Morgunblaðið - 10.12.1988, Qupperneq 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988
Q 685168.
HAHGlKJÖTSLftW
irí úrbeining
PARTUR
frí úrbeining kr.
495.'
699
nmaoW1**
"" J
{IU.HNWIW*15-
U»l
965.^
nSKSE5-
,765.-
imabahwmk*®-
MHRYOGUR kr
675.
I
I
I
I
I
I
I
I
I
930.-
1
I
I
1
lOHDOHLMAB
kr,795.^
h awborg arst wk f
„791.-
úrbemao kr.
HÝR
iambahryogur
úrbeinaður
ÞINGBREF
STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Lí feyrisrétturipn .
verðmætasta eignin
Verður árlegt ráðstöfunarfé lífeyrissjóða 50 milljarðar 1993?
Flestir lífeyrissjóðir eiga rætur í ftjálsum samningum milli aðila
vinnumarkaðarins. Þeir eru því hluti hins löghelgaða samningsréttar.
Síðar var það lögbundið að hver vinnandi einstaklingur skuli vera
aðili að lífeyrissjóði. Einstaklingar eru sum sé lögskyldaðir til þessa
sparnaðarforms.
Felst ekki ákveðin ábyrgð af hálfn löggjafans í þessari kvöð, sem
reyndar tengist samningsbundnum rétti?
I
Guðmundur H. Garðarsson, al-
þingismaður, gerði lífeyrissjóði
fólks að umfjöllunarefni í umræðu
um frumvarp til lánsfjárlaga. Hann
sagði m.a.:
„Lífeyrissjóðsframlag hvers ein-
staklings, sem greitt er í 30 til 40
ár, 10% af launum og í sumum til-
fellum hærri iðgjöld, er auðvitað
stærsta eign sérhvers lífeyrissjóðs-
félaga. íbúð eða húseign kemst
ekki í hálfkvisti við þá persónu-
bundnu eign sem myndast á 30-40
ára tímabili í lífeyrissjóðum. Þegar
við hér [á Alþingi] tökum lífeyris-
sjóðina til meðferðar inn í lánsfjár-
lögum og almennt í umræðunni, þá
erum við að tala um stærstu eign
hvers einstaklings, sem er kominn
á vinnualdur . . .“
Guðmundur gerði síðan stuttlega
grein fyrir tilgangi lífeyrissjóða, að
stuðla að öryggi fullorðins fólks,
sem skilað hefur starfsævi sinni í
þjóðarbúið; og mikilvægi þess, að
standa svo vörð um þennan spamað
og ávöxtun hans, að sjóðimir rísi
undir skyldum sínum og hlutverki
um langa framtíð.
Guðmundur taldi eðlilegt að hið
opinbera setji lög eða strangar eftir-
litsreglur um lífeyrissjóði, það er
um grundvallaratriði, sem tryggi
heildarrekstur þeirra, en að öðm
leyti eigi löggjafinn ekki að ganga
langt í því að grípa inn í rekstur
sjóðanna. Hinsvegar er hægt að
leita samkomulags við eigendur
þessa spamaðar um sitthvað er
sjóðina varðar.
II
Guðmundur sagði lífeyrisréttind-
in ekki einungis verðmætustu eign
þorra einstaklinga, heldur jafn-
framt öruggasta spamaðarformið
sem landsmenn byggju við. Verð-
trygging spamaðarins þarf hins-
vegar að vera fyrir hendi. Því má
ekki gleyma að að byggja verður
lífeyrissjóðina þann veg upp og
ávaxta með þeim hætti næstu ár
og áratugi, að þeir rísi undir megin-
hlutverki sínu og skuldbindingum
þegar greiðslubyrði þeirra vex.
Þessi greiðslubyrði verður e.t.v. í
hámarki eftir einn til tvo áratugi.
Guðmundur vitnaði til aldurs-
samsetningar þjóðarinnar á liðandi
stund og sífellt stækkandi hóps eft-
irlaunafólks sem hlutfalls af íbúa-
tölu landsins næstu ár og áratugi.
Þess vegna væri mikilvægt að
standa traustan vörð um lífeyris-
sjóðakerfíð og þróa það með eðlileg-
um hætti. Þar mætti og þoka ýmsu
til meiri samræmingar og jafnstöðu
í réttindum fólks.
Hin hliðin á þessum mikilvæga
spamaði snýr að nýtingu hans „við
framtíðaruppbyggingu íslenzkra
atvinnuvega". Þar kemur margt til
sögunnar, eins og stefnan í ríkis-
búskapnum og'ríkisfjármálunum og
hver íiramvindan verður í ijármögn-
un húsnæðislánakerfísins.
En ráðstöfunarfé lífeyrissjóð-
anna fer vaxandi. „í stuttu máli
sagt,“ sagði Guðmundur, „miðað
við að árleg aukning sé ekki 33%
heldur einhvers staðar á bilinu
25-27% má gera ráð fyrir því að á
árinu 1993 verði árlegt ráðstöfun-
arfé sjóðanna komið upp í h.u.b.
50 milljarða króna."
III
Sýnt er að ríkisvaldið hefur meiri
og meiri áhuga á því að hafa áhrif
Aðventukvöld kirkju-
kórs Reykholtssóknar
Kleppjárnsreykjum.
AÐVENTUKVÖLD Kirkjukórs Reykholtssóknar verður i Logalandi
laugardaginn 10. desember kl. 21.00. Er þetta orðinn árlegur viðburður
í sókninni og eru aðventukvöldin ávallt vel sótt enda vandað til dag-
skrár og er svo einnig nú.
Tryggvi Emilsson
Steinunn
dóttir
Sigurðar-
Sigurður Á. Frið-
þjófsson
Besti vinur ljóðsins:
Upplestur úr nýjum
865.- bókum á Borginni
Séra Geir Waage sóknarprestur
mun flytja hugvekju. Bergþór Úlf-
arsson les jólasögu, Ragna Bjama-
dóttir syngur einsöng, karlakórinn
Söngbræður syngur undir stjóm Sig-
urðar Guðmundssonar, bama- og
unglingakór syngur undir stjóm
Bjama Guðráðssonar, svo og kirkju-
kórinn. Kirkjukórinn mun selja kaffí
í lok samkomunnar.
Nú hefur nýlega verið lokið við
að steypa gólf kirkju og Snorra-
stofu. Framkvæmdir hafa gengið
betur en áætlað var, því að jarðvegs-
framkvæmdum vegna frárennsli-
slagna er einnig að mestu lokið.
Til þessa hefur verið varið til
bygginganna tæplega 9 millj. króna.
Mikið munar um framlag Sements-
verksmiðju ríkisins sem gefíð hefur
allt sement til bygginganna.
í vetur verður unnið að útvegun
flár til bygginganna því stefnt er
að því að gera þær fokheldar næsta
sumar. Því verður á næstunni leitað
til safnaðarfólks um framlög. Meðal
annars verða boðin gjafabréf, þar
sem, mönnum gefst kostur á að
skrifa sig fyrir mánaðarlegri upphæð
sem Sparisjóður Mýrasýslu inn-
heimtir, eða greiða eftir samkomu-
lagi. Mönnum er að sjálfsögðu frjálst
að ákveða upphæð bréfanna og þau
bera enga vexti. Fjáröflunamefnd
mun á næstunni fara á bæi og bjóða
bréfin.
A aðalsafnaðarfundi sem haldinn
verður 23. janúar í Logalandi kl.
21.00 mun verða gerð nánari grein
fyrir gangi mála og leitað eftir hug-
myndum um frekari íjáröflun og
teknar ákvarðanir um næsta bygg-
ingarstig.
— Bernhard
ódýruiamba-
srrokkarhir
ánlæra
krl69-“
Opii ídagtilkl. 18
Jólaminar í heimsókn allan daginn
I
I
I
'685168.
I
BESTI vinur ljóðsins og Hótel Borg efaa til kynningar á nýjum
bókum á Hótel Borg kl. 14 í dag, laugardag 10. desember.
Að þessu sinni verða lesnir kaflar úr ýmsum forvitnjlegum
bókum, sem strangt tiltekið flokkast ekki undir skáldskap.
Bækumar sem lesið verður úr
eru Minningamörk í Hólavalla-
arði eftir Bjöm Th Bjömsson,
slenskir nasistar eftir Hrafn og
Illuga Jökulssyni, Sjómenn og
sauðabændur eftir Tryggva Emils-
son, Ein á forsetavakt eftir Stein-
unni Sigurðardóttur, Lífssaga
Bryndísar skráð af Ólínu Þorvarð-
ardóttur, íslenskir utangarðsungl-
ingar eftir Sigurð Á. Friðþjófsson
og Fíladans og framandi fólk eftir
Jóhönnu Kristjónsdóttur.
Samkomur Besta vinar ljóðsins
hafa verið sérstaklega vinsælar
og mikið sóttar. Þrátt fyrir vin-
fengi við ljóðið hefur vinurinn
einnig kynnt fleiri greinar bók-
mennta við góðar undirtektir.
Kynnir verður Viðar Eggertsson.
Veitingar verða að sjálfsögðu á
boðstólum. Aðgangur er ókeypis.
Geir Waage í kjallara Snorrastofú. Morgunblaðið/Berahard Jóhannesson