Morgunblaðið - 10.12.1988, Síða 53

Morgunblaðið - 10.12.1988, Síða 53
8861 aaaMaaaa .01 auoAajiAOUAJ .aioAjaviuoflOM MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988 Stykkishólmur: Gott mannlíf og veð- urfar með ágætum Stykkishólmi. ÞAÐ ER ekki ofsögum sagt að veður hafi leikið við okkur hér á landi í haust og vonandi bitnar þetta ekki á vordögum þegar gróð- ur þarf á sem mestri hlýju að halda. Samgöngur hafa verið í sumarhorfi og er þá mikið sagt og Keríingarskarð, aðalfarartálmi vetrarveðra, hefir verið feert og þvi hefir áætlunarferðin hér á milli oftast verið á réttum tíma. Hjá vöruflutningum hefír verið ærið að gera og eykst nú fyrir jólin, enda jólavarningur og jóla- ljósin farin að setja sinn svip á umhverfið og lýsa upp svartasta skammdegið. Flutningabílar frá fyrirtækjum úr Reykjavík birtast hér óðum til að gera vaminginn ijölbreyttari og auka á hag- kvæmnina. Héðan eru aðallega stundaðar skelfískveiðar og hafa þær gengið eðlilega fyrir sig og aldrei fallið úr róður. Þórsnesin og Sif hafa verið fyrir austfjörðum og lagt upp síld á fjörðum þar, en eru bæði komin heim og koma senn, því kvótinn er uppurinn. Og þessar 50 þúsund tunnur sem menn héldu að Rússar myndu kaupa í viðbót, eru víst ekki í augsýn. Mannlífið hér gengur sinn vana gang. Talsvert um skemmtanir og mót. Eldri borgarar hafa talsvert við að vera, bæði í föndri og öðru. Morgunverðarfundur var á hót- elinu 1. desember þar sem bæj- arbúar komu saman að ræða vandamál líðandi stundar og huga að framtíðinni og atvinnuvegunum með sem mesta samstöðu í huga. Jóhannes Finnur Halldórsson bæj- arritari stendur fyrir þessum fund- um og fær jafnan mann í fram- sögu og til að leiða umræður. Eru þessir fundir mjög af hinu góða og til þess fallnir að fá menn til að íhuga málin og líta í eigin barm í þeim tilgangi hvað þeir geti gert Hólminum til framdráttar og blessunar. - Arni Veiðivörur J OLAGJOF VEIÐIMANNSI N S JÓN DAN atbueðirnir ASIAPA ÖNNURÚTGÁFA Atburðirnir á Stapa eftir Jón Dan 2. útgáfa er komin í bókabúðir. Hvað varþað sem átti sér stað á Stapa sumariðgóðaf Lesið um einn mesta grallara í íslenskum bókmenntum. Saga full afkynlegum atburðum, kímni oglúmsku háði. Ogspennu. Bókaútgáfan Keilir. SPENNA,ÁTÖK 06 ÁSTIR r Robert Ludlum: OVÆNT ENDALOK Frammi fyrir byssukjöftum ofstækisfullra hermdarverkamanna bíða 236 konur, káriar og böm dauða síns. Friðsamur öldungadeildarþingmaður bíður fram aðstoð sína við að leysa þetta skelfilega mál með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. ÓVÆNT ENDALOK er bók magnþmngin spennu sem gagntekur lesendur um heim allan eins og önnur verk ROBERT LUDLUMS. M Danieile Steel: ORLAGAMUEDIR ÁSTARINNAR Pegar ástin og hamingjan em allsráðandi í lífi söguhetjunnar Bemie, taka örlögin í taumana. Hann þarf nú að horfast í augu við nístandi sorg en um leið heyja baráttu til að halda fjölskyldunni saman. En tekst honum að sigra? Að hætti DANIELLE STEEL em ÖRLAGAÞRÆÐIR ÁSTARINNAR saga mikilla átaka og tilfinninga. Sá sem les þessa bók, finnur skjótt hvers vegna höfundur hefur skipað sér á bekk metsöluhöfunda Evrópu og Ameríku.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.