Morgunblaðið - 17.11.1987, Síða 39

Morgunblaðið - 17.11.1987, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1987 39 Ráðstefna um ökukennslu og umferðar- menningu UMFERÐARRÁÐ, Ökukennara- félag íslands, Dóms- og kirkju- málaráðuneytið, Bifreiðaeftirlit ríkisins og Fararheill 87 efna tíl ráðstefnu um ökukennslu og umferðarmenningu í Holiday Inn hótelinu á morgun. Eftir að ráðstefnan hefur verið sett, klukkan 9.15, mun Jón Sig- urðsson, dómsmálaráðherra, flytja ávarp. Erindi flytja t.d. Guðbrand- ur Bogason, formaður Ökukenn- arafélags ísiands, en hann fjallar um stöðu ökukennslunnar, Guð- mundur Þorsteinsson, námsstjóri, sem talar um tilraunir með fræði- legt ökunám í framhaldsskólum, Salome Þorkelsdóttir, alþingis- maður, ræðir um það hvemig ökukennslan kemur henni fyrir sjónir, Ólafur W. Stefánsson, skrif- stofustjóri í Dómsmálaráðuneyt- inu, talar um endurskoðun reglugerðar um ökupróf og öku- kennslu, Böðvar Bragason, lög- reglustjóri, fjallar um ökuferilsskrá og Rögnvaldur Jónsson, yfirverk- fræðingur, ræðir um æfingasvæði fyrir ökumenn. Undir lok ráðstefnunnar verða pallborðsumræður um ökukennslu, hvemig megi bæta hana og þar með umferðarmenningu. Ölafur H. Þórðarson, framkvæmdastjóri Umferðarráðs, slítur síðan ráð- stefnunni klukkan 16.55 sam- kvæmt dagskránni. Olíulekinn á Keflavíkurflugvelli: Gatið á leiðsl- unni á við nögl litla fingurs Keflavik. OLÍULEKINN á Keflavíkur- flugvelli fannst loks á laugar- dag. Lekinn reyndist vera í gamalli olíuleiðslu frá árinu 1953. Hleypt var vatni á leiðslu- rnar og námu leitartæki frá Vatnsveitu Reykjavíkur lekann á stað sem menn höfðu ekki hugmynd um að olíuleiðsla væri i jörðu. Gatið á leiðslunni reynd- ist á stærð við nögl litla fingurs. Mikill þrýstingur er á leiðslunni þegar dælt er og náðu 75 þúsund lítrar af díselolíu að leka út á mánuði áður en lekinn upp- götvaðist. Friðþór Eydal blaðafulltrúi vamarliðsins sagði í samtali við Morgunblaðið að þama hefði átt að byggja olíugeymi og við lagn- ingu olíuleiðslunnar hefði verið gert ráð fyrir því og settur botn- langi að þeim stað sem tankurinn átti að vera. Olíugeymirinn hefði aldrei verið reistur og menn gleymt tilvist olíuleiðslunnar. Að sögn Friðþórs hefur ekki enn verið tekin ákvörðun hvað gert verður við jarðveginn á svæðinu, en tvær hugmyndir væru uppi. Önnur væri að jarðvegurinn yrði brenndur í malbikunarstöð Aðal- verktaka, en hin tillagan gerði ráð fyrir að flytja jarðveginn á sorp- haugana og brenna hann þar. Sérfræðingar telja að vatns- bólum Keflvíkinga og Njarðvíkinga sé ekki hætta búin vegna olíum- engunar og ekkert hefur komið fram sem bendir til þess. Vatns- bóli í nágrenni staðarins hefur samt verið lokað af öryggisástæð- um. AF INNLENDUM VETTVANGI eftir HJÁLMAR JÓNSSON 16. þing Landssambands íslenskra verslunarmanna: Stöðugleiki verðlags eitt brýnasta hagsmunamálið SEXTÁNDA þing Landssambands íslenskra verzlunarmanna, sem haldið var á Akureyri um helgina fór fram í friði og spekt. Deilur milli verslunarmanna af landsbyggðinni og úr Reykjavík leystust með farsælum hætti. Samþykktar vo'ru tillögur um breytingar á skipulagi samtakanna, sem auka ítök landsbyggðarfólks I samtök- unum og félög verslunarmanna á landsbyggðinni hafa nú jafnmarga fulltrúa í framkvæmdastjórn og Verslunarmannafélag Reykjavík- ur, eða fimm, en ellefti fulltrúinn kemur frá Verslunarmannafélagi Hafnarfjarðar. Landssambandið sterkara og- samhentara „Ég er ánægður með þetta þing. Ég tel að þegar við stöndum upp frá þingi sé Landssamband íslenskra verslunarmanna sterkara og samhentara en það var fyrir þingið," sagði Bjöm Þórhallsson, sem endurkjörin var einróma for- maður sambandsins. Hann sagði að á þinginu hefði tekist að leysa ágreining innan sambandsins milli Verslunarmannafélags Reykjavík- ur og félaga af landsbyggðinni. Samþykktar hefðu verið skipulags- breytingar, sem fækkuðu fulltrúum VR hlutfallslega á þingunum. Sömuleiðis hefði verið samþykkt ályktun um breytingu á starfs- háttum, sem hann vænti að full- nægði að mestu kröfum lands- byggðarfélagana um breytingu þar á. Að vísu yrði það að koma í ljós í störfum þeirrar stjómar sem kjör- in var, hvemig henni tækist að vinna úr því veganesti. Verslunarmannafélög á lands- byggðinni stofnuðu með sér samtök í jólaföstusamnmgunum í desember á síðasta ári. Ástæðan var sú að samtökin töldu félagsmenn sína lítið eiga sameiginlegt með VR vegna þess að yfirborganir væm algengar á höfuðborgarsvæðinu, en kauptaxtamir giltu út á lands- byggðinni. Viðhorfin hafa breytst síðan, enda upplýst á þinginu að 75% afgreiðslufólks í verslunum í Reylqavík er á töxtum á bilinu 33-39.700 krónur. Þá voru sam- þykktar breytingar á lögum lands- sambandsins, þess efnis að einn fulltrúi verði kjörinn á þing sam- bandsins fyrir hvetja 150 félags- menn eða færri. Séu félagsmenn fleiri en 150 á félagið rétt til þess að kjósa fyrir hverja 150 eða brot úr 150 umfram hinna fyrstu félags- menn. Þessi lagabreyting gerir það að verkum að fulltrúum lands- byggðarinnar fjölgar hlutfallslega, en VR átti tæp 70% af fulltrúum á þinginu nú, enda stærsta verka- lýðsfélag í landinu. „Landsbyggðarsamtökin em bú- in að koma því til leiðar að ég held að starfsemi innan LÍV auk- ist,“ sagði HansínaÁ. Stefánsdóttir frá Verslunarmannafélagi Ámes- sýslu. „Það verður sú breyting á stjóminni að þar verða jöfn hlut- föll iandsbyggðarinnar annars vegar og VR hins vegar og svo oddamaður úr Hafnarfirði. Virkni innan sambandsins ætti því að geta aukist, en það byggist á því að framkvæmdastjóm fylgi eftir þeim samþykktum sem komu frá laga og skipulagsnefnd þingsins," sagði Hansína. Hún sagði að landsbyggð- arfélögin hefðu ekki verið nógu virk og sambandið I heild hefði heldur ekki verið nógu virkt. Stofn- un samtaka landsbyggðarfélag- anna hefði orðið til þess að koma af stað mikilli umræðu, sem aftur hefði orðið til þess að starfið hefði aukist. Kjaramálin í brennidepli Helsta mál þingsins vom kjara: mál, svo sem vænta mátti. í kjaramálaályktun sem samþykkt var segir meðal annars að efna- hagsþróun síðustu mánaða, svo og aðgerðir ríkisstjómarinnar gefi ekki tilefni til bjartsýni við upphaf samningagerðar. Ljóst sé að að- gerðir ríkisstjómarinnar komi illa við allt launafólk og því hljóti verkalýðshreyfingin í heild að mót- mæla. í kjarasamningum á síðasta ári hafi náðst víðtæk samstaða verkalýðshreyfingarinnar, atvinnu- rekenda og ríkisvalds um aðgerðir til að ná tökum á verðbólgunni, tryggja kaupmátt og koma á stöð- ugleika í íslensku efnahagslífi. Verkalýðshreyfingin ein hafi staðið sem þegar hafi tekið gildi. Verði áform ríkisstjómarinnar að vem- leika, sé það enn sem fyrr launa- fólkið, sem ætlast sé til að greiði niður óráðsíu stjómvalda. Verdbólgn verði haldið niðri Þingið samþykkti að leggja meg- inþunga á eftirfarandi atriði I komandi kjarasamningum. Verð- tryggingu launa og að yfirborganir komi inn í taxta. Þrátt fyrir vem- lega hækkun lægstu launa í kjarasamningum í fyrra hafi launa- hlutföll ekki breytst láglaunafólki í hag vegna aukins launaskriðs. 1 Leggja þurfi áherslu á að dag- vinnulaun dugi til framfærslu heimilis og í fjórða lagi að áunnin réttindi starfsmanna haldist við flutning milli vinnuveitenda. í fimmta lagj að raunvemlegu launajafnrétti sé komið á. Það sé óþolandi staðreynd að þrátt fyrir lög um launajafnrétti karla og kvenna séu konur yfírleitt mun verr launaðar, þó þær vinnu sömu störf. í sjötta lagi að haldið verði áfram þeirri vinnu sem hófst með gerð fastlaunasamninga og feli í hræddur um að ýmislegt verði þar til erfiðleika," sagði Bjöm Þórhalls- son aðspurður um horfumar í kjaramálunum. „Við lögðum á það áherslu í kjaramálaályktuninni að það þurfi að hækka lægstu laun og færa þau nær þeim launum sem almennt em greidd. Þá var mikil áhersla lögð á það á þinginu að varðveita það sem áunnist hefur í baráttunni við verðbólguna. Það er mikil áhersla lögð á það í álykt- uninni og sömuleiðis heyrðist það á tali manna og umræðu allri um kjaramálin, að umfram allt yrði að sjá til þess að verðbólgan færi ekki á skrið á nýjan leik. Jafnframt bentu menn á að það dygði ekki að verkalýðshreyfíngin ein axlaði byrðamar," sagði Bjöm ennfrem- ur. Einhugnr um kjör í stjórn Þingið samþykkti breytingar á Ijölda stjómarmanna, sem em nú 21 og 10 til vara, en vom 19 áður og 7 til vara. Þar af em 11 í fram- kvæmdastjóm, tíu í sambands- stjóm og tíu til vara. Sambands- stjómin er nýmæli, en áður vora Morgunblaðið/Guðmundur Svansson Frá þingi Landssambands íslenskra verslunarmanna. Björn Þórhallsson, formaður sambandsins, í ræðustól. við þá samninga, bæði atvinnurek- endur og ríkisvald hafí bmgðist. Síðan segin „16. þing LÍV legg- ur megináherslu á, að sá árangur sem náðist í baráttunni við verð- bólguna á síðasta ári, fyrst og fremst fyrir frumkvæði verkalýðs- hreyfíngarinnar verði ekki að engu f;rður með aðgerðum stjómvalda. því sambandi bendir þingið á, að orsakir verðbólgu er ekki að fínna í kauptöxtum launafólks. Þótt stigið hafí verið skref í átt til launajöfnunar með gerð síðustu kjarasamninga, er enn mikið verk óunnið. Hinn gífurlegi launamunur sem viðgengst er óþolandi. Þar bera atvinnurekendur mesta ábyrgð. Yfírborgamir og launa- skrið sýna svo ekki verður um villst að það er hægt að greiða hærri laun en kauptaxtar segja til um.“ Þá er harðlega mótmælt þeim áformum ríkisstjómarinnar að leggja enn frekari byrðar á launa- fólk með álagningu söluskatts á matvæli. Þingið telji að með slíkri skattlagningu sé afkomu fjölda heimila teflt í tvísýnu og lögð er áhersla á að söluskattur á matvæli geti ekki orðið skiptimynt í viðræð- um um kjarasamninga. Skorað er á ríkisstjómina að hætta við öll áform um skattlagningu matvæla og felldar verði niður þær álögur sér að taxtamir verðir færðir nær greiddu kaupi. Það sé með ölli óvið- unandi að kaup og kjör verslunar- manna séu háð geðþóttaákvörðun- um einstakra vinnuveitenda. Þá er að lokum lögð áhersla á að baráttu þeirri sem hófst á síðasta ári við að halda niðri verð- bólgu verði haldið áfram. Þingið leggi áherslu á að stöðugleiki f verðlagi sé eitt brýnasta hags- munamál launþega. Að lokum segir í Iqaramálaálykt- uninni: „Enn sem fyrr veltur á miklu að verkalýðshreyfingin sé samstiga í baráttunni fyrir bættum kjöram. Þótt áherslur séu ekki all- ar þær sömu, ber nú sem áður brýna nauðsyn til samstöðu. Það er auðsætt að það er hagur at- vinnurekenda að verkalýðshreyf- ingin komi sundmð til samninga, þeim mun betri er þeirra samnings- staða. Látum ekki stundarhagsmuni einstakra hópa glepja okkur sýn, stöndum saman og verjum þau réttindi sem náðst hafa fram með áratuga baráttu og sækjum ný. Vinnum saman að því að skapa betra og réttlátara þjóðfélag". „Ég er satt að segja ekki mjög bjartsýnn á að hyggilegir samning- ar náist á skömmum tíma. Ég er kjömir tveir menn úr hveijum landsfjórðungi f aðalstjóm og vara- stjóm var skipuð þremur fulltrúum frá Reykjavfk og einum úr hvetjum lands^órðungi. Einhugur var á þinginu um Iq'ör í stjóm landssambandsins. Eins og fyrr sagði var Bjöm Þórhallsson einróma endurkjörinn formaður. Aðrir í framkvæmdastjóm vom kjömin Jóna Steinbergsdóttir, Hannes Þ. Sigurðsson, Grétar Hannesson, Böðvar Pétursson, Friðrik Jónsson, Guðmundur Jóns- son, Hansfna Á. Stefánsdóttir, Leó Kolbeinsson, Kristinn H. Gunnars- son og Magnús Pálsson. í sambandsstjóm vom kjömir þessir aðalmenn: Reynir Jósefsson, Guðrún Jóhannsdóttir, Sigurlaug Sveinbjömsdóttir, Guðrún Þórs- dóttir, Ingibjörg R. Guðmunds- dóttir, Bjöm Gunnarsson, Jón ísaksson, Gunnlaugur Guðmunds- son, Jóhanna Vilhelmsdóttir og Salmar Jóhannsson. Varamenn í sambandssstjóm vom kjömir Guðmundur Karlsson, Laufey Bjamadóttir, Sólveig Sveinsdóttir, Þóra B. Ögmunds- dóttir, Steinn Gunnarsson, Gyða Guðmundsdóttir, Margrét Runólfs- dóttir, Þóra Pétursdóttir, Þorsteinn Bjamason og Ingimar H. Georgs- son. BB r

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.