Morgunblaðið - 23.08.1988, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988
Reykjavíkurmaraþon 1988
Metþátttaka
þrátt fyrir
kalsaveður
REYKJAVÍKUR maraþon 1988 fór fram á sunnudag og var um
mettþáttöku að ræða. AIls hlupu rúmlega 1300 hlauparar. Þúsund
manns í skemmtiskokki sem er 6,5 kílómetrar, um 200 í hálfmara-
þoni (21 km.) og 120 skráðu sig til keppni í maraþoni (42 km.). Leið-
inlegt veður setti mark sitt á hlaupið að þessu sinni enda voru
tímarnir nú nokkru lakari en áður.
Þetta er í fjórða sinn sem á hlaupaleiðunum og hlauparamir
Reykjavíkur maraþon fer fram og hvattir til dáða.
var það fyrst haldið 21. ágúst 1984.
Fólk á öllum aldri tók þátt í
skemmtiskokkinu enda er miðað við
að sú vegalengd hæfi sem flestum.
Þar tóku einnig tveir fatlaðir menn
þátt, sem „hlupu“ hringinn í hjóla-
stól. Fjöldi fólks var samankominn
í miðbænum til að fylgjast með,
einnig var margt um manninn víða
Sigurvegari í maraþoni varð
júgóslavneskur keppandi, Borut
Podgomic, en í kvennaflokki sigraði
danska stúlkan Connie Ericson.
Sigurvegari í skemmtiskokkinu
varð Már Hermannson sem einnig
sigraði í fyrra. Sigurvegari í hálf-
maraþoni varð Bretinn Barry Walt-
ers. GuGu
START
*—nÚGí£IDI* * •tVRJAVÍK mjkiS**
Morgunblaðið/RAX
Metþátttaka var í Reykjavíkur Maraþoni á sunnudag. Um 1300 keppendur voru skráðir til keppni í
ýmsar vegalengdir. Hér sést fjöldinn leggja af stað úr Lækjargötu.
Vil ekki hlaupa
í heitu veðri
Jugóslavinn Borut Podgomic
kom fyrstur í mark í maraþoni
á tímanum 2.27,27. Hann hefur
ekki tekið þátt í Reykjavíkur
maraþoni áður, en alls hefur
hann sex sinnum hlaupið mara-
þon. Þetta er í fyrsta sinn sem
hann sigrar í maraþonhlaupi.
„Þetta var mjög erfitt enda er
tíminn ekki góður. Það var mikill
mótvindur á minnsta kosti 15 kíló-
metra kafla. Ég hljóp einn mestan
hluta leiðarinnar."
Hveraig er að hlaupa á ís-
landi?
_ „Það er gott að hlaupa hér. í
Jugóslavíu er nú um 35- hiti og
það er ekki hægt að hlaupa mara-
þon þar. Ég vil helst ekki hlaupa
maraþon í heitu veðri. Allt yfir 20 •
er of heitt fyrir mig.“
Hefur þú komið til íslands
áður?
„Nei, þetta er í fyrsta sinn og
vonandi ekki síðasta."
Ætlar þú kannski að hlaupa á
næsta ári?
„Já, það vil ég gjaman."
Morgunblaðið/Einar Falur
Barry Walters frá Englandi vann hálfmaraþonið.
Andstæðingarmr
beygðu skyndilega
Englendingurinn Barry Walters,
sem sigraði í hálfmaraþoni, var
hér á Islandi í fyrsta sinn. Hann
starfar hjá British Airways og
stundar hlaup í sínum frístund-
um. Barry Walters var spurður
hvort hlaupið hefði verið erfitt.
„Nei.ekki svo. Vindurinn gerði
mér þó erfítt fyrir. Það er gjörólíkt
að hlaupa hér og á Englandi, mun
kaldara hér en á sama árstíma á
Englandi. Svona veður er heima á
fyrstu mánuðum ársins. Aðstæður
til að hlaupa hér eru samt mjög
góðar og þetta var gott hlaup."
Fékkstu mikla keppni á leið-
inni?
. „Snemma í hlaupinu var ég með-
al fremstu manna og þá varð ég
dálítið ringlaður því margir fóru
fram úr mér. Ég gerði mér ekki
grein fyrir því að þetta vom
skemmtiskokkarar. Ég jók því hrað-
an til að halda í við þá en þá beygðu
þeir skyndilega af leið.
Eina sem ég hef við þetta hlaup
að athuga er að mér fínnst að ræsa
hefði mátt hálfmaraþonið á undan
maraþoninu því hlauparar í hálf-
maraþoni hafa tilhneigingu til að
hlaupa hraðar í upphafí hlaupsins
en þeir sem hlaupa maraþon. Það
myndaðist því á kafla hálfgerður
flöskuháls," sagði Barry Walters
sem lýsti yfír miklum áhuga á að
taka þátt í hlaupinu að ári.
Morgunblaðið/Einar Falur
Borut Podgornic frá Júgóslavíu
sigraði í Reykjavíkur maraþoni
1988. Hér er hann við Höfða.
Morgunblaðið/Einar Falur
Connie Ericson frá Danmörku, sigurvegari í maraþonhlaupi kvenna.
Annan hringinn
hljóp ég alein
CONNIE Ericson frá Danmörku
kom fyrst kvenna í mark í mara-
þonhlaupinu. Hún er 36 ára göm-
ul og á bestan tíma 2.50,00.
„Hlaupið var mjög erfitt því vindur-
inn var mikill. Annan hringinn hljóp
ég alein og hafði því ekki mikla
keppni. Þess vegna er tíminn svo
slakur. En miðað við aðstæður er
ég afar ánægð með sigurinn.
Er þetta í fyrsta sinn sem þú
keppir hér á landi?
„Já, en ég vonast til að koma
hingað aftur. Það er gott að hlaupa
hér.“
Ánægður með tímann
SIGHVATUR Dýri Guðmunds-
son kom fyrstur íslendinga í
mark í maraþoni á 8. besta
tímanum. Sighvatur er lands-
kunnur hlaupari úr FH og einn
af bestu Ianghlaupurum
landins.
„Það var mikill vindur og það
munar talsvert miklu. Ég hljóp
núna með það fyrir augun að taka
þetta frekar létt, nokkurs konar
trimm því ég hef lítið æft undan-
farið. Ég er í litlu formi til að
hlaupa þessa vegalengd. Ég tók
því rólega í seinni hringnum þegar
ég fékk vindinn í fangið. Hefði ég
tekið meira á hefði ég þurft að
stoppa til að jafna mig.“
Ertu ánægður með tímann?
„Já, það er ég. Ég bjóst ekki
við þessum tíma jafnvel þó veðrið
hefði verið betra."
Er erfitt að hlaupa í rign-
ingu?
„Nei, það munaði ekki mikið
um rigninguna. Vindurinn var
verri. Það fór ekki að rigna fyrr
en undir lokin.“
Hefuður tekið þátt í
Morgunblaðið/Einar Falur
Sighvatur Dýri Guðmundsson kemur fyrstur íslendinga í mark í
maraþonhlaupi á tímanum 2.42,44.
Reykjavíkur maraþoni frá upp-
hafi?
„Nei, égmissti af hlaupinu 1985
vegna meiðsla. Éghef alltaf hlaup-
ið heilt maraþon."
„Tekurðu þátt næsta ár?
„Það verður bara að koma í ljós.
Það borgar sig ekki að lofa neinu,“
sagði Sighvatur Dýri Guðmunds-
son.
■ ÍIT?