Morgunblaðið - 23.08.1988, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988
Dagvistargjöld
hækka um 20%
Dagvistargjöld hjá Akur-
eyrarbæ munu hækka um 20%
frá og með 1. september nk. í
samræmi við forsendur fjár-
hagsáætlunar fyrir árið 1988.
Félagsmálaráð bendir þó á að
dagvistargjöld hækkuðu um 10%
1-. mars sl., þó ekki hafi verið
gert ráð fyrir þeirri hækkun við
gerð fjárhagsáætlunar.
Fjögurra tíma leikskólapláss mun
kosta eftir hækkunina 4.300 krón-
ur. Fimm tíma leikskólar kosta
5.300. Svokölluð hádegispláss
munu kosta 6.500 krónur. Einstæð-
ir foreldrar munu greiða 6.800
krónur fyrir dagheimilisrými allan
daginn, en aðrir munu greiða
10.000 krónur fyrir eitt bam á dag-
heimili allan daginn.
Fóstrur og meinatæknar:
Vilja viðræður um
nýjan kjarasamning
LUifKtfHJCL
Það var fjölmenni í Reistárrétt á laugardaginn og mikið skrafað og skraflað.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
FÓSTRUFÉLAG íslands og
Meinatæknafélag íslands hafa
óskað eftir viðræðum við bæjar-
stjórn fyrir hönd akureyrskra
fóstra og meinatækna þar sem
féiögin hyggjast ganga sjálfstætt
0
Utgerðarfélag
Dalvíkinga:
130tonn úr
fyrstu veiði-
ferð Björgvins
Dalvík.
Hinn nýi togari Útgerðarfélags
Dalvíkinga, Björgvin EA 311,
kom úr sinni fyrstu veiðiferð 10.
ágúst sl. með 130 tonn. Skipið
var aðeins um fjóra sólarhringa
að veiðum..
Björgvin EA 311 var smíðaður í
Flekkeflord í Noregi og kom til
Dalvíkur í lok júlí. Skipið hélt á
veiðar fímmtudaginn 4. ágúst og
að sögn Vigfúsar Jóhannessonar
skipstjóra gekk veiðiferðin í alla
staði mjög vel. Kvað hann að heita
mætti að skipið væri fullt með þenn-
an afla. Björgvin veiðir í ísfisk og
er aflinn lagður upp hjá Frystihúsi
Kaupfélags Eyfírðinga. Skipið er
þannig útbúið að því má breyta í
frystitogara án mikillar fyrirhafnar.
Enn liggur þó ekkert fyrir um að
það verði gert og verður skipið
gert út á ísfísk fyrst um sinn og
látið á reyna hvemig útgerð skips-
ins gengur.
Trausti
til kjarasamninga. Erindinu hef-
ur verið vísað frá bæjarráði til
kjaranefndar, þar sem það hefur
ekki verið tekið fyrir enn. Ný-
lega stofnuðu fóstrur sérstakt
stéttarfélag, sem fara á með
samningsumboð fyrir þær. í
framhaldi af þvi hefur félagið
óskað eftir viðræðum við bæjar-
stjórn um undirbúning að gerð
kjarasamnings við Fóstrufélag
íslands og ýmis réttindamál
fóstra. Meinatæknar hyggja
jafnframt á stofnun stéttarfé-
lags, sem fara á með samnings-
rétt þeirra.
Sá samningur, sem nú er í gildi
við fóstrur og meinatækna hjá
bænum, gildir til 31. desember 1989
svo fremi sem kjarasamningi verði
ekki sagt upp. Karl Jörundsson
starfsmannastjóri Akureyrarbæjar
sagði í samtali við Morgunblaðið
að launaliður samningsins væri
uppsegjanlegur ef forsendur verð-
lags og kaupmáttar breyttust veru-
lega á samningstímanum. Þá væri
hægt að segja samningnum upp
fjórum sinnum á ári, 1. febrúar,
1. maí, 1. ágúst og 1. nóvember,
með 15 daga fyrirvara. „Við höfum
hinsvegar viljað halda því fram að
samningurinn, sem launanefnd
sveitarfélaga hefur gert við starfs-
mannafélögin, gildi til 31. desember
1989 og að ekki komi til nýr kjara-
samningur öðruvísi en að núgild-
andi samningi verði sagt upp. Þá
er jafnframt miðað við að forsendur
verðlags og kaupmáttar hafi breyst.
Hér er um aðra hluti að ræða auk
þess sem menn verða að halda að
sér höndum að minnsta kosti fram
að áramótum vegna bráðabirgða-
laga ríkisstjórnarinnar," sagði Karl.
Innbrot í Ping Pong
Fatnaði að verðmæti um 90.000 kr. stolið
BROTIST var inn í tískuverslunina Ping Pong, Strandgötu 11, í
fyrrinótt og þaðan tekinn fatnaður, sem er metinn á um 90.000
krónur í verðmæti. Tilkynnt var um innbrotið kl. 8.10 í gærmorgun
og vinnur rannsóknarlögreglan á Akureyri að rannsókn málsins.
Að sögn Gunnlaugs Snævarrs rannsóknarlögreglumanns var gluggi
bak við húsið spenntur upp og þar farið inn. Ekki er vitað hvort
einn eða fleiri hafi verið að verki, en fatnaðurinn, sem tekinn var,
er hinsvegar í mismunandi stærðum.
Þá varð árekstur reiðhjóls og
bifreiðar hjá Búnaðarbanka íslands
á Akureyri um hádegisbilið í gær.
Ökumaður reiðhjólsins, 16 ára
stúlka, var fluttur á slysadeild
Fjórðungssjúkrahússins með meiðsl
á fæti.
Mikið var um eril hjá lögreglunni
á Akureyri í gærdag. Nokkuð var
um árekstra án meiðsla og önnur
minniháttar útköll. „Það koma
svona dagar þegar loftið er hálf-
rafmagnað. Við höfum varla haft
tíma til að anda,“ sagði Gunnar
Randversson varðstjóri hjá lögregl-
unni á Akureyri í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Meðal annars var
tilkynnt um ógætilegt aksturslag
ungs ökumanns í göngugötunni,
sem reyndar er lokuð innakstri.
Hann mun hafa ekið suður göngu-
götuna og töldu vitni mikla hættu
stafa af honum „þar sem hann
svingaði á bílnum innan um fólkið
eins og hann væri í svigi,“ sagði
Gunnar.
0
Utimarkaður í Reistárrétt:
Rúgbrauðið uppselt
á fyrsta tímanum
Það voru ekki allir jafnánægðir með stemmninguna.
Eins og sjá má var vöruúrvalið fjölbreytt og handagangur í öskj-
unni, því að allir vildu gera reyfarakaup.
FJÖLDI fólks lagði leið sína á
útimarkað í Reistárrétt í Amar-
neshreppi síðastliðinn laugar-
dag. Mönnum taldist til að á milli
1.500 og 2.000 manns hefðu kom-
ið í réttina og var þar mikið
höndlað. Verðlagi var þó mjög
stillt í hóf. Þijátíu og fjórir bás-
ar voru leigðir út til verslunar-
innar og sameinuðust oft tveir
til þrír „kaupmenn“ um básinn.
Mun fleiri sölumenn voru því á
svæðinu heldur en tala útseldra
bása segir til um.
Hugmyndin að útimarkaði varð
að veruleika fyrir um það bil fimm
árum og eru aðstandendur hans
Ungmennafélag Skriðuhrepps og
Ungmennafélag Möðruvallasóknar.
í fyrstunni var markaðurinn hugs-
aður sem einskonar flóamarkaður.
Menn og konur komu saman til að
losa sig við alls kyns hluti, sem
lágu í geymslum heima fyrir, svo
sem gömul húsgögn og aðrir nytja-
hlutir. Hin síðari ár hefur markað-
urinn þróast út í sölu á matvöru,
fatnaði, skóm og heimatilbúnum
vamingi ýmsum. Ami Amsteinsson
á Stóra-Dunhaga og Bjami Guð-
leifsson á Möðruvöllum hafa meðal
annarra staðið að undirbúningi
markaðarins fyrir ungmennafélögin
tvö. Ámi sagði að markaðilrinn
væri ávallt haldinn í kringum 20.
ágúst og væri hann orðinn fastur
punktur í tilverunni ef marka mætti
aðsókn. „Aldrei hefur þó annar eins
íj'öldi komið og nú. Fólk kemur nú
gagngert til að versla, mun meira
en áður, og á matvaran mestum
vinsældum að fagna. Hún selst best
enda er hún ódýr.“
Mestmegnis eru það félagasam-
tök, sem standa að sölunni og er
hún góð lyftistöng fyrir starfsemi
þeirra. Rúgbrauðið rann best út á
markaðnum enda var það orðið
uppselt áður en fyrsti klukkutíminn
var liðinn. Nýju kartöflurnar runnu
út eins og heitar lummur og góð
sala var í soðbrauðinu, kleinunum,
reykta laxinum, sveppunum, brauð-
inu og kökunum svo eitthvað sé
nefnt.
Ámi sagði að leigufé fyrir básana
væri mjög stillt í hóf enda væri því
aðeins ætlað að greiða upp auglýs-
ingakostnað. Ungmennafélögin
standa sjálf að veitingasölu, annað
sér um kaffí og brauð en hitt sér
um gos, pylsur og sælgæti. Veðrið
hefur eflaust átt sinn þátt í góðri
aðsókn, en meðfylgjandi myndir
voru teknar þegar markaðurinn
stóð sem hæst.