Morgunblaðið - 10.12.1988, Síða 78
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988
78
ÍHém/t
FOI_K
■ BOGDAN Kowalczyk, lands-
liðsþjálfari íslands í handknattleik,
kom til landsins í gær. Bogdan
mun því sjá tvo leiki í síðustu um-
ferð 1. deildarkeppninni í hand-
knattleik, áður en hann velur lands-
liðshóp sinn sem hefja æfingar fyr-
ir B-keppnina í Frakklandi.
■ BJARNI Asgeir Friðriksson
hefur verið útnefndur júdómaður
ársins 1988 af Júdósambandi
Islands.
■ ■ JEAN Charest, íþrótta-
málaráðherra Kanada, segist ekki
ætla að breyta ákvörðun sinni um
ævilangt bann Ben Johnson. Hann
má ekki keppa fyrir hönd Kanada
og fær enga styrki frá ríkinu. Flest-
ir áttu von á að mikil gagnrýni
hefði mildað afstöðu Charest en
annað hefur komið á daginn. Hann
sagði að málið yrði ekki tekið upp
aftur nema eitthvað kæmi fram sem
benti til sakleysis Johnsons. Frank
Ratcliffe, talsmaður kanadísku
ólympíunefndarinnar, segir hins
vegar að ráðherann hafi farið út
fyrir valdsvið sitt með yfirlýsingum
sínum. „Ólympíunefndin ákveður
hveijir keppa á Ólympíuleikum,
sagði hann.
■ MIKIL brögð eru að því þessa
daganna að íþrottafólk um víða
veröld sé að gefa út yfirlýsingar
um að herða ætti refsingar við ólög-
legri lyfjaneyslu í íþróttum. Sá
síðasti sem gekk fram fyrir skjöldu
var Anita Defranz, frá Banda-
ríkjunum, verðlaunahafi í róðra-
'jjjkeppni á síðustu Olympíuleikum.
Ungfrúin taldi réttast að dæma
uppvísa íþróttamenn í ævilangt
bann.
■ SÆVAR Jónsson hefur verið
útnefndur Knattspyrnumaður árs-
ins 1988 af stjórnarmönnum Knatt-
spyrnusambands íslands.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Ardiles og Villa fyrstu út-
lendingamir hjá Tottenham
Guðni Bergsson fetar nú ífótspor þessara litríku leikmanna frá Argentínu. Verðurfyrsti áhuga-
maðurinn til að ganga beint inn í lið Tottenham
GUÐNI Bergsson er sjöundi
útlendingurinn til að ganga til
liðs við Lundúnarliðið Totten-
ham. Argentínumennirnir
Osvaldo Ardiles og Ricky Villa
voru þeir fyrstu sem klæddust
búningi félagsins. Þeir gengu
til liðs við Tottenham eftir
heimsmeistarakeppnina íArg-
entínu 1978 og settu þeir mjög
skemmtilegan svip á Totten-
hamliðið þegar þeir léku með
því og varð Tottenham bikar-
meistari 1981 og 1982 og
UEFA-bikarmeistari 1984.
Síðan hefur hallað undan fæti
hjáfélaginu. ÞráttfyriraðTerry
Venables hafi keypt leikmenn
fyrir yfir 5,5 millj. sterlings-
pund.
Það vakti mikla athygli 1978
þegar Argentínumennirnir
tveir voru keyptir - Ardiles frá
Huracan fyrir 327 þús. sterlings-
pund og Villa frá
Rrvcing Club fyrir
375 þús. sterlings-
pund. Þessir tveir
snjöllu leikmenn
lögðu mikla vinnu á sig til að aðlag-
ast enskri knattspyrnu og síðan
settu þeir skemmtilegan svip á Tott-
enhamliðið, eins og Hollendingarnir
Frans Thijssen og Arnold
Muhren settu á Ipswich á þessum
árum.
Tottenham-liðið var geysilega
skemmtilegt þegar þeir Villa, sem
átti oft í erfiðleikum með meiðsli,
og Ardiles léku, en þá léku með lið-
inu leikmenn eins og Ray Clemence,
Steve Archibald, Garth Crooks,
SigmundurÚ.
Steinarsson
skrifar
.ekkl bar? heppH €i
Sala getraunaseðla lokar kl. 14:45 á laugardögum
49. LEIKVIKA- 10. DES. 1988 1 X 2
leikur 1. Charlton - Q.P.R.
leikur 2. Coventry - Manch.Utd.
leikur 3. Derby - Luton
leikur 4. Middlesbro - Aston Villa
leikur 5. Newcastle - Wimbledon
leikur 6. Norwich - Arsenal
leikur 7. South.ton - Notth.For.
ieikur 8. Tottenham - Millwall
leikur 9. West Ham - Sheff.Wed.
leikur 10. Blackburn - Ipswich
leikur 11. Chelsea - Portsmouth
leikur 12. Leicester - Sunderland
Símsvari hjá getraunum eftir kl á laugardögum er 91-84590 og . 17:15 -84464.
NÚ ER POTTURINN
ÞREFALDUR HJÁ
GETRAUNUM
Tony Galvin, Graham Roberts,
Steve Perrymann, Glenn Hoddle,
Paul Miller og Chris Hughton. Þess-
ir leikmenn eru allir hættir að leika
og má segja að Tottenham hafi
ekki borið sitt barr síðan.
Útlendingarnir hjá Tottenham
Frá því að Villa og Ardiles, sem
er nú hjá QPR, léku með Tottenham
hefur félagið fengið nokkra útlend-
inga til liðs við sig. Belgíumanninn
Nico Claesen, sem var keyptur frá
Standard Liege og Hollendingurinn
Johnny Metgod, sem var keyptur
frá Nottingham Forest. Claesen
náði sér ekki á strik og fékk heim-
þrá, en Metgod féll ekki inn í leik
liðsins. Nú eru hjá Tottenham Spán-
veijinn Nayim, sem var fyrir stuttu
fengin að láni frá Barcelona, Norð-
maðurinn Erik Thorstvedt og
Guðni Bergsson.
Enska deildin er erfið
Margir útleningar hafa reynt að
freista gæfunnar með félagsliðum
í Englandi og hafa aðeins nokkrir
þeirra náð sér á strik. Enska deild-
arkeppnin er erfíð fyrir hvaða leik-
mann sem er - hve góðir þeir eru.
Baráttan, hraðinn og harkan er
mikil.
Norðurlandabúar hafa átt í erfið-
leikum með að aðlaga sig ensku
knattspyrnunni - hraðanum og
hörkunni. Gott dæmi um það er
danska landsliðsmanninn Jesper
Olsen, sem náði sér aldrei á strik
hjá Manehester United, eftir að
hafa verið yfirbuðamaður hjá Ajax
í Holiandi.
Daninn Jan Mölby hefur verið
Helgin
Handknattleikur
1. deild kvenna Laui?ardacfur: FH-Þór Sunnudagur: kl. 14.00 kl. 14.00
2. deild karla Laugardagnr: ÍBK-UMFA kl. 15.15
ÍR-Þór Sunnudagnr: HK—Selfoss kl. 14.00 kl. 14.00
kl. 16.30
kl. 15.15
Blak
1. deild karla Laugardagur: kl. 17.15
KA-ÍS kl. 14.45
Sunnudagur: HK-Þróttur R 1. deild kvenna Laugardagur: kl. 17.45 kl. 16 00
KA-ÍS kl. 13.30
Sunnudagur: kl. 16 30
Miðbæjarhlaup
Fijálsíþróttadeild KR efnir í sam- vinnu við samtökin „Gamii mið- bærinn“ til miðbæjarhlaups í dag kl. 14. Hlaupið, sem er um 3 km, hefst á mótum Kirkjustrætis og Aðalstrætis og lýkur á Austur- velli. Keppt verður i flokkum karla og kvenna og sveina og meyja 16 ára og yngri. Skráning fer fram við rásmark og lýkur kl. 13.30. Þátttökugjald er 200 krónur.
Ardiles sést hér fagna sigri á Wem-
bley 1981.
úti og inni hjá Liveipool og einnig
í fangelsum í Englandi. Hann sýndi
þó góða leiki þegar Liverpool vann
tvöfalt - 1986.
Sigurður Jónsson átti erfitt
uppdráttar með Sheffield Wednes-
day, sem er þekkt fyrir að leika
knattspymu sem byggist upp á
hlaupum og langspörkum. Knatt-
spyrna sem hentar ekki Sigurði.
Það er ekki fyrr en í vetur, eftir
þijú ár, að Sigurður nær að tryggja
sér fast sæti hjá Wednesday.
Guðni er alhliðaleikmaður
Guðni Bergsson er nú á leið út
í hinn „harða heim“ - og er óhætt
að segja að það sé ekki á hveijum
degi sem áhugaknattspyrnumaður
gengur svo að segja beint inn í
herbúðir eins af frægustu félagslið-
um Englands og segi: „Hér er ég!“
Þeir sem þekkja Guðna vita að
hann á eftir að spjara sig hjá Tott-
enham. Guðni er mjög fjölhæfur
leikmaður, sem getur leikið allar
stöður á vellinum - í vörn, á miðj-
unni og í sókn. Terry Venables,
Villa skoraði tvö mörk á Wembley
þegar Tottenham vann Man. City, 3:2,
1981.
framkvæmdastjóri Tottenham, vildi
ólmur að Guðni tæki stöðu enska
landsliðsmannsins Gary Stevens,
sem á við meiðsli að stn'ða, og hann
vildi tefla Guðna fram gegn Mill-
wall í dag. Guðni gerði rétt þegar
hann sagði við Venables: „Því mið-
ur - ég er ekki tilbúinn í slaginn.“
Það hafa ekki allir leikmenn af-
þakkað að fá að leika með Totten-
ham. Þama sýndi Guðni sterkan
leik, sem sýndir að hann kann sín
takmörk. Það er langt um liðið síðan
keppnistímabilinu lauk á íslandi,
þannig að Guðni er ekki eins vel
upplagður og leikmenn sem hafa
verið á fullu í margar vikur, eða
frá því að keppnistímabilið hófst í
Englandi í ágúst. Guðni á
framtíðina fyrir sér - hans tími á
eftir að koma. Mikil barátta er
framundan hjá Guðna, en það þarf
ekki að efa að með miklum sjálfs-
aga og æfingum á þessi ungi og
snjalli leikmaður eftir að vera í
sviðsljósinu í hörðustu deildar-
keppni heims.
HANDKNATTLEIKUR
Andstæðingar
Vals sýnd veiði
en ekki gefin
Valur mætir svissnesku meist-
uranuro, Amicitia, í fyrr leik
liðanna í annarri umferð Evrópu-
keppninnar í Sviss í dag. Amicitia
vann svissneska
meistaratitilinn
1986 og 1987 og
er nú efstí 1. deild.
Liðið hefur aðeins
tapað tveimur leikjum af 14 það
sem af er keppni og stefnir á
meistaratitilinn auk þess sem það
ætlar sér stóra hluti í Evrópu-
keppninni.
Handboltafélagið Amicitia var
Anna
Bjarnadóttir
skrifar
fráSviss
stofnað 1931. Félagið hefur leik.
23 Evrópuleiki, unnið 12 ogtapað
níu. Tveimur lauk með jafntefli.
Liðið er aðallega skipað stúdent-
um og er maðalaldur ieikmanna
23 ár. Sex þeirra eru í svissneska
landsliðinu og tveir, Jens Meier
og Martin Glaser, eru með bestu
skyttum deildarinnar.
Aðeins 400 manns eru meðlim-
ir í Amicitia klúbbnum, en aðdá-
endur liðsins eru tryggir og búist
er við að það verði uppselt á leik
þess gegn Val í Saal-íþróttahúsinu
sem tekur um 3.000 áhorfendur.
HANDKNATTLEIKUR / 5. FLOKKUR
Framarar kærðu „kvensemi" KA
KA sigraði í 2. deild í 2. umferð
á íslandsmóti 5. flokks drengja
í handknattleik, sem fram fór um
síðustu helgi. Fram hafnaði í 3.
sæti, en að sögn Vigfúsar Þor-
steinssonar hjá HSI hefur félagið
sent inn kæru til HSÍ vegna þess
að stúlka lék með KA-liðinu. „Ég
get ekkert um þetta sagt, en dóm-
stóil HSÍ tekur málið fyrir á næst-
unni,“ sagði Vigfús.
Ekki náðist í forsvarsmenn Fram,
en þjálfari viðkomandi flokks og
formaður eru erlendis.