Morgunblaðið - 10.03.1988, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1988
Tíbet:
Fjölmennt lögreglu-
lið á götum Lhasa
Talið að 16 munkar hafi fallið í árás á Johkang-musterið
Peking. Reuter.
TÍBESKIR búddamunkar fóru
hópum saman um Lhasa í síðustu
viku og kröfðust upprætingar
alls þess, sem væri kommúnískt
og kínverskt. Var skýrt frá þessu
í málgagni kínverska kommún-
istaflokksins í gær en þá var
haft eftir íbúum í Lhasa, að fjöl-
mennt lögreglulið væri á götum
borgarinnar til að koma í veg
fyrir frekari mótmæli.
„Brjótum allt, sem tilheyrir
kommúnistaflokknum, allt, sem er
kínverskt," hrópuðu sumir munk-
anna og aðrir hrópuðu „frjálst
Tíbet“. Sagði í Dagblaði alþýðunn-
ar, að munkamir hefðu kveikt í
nokkrum bifreiðum en áhersla var
lögð á, að upphlaupsmennirnir væru
aðeins „fámennur hópur aðskilnað-
arsinna". Vestrænum fréttamönn-
um þykir þó merkilegt, að frá mót-
mælunum skuli hafa verið skýrt.
íbúar í Lhasa segja, að mjög
V estur-Þýskaland:
Kiesinger látinn
öflugur lögregluvörður sé á götum
borgarinnar til að girða fyrir mót-
mæli í líkingu við þau, sem urðu á
fimmtudegi í síðustu viku. Er orð-
rómur á kreiki um, að 16 munkar
hafi fallið þegar öryggislögreglu-
menn réðust inn í Johkang-muster-
ið sl. laugardag til að bæla niður
andkínversk mótmæli.
Á fimmtudaginn minntust Tíbet-
ar þess, að 29 ár eru liðin frá upp-
reisninni gegn yfirráðum Kínvetja
árið 1959 en talið er, að tugþúsund-
ir Tíbeta hafi þá fallið og enn fleiri
flúðu til Indlands ásamt trúarleið-
toganum Dalai Lama.
Bonn, Reuter.
KURT Georg Kiesinger, fyrrum
kanslari Vestur-Þýskalands, lést
í gær, 82 ára að aldri. Hann var
þriðji kanslari landsins eftir
síðari heimsstyrjöldina, og leiddi
samsteypustjórn kristilegra
demókrata og sósíaldemókrata á
árunum 1966 til 1969, þrátt fyrir
þrálátar deilur um hlutverk hans
í Þriðja ríkinu.
Kiesinger vísaði alltaf á bug þeim
staðhæfingum að hann hefði starf-
að undir stjórn Josephs Goebbels,
áróðursmeistara nasista, og Joach-
ims Ribbentrops, utanríkisráðherra.
Kiesinger var yfirmaður útvarps-
deildar utanríkisráðuneytis nasista,
en hélt því fram að hann hefði gerst
fráhverfur nasistastjóminni þegar
hún hefði tekið völdin árið 1933.
Nasistafangarinn Beate Klarsfíeld
rak Kiesinger kinnhest á flokks-
fundi kristilegra demókrata árið
1968 til að brennimerkja hann sem
nasista, og vakti sá atburður at-
hygli víða um heim.
Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, sagði að með fráfalli
Kiesingers hefði Vestur-Þýskaland
misst einn af sínum merkustu
mönnum. Kiesinger hefði átt mikinn
þátt í að byggja land sitt upp eftir
ERLENT
Reuter
Japanskir bílarfluttir út til Japans
Honda Accord-bílum var í gær ekið um borð í skip sem flutti þá
til Japans. Þetta er í fyrsta skipti sem japanskt fyrirtæki flytur
út bíla, framleidda í Bandarikjunum, til Japans.
Viðræður um vopnahlé í Nicaragua:
Skæruliðar hafna til-
lögu um dagsetningu
Reuter
Georg Kiesinger, fyrrum kansl-
ari Vestur-Þýskalands.
stríð, auk þess sem hann hefði ver-
ið mikill baráttumaður fyrir einingu
Evrópuþjóða.
Miami, Reuter.
LEIÐTOGAR kontra-skæruliða
gengu ekki að tillögu sandínista-
stjórnarinnar um að vopnahlés-
viðræður þeirra hæfust á miðviku-
dag í næstu viku. Adolfo Calero,
leiðtogi sendinefndar kontra-liða,
sagði á þriðjudag að sandínista-
stjórnin hefði ákveðið einhliða
hvar og hvenær viðræðurnar færu
fram, og að kontrá-liðar gætu ekki
Tíu ár frá ráninu á Aldo Moro:
Páfi vildi semja við
Rauðu herdeildimar
- segir Giulio Andreotti, utanríkisráðherra Italíu
Mílano. Frá Benedikt Stefánssyni,
ÍTALSKA þjóðin minnist þess um
þessar mundir, að tíu ár eru lið-
in, frá þvi að Rauðu herdeildirn-
ar rændu Aldo Moro, formanni
Kristilega demókrataflokksins,
og myrtu hann eftir 55 daga
gíslingu. Um helgina lýsti Giulio
Andreotti utanríkisráðherra því
yfir í viðtali við ítalskt tímarit,
að Páll páfi VI hafi náð sam-
bandi við mannræningjana og
verið tilbúinn að reiða fram
lausnargjald til þess að frelsa
Moro. Talsmaður Páfagarðs
staðfestir, að páfi hafi boðið
fram féð, en ber til baka þá full-
yrðingu ráðherrans, að samband
hafi verið haft við hryðjuverka-
mennina.
Andreotti var forsætisráðherra á
þessum tíma og átti stóran þátt í
þeirri ákvörðun ríkisstjómarinnar
og Kristilega demókrataflokksins,
að engir samningar skyldu reyndir
við Rauðu herdeildimar. Þessi af-
staða hefur æ síðan verið umdeild,
fréttaritara Morgunblaðsins.
ekki síst fyrir þá sök, að í bréfum
Moros, sem hann skrifaði úr
prísundinni, gagnrýndi hann félaga
sína harkalega fyrir að hafa ekki
reynt að frelsa sig. í síðasta bréf-
inu, sem skrifað er skömmu fyrir
aftökuna, afneitar Moro fyrrum
flokksfélögum sínum, þeirra á með-
al Andreotti, og kallar þá til ábyrgð-
ar.
Á sama vettvangi er haft eftir
Bettino Craxi, formanni Sósíalista-.
flokksins, að hann hafí reynt til
þrautar að fínna samningaleið, á
meðan Moro var haldið í gíslingu.
Giovanni Leone forseti hafi verið
reiðubúinn að láta lausa hryðju-
verkamenn í skiptum fyrir Moro,
en andstaða annarra stjómmála-
manna hafí gert þessa áætlun að
engu. Þegar þessi ummæli eru bor-
in undir Andreotti, svarar hann
þurrlega, að Craxi hafí ekki komið
með neina tillögu um frelsun Moros.
Moro var rænt 16. mars 1978,
sama dag og greiða átti atkvæði í
ítalska þinginu um myndun meiri-
\ 11 AssasNÍnato!
Mynd af Aldo Moro, sem Rauðu
herdeildirnar sendu til dag-
blaðs í Róm.
hluta með þátttöku Kommúnista-
flokks Ítalíu. Það hefði verið í fyrsta
sinn í sögunni, sem flokkurinn hefði
átt aðild að ríkisstjóm. Moro var
hvatamaður að því að koma á sögu-
legum sáttum með kristilogum
demókrötum og kommúnistum, en
dauði hans olli því, að þessi meiri-
hluti sá aldrei dagsins ljós. Margir
hafa bent á, að það geti vart verið
tilviljun, að ránið hafí borið upp á
sama dag og vænst var þessara
þáttaskila í ítölskum stjómmálum.
Á hitt em menn ekki sáttir, hvaða
öfl hafi séð sér hag í því, að Moro
hyrfí af sjónarsviðinu með svo svip-
legum hætti.
samþykkt ákvörðun þeirra. Hins
vegar vilja skæruliðarnir að við-
ræðurnar hefjist 20. eða 21. mars.
Calero sagði í viðtali við alþjóðlegu
sjónvarpsfréttastofuna Visniews að
kontra-skæruliðar gætu fallist á að
viðræðumar fæm fram í Sapoa, við
landamæri Nicaragua og Costa Rica,
en þeir kræfust þess að sandínistar
tryggðu öryggi skæruliðanna á ferð
þeirra til og frá fundarstaðnum.
Fyrirhugað er að Calero leiði sendi-
nefnd kontra-liða og hann sagði að
þeir væm tilbúnir að ganga til við-
ræðna undir þeir skilyrðum sem Or-
tega setti í síðustu viku, það er að
segja að einungis yrði rætt um vopna-
hlé. Hann sagði hins vegar að sendi-
nefnd kontra-liða ætlaði að reyna að
ganga úr skugga um hvemig sandín-
istar hygðust koma á lýðræði í
landinu. Hann bætti við að kontra-
líðar kræfust þess enn að Miguel
Obando y Bravo, sem Ortega setti
af sem sáttasemjara í síðustu viku,
fengi að taka þátt í viðræðunum.
Calero sagði að þrátt fyrir að
kontra-liðar hefðu hafnað dagsetn-
ingu sandínistastjómarinnar væri
líklegt að viðræðumar fæm fram „í
mjög náinni framtíð." Kontra-liðar
gæfu sandínistum tíu daga frest til
að samþykkja hvenær og hvar við-
ræðumar fæm fram og til að tjá sig
um tillögu kontra-liða um dagskrá
viðræðnanna.
Málgagn sovézka kommúnistaflokksins:
Ljótar Lenínstytt-
urverði fjarlægðar
Moskvu. Reuter.
PRA VDA, málgagn sovézka
kommúnistaflokksins, sagði í gær
að fella bæri hundruð Ijótar Lenín-
styttur af stalli víða um land. Þær
væru flestallar sprungnar og fam-
ar að molna og væm móðgun við
minningu föður Sovétríkjanna.
Blaðið birti átta lesendabréf máli
sínu til stuðnings. í þeim var kvartað
sáran yfír alltof mörgum ömurlegum
fjöldaframleiddum styttum af Lenín,
sem orðnar væm fráhrindandi. Þær
væm gerðar úr lítt varanlegu efni
og komnar í niðumíðslu.
Yfirmaður safns, sem sér um við-
hald á sögulegum minnisvörðum, rit-
ar eitt bréfanna. Þar segist hann
nýlega hafa fundið 17 Lenín-styttur,
hveija annarri verri, í borginni Belovo
í Síberíu. Hann sagði að aðeins stytt-
ur eftir hinn kunna myndhöggvara
Lev Kerbel, væm vandaðar. „Allar
aðrar styttur af Lenín, sem skipta
hundmðum, era msl og ósamboðnar
minningu hans,“ sagði safnvörðurinn.
Safnvörðurinn sagði að ráðamenn
virtust almennt ekki vilja eiga fmm-
kvæði að því að styttur af Lenín yrðu
fjarlægðar, ekki einu sinni þær
verstu. Auðvelt væri að leggja til að
vandaðar styttur af leiðtoganum
látna yrðu settar upp í þeirra stað.
Lenín er goð á stalli samkvæmt hug-
myndafræði sovézka kommúnista-
flokksins. Árið 1917 stjómaði hann
byltingu bolsévika, sem leiddi til
stofnunar Sovétríkjanna.
Pravda hvatti menningarmála-
ráðuneytið, opinber samtök lista-
manna og aðrar stofnanir, til þess
að gera eitthvað í málinu. „Það er
skylda okkar að sjá til þess að stytt-
umar skammarlegu verði fjarlægð-
ar,“ sagði blaðið.