Morgunblaðið - 11.12.1990, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.12.1990, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1990 Bergþór Pálsson Tónlist Morgunblaðið/Magnús Gíslason Undirbúningur Hagvirkis á flutningum á tækjum við ána. Vinnuvélar fiuttar frá Blönduvirkjun XIm'ftn fl •• 1 Hrútafirði. STARFSMENN Hagvirkis vinna þessa dagana við flutning á vinnuvélum frá Blönduvirkjun. Bílstjórar hafa beðið í tvo daga í Staðarskála vegna óhagstæðra skilyrða við flutning yfir Hrúta- fjarðará. Fara verður yfir ána á vaði með þung tæki þar sem Vega- gerð ríkisins leyfir ekki undanþágur á öxulþunga yfir brúna. - mg Jón Asgeirsson Styrktarfélag íslensku óþerunn- ar stóð fyrir tónleikum í Islensku óperunni sl. miðvikudag og kontu þar fram Bergþór Pálsson óperu- söngvari og Jónas Ingimundarson píanóleikari. Á efnisskránni voru ellefu lög eftir níu íslensk tónskáld, þá Sigfús Einarsson, Eyþór Stef- ánsson, Árna Thorsteinsson, Þórar- in Guðmundsson, Markús Krist- jánsson, Pál ísólfsson, Emil Thor- oddsen, Karl 0. Runólfsson og Sig- urð Þórðarson. Þarna gat að heyra þverskurðinn af lagsmíðatækni þeirra sem nú er að mestu gleymd. Seinni hluti tónleikanna var byggður á aríum eftir Donízetti, Verdi, Massenet, Wagner og Bizet. Bergþór Pálsson er vel menntað- ur söngvari og hefur tamið sér vöndugheit í allri meðferð verkefna sinna, sem gáfu fyrirheit um að hér væri að vaxa upp góður lieder- söngvari. Eftir að hafa starfað nokkur ár sem óperusöngvari í Þýskalandi, hefur söngmáti hans breyst nokkuð og á þann veginn að hann ofgerir bæði í leikrænni ATHYGLISVERÐAR BÆKUR íáB*. V5W BILDUDALSKON GURINN ATHAFNASAGA PÉTURS J. THORSTEINSSONAR ÁSGEIR JAKOBSSON túlkun og meðferð texta. Það er eins og hann ætli sér að túlka til- finningamar í gegnum textann, er verkar oft þvingandi á röddina og heftir jafnvel eðlilegt tónstreymi raddarinnar. Af íslensku lögunum var Söknuð- ur eftir Pál, Til skýsins eftir Emil og Minning eftir Markús, mjög vel flutt og sömuleiðis Kvöldstjarnan úr óperunni Tannháuser eftir Wagner. Jónas Ingimundarson lék fræbærlega vel, sérstaklega þó í íslensku lögunum og fylgdi söngv- aranum vel eftir í leik hans með hljóðfall og hryn, sem helst var á reiki í síðasta íslenska laginu,.Sjá dagar koma, eftir Sigurð Þórðarson. Bergþór Pálsson Aðventutónleikar Söngsveitin Fílharmónía undir stjórn Úlriks Ólasonar, stóð fyrir aðventutónleikum í Kristskirkju sl. föstudag. Auk kórsins lék kammer- sveit undir leiðsögn Szymons Kuran. Einleikari á fiðlu var Andrzej Kleina en einsöngvari var Inga Backman Tónleikarnir hófust á orgelkons- ert eftir Handel og lék Úlrik á org- elið en hann mun vera um það bil að leggja niður störf sem orgelleik- ári við Kristskirkju. Konsértinn var þokkalega leikinn en nokkuð trufl- aði óhreinleiki háraddanna í orgel- inu. Söngsveitin fluttí nokkur jóla- lög og var söngurinn sérlega fal- legur í Ave Maríu eftir Arcadelt, tveimur miðaldalögum í raddsetn- ingu Róberts A. Ottóssonar og bráðfallegu lagi eftir Atla Heimi Sveinsson, við kvæðið Haustvísur til Máríu, eftir Einar Ólaf Sveins- son. Útfærslan á Nóttin var sú ágæt ein, eftir Sigvalda Kaldalóns og útsetning eftir Ohrvall, á frönsku þjóðlagi, bætti litlu við annars ágæt jólalög, sem njóta sín einkar vel í undirleikslausum kórsöng. Andrzej Kleina lék largo-þáttinn úr Vetrarkonsertinum eftir Vivaldi mjög fallega og hefði sem best mátt leika aðeins meira. Inga Back- man söng með f nokkrum af áður- nefndum jólalögum en aðalframlag hennar var arían Ladamus Te úr c-moll messu (K-427) eftir Mozart og tvö atriði úr Messíasi, eftjr Hándel, Rejoice greatly og tónlesið á undan einum áhrifamesta kór- þættinum í Messíasi, Glory to God. Inga gerði margt frábærlega vel, bæði í aríunni og tónlesinu, sérstak- lega þar sem hljómmikil rödd henn- ar fékk að njóta sín til fulls. Þessum ánægjulegu og hátíðlegu aðventutónleikum lauk með því að allir viðstaddir fluttu saman Ádeste Fideles eða Frá ljósanna hásal, eins og upphaf hans er í þýðingu Jens Hermannssonar. Guðni Þ. Guðmundsson Nýtt orgel Nýtt orgel hefur verið sett upp í Bústaðakirkju og síðastliðinn sunnudag hélt orgelleikari kirkj- unnar, Guðni Þ. Guðmundsson, tón- leika, þar sem gat að heyra hversu þessi nýi gripur þjónaði sem kons- erthljóðfæri. Á efnisskránni voru verk eftir Buxtehude, Pachelbel, Lindberg, J.S. Bach og Reger. Fyrsta verkið var Preludia og fúga í g-moll eftir Buxtehude, þar sem meistarinn leikur sér með þetta tvískipta form með líkum hætti og gerist í fantasíum, þar sem tvær fúgur eru rammaðar inn með stuttri prelúdíu, millispili og eftirspili. Guðni lék þetta fallega verk mjög vel. Annað verkið var Chaconne í f-moll eftir Pachelbel og það sama má segja um þetta ómþýða verk, að Guðni lék það vel og með fal- legri raddskipan. Til að gefa nokkra hugmynd um raddgæði orgelsins lék Guðni Gaml- an sálm eftir Oskar Lindberg (f. 1887), sænskan orgelleikara og tónskáld. Lindberg lagði áherslu á norræn þjóðlög og svipa tónverk hans nokkuð til Sibelíusar, hvað varðar hljómskipan. Þetta tónljúfa verk naut sín mjög vel í yfirveguð- um leik Guðna. Tvö síðustu verkin, Tokkata og fúga í d-moll eftir J.S. Bach og Tokkata (d-moll) og fúga (D-dúr) eftir Reger eru einkar heppileg til að sýna hljómstyrk orgelsins og lék Guðni verkin ágætlega, einkum þó verk Regers, sem endar á reisuleg- um hijómbálki. Ljóst er að nýja orgelið í Bústaða- kirkju á eftir að breyta miklu fyrir allt tónlistarstarf í kirkjunni og stuðla að fjölbreytni í tónleikahaldi en kirkjan er að mörgu leyti heppi- leg til tónleikahalds, þó enduróman- in sé við lægri mörkin. SKUGGSJA BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF MYNDIR ÚR LÉFI PÉTURS EGGERZ, FYRRVERANDI SENDIHERRA GAMAN OG ALVARA PÉTUR EGGERZ Pétur Eggerz segir hér fyrst frá iífi sínu sem lítill drengur í Tjarnargötunni í Reykjavík, þegar samfélagið .var mótað af allt öðrum viðhorfum en nú tíðkast. Síðan fjallar hann um það, er hann vex úr grasi, ákveður að nema lögfræði og fer til starfa f utanríkis- þjónustunni og gerist sendiherra. Pétur hefur kynnst miklum fjölda fólks, sem hann segir frá í þessari bók. KENNARI Á FARALDSFÆTI MINNINGAR FRÁ KENNARASTARFI AUÐUNN BRAGI SVEINSSON Auðunn Bragí segir hér frá 35 ára kennara- starfi sínu í öllum hlutum landsins. Hann greinir hér af hreinskilni frá miklum Qölda fólks, sem hann kynntist á þessum tíma, bæði til lofs og lasts. Hann segir hér frá kennslu sinni og skóiastjórn á fimmtán stöðum, m.a. á Akranesi, Hellissandi, Bol- ungarvík, Ólafsfirði, Skálholti, Kópavogi og í Ballerup í Danmörku. SONUR SÓLAR RITGERÐIR UM DULRÆN EFNI ÆVAR R. KVARAN Ævar segir hér frá faraónum Ekn-Aton, sem dýrkaði sólarguðinn og var langt á undan s.inni samtíð. Meðal annarra rit- gerða hér eru t.d.: Sveppurinn helgi; Haf- steinn Björnsson miðill; Vandi miðilsstarfs- ins; Bréf frá sjúklingi; Miðillinn Indriði Indriðason; Máttur og mikilvægi hugsun- ar; Er mótlæti í lífinu böl?; Himnesk tónlist; Hefur þú lifað áður? Þetta er saga Péturs J. Thorsteinssonar, sem var frumherji f atvinnulífi þjóðarinnar á síðustu áratugum nítjándu aldar og fyrstu áratugum þeirrar tuttugustu; saga manns, sem vann það einstæða afrek að byggja upp frá grunni öflugt sjávarpláss; hetjusaga manns, sem þoldi mikil áföll og marga þunga raun á athafnaferlinum og þó enn meiri í einkalífinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.