Morgunblaðið - 10.12.1988, Síða 32
32
'aíorg'unblaðið, laugárdagur
.ÖIQAJflMtJDHÖM
10. DESEMBER 1988
Greiðsluörðugleik-
ar o g umdeild kaup
Fjallað um fjárhagsörðugleika Hofsósshrepps og Hraðfrystihúss Hofsóss
Hofsóshreppur hefur óskað
eftir aðstoð félagsmálaráðuneyt-
is vegna greiðsluörðugleika eins
og þegar hefur komið fram í fjöl-
miðlum. Samkvæmt sveitar-
stjórnarlögum hefur Félags-
málaráðuneytið heimild til þess
að veita styrk eða lán úr Jöfnun-
arsjóði sveitarfélaga ef sveitar-
félag kemst í greiðsluþrot
og/eða skipa hreppnum fjár-
haldsstjóra í tiltekinn tíma.
Heildarskuldir Hofsósshrepps
eru rúmlega 51 milljón, af því
eru um 23 milljónir skammtima-
skuldir. Fjárlög hreppsins fyrir
næsta ár gera ráð fyrir rúmum
17 milljónum í tekjur. Útistand-
andi skuldir hreppsins eru 12
milljónir. Mikil ólga er í mönnum
þar nyrðra vegna þessarar fjár-
málastöðu sveitarfélagsins og
telja margir andvaraleysi
hreppsnefhdarinnar fúrðulegt
svo ekki sé meira sagt. Almenn-
ingur í sveitinni virðist heldur
ekki hafa séð hvert stefhdi þó
til væru þeir sem óttuðust að
þessi staða kynni að koma upp.
Á Hofsósi hafa síðustu ár staðið
yfir umfangsmiklar framkvæmdir
og endurbætur. Hafnargarður sem
var að skemmast hefur verið end-
umýjaður. Lögð voru ný skolpræs-
iskerfi í bænum og allar götur
malbikaðar. Einnig var vatnsveitan
endumýjuð að hluta en því verki
er ekki lokið að fullu. Hraðfrysti-
húsið á Hofsósi er burðarás at-
vinnulífs þar. Frystihúsið er al-
menningshlutafélag sem er í eigu
hreppsbúa og fólks úr nærliggjandi
sveitum. Hraðfrystihúsið dregst
með miklar skuldir og telja menn
að þar sé um að kenna bæði þeim
vanda sem frystihús um allt land
eiga við að stríða og svo hitt að
útgerð báts sem húsið á gengur illa.
Menn ræða líka um í þessu sam-
bandi að fyrir nokkru keypti Hrað-
frystihúsið á Hofsósi fyrirtækið
Skagaskel hf., sem þá hafði verið
rekið í þorpinu um nokkurt skeið
og átt hafði í miklum rekstrarörð-
ugleikum. Tveir eigendur Skaga-
skeljar vom aðilar að þessum kaup-
um fyrir hönd frystihússins, fram-
kvæmdastjóri frystihússins, og einn
stjómarmaður þess. Hinir Stjórnar-
mennimir vissu að sögn núverandi
stjómarformanns að fyrirtækið
Skagaskel var skuldugt en ekki hve
miklar skuldimar vom. Svo mikil-
vægt er frystihúsið atvinnulífí
þorpsbúa að talið er að mjög marg-
ir yrðu að yfirgefa þorpið ef húsið
hætti starfsemi sinni. Yrðu menn
að yfirgefa þorpið vegna skorts á
atvinnu þá er talið mjög ólíklegt
að þeim tækist að selja hús sín þar
og yrðu þeir af þeim sökum að
byija með tvær hendur tómar á
nýjum stöðum ef svo illa tekst til
sem sumir menn á Hofsósi óttast
nú. Einnig þykir mönnum kvíðvæn-
leg sú tilhugsun að lagður verði á
þorpsbúa 25 prósent aukaskattur
en til þess er heimild í lögum þegar
algert vandræðaástand skapast í
fjármálum sveitarfélagsins.
Blaðamaður Morgunblaðsins var
á ferð á Hofsósi fyrir skömmu og
ræddi þar við sveitarstjóra Hofsóss-
hrepps og stjómarformann Hrað-
frystihússins. Einnig ræddi blaða-
maður við nokkra menn úr þorpinu
sem létu skoðanir sínar á stöðu
hreppsins og frystihússins í ljós.
Útgerð undirstaða atvinnu-
lífs á Hofsósi
Bjöm Níelsson sveitarstjóri sagði
í samtali við blaðamann að hafnar-
garðurinn sem endurnýjaður var,
hefði skemmst mikið árið 1982, og
ekki verið annað unnt en ráðast í
endurbætur á honum. Hefði það
ekki verið gert hefði smábátaútgerð
á staðnum verið illmöguleg. Sveit-
arfélagið borgaði 25 prósent af
þessum viðgerðum, sem voru mjög
kostnaðarsamar, ríkið borgaði 75
prósent en eigi að síður var kostnað-
urinn við þetta umtalsverður. í kjöl-
far þessara framkvæmda kom svo
endumýjun á öllum skolpleiðslum í
bænum. Sagði Bjöm að ástandið í
þeim efnum hefði verið gersamlega
óviðunandi. Að þessu loknu vom
allar götur bæjarins malbikaðar,
sem einnig var kostnaðarsöm fram-
kvæmd. Bjöm gat þess að gatna-
gerðargjöldin greiðist af íbúum
Hofsóss, en þeir em 267 að tölu.
Hann gat þess og að malbikun á
veginum sem liggur í gegnum þorp-
ið verði greidd af svokallaðri þétt-
býlisvegagerð og komi því ekki á
þorpsbúa að greiða þá framkvæmd.
Verið er að endumýja vatnsleiðslu
sem talið var mjög nauðsynlegt að
ráðast í. Bjöm sagði að vatnsleysi
hafi oft bagað þorpsbúa og frysti-
húsið og einnig hefðu menn horft
til þess að gamla vatnsleiðslan er
úr asbesti sem er talið heilsuspill-
andi efni. Að sögn Bjöms var það
mikið rætt .í hreppsnefndinni hvort
ráðast ætti í allar þessar fram-
kvæmdir en það var að lyktum
gert með samþykki allra sem í
hreppsnefndinni eiga sæti. Á Hofs-
ósi er kosið í hreppsnefnd óháð
stjómmálaflokkum.
Lán til fyrmefndra framkvæmda
voru að sögn Bjöms tekin hjá Lána-
sjóði íslenskra sveitarfélaga og
Byggðastofnun. Á þessu tímabili
hefur fjármagnskostnaður aukist
gífurlega og það ásamt umfangi
framkvæmdanna kvað Björn vera
að sliga sveitarfélagið. Atvinnu-
ástand á Hofsósi sagði Bjöm að
hefði verið fremur slæmt að undan-
fömu en vonir stæðu til að það
yrði mun betra á næsta ári. Hrað-
frystihúsið tæki þátt í hinum svo-
kölluðu togaraskiptum og ætla má
að frystihúsið muni af þeim sökum
fá meira og jafnara hráefni. Hrað-
frystihús' Hofsós er aðili að Útgerð-
arfélagi Skagfirðinga að einum
þriðja. Það félag hefur rekið þrjú
skip og aflinn hefur skipst á þijú
frystihús. Við togaraskiptin verða
§órir ísfisktogarar að veiðum á
vegum félagsins, kvótinn eykst sem
því nemur og skipin munu leggja
aflann inn í þijú hús eins og áður.
Ennfremur sagði Björn að útgerð
væri undirstaða atvinnulífs Hofsóss
og svo þjónustan við sveitimar, en
búskapur í grennd við Hofsós hefur
mjög dregist saman undanfarin ár.
„Útgerð stærsta bátsins, Hafborg-
ar, hefur gengið mjög illa. Hann
var áður í eigu Skagaskeljar hf. en
er nú í eigu frystihússins. Þegar
skelin í Skagafírði reyndist minni
en gert var ráð fyrir þá vildu eigend-
ur Skagaskeljar selja bátinn. Þegar
málið kom fyrir hreppsnefnd í júlí
87, vildu menn hins vegar heldur
halda bátnum í þorpinu. Réttast
hefði þó verið að selja bátinn í ljósi
þess að útgerð hans hefur gengið
mjög illa,“ sagði Björn og bætti svo
við:„ Eg tel rétt að fram komi í
þessu sambandi að áður en af sam-
einingu Skagaskeljar og frystihúss-
ins varð, var ákveðið af hálfu for-
ráðamanna félaganna að Fjárfest-
ingarfélagið hf. væri fengið til að
meta vægi hlutabréfa beggja fyrir-
tækjanna."
I framhaldi af viðtalinu við Björn
Níelsson er rétt að geta fréttar sem
birtist í nóv. sl. í Feyki. Þar segir
að á framhaldsaðalfundi Hrað-
ftystihússins á Hofsósi fyrir helgi
hafí verið ákveðið að bjóða Kaup-
félagi Skagfirðinga kaup á 14 millj-
ónum og Útvegsfélagi samvinnu-
manna sömuleiðis 14 miiljónum í
30 milljón króna hlutafjáraukningu
í félaginu. Bæði þessi fyrirtæki
höfðu áður lýst áhuga sínum og
viðræður standa nú yfír við þau um
hlutafjárkaupin. Verkalýðsfélagið
Ársæll og nokkrir einstaklingar á
Hofsósi ætla að kaupa 2 milljónir
í hlutafjáraukningunni.
Leitað var til Gísla Kristjánsson-
ar framkvæmdastjóra til þess að fá
fram hans sjónarmið hvað varðar
sameiningu Skagaskeljar hf.og
frystihússins. Gísli sagðist ekki sjá
ástæðu til þess að svara neinu um
þetta mál að sinni.
Frystihúsið látið kaupa
illá statt fyrirtæki
Blaðamaður leitaði álits nokk-
urra þorpsbúa sem hann hitti af
tilviljun um málefni Hofsóshrepps
og Hraðfrystihúss Hofsóss. Sigur-
bjöm Magnússon er starfandi raf-
virki á Hofsósi. Þegar blaðamaður
spurði hann hveijum augum hann
liti fjárhagserfiðleika Hofsóss-
hrepps þá svaraði hann því til að
samfara geysimiklum framkvæmd-
um þá hefði komið upp sú staða
að frystihúsið gæti ekki borgað sín
gjöld til hreppsins, og þá væri ekki
von að vel færi. Ástæðumar fyrir
erfiðleikum frystihússins kvað hann
vera að sínu mati, fyrir utan þann
vanda sem frystiiðnaður í landinu
stríddi nú við, m.a. þær að frysti-
húsið hefði keypt nær gjaldþmta
fyrirtæki, Skagaskel hf., í árslok
1987, og yfírtekið skuldir þess. í
sambandi við þau kaup ræddu menn
um að Bjöm Níelsson hreppsnefnd-
armaður og núverandi sveitarstjóri
og Gísli Kristjánsson oddviti og
framkvæmdastjóri frystihússins,
sem stofnuðu og ráku Skagaskel
ásamt þriðja manni, hefðu borið
hagsmuni frystihússins mjög fyrir
borð þegar kaup þessi voru gerð.
Sigurbjörn sagði að hreppsbúar
hefðu flestir verið mjög andvígir
þessum kaupum enda þá grunsemd-
ir uppi um að Skagaskel hf. stæði
afar illa. Fram að þeim tíma hefði
frystihúsið staðið mjög vel að vígi.
Hann kvað menn nú óttast að frysti-
húsið geti ekki staðið undir kaupum
á þeim fiski sem því kann að standa
til boða þegar togaraskiptin verða.
Hvað snertir framkvæmdir
hreppsins þá kvað Sigurbjöm það
óumdeilt að allt sem gert hafi ver-
ið, hafi verið nauðsynlegt. Hvort
hraði framkvæmdanna hefði þurft
að vera slíkur sem raun bar vitni,
væri annað mál. Allir hafí séð að
framkvæmdir vom mjög miklar
hins vegar fyndist fólki að hrepps-
stjómin hefði ekki fylgst nægilega
vel með hvað væri að gerast í fjár-
málum sveitarfélagsins, fyrirhyggj-
an hafí ekki verið nægileg. Þar
teldu menn að yfirvöld hreppsins
hefðu brugðist. Að endingu gat Sig-
urbjöm þess að það hefði komið
fólki í opna skjöldu þegar farið var
fram á aðstoð félagsmálaráðuneytis
og þorþsbúar hefðu fyrst heyrt þessi
tíðindi í útvarpinu og orðið mikið
um.
Menn óttast 25 pró-
senta aukaskatt
Blaðamaður hitti að máli þijá
aðra íbúa þorpsins, þá Jón Trygga
Jökulsson, sem vinnur á skrifstofu
Síldarfrysting' hafín
á Höfíi í Hornafírði
Höfn.
DAGURINN í Fiskiðjuveri Kaup-
félags Austur-Skaftfellinga byrj-
ar yfirleitt klukkan átta en í ein-
staka tilfellum er byrjað að vinna
klukkan sex. Unnið er á laugar-
dögum en ekki á sunnudögum.
Vinnudagurinn í síldinni er þvi
10 stunda langur og stundum 12
stundir, því hætt er um kvöld-
matarleytið. Stærstur hluti fryst-
ingarinnar eru flök og heilfryst
síld, en hvort tveggja fer að
mestu á markað á Bretlandseyj-
um. Heilfryst síld er þyngri en
300 grömm.
Vinnslan er einföld, raðað er í
pönnur og þeim komið beint í frost-
ið. Það tekur 2,5 klukkstundir að
frysta afurðina og frystigeta húss-
ins er 50—60 tonn á dag.
Þegar frysta síldin er komin í
áfangastað í Bretlandi hefst vinnsla
hennar í „kippers". Síldin er þídd
Morgunblaðið/Jón G. Gunnarsson
Starfsstúlkur í Fiskiðjuveri Kaupfélags Austur-Skaftfellinga á Höfti.