Morgunblaðið - 10.12.1988, Blaðsíða 18
18 ....................... ................. MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1
10. DESEMBER 19M.
__U
...
Utanríkisviðskipti
Sovétríkjanna taka
stakkaskiptum;
sóst eftir eignaraðild
vestrænnafyrírtækja
Ekki er sopið kálið.
The Economist
Eftir Pál Þórhollsson
MÍKHAÍL Gorbatsjov, aðalritari
Kommúnistaflokks Sovétríkjanna, berst
á mörgnm vígstöðvum í senn. Þessa
dagana stjórnar hann
björgnnaraðgerðum vegna
jarðskjálftans í Armeníu. í vikunni
boðaði hann óvænt einhliða fækkun í
sovéska heraflanum. Ein skýring er
bágur efhahagur Sovétríkjanna.
Perestrojkan þarfnast alls tiltæks flár
og mannafla. Leiðtoginn, sem lagði
heiminn að fótum sér á örskömmum tíma
og nýtur að líkindum meiri vinsælda en
nokkur annar núlifandi
stjórnmálamaður, á sinn djöfúl að draga
sem er arfleifð forfeðranna, rússneska
kerfið. Hér á eftir verður Qallað um
uppstokkunina í sovéska
efnahagskerfinu, breytingar á sovéskum
utanríkisviðskiptum og vaxandi aðild
vestrænna ríkja að sovéskri framleiðslu.
egar Míkhaíl S. Gorbatsj-
ov tók við völdum í mars
Bpw árið 1985 blasti við
I M stöðnun á öllum sviðum
■ sovésks efnahagslífs
nema ef til vill í svarta-
markaðsbraskinu. Inn-
lend framleiðsluvara var
léleg og uppfyllti engan veginn
kröfur neytenda. Bændur höfðu
lítinn áhuga á að auka og bæta
framleiðslu í landbúnaði. I 8 lýð-
veldum af 15 var kjöt. skammtað
(og er raunar enn). Iðnaðurinn var
þunglamalegur og áratugum á eftir
vestrænum iðnaði. Framleiðslan
snerist um magn en ekki gæði.
Pólskur hagfræðingur hefur áætlað
að austantjaldsríki þurfi helmingi
meira en vestræn ríki af orku og
hráefni til að framleiða hveija verð-
mætaeiningu. Ný tækni var að stór-
um hluta flutt inn frá Vesturlöndum
því sovéska kerfíð stuðlaði síst að
nýjungum. Hráefni og orkugjafar
svo sem olía og gas voru uppistaðan
í sovéskum útflutningi til Vestur-
landa. Samgöngu- og flutninga-
kerfið var þani(S til hins ýtrasta.
Hvað var til ráða? Gorbatsjov ein-
setti sér að bylta framleiðslunni í
þrepum. Afleiðingin hefur orðið sú
að um þessar miindir eru þrjú hag-
kerfi við lýði / í Sovétríkjunum:
gamla ríkiseinokunin, nýtt kerfi
sjálfstæðra fyrirtækja, sem ýmist
eru samvinnúfélög eða í ríkiseigu,
og svartimarkaðurinn, sem veltir
90 milljörðum rúblna á ári, eða
7.000 milljörðum ísl. króna, og lýtur
frumskógarlögmálum framboðs og
eftirspumar.
Þessari hagstjórnarflækju fylgir
óvissa og allt að því öngþveiti en
Gorbatsjov átti fárra annarra kosta
völ; hann skorti pólitískan stuðning
til að stíga skrefíð til fulls. Megin-
hugmyndin með nýjum fyrirtækja-
lögum, sem sett voru í byrjun þessa
árs, er sú að draga úr miðstýringu
svo framleiðslufyrirtækin geti ráðið
sínum málum sjálf. Verksmiðjur
eiga að standa undir sér í stað þess
að þiggja styrk frá ríkinu. Ákvarð-
anir byggðar á hagkvæmni eiga að
leysa óstjórnina af hólmi. í stað
þess að verksmiðjum sé sagt ná-
kvæmlega hvað þær eigi að fram-
leiða eiga þær mismunandi kosta
völ. Hluti framleiðslunnar fer í að
sinna pöntunum frá ríkinu en af-
gangnum eiga fyrirtækin að geta
ráðstafað að vild. Þau verða sjálf
að leita viðskiptavinina uppi og út-
vega sér nauðsynleg hráefni og
tæki. Á þessu ári hafa fyrirtæki,
sem framleiða um það bil 60% af
heildarframleiðslunni, öðlast nokk-
urt frelsi. Gorbatsjov stefnir að því
að árið 1991, þegar núgildandi
fimm ára áætlun rennur út, nái
breytingamar til alls efnahagslífs-
ins. Um svipað leyti eiga aðrar efna-
hagsbreytingar að hafa átt sér stað
eins og nýtt bankakerfi, nýtt heild-
sölukerfí og nýtt launa- og verð-
myndunarkerfi.
Uppstokkunin gengur hægar en
Gorbatsjov vonaði. Til dæmis em
90% framleiðslunnar enn í samrærni
við áætlun Gosplan, ríkisáætlunar-
nefndarinnar, og þótt fyrirtæki njóti
þess hve eftirspum eftir nýjum vör-
um er mikil reynist framleiðendum
erfítt að verða sér úti um hráefni
utan ramma áætlunarinnar. Nær
ógerlegt er að meta hvort fyrirtæki
em arðvænleg á meðan verð vöm
er stórlega brenglað. Hugmyndin
er engu að síður sú að í framtíðinni
geti fyrirtæki orðið gjaldþrota ef
illa gengur.
Breytingarnar taka
sinn tima
Það má ekki gleymast að Gorb-
atsjov hyggst ekki losa um tök
flokksins á þjóðlífinu. Kjaminn í
umbótunum er að ala upp nýja
kynslóð kommúnista, sem ver tíma
sínum í eitthvað þarfara en afskipti
af því hve mikið menn framleiða
af kartöflum eða hvaða skótegund
henti fótum manna. Bjartsýnustu
menn segja að það kunni að taka
15-20 ár. Sumir segja að sovéska
lausnin sé ekki endilega vöxtur í
hagkerfmu heldur betri vömr. Til
dæmis framleiða Sovétmenn 800
milljón pör af skóm á ári. Skómir
em hins vegar lélegir, endast illa
og biðraðir myndast þegar boðið
er upp á góða skó. Sama er að segja
um dráttarvélar. Sovétmenn fram-
leiða íjórum sinnum fleiri traktora
en Bandaríkjamenn enda endast
þeir fjómm sinnum skemur. Því
ætti Gorbatsjov ekki að krelja fyrir-
tækin um aukna framleiðslu heldur
betri afurðir. Fyrstu merkin um
aukna hagkvæmni verða því minni
hagvöxtur. Skilningur á þessu er
að aukast enda er nú talað um
Brezhnev-tímann, árin 1964-82,
sem tímabil stöðnunar þótt fram-
leiðsluvöxtur hafí verið allt að 5%
á ári.
„Við emm að tapa taflinu," sagði
Gorbatsjov þegar hann blés til mið-
Gleypt við vestrænni siðmenningu
Astro-Pizza í Moskvu, í eigu Roma Food Enterprises og borgaryfirvalda
í Moskvu, er eitt kunnasta dæmið um samstarfsfyriræki vestrænna og
sovéskra aðila. Þar kostar sneiðin af ekta bandarískri flatböku 100 íslen-
skar krónur.
stjórnarfundar í lok september.
Hann hafði rekið sig óþyrmilega á
tregðuna í kerfinu og fmmkvæðis-
leysi almennings. Fyrirtækjalögin
vom komin á blað en víðast hvar
sáust þeirra engin merki í batnandi
lífskjömm. í Prövdu var greint frá
því í haust að töpuðum vinnudögum
vegna skorts á hráefni, lélegrar
mætingar og annarra vandamála
hefði fjölgað um 20% milli áranna
1986 og ’87. Þeir sem gjarna vilja
he§a sjálfstæðan atvinnurekstur
eiga í erfiðleikum með að leigja
húsnæði eða afla hráefnis. Þau
samvinnufélög, sem halda velli,
mæta svo lítilli samkeppni að þau
geta verðlagt vöm sína að vild og
það hefur víða komið óorði á þau.
Kveikt var í svínabúi á dögunum í
nágrenni Moskvu, ekki vegna þess
að óþefurinn væri að drepa menn
heldur varð hinn sæti ilmur hagnað-
arins nágrönnunum ofviða.
Gjaideyrisskortur
Perestrojka á ekki síður að bylta
utanríkisviðskiptum en viðskiptum
og framleiðslu innanlands. Olía og
gas em uppistaðan í útflutningi
Sovétmanna. Verðlækkun orku-
gjafa undanfarin ár hefur því óhjá-.
kvæmilega komið niður á innflutn-.
ingi til Sovétríkjanna (sjá línurit).
Sérfræðingar telja að meðalverð á
olíufati frá Úral-svæðinu verði
13,70 Bandaríkjadalir í ár, saman-
borið við 17,80 dali á síðasta ári
og 27,30 dali árið 1985. Það ár
vom tekjur Sovétmanna af olíuút-
flutningi áætlaðar 33,4 milljarðar
Bandaríkjadala (rúmir 1.500 millj-
arðar íslenskra króna miðað við
núverandi gengi) en tekjumar í ár
verða að líkindum aðeins 19 millj-
arðar dala (um 950 milljarðar
íslenskra króna).
Annar þáttur sem ræður miklu
um innflutning til Sovétríkjanna er
kornuppskera. Ef hún brestur þá
þurfa Sovétmenn að flytja inn korn
og geta ekki varið eins miklu fé til
annarra hluta. Vert er að geta þess
að rúmlega 60% af utanríkisvið-
skiptum Sovétrílq'anna em við sós-
íalistaríki og þau viðskipti hafa litl-
um breytingum tekið; em sem fyrr
nær eingöngu í formi vöraskipta.
Einokun aflétt í
utanríkisviðskiptum
Það breytingaskeið, sem utanrík-
isviðskipti Sovétríkjanna era núna
að ganga í gegnum, hófst í ágúst
árið 1986 með ákvörðun miðstjóm-
ar sovéska kommúnistaflokksins.
Þá var ákveðið í anda valddreifing-
arhugmynda Gorbatsjovs að ut-
anríkisviðskipti landsins skyldu
ekki lengur vera í höndum eins
ráðuneytis. Reyndar var Sovéska
samvinnusambandið og þróunarað-
stoð einnig áður utan ramma ut-
anríkisviðskiptaráðuneytisins. Þeg-
ar fengu 12 önnur ráðuneyti heim-
ild til utanríkisviðskipta, þar á með-
al er sjávarútvegsráðuneytið sem
tekið hefur við fiskkaupum. Núna
eru ráðuneyti. með utanríkisvið-
skiptaheimildir orðin 21. Enn sem
fyrr þarf leyfi frá ráðuneyti er-
lendra viðskiptatengsla (nýtt yfír-
ráðuneyti) til utanríkisviðskipta en
talið er að smám saman sé sú leyf-
isveiting að verða formsatriði. Þetta
ráðuneyti sér m.a. um olíuútflutn-
ing og kornkaup vegna þess hve
þau viðskipti. em mikilvæg.
Önnur nýjung var sú að sovétlýð-
veldin fengu hvert um sig heimild
til utanríkisviðskipta. Þau verða
sjálf að standa straum af innflutn-
ingi með útflutningi. Enn sem kom-
ið er hefur fjárskortur lýðveldanna
og sú staðreynd að þau hafa fáar
vörur upp á að bjóða staðið utanrík-
isviðskiptum þeirra fyrir þrifum.
Og í þriðja lagi var 68 af 48.000