Morgunblaðið - 11.12.1990, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 11.12.1990, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1990 Sigurður Líndal lagaprófessor á fundi um bráðabirgðalögin: Stjórnmálamcnn hafa ýtt forsetanum til hliðar Þorsteinn Pálsson og Jón Baldvin Hannibalsson vilja af- nema heimild til setningar bráðabirgðalaga BÆÐI Þorsteinn Pálsson formað- ur Sjálfstæðisflokksins og Jón Baldvin Hannibalsson utanrikis- ráðherra lýstu þeirri skoðun yfir á fundi Orators, félags laganema, á Hótel Sögu í gær að afnema ætti heimild til setningar bráða- brigðalaga. Sigurður Lindal próf- essor taldi að umstangið í kjölfar samnings BHMR og ríkissíjórnar- innar sýndi að stjórnmálamenn hefðu ýtt forsetanum til hliðar. Hann færi með löggjafarvaldið þegar Alþingi starfaði ekki en það virtist hafa gleymst. Fram kom hjá Sigurði að hann teldi að forseti íslands hefði getað neitað að gefa út bráðabirgðabirgðalög- in í sumar og hefði forsætisráð- herra þá verið tilneyddur til að kalla þing saman til að fjalla um málið. Þorsteinn Pálsson sagðist telja það hvað alvarlegast í þessu máli að ríkisstjórnin hefði verið búin að ákveða að fella sjálf eigin bráða- birgðalög með því að ijúfa þing og setja þau svo aftur eftir þingrof. I raun væri með þessu verið að fótum troða stjórnarskrá landsins og væri helst að leita samsvörunar í stjórn- artíð J.B.S. Estrups í Danmörku seint á síðustu öld en óhófleg notkun bráðabirgðalaga þá hefði leitt til þess að heimild til slíkrar lagasetn- ingar hefði verið þrengd. Jón Bald- vin mótmælti því að setja hefði átt sömu bráðabirgðalögin á ný því um hefði verið að ræða víðtækari lög sem fryst hefðu allar kauphækkanir Sjö ára drengs var saknað: Fannst um miðja nótt í fylgd með fullorðn- um manni SJÖ ára drengs var leitað Reykjavík á laugardagskvöld. Hann fannst á fjórða tímanum að morgni sunnudags í fylgd með manni á þrítugsaldri sem er vanþroskaður andlega og hafði hann verið að ferð með drenginn frá því um klukkan sex daginn áður. Drengurinn fór að heiman frá sér við Njáisgötu síðdegis ásamt bekkjarsystur sinni sem býr við Laugaveg, að heimili hennar. Þegar hann var ekki kominn heim og hafði ekki fundist um klukkan ellefu að kvöldi hringdi móðir hans ájögreglu sem þegar hóf leit auk. í ljós kom að dreng- urinn og telpan höfðu hitt mann þennan á leið að heimili hennar. Laust eftir klukkan hálfþrjú sá hjálparsveitarmaður til ferða manns við Barónsstíg ásamt ungum dreng sem kom heim og saman við lýsingu á þeim sem saknað var. Maðurinn var hand- tekinn og drengurinn færður móður sinni og í læknisskoðun. Niðurstöður hennar þóttu ekki benda til að hann hefði orðið fyrir miska eða beðið varanlegt tjón af. Maðurinn, sem haldið hafði drengnum hjá sér þennan tíma, er andlega vanþroskaður, að sögn lögreglu. Hann var í vörslu lögreglu en var látinn laus að loknum yfirheyrslum. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Þorsteinn Pálsson í ræðustól á fundi Orators, félags laganema, í gær. fram yfir kosningar. Sigurður Líndal sagði að ekki væri óeðlilegt að sett væru slík bráðabirgðalög að loknu þingrofi, sem tæki giidi um leið og þingrofsboðskapurinn, þótt spyija mætti hvort þingrofsheimildin væri of víðtæk. Þorsteinn sagðist telja að öll lög í landinu þyrftu að styðjast við sið- ferðisvitund almennings og þá kröfu yrði að sjálfsögðu einnig að gera til bráðabirgðalaga. í sumar hefði ríkis- stjórnin notað lagasetningarvald sitt til að fella hluta samnings úr gildi sem hún hefði sjálf gert. Einnig væri í raun verið að hnekkja niður- stöðu dómstóls, það er að segja Fé- lagsdóms. Ljóst hlyti því að vera að bráðabirgðalögin færu í bága við almenna siðferðisvitund. Þorsteinn fann lögunum það einnig til foráttu að Alþingi hefði setið heilan vetur án þess að ríkisstjórnin sæi ástæðu til að breyta samningnum við BHMR með lögum og þó hefði stjórnarand- staðan margspurt hana um það hvort þjóðarsáttarsamningamir gæfu ekki tilefni til þess. Einnig hefði nýlega komið á daginn að þeim upplýsingum hefði vérið haldið leyndum fyrir Alþingi að ríkisvaldið hefði samið við aðila vinnumarkaðar- ins bak við tjöldin um að fella BHMR-samningana úr gildi. Jón Baldvin mótmælti þessu og sagði að hann og aðrir ráðherrar hefðu spurt forsætisráðherra og íjármála- ráðherra á ríkisstjórnarfundi hvort ekki væri tilefni til að endurskoða BHMR-samninginn eftir febrúar- samningana og hefðu báðir svarað því til að það væri skilningur ijár- málaráðuneytisins og BHMR að. umrædd hækkunarákvæði samn- ingsins frá því í maí 1989 kæmu ekki til framkvæmda ef þau röskuðu kjörum á almennum vinnumarkaði. Sagði utanríkisráðherra að lögfræð- ingar í þjónustu ríkisins sem leitað var til hefðu tekið undir þetta. Þorsteinn sagði að hingað til hefðu stjórnvöld hlutast til um breyt- ingu á kjarasamningum með al- mennum hætti, þ.e.a.s. afnumið samningsbundnar verðbætur, fram- lengt kjarasamninga eða bannað verkfall og sgtt mál í gerð. í BHMR- samningnum væri hins vegar um sérstakt inngrip að ræða sem beind- ist gegn afmörkuðum hópi og væri slíkt vafasamt því lög ættu að hafa almennt gildi. Sú spurning vaknaði hvort ákvæði samninga ASÍ um hækkun launa ef aðrir hópar hækk- uðu stæðust fyrst BHMR-menn mættu ekki semja um slíkt. Jón Baldvin sagðist líta svo á að bráða- birgðalögin hefðu almennt gildi því ASI og VSÍ höfðu lýst því yfir að 4,5% hækkun launa til handa BHMR myndi ganga yfir alla línuna. Afnám .Jiækkunarinnar hefði því komið jafnt niður á öllum. Jón Baldvin sagðist telja þá skoðun fráleita sem fram hefði komið hjá lögfræðingi BHMR að leyfa hefði átt hækkunina til BHMR en setja bráðabirgðalög á afgang landsmanna. Þá fyrst hefði allt farið í bál og brand. Jón Bald- vin sagðist ekki geta tekið undir það að lög hefðu verið sett á dóm heldur hefði samningi, sem væri réttar- heimild, verið breytt og þarmeð for- sendu dómsins. Sigurður Líndal sagðist álíta að að formi til væri ekki um það að ræða að lög hefðu verið sett á dóm. í reynd væri hins vegar óneitanlega miðað á þennan sérstaka samning þótt óbeint hefðu lögin áhrif á alla launþega. Þorsteinn sagði að hann teldi tímabært að afnema heimild til setn- ingar bráðabirgðalaga. Jón Baldvin tók undir þá skoðun. Sigurður Líndal sagðist seint þreytast á að benda á að framkvæmdavaldið færi ekki með vald til setningar bráðabirgðalaga heldur væri það forseti íslands sem hefði það vald þegar Alþingi starf- aði ekki. Samkvæmt stjórnarskránni hefði forsetinn það aðalhlutverk að veija stjórnarskrána en stjórnmála- menn væru búnir að ýta honum til hiðar. Sigurður gerði einnig að um- talsefni þá skoðun manna að í stjórn- skipun Island vantaði ráðherra sið- ferðilegt aðhald. Sigurður taldi þetta ekki rétt því til væri nokkuð sem héti ábyrgð ráðherra. Þar væri um refsiábyrgð að ræða, ábyrgð gagn- vart Alþingi og í þriðja lagi gagn- vart kjósendum. Einhvern veginn hefði þetta þó orðið útundan og í öllum nágrannalöndum hefði fjár- málaráðherra sagt af sér við svipað- ar aðstæður og skapast hefðu í kjöl- far samningins við BHMR. Og hann ætti í öllu falli að gera það ef bráða- birgðalögin reyndust ekki hafa meirihlutastuðning á Alþingi. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Eitt atriða úr leikritinu Sand- greifarnir. V estmannaeyjar: Sandgreif- ar á sviði V estmannaeyj um. LEIKFÉLAG Vestmannaeyja frumflutti fyrir skömmu nýtt íslenskt leikrit, Sandgreifana, eftir Björn Th. Björnsson í leik- gerð Agústs Hauks Jónssonar. Leikritið byggir á æskuminn- ingum Björns frá Eyjum og er leikgerð Ágústs Hauks frum- raun hans á því sviði og er hann jafnframt leikstjóri. Leikgerðin er byggð upp á frá- ■ sögn sögumanns sem tengir saman marga stutta þætti. Sögusviðið er Vestmannaeyjar á árunum upp úr 1930 og aðalpersónurnar strákar sem eru að slíta barnsskónum. Fjall- að er um ýmis uppátæki þeirra og hvernig þeir höfðu ofan af fyrir sér. Flest hlutverkin eru í höndum barnungra leikara sem fara á kost- um og skila hlutverkum sínum með prýði. Aðalpersónuna, Bidda Björns, leikur Guðmundur H. Guðjónsson. Hann er á sviðinu nær alla sýning- una og skilar hlutverki sínu sérlega vel Áhorfendur þeir sem lögðu leið sína í Bæjarleikhúsið skemmtu sér konunglega og voru á einu máli um ágæti sýningarinnar. Grímur '© INNLENT Ólafur Ólafsson, landlæknir: Meðferð geðsjúkra fanga til hneisu Landlæknir gerir sér ekki grein fyrir þeim mun sem er á öryggisgæzlu og meðferð á almennum geðdeildum, segir Tómas Helgason ÓLAFUR Ólafsson, landlæknir, kemst þannig að orði í grein í nýjasta hefti Læknablaðsins að meðferð geðsjúkra afplánunarfanga og örygg- isgæslufanga hér á landi sé til mikillar hneisu. Segir hann dæmi þess að „fárveikir geðsjúkir öryggisgæslufangar hafa orðið að dúsa í illri fangelsiseinangrun í 10 til 20 ár án nægilegrar geðlæknismeðferðar ög hjúkrunar.“ Tómas Helgason geðlæknir segir aftur á móti að land- læknir geri sér ekki grein fyrir þeim mun sem er á öryggisgæslu og meðferð á almennum geðdeildum. Landlæknir segir íslendinga, eina Norðurlandaþjóða, ekki bjóða um- ræddu fólki annað en fangelsisvist- un. Hann segist oft hafa orðið að aðstoða dómsyfirvöld við að fá pláss „fyrir fárveika, geðsjúka fanga (sjúkdómsgreinda af íslenskum geð- læknum) á norrænum geðdeildum. Sem dæmi um hvað erlendir kollegar álíta um meðferð okkar hefur það nokkrum sinnuin komið fyrir að sjúklingar hafa ekki verið sendir aftur til íslands þó að þeir hafi ver- ið álitnir útskriftarfærir, þar eð við höfum ekki haft önnur hús að bjóða en fangelsi! Kollegar okkar erlendis hafa því kosið að vista þá áfram.“ Ólafur segir: „Sú stefna, sem prófessor Tómas Helgason [yfir- læknir á Kleppi] er meðal annars fulltrúi fyrir, að neita alfarið geð- sjúkum öryggisgæsluföngum um nauðsynlega vistun á geðdeildum, hefur valdið þessari hneisu." Land- læknir segir ennfremur að Tómas „virðist jafnvel afneita sjúkdóms- greiningum íslenskra geðiækna og telja að þessir „geðsjúku afbrota- menn“ séu ekki sjúkir . . .“ Ólafur segir að varðandi sjálf- stæði lækna um útskrift megi benda á að „ef sjúkum fanga í öryggis- gæslu heilsast betur mun það koma fram í áliti lækna og þá ekkert þvi til fyrirstöðu að dómsmálayfiivöld losi um fangann. Þetta kerfi við- gengst á geðsjúkradeildum í ná- grannalöndum og ætti að duga okk- ur líkt og þeim.“ Morgunblaðið leitaði álits Tómas- ar Helgasonar prófessor á grein landlæknis, í fréttabréfi lækna 1. desember síðastliðinn. Tómas sagði: „Landlæknir gerir sér ekki grein fyrir þeim mun sem er á öryggis- gæslu og meðferð á almennum geð- deildum. Hann heldur greinilega að það sé af illmennsku sem læknar geðdeildanna vilji ekki taka við þeim, sem hafa verið dæmdir til öryggis- gæslu eða öðrum úr fangelsum nema dómi sé aflétt. Öryggisgæsla krefst aðstöðu og mannafla, sem ekki er fyrir hendi á almennum geðdeildum og á ekki að vera vegna þess að slíkur búnaður eyðileggur meðferða- rumhverfi deildanna," segir Tómas Helgason. „Ekki hefur staðið á þjón- ustu geðlækna við þá sem dvelja í fangelsum þegar eftir hefur verið leitað. Hins vegar hafa yfirvöld ekki enn komið upp sérstökum deildum sem þarf fyrir öryggisgæslu og þar af leiðandi verið óánægja með þjón- ustuna. Islenskir geðlæknar liafa gert til- lögur um hvernig ætti að búa að mönnum sem dæmdir hafa verið í öryggisgæslu vegna geðtruflana og þeim sem hafa truflast í fangelsi og ekki er hægt að sleppa úr afplánun. Má hér minna á tillögur sem nefnd undir forystu Ingvars Kristjánssonar gerði á árinu 1982. Eru þær svipað- ar tillögum sem áður hafa verið gerðar. Tillögurnar gerðu ráð fyrir að þeir sem hlut ættu að máli fengju nauðsynlega meðferð og umönnun meðan á gæslunni stæði við aðstæð- ur sem ekki spilltu fyrir þeim mikla fjölda sem þarf á aðstoð almennu geðdeildanna að halda. Því miður hefur ekki verið farið eftir þessum tillögum svo að mál þessa fólks eru enn í sama ólestri og verið hefur. Vonandi verður nú tekið til hendi og bætt úr þessum vanda án þess ' að gengið verði á þjónustu almennu geðdeildanna eins og ýjað hefur verið að.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.