn þeirra að
þessu sinni vom Hans Henriksen
(nr. 2) og Kjetil Osvold (nr.9).
'4 -
Morgunblaöið/Bjami Eiríksson
2:1 sigri fagnad
Pétur Ormselv skorar hér að ofan annað mark íslands í leiknum gegn Norð-
mönnum í gær. Hér til hliðar fagnar fyrirliðinn Atli Eðvaldsson Pétri Péturssyni
sem skoraði fyrra mark íslands og á myndinni hér að neðan fagnar Guðmund-
ur Torfason eins og honum er einum lagið. Með honum á myndinni em Siguijón
Sigurðsson læknir liðsins, Sigurður Jónsson og Ólafur Þórðarson em greinilega
einnig ^nægðir enda höfum við ekki unnið Norðmenn sfðan 1976 en þá vann
ísland 1:0 í Osló og var það fyrsti sigur íslands á útivelli.