Morgunblaðið - 10.12.1988, Page 37
„MOftqWNBtAftlBt,, LAUGARDAGUfl, lft. PESEMBBR 1988
1í37
Takmörkun hefðbundinna vopna:
Utanríkisráðherrar NATO
samþykkja viðræðugrundvöll
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins.
Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins, sem luku fundi
sínum í Brussel í gær, samþykktu hluta af tillögum um grundvöll
viðræðna um takmörkun hefðbundinna vopna í Evrópu. Jafnframt
lýstu ráðherrarnir ánægju sinni með yfírlýsingu Míkhaíls Gor-
batsjovs á allsheijarþingi Sameinuðu þjóðanna um fækkun i hefð-
bundnum herafla Sovétrikjanna. „Ekki er unnt að vísa þessu frá sér
sem áróðursbragði því það er heibnikið í þessar tillögur spunnið,"
sagði George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, meðal ann-
ars.
vél lenti á íbúðarhúsum í Rem-
scheid í Vestur-Þýskalandi samúð
sína og sömuleiðist aðstandendum
fómarlamba jarðskjálftans í Arm-
eníu.
Francois Mitterrand, Frakklandsforseti, ásamt Milos Jakes, leiðtoga
tékkneska kommúnistaflokksins, (t.h.) i höfuðstöðvum flokksins í
Prag. Á milli þeirra stendur túlkur.
Mitterrand ræðir við
tékkneska andófsmenn
Forsetinn lofeamar „Voríö 1 Prag“ í veislu með ráðamönnum
Prag. Reuter.
FRANCOIS Mitterrand, forseti Frakklands, hitti fyrstur erlendra
þjóðhöfðingja tékkneska andófsmenn að máli í gær eftir að hafa
lofað umbótatímabilið i Tékkóslóvakíu, sem nefht hefur verið „Vorið
í Prag,“ í veislu með helstu ráðamönnum landsins. Forsetinn ræddi
i rúma klukkustund við átta andófsmenn, þar á meðal leikskáldið
Vaclav Havel og leiðtoga mannréttindahreyfíngarinnar Carta 77.
Þær tillögur sem ráðherramir
samþykktu á fundinum em hluti
tillagna sem mótaðar hafa verið
innan NATO á undanfömum miss-
emm. Ágreiningur við Frakka um
hlutverk hinna svokölluðu hlutlausu
þjóða í viðræðunum um takmörkun
hefðbundins herafla hefur helst taf-
ið afgreiðslu tillagnanna. Sam-
komulag náðist um þetta deiluatriði
með því að staðfesta ákvörðun ráð-
herrafundarins í Reykjavík um tvær
aðskildar viðræður, annars vegar
um öryggi og samvinnu í Evrópu
og hins vegar um fækkun í hefð-
bundnum herafla og vopnabúnaði
frá Atlantshafi til Uralfjalla. Ráð-
herramir ályktuðu um bann við
efnavopnum og lýstu vonum sínum
um árangursríka ráðstefnu í París
sem halda á um það efni.
Forsenda þess að viðræður milli
austurs og vesturs beri árangur er
að mati ráðherranna annars vegar
sú að Sovétríkin virði mannréttindi
að fullu og hins vegar að þau og
bandamenn þeirra birti án tafar
óyggjandi upplýsingar um herstyrk
sinn. Þess vegna birti NATO nýlega
skýrslu um eigin herstyrk og áætl-
aðar tölur um herstyrk Varsjár-
bandalagsins. Á blaðamannafundi
með utanríkisráðherrum NATO-
ríkja kom fram að ákvörðun Gor-
batsovs að skera niður herafla Sov-
étmanna hefur sáralítil áhrif á það
misvægi sem ríkir í þessum efnum.
Yfírburðir Sovétríkjanna og banda-
manna þeirra em eftir sem áður
gífurlegir. Samkvæmt' heimildum í
Brussel er ekki ljóst hvers eðlis nið-
urskurðurinn verður, hvort fjar-
lægðir verða gamlir skriðdrekar og
hvað við þá verður gert.
Við blasir að árlega framleiða
Sovétríkin 3.500 skriðdreka jafn-
framt því sem þeir eiga fjöldann
allan af úreltum skriðdrekum allt
frá því í seinni heimsstyijöldinni.
Niðurskurður á herafla virðist fyrst
og ffemst beinast að því að gera
Kínveija ánægða en af þeirri hálfu
milljón hermanna sem fækka á um
eru einungis 50 þúsund í Evrópu,
450 þúsund verða því fluttir annars
staðar frá og þá líklegast landa-
mærahéruðunum við Kína.
Ráðherramir vottuðu aðstand-
endum þeirra sem fómst er herflug-
Mitterrand hafði kvöldið áður
tekið þá áhættu að móðga tékk-
neska ráðamenn, þar á meðal Mílos
Jakes, leiðtoga kommúnistaflokks-
ins, og Gústaf Husak, forseta lands-
ins, sem buðu honum til veislu, með
því að minnast „siðferðilegs gildis“
umbótatilraunanna í Tékkóslóvakíu
árið 1968, sem Sovétmenn bundu
endi á með innrás í landið. Husak
komst til valda eftir að Alexander
Dubcek, þáverandi flokksleiðtoga,
var bolað burt og Jasek stjómaði
hreinsunum, sem náðu til hálfrar
milljónar flokksfélaga, eftir innrás-
ina.
Tékkneska flokksmálgagnið
Rude Pravo birti ávarp Mitterrands
í fullri lengd. Andófsmenn í landinu
fögnuðu ávarpinu ákaft og sögðu
að þetta væri í fyrsta sinn sem birt
væm lofsamleg ummæli um „Vorið
í Prag“ í fjölmiðlum ríkisins.
Leikskáldið Havec, sem fór fram
á við Mitterrand áður en hann kom
til landsins að hann kæmi í veg
fyrir að heimsókn hans yrði notuð
baráttu stjórnvalda gegn andófs-
mönnum til framdráttar, lýsti yfir
ánægju með viðræðurnar við forset-
ann. „Hann sagði að hann skildi
vel stöðu okkar,“ sagði Havec og
bætti við að Mitterrand hefði full-
vissað andófsmennina um að hann
myndi ræða mannréttindamál við
Husak og Jakes.
Frakklandsforseti fór síðar til
Bratisiava, helztu borgar Slóvakíu,
þar sem Dubcek býr. Franskir emb-
ættismenn útilokuðu ekki að forset-
inn ræddi við flokksleiðtogann fyrr-
verandi.
Stuttu eftir að Mitterrand kom
til Prag á fimmtudag heimiluðu
borgaryfirvöld ijöldafund sem
Carta 77 og fjórar aðrar tékkneskar
mannréttindahreyfingar fyrirhuga
í dag til að minnast þess að 40 ár
eru liðin síðan Alþjóða mannrétt-
indayfirlýsingin var undirrituð.
Tékkneska stjórnin skýrði einnig
frá því í gær hún hefði tekið til
athugunar að hætta truflunum á
útsendingum bandarísku útvarps-
stöðvarinnar Liberty eins og Sovét-
menn gerðu í síðasta mánuði.
Rafhlöðuvél
ABS 13 RL
með auka rafhlöðu
í tösku
kr. 15.495,-
Rafskrúfjárn ABS 6 RL
í tösku frá
kr. 5.495,-
AFKOST
ending.
GÆÐI
Stingsög
STS 380
STPE 400
kr. 7.561,-
Fæst í
bygginga vöru verslun um
um land allt.
Hoggbor og
skrúfuvélar
SBE 500
í tösku
kr. 5.495,-
SBE 420 RL
kr. 4.995,-
SB2E 16 RL
kr. 11.995,'
BRÆÐURNIR
=)] ORMSSON HF
LÁGMÚLA 9, SÍMI: 38820.
AEG á betra verði
r