Morgunblaðið - 11.12.1990, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAQUfi 11. DESK.MBER 1U!)()
sóst eftir þessari stöðu félli hún til
Borgaraflokksins svo út frá því
sjónarhorni kom það sér ágætlega
að þurfa ekki að tilnefna einn og
skilja sjö jafnhæfa óánægða eftir.
Menn geta þá rétt ímyndað sér
hvott það hafi legið beinast við að
ég hefði verið skipaður.
VII.
Viðbrögð forsætisráðherra sem
og annarra stjórnarliða komu mér
ekkert á óvart eftir að ákvörðun
mín lak út því daginn eftir að ég
hafði ritað forsætisráðherra umrætt
bréf bað aðstoðarmaður hans um
að við hittumst til að ræða efni
bréfsins. Með tilliti til mín fór hann
fram á að ég drægi bréfið til baka
því ég mætti eiga von á því að
ákvörðun mín yrði túlkuð sem
óánægja mín út af bankaráðinu.
Tjáði ég honum að ákvörðun mín
stæði og ég ætlaði ekki lengur að
sitja undir þeirri niðurlægingu sem
samstarfsflokkarnir sýndu Borg-
araflokknum. Minnti ég hann á, á
hvaða forsendu 'eg greiddi fyrir
framgangi frumvarpsins um stjóm
fiskveiða og samtal okkar frá því í
október. A.m.k. gerði ég heiðarlega
tilraun til að fullvissa hann um að
kosningin í bankaráðið væri ekkert
aðalatriði heldur aðeins sýnishorn
af því virðingarleysi sem okkur
væri sýnd af samstarfsflokkunum.
Sagði ég honum að atkvæði mitt
væri ekki lengur til sölu og ég hlyti
að vera maður til að standa við eig-
in ákvarðanir. Ég væri búinn að fá
nóg og ætlaði ekki lengur að sitja
undir því að vera notaður sem gólf-
þurrka af ríkisstjórninni og greiða
atkvæði samkvæmt skipun misvit-
urra ráðherra.
VIII.
Þegar ég rita þessa grein er ég
jafn sannfærður og þegar ég tók
ákvörðun mína að ég hefði átt að
vera búinn að segja skilið við þessa
ríkisstjórn fyrir löngu. í mínum
huga skiptir það engu máli hvort
ríkisstjórnin nýtur vinsælda eða
óvinsælda meðal þjóðarinnar og
hvaða pólitískan hag ég eða minn
flokkur getur notið af því að tengj-
ast henni. Aðalatriðið er hvort ég
eigi samleið með þeim aðilum sem
að ríkisstjórninni standa og tillögur
sem ég eða minn flokkur setur fram
hljóti sömu meðhöndjun og af-
greiðslu og annarra. Á það hefur
vantað í þessu ríkisstjórnarsam-
starfi og þess vegna kæri ég mig
ekki um að tengjast henni á þann
hátt sem ég hef gert. Hvaða ákvörð-
un ég tek á Alþingi verður að ráð-
ast þegar að afgreiðslu þeirra kem-
ur og hvað þjóðarhagur og samvisk-
an býður í hvert og eitt skipti.
Höfundur er formaðurþingflokks
Borgaraflokksins.
Jólatilboð í hádeginu
alla daga í desember
í desember verður sérstakt
jólatilboð í hádeginu.
Forréttur, aðalréttur og eftirréttur, sem hver velur
að vild af seðli dagsins.
Forréttir
Hreindýrapaté með púrtvínslauk
og rifsberjum
Laxaterrine með fennelkryddsósu
Blandaðir sildarréttir á íssalati
Súpa dagsins
Aðalréttir
Gufusoðin rauðsprettuflök með sveppamauki og hvítvínssósu
Eldsteikt stórlúða með blaðlauk
og rjómasauternssósu
Grísarifja með píkantsósu
Gljáður hamborgarhryggur
Nautahryggsneið með perlulauk og fleski
^Eflirréttir
Jólapúns með munngæti
Mocca rjómais
Forréttur, aðalréttur og eftirréttur frá
kr. 995
án þess að slakað sé á gæðakröfunum
Bergstaðastræti 37, sími 91-25700
Stórgóð
jólagjöf
Peugeot borvél
400W m/stiglaus-
um rofa, aftur ó
bak og áfram og
höggi, kr. 5.900.
Peugeot borvél
550W m/stiglaus-
um rofa, aftur á
bak og áfram, é\
höggi og tösku,
kr. 8.900.
Peugeot juðari
tenging f. ryksugu,-
kr. 4.400.
Vönduð verkfæri
HÚSASMIÐJAN
SKÚTUVOGI 16 SÍMI. 687700
29