Morgunblaðið - 17.11.1987, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987
ERLENT
Persaflói:
íranskir byssubát-
ar ráðast á olíuskip
Átta hermenn, þar á meðal hátt-
settur hershöfðingi, létust á
sunnudag er herþyrla brotlenti
skömmu eftir flugtak á Basilan-
eyju í suðurhluta Filippseyja. Að
sögn vitna náði þyrlan af gerðinni
Huey 177 ekki að taka sig á loft
og rakst á kókospálma. Þyrlan
sprakk þegar hún féll til jarðar.
Einungis einn farþeganna slapp lífs
úr slysinu.
Bahrain, Baghdad, Reuter.
ÍRANSKIR fallbyssubátar gerðu
árásir á tvö olíuskip á sunnan-
verðum Persaflóa í gær. Annað
skipið er í eigu bandaríska olíu-
fyrirtækisins Exxon og er ekki
vitað tíl þess að mannfall hafi
orðið. írakar tilkynntu á sunnu-
dag að flugvélar þeirra hefðu
gert loftárásir á tvö olíuskip á
flóanum en alls hafa þeir skýrt
frá 12 slíkum árásum undan-
farna viku.
Að sögn heimildarmanna í Bahr-
ain réðust tveir íranskir fallbyssu-
bátar á olíuskipið „Esso Freeport"
er það var á siglingu skammt und-
an strönd Sameinuðu arabísku
furstadæmanna á leið út úr Persa-
flóa. Skutu bátamir eldflaugaknún-
um sprengjum að skipinu en unnu
ekki mikið tjón og hélt skipið áfram
siglingunni. „Esso Freeport" er
260.000 lestir og siglir undir fána
Bahama. Skipið var fulllestað olíu
frá Saudi-Arabíu.
Tveimur klukkustundum síðar
gerðu tveir íranskir fallbyssubátar
árás á gríska olíuskipið „Filikon L“
skammt norður af Sameinuðu
arabísku furstadæmunum. Litlar
sem engar skemmdir urðu á skip-
inu.
Herstjóm íraka tilkynnti á
sunnudag að íraskar flugvélar
hefðu ráðist á tvö olíuskip skammt
undan strönd írans. Undanfama
viku hafa írakar hert mjög árásir
sínar á skip sem flytja plíu frá íran
og olíuvinnslustöðvar írana. Hafa
þeir tilkynnt um 12 árásir undan-
fama viku. íraskar flugvélar réðust
í síðustu viku þrívegis á grískt olíu-
skip sem íranir höfðu tekið á leigu
og herma fréttir að það sé logandi
á reki á flóanum. Þá skýrðu írakar
frá því í gær að gerðar hefðu verið
loftárásir á olíuvinnslustöðvar í suð-
ur- og í vesturhluta írans. Sagði
talsmaður íraka að árásunum yrði
haldið áfram þar til íranir féllust á
vopnahlésviðræður.
Ráðamenn og yfírmenn herafla
írana komu saman til fundar í gær
til að skipuleggja nýja stórsókn
gegn írökum þrátt fyrir áskoranir
leiðtoga Arabaríkja um að samið
verði um vopnahlé. Telja heimildar-
menn víst að árásunum verði beint
að borginni Basra í suðurhluta ír-
aks, sem er önnur stærsta borg
landsins.
Sjúkraflutningamenn bera farþega úr þotunni, sem fórst í Denver, inn á sjúkrahús.
Þotu hvolfdi í flugtaki í Denver:
Reuter
Reuter
Vinstrisinnaðir verkamenn ganga til forsetahallarinnar í Manila.
Þeir mótmæla þvi að stjómin skuli hvetja borgarana til að sameinast
í sérsveitum til höfuðs kommúnistum.
Filippseyjar:
Stjórnin hrósar sigri
vegna handtöku Riveras
Fai'þegar héngu á
hvolfi í sætunum
ræddi við blaðamenn og sagði að
mikil hræðsla hefði gripið um sig í
farþegaklefanum þegar þotunni
hvolfdi á flugbrautinni. Farþegamir
hefðu æpt og veinað af hræðslu en
sjálf hefði hún farið með bæn.
Richard Boulware, talsmaður
flugvallarstjóra, sagði orsakir slyss-
Maniia, Reuter.
STJÓRN Filippseyja hrósaði
sigri f gær eftir að Juanito Ri-
vera næstæðsti maður kommúni-
staflokks landsins hafði verið
handtekinn á sunnudag. Corazon
Aquino forseti sagði að hér væri
um kaflaskil í baráttu stjórnar-
innar við kommúnista að ræða.
Hershöfðingjar á Filippseyjum
segja að handtaka Riveras sé
stærsti sigur stjómarinnar í viður-
eign við kommúnista síðan Rodolfo
Salas, yfirmaður hers kommúnista,
náðist á síðasta árí.
Bardagar á götum höfuðborgar-
innar færast nú í vöxt. Stuttu eftir
ræðu Aquinos forseta bámst fregn-
ir um að sveit kommúnista hefði
skotið til bana flotaforingja í her
landsins. Celso de la Cruz var á leið
í strætisvagni til höfuðstöðva flot-
ans þegar vopnaðir menn myrtu
hann.
56 menn lifðu
flugslysið af en
26 biðu bana
Denver, Reuter.
ÞOTA af gerðinni DC-9 fórst í
flugtaki frá Stapleton-flugvellin-
um í Denver í Colorado f
Bandaríkjunum á sunnudag með
þeim afleiðingum að 26 manns
biðu bana. Óhappið átti sér stað
þegar lyfti sér frá flugbrautinni
í kafaldsbyl. Óljóst er hvað slys-
inu olli en talið að henni hafi
hvolft er vængur rakst í flug-
brautina.
Flugvirki, sem var farþegi í ann-
arri flugvél, sagði að þotan hefði
verið komin 10 til 15 metra frá
jörðu þegar hún tók að vagga titr-
andi vængjum. Hefði annar þeirra
rekizt í jörðina með þeim afleiðing-
um að þotan hefði sveiflast yfir um
og skollið á brautina á hvolfi. Brotn-
aði skrokkurinn í þrennt og köstuð-
ust partamir hálfan kílómeter.
Þeir sem komust Iífs af hengu
sumir á hvolfi í sætum sínum í
margar klukkustundir. Síðasta far-
þeganum var bjargað fimm stund-
um eftir óhappið. Þeir sem biðu
bana köstuðust flestir úr sætum
sínum og út úr flugvélinni þegar
hún brotnaði. Báðir flugmennimir
biðu bana og af fimm manna áhöfn
flugvélarinnar komust aðeins tvær
flugfreyjur lífs af.
Björgunarstarf gekk mjög erfíð-
lega, enda frost, hvassviðri og
svartabylur allan tímann. Björgun-
armenn bmgðu á það ráð að blása
heitu lofti inn í flugvélina til þess
að halda hita á þeim, sem lifðu af.
Nota varð öflugar stálklippur til að
losa fólk úr flakinu.
Libby Smoot frá Ketchum í Idaho
slapp ómeidd úr hildarleiknum. Hún
Tyrkneskir kommúnista-
leiðtogar teknir höndum
Ankara, Reuter.
TVEIR tyrkneskir kommúnista-
leiðtogar voru handteknir í gær
á flugvellinum i Ankara. Haydar
Kutlu og Nihat Sargin höfðu að
sögn lögfræðinga þeirra verið
undanfarin sjö ár í sjálfskipaðri
útlegð i Evrópu.
Stuttu eftir að mennimir stigu
út úr flugvél Lufthansa á leið frá
Vestur-Þýskalandi tók Iögregla þá
höndum. John Bowden enskur lög-
fræðingur mannanna sagði að
handtaka þeirra hefði verið brot á
mannréttindasáttmála Evrópuráðs-
ins. Bowden var einn af íjölmörgum
vestrænum mönnum sem fylgdu
Kutlu og Sargin til Tyrklands. Þar
á meðal voru þingmenn frá Grikk-
landi, Ítalíu, Spáni, Danmörku,
Frakklandi og Vestur-Þýskalandi.
„Við erum hingað komnir á lögleg-
an máta til að sjá hvemig ástatt
er um lýðræðið í Tyrklandi . . .
Við fengum ekki að fylgja mönnun-
um á friðsamlegan hátt heldur
vorum við aðskildir. Það er ekki
lýðræðislegt," sagði Bowden við
fréttamenn.
Stjómmálaskýrendur segja að
Kutlu og Sargin vilji koma hinum
fhaldssama forsætisráðherra, Turg-
ut Ozal, í klípu en nú eru tvær vikur
til kosninga í landinu. Einnig vildu
þeir hamla inngöngu Tyrklands í
Evrópubandalagið.
Reuter
Björgnnarmenn leita í braki þotunnar, sem fórst við Denver. Eins
og sjá má á hjólabúnaði flugvélarinnar liggur hún á hvolfi.
ins ókunnar. Aðeins væri vitað að
annar vængurinn hefði rekizt í jörð-
ina og að síðan hefði henni hvolft.
Hann sagði að flugbrautarskyggni
hefði verið aðeins 200 metrar þegar
óhappið átti sér stað. Margar flug-
vélar hefðu farið á loft um daginn
við samskonar veðurfarsaðstæður
og ekkert í skorizt.
Þotan var í eigu flugfélagsins
Continental Airlines og á leið frá
Denver til Boise í Idaho. Um borð
voru 76 farþegar og fimm manna
áhöfn. Af 51 sem bjargaðist hlaut
21 aðeins smáskrámur. „Aðkoman
var hyrllileg, allt á rúi og stúi,“
sagði John Wyckoff, lögregluþjónn
í Denver. Að sögn embættismanna
má fullyrða að manntjón hefði orð-
ið mun meira ef eldur hefði komið
upp í flugvélinni. Vængir hennar
tættust í sundur og flæddi eldsney-
tið úr tönkum og þykir kraftaverk
að eldur skyldi ekki kvikna.
Flugslysið í Denver er hið næst-
mannskæðasta í Bandaríkjunum á
þessu ári. í ágúst síðastliðnum biðu
156 manns bana þegar þota frá
Northwest Airlines fórst við Detro-
it. Aðeins einn komst lífs af,
fjögurra ára stúlka.