Morgunblaðið - 10.12.1988, Side 45

Morgunblaðið - 10.12.1988, Side 45
s?er íraawraæaa or fmoAaHAOUAj .aiOAiavmoHOM MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988 45 Stj órnarandstaðan í efri deild: Atvinnutrygg- ingarsjóður verði lagður niður í efri deild hefur stjórnarand- staðan lagt fram nefndarálit sitt vegna bráðabirgðalaga ríkis- stjórnarinnar. Þar er meðal ann- ars lagt til, að Atvinnutryggingar- sjóður verði lagður niður og í hans stað stofnuð sérstök rekstr- ardeild við Byggðastofiiun. Minnihluti fjárhags- og viðskipta- nefndar efri deildar segir í nefndará- liti sínu, að ekki sé hægt að tryggja rekstur fyrirtækja í útflutnings- og samkeppninsgreinum nema almenn rekstrarskilyrði verði bætt. Við nú- verandi aðstæður verði að horfast í augu við þá staðreynd, að gengið sé fallið. Jafnframt leiðréttingu gengis þurfi svo að, treysta eiginfjárstöðu fyrirtækja og gera þeim kleift að skipta tapi sínú á mörg ár með skuld- breytingu. Verði gengið fellt sé nauð- synlegt að mæta því með lækkun söluskatts á helstu nauðsynjar heim- /ilánna. ^ Minnihlutinn leggur í nefndaráliti sínu áherslu á að fyrirtækjum verði auðveldað að skipuleggja fjárfest- ingu sína fram í tímann og auðveld- að að mæta sveiflum með breytingu á skattalögunum. Stofnun Atvinnu- tryggingarsjóðs er gagnrýnd og sagt að skipun stjómar hans bijóti í bága við þingræðishefð. Lagt er til að í hans stað verði stofnuð sérstök rekstrardeild við Byggðasjóð, sem hafí það hlutverk, að treysta fjár- hagsstöðu fyrirtækja í útflutnings- og samkeppnisgreinum í tengslum við fjárhagslega endurskipulagn- ingu, meiriháttar skipulagsbreyting- ar, samruna fyrirtækja og annað er horfi til hagræðingar. Rekstrardeild- inni verði heimilt að hafa milligöngu um skuldbreytingu fyrir allt að 5 milljörðum króna í þessum tilgangi. Minnihlutinn getur ekki fallist á að tekjur Atvinnuleysistryggingar- sjóðs verði skertar, en leggur í stað- inn til að rekstrardeildin fái heimild til 600 milljóna króna innlendrar lán- töku, sem endurgreiðist af nkissjóði og verði hluti af framlagi hans. Minnihlutinn leggur enn fremur áherslu á nauðsyn þess,' að hér á landi verði komið á fót opnum hluta- bréfamarkaði. Leggja því þingmenn Sjálfstæðisflokks og Kvennalista til, að stofnaður verði hlutafjársjóður við Byggðastofnun, sem kaupi hlutabréf í fyrirtækjum í tengslum við flár- hagslega endurskipulagningu þeirra eða samruna fyrirtækja. Sjóðurinn afli sér hins vegar tekna með sölu aðildarbréfa. Að minnihlutaálitinu standa Hall- dór Blöndal (S/Ne), Júlíus Sólnes (B/Rn) og Eyjólfur Konráð Jónsson (S/Rvk). Danfríður Skarphéðinsdótt- ir (Kvl/Vl) sat fundi í fjárhags- og viðskiptanefnd og lýsti sig samþykka þessu nefndaráliti. Afgreiðslu bráðabirgða- laganna hraðað í efri deild Önnur umræða um bráðabirgðalög ríkisstjórnar Steingríms Her- mannssonar er hafin í efri deild Alþingis. Stjórnarandstaðan hefur lagt á það áherslu, að afgreiðslu laganna verði hraðað og sagði Eiður Guðnason, formaður fjárhags- og viðskiptanefiidar deildarinn- ar, að reynt hefði verið að koma til móts við þær óskir. I umræðun- um var komið víða við og sagði Halldór Blöndal meðal annars, að það bæri vott um slæman smekk Jóns Baldvins Hannibalssonar að hann hefði nú lagst með Framsóknarmaddömunni. Eiður Guðnason mælti fyrir áliti meirihluta fjárhags- og viðskipta- nefndar. Sagði hann meðal annars, að ýmislegt mætti um setningu bráðabirgðalaga segja, en allar ríkisstjómir eða því sem næst, hefðu gripið til þessa úrræðis. Eiður sagði að hér væri um að ræða flók- ið mál í afgreiðslu, meðal annars vegna þess að um leið væri verið að afgreiða tvenn bráðabirgðalög, sem sett voru í maí, í tíð ríkisstjórn- Virðisaukaskatturinn: Samráð um endurskoðun Stjórnarfrumvarp um að gildistöku laga um virðisauka- skatt verði frestað var afgreitt frá neðri deild Alþingis í gær. Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins spurði Ólaf Ragnar Grímsson fjármálaráð- herra hvort samráð yrði haft Erlendar lántökur: Tímabiindm gjald- taka framlengd Ólafur Ragnar Grímsson, Qármálaráðherra mælti í gær fyrir frum- varpi til laga um að tímabundin gjaldtaka af erlendum lánum og leigusamningum verði framlengd um eitt ár. Er gert ráð fyrir því í áætlunum um tekjuöflun ríkisins á næsta ári. Þorsteinn Pálsson sagði að framlengingin væri ekki í samræmi við upphaflegt mark- mið þessa skatts og að alltof algengt væri að timabundnir skattar yrðu varanlegir. Fjármálaráðherra sagði að auk framlengingar gjaldtökunnar væru heimildir til undanþágu rýmkaðar hvað varðar lán sem tekin eru vegna sérstakra aðgerða stjórnvalda í þágu útflutningsgreina. Auk þess væri skýrar kveðið á um undanþág- ur vegna lána til kaupa eða rekst- urs á kaupskipum og flugvélum, sem notaðar eru í atvinnuskyni. Ráðherra sagði að hér væri ekki einungis um tekjuöflun að ræða, heldur væri markmiðið með gjald- tökunni einnig að draga úr erlend- um lántökum. Hér væri um tíma- bundinn skatt að ræða og við breyttar aðstæður gætu verið rök fyrir afnámi hans. Þorsteinn Pálss.on (S/Sl) sagði að upphaflegt markmið með þessari skattheimtu hefði ekki verið tekju- öflún heldur að draga úr ójafnvægi og ofþenslu í hagkerfinu. I haust hefði jafnvægi komist á og því hefðu forsendurnar breyst. Hann sagði of algengt að tímabundnir skattar yrðu varanlegir og varaði við því að þetta hagstjórnartæki væri eyðilagt með því að gera það að tekjustofni. við stjórnarandstöðuflokkana um endurskoðun laganna. Ólaf- ur svaraði á þá leið, að hann væri því fylgjandi, en ákvörðun yrði ekki tekin fyrr en formenn hinna stjórnarflokkanna kæmu frá útlöndum. Þorsteinn spurði íjármálaráð- herra hvort honum hefði gefist tóm til samráðs við forystumenn Framsóknarflokks og Alþýðu- flokks um það hvernig endurskoð- un laga um virðisaukaskatt verði háttað. Einnig spurði hann hvort til þess yrði skipuð nefnd, sem skipuð yrði fulltrúum bæði stjórn- ar og stjórnarandstöðu. Fjármálaráðherra sagðist ekki hafa rætt þetta við þá Steingrím Hermannsson forsætisráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra, þar sem þeir væru er- lendis. Hann hefði kynnt hug- myndir sínar um þetta í ríkis- stjóminni og þeim verið vel tekið, en ákvörðun yrði ekki tekin fyrr en þeir Steingrímur og Jón Bald- vin hefðu fengið tækifæri til að ræða málið. Þorsteinn Pálsson þakkaði fjár- málaráðherra fyrir jákvæðar und- irtektir og sagði skiljanlegt að ekki hefði gefist tækifæri til að ræða þetta, þar sem forsætisráð- herra og utanríkisráðherra væru erlendis að gegna mikilvægum trúnaðarstörfum. Enn fremur sagðist Þorsteinn ekki vilja gera athugasemdir við mat ráðher- ranna á mikilvægi erinda sinna í útlöndum. ar Þorsteins Pálssonar, og nokkrum greinum þeirra hefði verið breytt með lögunum í haust. Eiður lagði á það áherslu, að umræðan snerist ekki um fjarveru forsætisráðherra. Hann hefði talið að umræðan færi fram á þriðjudag- inn eins og gert hefði verið ráð fyrir. Halldór Blöndal (S/Ne) sagðist sakna þess í ræðu Eiðs, að gert væri grein fyrir afstöðu Verka- mannasambandsins, Farmanna- og fískimannasambandsins og Alþýðu- sambandsins til bráðabirgðalag- anna, en þessi samtök hefðu álykt- að gegn þeim. Halldór sagði að sér þætti ástæða til að breyta öllum ákvæðum bráða- birgðalaganna nema þeim er snertu bann við kjarasamningum og verk- föllum. Bætti hann síðan við, að nú hefði Alþýðubandalagið slegið striki yfir allar upphrópanir sínar um að samningsrétturinn væri heil- agur og væri þannig sammála sér og ýmsum þingmönnum um að viss- ar aðstæður gætu réttlætt slíkar aðgerðir. Halldór rifjaði upp, að fyrir síðustu kosningar hefði Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, „nuddað sér upp við Sjálfstæðisflokkinn“ og jafnvel sagst vera meiri sjálfstæðismaður en þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Það bæri hins vegar vitni um slæm- an smekk, að hann hefði nú lagst með Framsóknarmaddömunni. I ræðu sinni gagnrýndi Halldór forystu Alþýðuflokksins harðlega og sakaði hana um úthaldsleysi. Sagði hann meðal annars að efna- hagsaðgerðir ríkisstjórnar Þor- steins Pálssonar í vor hefðu verið ónógar fyrir áhrif Alþýðuflokks- manna. Það hefði ekki mátt hjálpa samkeppnis- og útflutningsgrein- unura. Að lokum sagði Halldór Blöndal, að bjánalegt væri að kalla þetta bráðabirgðalög um efnahagsað- gerðir, því ekkert slíkt hefði falist í þeim. Hann sagðist ekki kvarta vegna fjarveru forsætisráðherra, en spurði að síðustu hvort Alþýðu- flokkurinn teldi kannski betra að Steingrímur væri að heiman, hvort verkstjómin í ríkisstjóminni gengi þá kannski betur. Júlíus Sólnes (B/Rn) tók næstur til máls. Lýsti hann andstöðu við skerðingu á samningsfrelsi og frystingu launa. Einnig lýsti hann því yfir, að Borgaraflokkurinn væri eina stjórnmálaaflið í landinu sem berðist enn gegn söluskatti á mat- væli. Júlíus ræddi hugmyndir Borg- araflokksins um að aftengja láns- kjaravísitöluna og spurði Halldór Asgrímsson, starfandi forsætisráð- herra, hvort ætlunin væri að tvær lánskjaravísitölur giltu í landinu eftir 1. janúar næstkomandi. Danfríður Skarphéðinsdóttir (Kvl/Vl) sagði Kvennalistann ekki geta fallist á skerðingu samnings- réttar og frystingu launa. Samn- ingsrétturinn væri heilagur og skerðing hans væri ekki réttlætan- leg þótt eitthvað kæmi á móti. Umræðum um bráðabirgðalögin lauk ekki í efri deild í gær og verð- ur þeim haldið áfram eftir helgi. AIÞinGI Bankamenn á ftindi um Utvegsbankann NEFND UM mál Útvegsbankans hf. hélt fund á miðvikudag með fiilltrúum bankanna. Nefiidin var skipuð af viðskiptaráðherra í ágúst síðastliðnum til að kanna möguieika á og undirbúa sölu hlutabréfa ríkissjóðs í bankanum. Björn Friðfinnsson, formaður hennar, vildi ekkert segja um eftii fundarins þegar Morgunblaðið ræddi við hann. Björn vildi ekki segja hvort ákveðnar tillögur um málefni Ut- vegsbankans lægju nú fyrir. Rætt hefði verið við forráðamenn ein- stakra banka að undanförnu, en á fundinum nú í vikunni hittust þeir sameiginlega með nefndarmönn- um í fyrsta sinn. Björn vildi ekki upplýsa hveijir hefðu setið fundinn og sagði að málið leystist ekki í kastljósi fjölmiðla. Þegar Jón Sigurðsson skipaði nefndina í lok ágúst var sagt að eitt markmiðanna með að selja hlut ríkissjóðs í Útvegsbankanum væri að stuðla að sameiningu bankastofnana. Væri einkum horft til hlutafélagabankanna Ijögurra og sparisjóðanna í því sambandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.