Morgunblaðið - 11.12.1990, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRBÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1990
„Ertu æstur í
að tala við
þessa valkyiju“
Sérstæð ljóðabók sérstæðrar konu
„ERTU æstur í að tala við þessa valkyrju," sagði Jakobina Þor-
móðsdóttir við blaðamann Morgunblaðsins og hló við þar sem við
sátum á stofugólfinu og töluðum saman um ljóðabók hennar
Horfnir dagar. Hún er likamlega fötluð þannig að hún getur
hvorki setið eðlilega né gengið og hún hvorki heyrir né sér, en
hún talar við fólk með því að hönd hennar er lögð við barkakýli
viðmælenda hennar og hún nemur titringinn af barkakýli manna
og les mál þeirra. Maður þarf ekki að tala lengi við Jakobínu til
þess að skynja að hún er gamansöm, víðsýn og hnyttin í tílsvör-
um. Ljóðabók hennar er fui! af lífsgleði, eins kouar óður til náttú-
runnar, manna og málleysingja og niður fornsagnanna dynur í
mörgum ljóða hennar.
Jakobína fékk hrörnunarsjúk-
dóm, sem kom í ljós þegar hún var
tveggja ára gömul. Smám saman
missti hún sjón, heyrn og jafnvægi
og 17 ára gömul var hún í hjóla-
stól, blind, heyrnarlaus og lömuð.
Hún lærði blindraletur en getur
ekki notfært sér það, þar sem fing-
ur hennar hafa kreppst að lófum.
„Ég yrki ekki daglega og stund-
um líður langur tími á milli þess
sem ég yrki kvæði,“ sagði Jakob-
ína,“ sérstaklega ef ég yrki sögu-
ljóð. Þetta kemur þó í skorpum og
stundum er ég mjög fljót að gera
vsur. Stundum yrki ég eina og eina
linu og svo er að raða þeim sam-
an.“
í ljóðabók hennar eru 65 ljóð,
en bókina er hægt að kaupa með
gírógreiðslum í nær öllum bönkum,
útibúum og sparisjóðum á landinu
og einnig í Pennanum í Reykjavík
sem styrkir framtak skáldkonunn-
ar með því að taka ekki sölulaun.
„Ég er hérna með verndargrip,"
sagði Jakobína og benti á spjótsodd
i bijóstvasa sínum, „og ég á fullt.
koffort af alls konar gömlum hlut-
um sem ég keypti á fornsöiu. Mér
finnst líka skemmtilegast að skrifa
söguljóð, en sem stendur er ég að
skrifa söguljóð um ambátt og þræl
á höfuðbóli. Einnig er ég um þess-
ar mundir að skrifa sögur af kisun-
um mínum, eins konar endurminn-
ingabók þeirra."
Ég bað hana að segja mér eina
sögu og það stóð ekki á því: „Hún
sat í eldhúsglugganum og starfs-
stúlkan sat við eldhúsborðið að
lesa dagblað. Á borðinu var líka
ávaxtaskál full af perum og app-
elsínum. Allt í einu stekkur Embla
á borðið. Hún rakst fyrst á ávaxta-
skálina, skálin valt á hliðina og
ávextirnir út um allt. Svo lenti hún
á blaðinu og rann fram af borðinu
með blaðinu. Embla lenti síðan
beint á maganum á gólfinu og
blaðið undir henni. Það var eins
og að fljúga á töfrateppi. Stúlk-
unni brá en Emblu brá ennþá
meira. Svo fór Embla inn i stofu
að sofa og þá er sagan búin. En
nú þarf ég að spyija þig einnar
spurningar. Skrifaðir þú ekki við-
talið við Aðalheiði í Laugaseli í
Þingeyjarsýslu?“ Ég játti því og
þá sagði Jakobína að það hefði
verið lesið fyrir sig og hún myndi
það. „Ég er svo minnug," hélt hún
áfram og það var magnað að finna
hve allt fas hennar og tjáning var
eðlilegt og óþvingað þrátt fyrir
fötlun hennar.
„Ég er svo mikið náttúrubarn,“
svaraði hún þegar ég hafði á orði
að náttúrustemmningar væru ríkar
í ljóðum hennar. Hún er 28 ára
gömul og sagðist vera byijuð að
skrifa endurminningar sínar, „en
ég tek því rólega," sagði hún, „þótt
ég sé alltaf að skrifa. Ég er búin
að skrifa tvær aðrar ljóðabækur,
í torfbænum og Valkyijan, og svo
endurminningar kisanna minna.
Jú, ég hef skrifað jólaljóð, það er
í þriðju ljóðabókinni minni og er
svona. Um stund sat hún og hugs-
aði málið og fletti upp í tölvunni
sinni eins og móðir hennar, Sigríð-
ur Vilhjálmsdóttir, orðaði það:
Nú dýrkum við álfa og dísir
dýrmætasta hátíðin er.
Skært mánaljós skógarveginn lýsir
sólin hækkar á lofti, því fögnum vér.
Sitja álfarnir allfögrum kertaljosum hjá
inni holtunum sínum í.
Orlagagyðja jólanna svifur himninum á,
eyglóin hækkar á lofti, við fögnurn því.
- á.j.
1
S Metsölublað á hverjum degi!
Ríthöfundar með
pennann á lofti
í verslunum
Eymundsson
Guðmundur.J. Guðmundsson -
Baráttusaga, í Eymundsson í
Austurstræti föstudaginn
7. desember kl. 15-17.
'Tryggvi Emilsson - Blá augu og
biksvört hempa, í Eymundsson
Austurstræti föstudaginn
7. desember kl. 15-17.
Eitiar Már Guðmundsson - Rauðir
dagar, Eymundsson í Kringlunni
föstudaginn 7. desember
kl. 15-17.
Steinunn Sigurðardóttir - Síðasta
orðið, Eymundsson í Kringlunni
laugardaginn 8. desember
kl. 14-15.
Bubhi og Silja Aðalsteinsdóttir -
Bubbi, í Eymundsson í Austur-
stræti, laugardaginn 8. desember
kl. 16-18 og í Eymundsson á
Eiðistorgi sunnudáginn
9. desember kl. 15-17.
Erlingur Þorsteinsson - Ævi-
minningar Erlings Þorsteins-
sonar, í Eymundsson við Hlemm
laugardaginn 8. desember
kl. 14-16.
Megas og Þórunn Valdimarsdóttir -
Sól í Norðurmýri, í Eymundsson
Austurstræti ktugardaginn
8. desember kl. 14-16.
Jón Óttar Ragnarsson - Á bak við
ævintýrið, Eymundsson við
Hlemm föstudaginn 7. desember
kl. 15-17 og Eymundsson í
Kringlunni laugardaginn
8. desember kl. 15-16.
EYMUNDSSON
B Ó_ K A V E R _ _S__ L________________U_ __N
AUSTURSTRÆTI ■ VIÐ HLEMM ■ MJÓDD KRiNGLUNNl ■ EIDISTORGI
91-1888» 91-29311 91-76650 91 687858 91-611700