Morgunblaðið - 23.08.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.08.1988, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988 VEÐUR MorgunblaOið/binar Með hjólabretti í Þingholtunum Heimild: Veðurstofa islands (Byggt á veéurspá kl. 16.16 I gær) V / DAG kl. 12.00: VEÐURHORFUR íDAG, 23. ÁGÚST1988 YFIRLIT í GÆR: Við austurströnd Grænlands vestur af Snæfells- nesi er 989 mb lægð sem grynnist heldur og þokast norðaustur. Um 1.100 km suður af Hvarfi er 999 mb lægð sem dýpkar og hreyf- ist austnorðaustur og síðan norðaustur. Lítið eitt kólnar í veðri. SPÁ: Suður- og suðaustangola eða kaldi um mest allt land. Skúrir um vestanvert landið, rigning é Suðaustur- og Austurlandi, en þurrt á Norðausturlandi. Hiti 9 til 16 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG:Norðlæg átt og held- ur kólnandi. Rigning eða súld um norðanvert landið, en skúrir á stöku stað syðra. \ f % VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hhl veður Akureyri 18 léttskýjað Reykjavík 10 súld Bergen 15 hálfskýjað Helsinki 18 hálfskýjað Kaupmannah. 18 skýjað Narssarscuaq 5 rigningogsúld Nuuk 5 rigning Ósló 11 skúr Stokkhólmur 19 skýjað Þórshðfn 11 alskýjað Algarve 28 heiðskírt Amsterdam 18 léttskýjað Barcelona 24 léttskýjað Chlcago 19 alskýjað Feneyjar 24 skýjað Franlrfurt 17 skúr Glasgow 15 láttskýjað Hamborg 17 skýjað Las Palmas 28 léttskýjað London 17 skýjað Los Angeles 16 léttskýjað Lúxemborg 15 skýjað Madríd 23 léttskýjað Malaga 29 léttskýjað Mallorca 27 léttskýjað Montreal 11 úrkoma Now York 17 heiðskírt Parfs 17 skýjað Róm 27 léttskýjað San Diego 18 léttskýjað Winnipeg 14 léttskýjað Krafist gjald- þrots O.N. Olsen VÉLSMIÐJAN Oddi á Akureyri hefur krafist þess að rækju- verksmiðja O.N. Olsen á ísafirði verði tekin til gjaldþrotaskipta. Oddi á um 2 milljóna króna kröfu á hendur rækjuverk- smiðjunni og hefur reynt fjárnám en árangurslaust . Pétur Hafstein bæjarfógeti á ísafirði sagði að þingað verði vegna kröfunnar hjá embætti hans næstkomandi föstudag. Geti for- svarsmenn rækjuverksmiðjunnar þá ekki greitt eða samið við Odda komi til greina að kveðinn veðri upp úrskurður um gjaldþrot. Að sögn bæjarfógeta hafa honum enn ekki borist aðrar kröfur í bú rækju- verksmiðjunnar. Að sögn Theódórs Norðkvist stjómarmanns hjá O.N. Olsen er staða fyrirtækisins erfíð en nú er unnið að því að auka hlutafé fyrir- tækisins. Verður ljóst í dag, þriðju- dag, hvort þær tilraunir bera árangur. Þá á fyrirtækið inni tugi milljóna hjá verðjöfnunarsjóði sem Theodór sagði brýnt að fá til að leysa vanda fyrirtækisins, sem væri hliðstæður því sem margar rækjuverksmiðjur ættu nú við að etja. Starfsemi rækjuverksmiðju O.N. Olsen hefur legið niðri um nokkurra daga skeið eftir að raf- magn var tekið af verksmiðjunni vegna orkuskulda. Um 25 manns vinna hjá O.N Olsen og er verk- smiðjan ein hin stærsta sinnar tegundar á landinu. Þrjú innbrot í Vesturbænum 11 rúður brotnar í Seljaskóla ÞRJÚ innbrot voru tilkynnt lög- reglu að morgni mánudags. Litlu var stolið en sums staðar valdið miklum skemmdum. Brotist var inn í bílaleiguna ALP við BSÍ og bónstöð við hlið hennar. Litlu var stolið en innbrotsþjófamir svöluðu skemmdarfýsn sinni á mun- um og innréttingum í fýrirtækjun- um. Brotist var inn í nýlenduvöru- verslun að Ásvallagötu 19. Nokkrar skemmdir voru unnar en einskis var saknað. Loks var brotist inní ísbúð við Hagamel 67. Þjófamir báru lltið sem ekkert úr býtum. Um miðnætti á laugardagskvöld var lögregla kvödd að Seljaskóla í Breiðholti. Þar höfðu verið brotnar 11 rúður en skemmdarvargamir voru á bak og burt þegar lögreglan kom á staðinn. Miðlínan milli íslands og Grænlands: Danir stugga við rækjutogurum DANSKA varðskipið Beskjtteren hafði afskipti af nokkrum íslensk- um rækjutogurum um helgina. Voru togararnir að veiðum við miðlín- una milli Grænlands og íslands norðvestur af Vestfjörðum, á Dorhn- banka, og taldi Beskytteren að þeir væru Grænlandsmegin við línuna. VUdi Beskytteren að þeir færðu sig austar. Stýrimaðurinn á Akurnes- ingi hafði samband við Landhelgisgæsluna á sunnudag og spurði ráða. Var honum, og öðrum á svæðinu, ráðiagt að fara að tilmælum Beskytteren hvað þeir og gerðu. Þröstur Sigtryggsson skipherra hjá Landhelgisgæslunni segir að hægt sé að nota tvær lórankeðjur eða staðsetningarkeðjur á þessu svæði og svo virðist sem önnur keðjan mæli miðlínuna vestar en hún er. Ekki munar þó miklu á þeim, aðeins 1,5-2 sjómílum. Að sögn Þrastar verða skipin að vera með móttökutæki fyrirgervihnatta- sendingar til að vera 100% örugg á staðsetningunni og hafa sum skip slíkan búnað innanborðs. Hvað óná- kvæmnina í lórankeðjunum varðar segir hann að hún geti verið til komin vegna erfiðra móttökuskil- yrða frá þeim stöðum sem senda staðarákvörðunarpunktana út, svo sem Vestijarða og Jan Mayen. Skipstjórar rækjutogaranna sem hér um ræðir reyna að halda sig eins vestarlega og hægt er því svo til engin rækja veiðist nú austan við miðlínuna. Vilja að við séum mílu frá miðlínunni — segir Óskar Kristjánsson skip- stjóri á Akurnesingi ÓSKAR Kristjánsson skipstjórí á Akurnesingi, sem nú er á rækju- veiðum á Dornbanka, segir að danska varðskipið Beskytteren vilji að íslensku skipin haldi sig um mílu frá miðlínunni milli Grænlands og íslands. Beskytter- en stuggaði við nokkrum fslensk- um skipum á sunnudag þar sem varðskipið taldi þau vera vestan megin við miðlfnuna. Oskar segir að þeim hafí borist tilmæli um að flytja sig austar og var það gert eftir að samráð var haft við Landhelgisgæsluna. Hefur allt verið með kyrrum kjörum á mið- unum síðan. Að sögn Óskars eru nú 15 íslensk skip á þessum miðum og nokkur erlend vestan megin við miðlínuna. Afli hefur enn sem komið er verið mjög dræmur, en Óskar segir að skipin vestan megin afli betur. „Þessi samskipti okkar og Be- skytteren voru I góðu. Um var að ræða mismunandi útkomu á þeim tveimur Lórankeðjum eða staðsetn- ingarkeðjum sem notaðar eru en þar á milli getur orðið allt að 2ja sjómílna munur,“ segir hann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.