Morgunblaðið - 30.08.1988, Blaðsíða 76
ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1988
VERÐ I LAUSASOLU 70 KR.
Ríkisendurskoðun:
Afsláttur af
skattskuldum
er ólöglegur
Ríkisendurskoðun hefur sent
fjármálaráðuneytinu bréf þar
sem fram kemur það álit stofnun-
arinnar að afsláttur, sem ráðu-
neytið hyggst veita á greiðslu
skattskulda, stangist á við lög.
Ríkisendurskoðun fékk send til
umsóknar drög að reglugerð um
uppgjör á gömlum skattskuldum
launafólks, en þar er gert ráð
fyrir að veittur verði allt að 30%
afsláttur ef skuldin er greidd
fyrir næstu áramót.
Morgunblaðið fékk það staðfest
hjá Ríkisendurskoðun, að bréf þessa
efnis hefði verið sent fjármálaráðu-
neytinu í gær. Ekki tókst að ná
i tali af fjármálaráðherra en Snorri
Olsen deildarstjóri í fjármálaráðu-
neytinu hafði ekki séð bréf Ríkis-
endurskoðunar, þegar Morgunblað-
ið leitaði til hans.
Snorri sagði að reglugerðardrög-
in hefðu verið kynnt innheimtu-
mönnum ríkissjóðs, sveitarfélögum
sem hefðu sameiginlega innheimtu
með ríkinu, Sambandi íslenskra
sveitarfélaga, Ríkisendurskoðun og
Ríkisbókhaldi.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins var rætt. um það í fjár-
málaráðuneytinu að setja bráða-
birgðalög sem heimiluðu samninga
um afslátt af skattskuldum, um
leið og bráðabirgðalög um efna-
hagsaðgerðir voru sett sl. föstudag.
Snorri Olsen sagði að ríkissjóður
hefði undanfarin ár samið við ýmsa
um uppgjör skattskulda, ef talið var
að með slíku væri verið að tryggja
kröfuna og þar með hagsmuni ríkis-
sjóðs.
x*~irr%
• 'Jj* ~
%'
Aurskriðumar féllu fyrst á efstu húsnum í bænum, en mddu sér svo leið á milli þeirra niður í gegn um bæinn, sem fyrst á eftir var nær allur
á kafi í aur Og vatni. Morgunblaðið/Þorkell
Ólafsfjörður:
Tugmilljóna tjón vegna
skríðufalla og vatnsflóða
Ólafsfirði. Frá Urði Gunnarsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins
ENN er hættuástand á Ólafsfirði
sem lýst var yfir á sunnudag þeg-
ar tvær stórar skriður féllu á
kaupstaðinn. Fór önnur þeirra á
tvö hús og í tvo húsagarða. Hreif
hún auk þess með sér tvo bíla og
Frá undirskrift kaupsamningsins I Höfða.
Morgunblaðið/RAX
Samningnr um sölu
Granda undirritaður
DAVÍÐ Oddsson, borgarstjóri,
og fulltrúar fjögurra fyrir-
tækja undirrituðu í gær samn-
ing um sölu á hlut borgarsjóðs
Reykjavíkur i Granda hf. Kaup-
verð hlutabréfanna er 500
milljónir króna og greiðast
fyrstu 50 milljónimar við fram-
sal bréfanna þann 5. október
næstkomandi.
Aðrar 50 milljónir greiðast 15.
febrúar 1989 og þær 400 milljón-
ir sem eftir eru á 8 árum, verð-
tryggðar, rneð 3,5% vöxtum.
Nafnverð hlutabréfanna er 241
milljón króna, sem er rúmlega
78% af hlutafé Granda hf.
Af hálfu kaupenda rituðu undir
kaupsamninginn þeir Ámi Vil-
hjálmsson fyrir hönd Hvals hf. og
Fiskveiðihlutafélagsins Venusar,
Bragi Hannesson fyrir hönd
Hampiðjunnar hf. og Benedikt
Sveinsson fyrir hönd Sjóvátrygg-
ingarfélags íslands. Borgarstjóri
undirritaði samninginn með fyrir-
vara um samþykki borgarráðs.
var þrennt í öðmm en hinn mann-
laus. Auk þess féllu óte^jandi
minni skriður beggja vegna fjarð-
arins í miklu vatnsveðri sem geng-
ið hefur yfir frá því aðfaranótt
laugardags. Vegir að bænum
grófust í sundur og flugvöllurinn
lokaðist vegna vatnselgsins en nú
hefur tekist að opna Ólafsfjarðar-
veg eystri. Ljóst er að tugmilljóna
tjón hefur orðið, að sögn Bjaraa
Grímssonar bæjarstjóra.
Aðfaranótt laugardags fór að
rigna fyrir alvöru á Ólafsfirði. Flæddi
þá þegar inn í nokkur hús. Rigndi
allan laugardaginn og jókst vatns-
veðrið mikið aðfaranótt sunnudags.
Lækir í hlíðum uxu mikið og báru
með sér gtjót og aur. Einnig safnað-
ist gífurlega mikið vatn í hlíðinni
fyrir ofan bæinn og var laust grjót
undir. Lýsti Bjami Grímsson hlíðinni
eins og blautum svampi á lausu
gijóti sem skriði af stað þegar farg-
ið væri orðið nógu mikið.
Fyrsta aurskriðan sem vitað er um
féll klukkan 11.30 á sunnudags-
morgun. Hún náði ekki niður að
húsunum. Síðdegis féll fjöldi smá-
skriða, en klukkan 15.30 féll stærsta
skriðan á tvö hús við Hlíðarveg. í
leiðinni hreif hún með sér tvo bíla.
Var þrennt í öðrum og sluppu allir
ómeiddir. Hinn bílinn var mannlaus
og er hann talinn ónýtur. „Það er
hreint ótrúlegt að enginn skildi slas-
ast í skriðunum, því til dæmis voru
ungaböm úti í vögnum örfáum
mínútum áður en skriðan féll,“ sagði
Bjami. Skriðan var um 80 metrar á
breidd og um sex metra há. Hún
féll niður alla hlfðina og endaði i
Fjörunni, aðalgötu bæjarins. Flæddi
tjömin yfir bakka sína og fóru götur
í elsta hluta bæjarins á flot.
Almannavamamefnd hófst þegar
handa við að rýma þau fimmtíu hús
sem standa efst í brekkunni fyrir
ofan aðalgötuna. Er talið að um 200
íbúar hafi þurft að leita sér gistingar
hjá ættingjum og vinum, auk þess
sem um 20 manns dvöldu í grunn-
skólanum. Seinni skriðan, sem náði
niður að húsunum, féll klukkan 18.45
við hlið þeirrar fyrri. Samtals mynda
þær um 150 metra breitt sár í
hlíðinni. „Það gekk ótrúlega vel að
rýma húsin. Menn voru á vakt allt
í kringum svæðið, sem var girt af.
Oll óþörf umferð var bönnuð og fólk
sýndi mikin skilning að rýma þyrfti
húsin," sagði Sigurður Bjömsson
formaður almannavarnamefndar.
Þá féll gijótskriða úr Gvendarskál
í, Ólafsfjarðarmúla á pallbíll sem
þrennt var í. Er bíllinn mikið
skemmdur. Einnig fór skriða yfir
athafnasvæði Kraftverks hf. og er
60 tonna ýta nú á kafi í aur.
Skriður féllu í hvetju gili hinumeg-
in í firðinum. Komst aur í vatnsból
annarar tveggja hitaveitna í fírðin-
um, en vatni er nú veitt úr Bursta-
brekkudal til bæjarins þannig að
vatn skortir ekki. Skriður féllu einn-
ig á flugvöllinn, hesthús, golfvöll og
tún á bæjum innar í sveitinni svo
fátt eitt sé nefnt.
Á sunnudagskvöld stytti upp að
mestu. Var þegar hafist handa við
að dæla vatni og aur út úr húsum
og af götum. Þeirri vinnu var haldið
áfram í gær og voru velflestar götur
orðnar færar. „Aldrei áður hefur
neitt gerst í líkingu við þessi ósköp.
Engan grunaði að þetta gæti gerst.
Fólki var mjög brugðið, sem lýsti sér
í því að óvenju margir voru á ferli
og mátti minnstu muna að bílaum-
ferð tefði fyrir aðgerðum almanna-
varna," sagði Sigurður Bjömsson.
Engar skiður féllu í gærdag, en
vakt var haldið áfram hjá almanna-
vömum. í gær var vegurinn að bæn-
um af Lágheiði opnaður að nýju, en
um helgina var aðeins fært sjóleiðina
í Ólafsfjörð. íbúar húsanna sem rýmd
voru á sunnudag fengu að vitja
heimila sinna í gær en ekki var talið
óhætt að þeir hefðu þar nætursetu.
Sjá nánar á bls. 72 og 73