Morgunblaðið - 10.12.1988, Page 63
OÐfir mrowiOTn nr fFlí>/W7FÁ')nrA.I flWAJSWiítfWM
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. -DESEMBER -1988
„Varasamt að
skerða reglur
um hundahald“
SAMBAND dýravemdunarfé-
lag-a íslands hefur sent borgar-
stjórn Reykjavíkur eftirfarandi
bréf:
Stjóm Sambands dýravemdun-
arfélaga Islands varar við öllum til-
raunum til þess að skerða leyfi til
hundahalds í borginni — hvað þá
banna það með öllu. Það mun hafa
verið árið 1924 að hundahald var
bannað í borginni vegna ótta við
sullaveiki. Reyndin var sú að borgin
varð aldrei hundalaus en sullaveiki
hvarf fyrir aukið hreinlæti og bætta
meðferð sláturafurða. Allar götur
síðan hefur fólk haldið hunda í
Reykjavík og lengst af í trássi við
lög og rétt. Það hefur m.a. haft það
í för með sér að sá sem hefur hugs-
að vel um sinn hund og gætt þess
að hann ylli ekki öðmm ónæði hef-
ur verið jafn réttlaus og sá sem
ekki hefur kunnað með hundinn
sinn að fara.
Fyrir fjórum ámm vom settar
strangar reglur um hundahald í
borginni sem gerðu þó fólki kleift
að halda þessi dýr. Nú hafa heyrst
hugmyndir um að breyta reglunum
á þann veg að þeir hundar sem nú
em í Reykjavík fái að lifa en engin
ný leyfi verði veitt. Þetta em mjög
óraunsæjar hugmyndir og ef þær
verða að vemleika emm við komin
aftur til þess tíma þegar hundahald
var bannað í borginni. Fólk mun,
eins og áður, halda áfram að fá sér
hund og taka þá upp fyrri hátt að
laumast og læðupokast með dýrið
sitt. Lifa í stöðugum ótta um að
upp um það komist. Slíkt veldur
spennu og er vissulega ekki á slíkt
bætandi í þessu þjóðfélagi hraða
og samkeppni.
Kosning sú, eða skoðanakönnun,
sem er nýafstaðin, er ekki marktæk
út frá tölfræðilegu sjónarmiði — til
þess var þátttaka allt of lítil. Marg-
ir hundaeigendur komu ekki á kjör-
stað því þeir töldu að úrslitin skiptu
engu máli, hvorki til né frá, en það
mátti ráða af orðum forseta borgar-
stjómar. Einnig fannst mörgum
spumingin villandi. Jafnframt vilj-
um við taka það fram að það er í
grundvallaratriðum rangt að etja
íbúum borgarinnar saman í máli
sem þessu þar sem vitað er að mik-
ill minnihluti borgarbúa kærir sig
um að eiga hund.
Því er haldið á lofti, af fólki sem
ekkert þekkir til eðli hunda, að
hundum líði illa í borginni. Þetta
er rangt. Hundurinn hefur fylgt
manninum í þúsundir ára — frá
eyðimörkum til Grænlandsíss. Og
frá því að maðurinn settist að í
borgum hefur hundurinn búið þar
með honum. Það sem hundur þarfn-
ast fyrst og fremst er góður og
ábyrgur húsbóndi en ekki ákveðin
búseta. Reykjavík er eina höfuð-
borgin í heimi sem bannar hunda-
hald og hefur oft verið hjákátleg,
eða jafnvel vond borg, í augum fólks
vegna þess.
Því er það skoðun stjómar SDÍ
að það sé afar varasamt að skerða
reglur um hundahald frá þeim sem
gilt hafa síðustu íjögur ár. Reglum-
ar má bæta þannig að auðveldara
verði að framfylgja þeim og fá fólk
til þess að fara eftir þeim og er
stjómin fús til viðræðu um leiðir í
þeim efnum.
Jórunn Sörensen
HiÓ frábæra tungumálaspil, Polyglotir er nú loks komió til
íslands. POLYGLOT er andlega þroskandi og menntandi leikur
sem hefur verið hannaður til þess að örva skilning og þekkingu á
erlendum tungumálum.
Hér er valið tækifæri til að efla tökin á ensku, frönsku, íslensku,
ítölsku, spænsku og þýsku.
Happaglot fylgir hverju spili. í vinninga eru: ferð fyrir tvo til Florida nteð FlugieiAum og
Hexaglot - nýjasta tungumálatölva í heimi.
Verdkr. 3.390.-
Fæst m.a. í Pennanum og hjá Magna
Póstkröfuslmi: 32750
JOLA-
FÖT
Jakkafot 8.999,-
Blússa 2.499,-
Buxur 3.499,-
Buxur 2.499,-
Jakkapeysa 1.990,-
Jakki 4.990,-
Pils 2.990,-
HAGKAUP