Morgunblaðið - 11.12.1990, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1990
43
10 daga almannavama-
æfíngu lauk uni helgina
10 DAGA æfingn á vegum Almannavarna ríkisins og átta almanna-
varnanefnda hinna 16 sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Suð-
urnesjum lauk á laugardag. Tilangurinn var að kanna skipulag
og virkni Almannavarnakerfisins og þjálfa yfirfmenn kerfisins í
að starfa vð óvissuástand. Mest mæddi á 125 manns en hundruð
annarra komu einnig að málinu á ýmsum stigum æfingarinnar, sem
var umfangsmikil og náði til tuga verkþátta og skipulagsatriða.
Gengið var út frá því þessa daga
að orðið hefði vart aukinnar
skjálftavirkni og sprunguhrejrfinga
á sprungusvæði frá Kleifarvatni
og að Þingvallavatni. Eftir átta
daga af skjálftum og sprungu-
hreyfingum brytist út eldgos.
„Þetta er virkt svæði og það var
talin fræðilegur möguleiki á þess-
um umbrotum, sem voni sett upp
á svipaðan hátt og umbrotin í
Myvantssveit 1975-1984,“ sagði
Guðjón Petersen forstjóri Al-
mannavarna ríkisins. „Við gátum
ekki séð annað en allir meginþætt-
ir gengju upp en ýmis praktísk
atriði þarf að fínpússa í samstarfi
milli þessara 16 sveitarfélaga, auk
ijölda opinberra stofnana og einka-
fyrirtækja, eins og til dæmis Flug-
leiða.“
Guðjón sagði að ekki hefði verið
miðað við mannfall í eldgosinu.
Þótt mannvirki gætu skemmst af
skjálftavirkni yrði það ekki í þeim
mæli að mannslífum stafaði hætta
af. „Þetta hefði hins vegar ýmis
konar óþægindi í för með sér, raf-
magn, hiti og sími færi af, truflan-
ir yrðu á samgöngum, meðal ann-
ars gæti Reykjanesbraut skemmst,
og viðbrögð og varnir voru æfð,“
sagði Guðjón. Hann sagði meðal
annars að í áætlunum manna hefði
Akraborgin verið tekin af núver-
andi siglingarleið og breytt í
Keflavíkurfeiju eftir að sérstök
byrggja hafði verið byggð undir
hana í Keflavík á nokkrum klukku-
stundum. Þá var allt til reiðu til
að taka í gagnið tugi jarðýtna, og
stórvirkra véla til að ýta upp varn-
argörðum og verja mannvirki
hraunrennsli frá „eldgosinu,“ tvo
síðustu daga æfingarinnar.
Næsta æfingaverkefni Al-
mannavarna ríkisins verður, að
sögn Guðjóns Petersen, tengt Suð-
urlandsskjálfta og unnið í samráði
við heimamenn í héraði. Gagnvart
vá af því tagi gegndi nokkuð öðru
máli en þá sem nú hefðu verið
æfðar varnir gegn, þar sem ekki
væri unnt að búast við viðvöruna-
rtíma áður en Suðurlandsskjálfta
yrði vart og því mundi slysahjálp
og aðhlynning gegna þýðingar-
meira hlutverki í almannavörnum.
Steinunn Sigurðardóttir, rithöfundur, tekur við viðurkenningu fyrir
bók sina Síðasta orðið úr hendi Þórarins Guðnasonar, formanns
dómnefndar um fagurbókinenntir. Allir liöfundarnir fimmtán fengu
slíka viðurkenningu.
*
Islensku bókmenntaverðlaunin 1990:
Fimmtán bækur
eru tilnefndar
FISKVERÐ AUPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
10. desember.
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 118,00 75,00 112,83 20,306 2.291.121
Þorskur(óst) 101,00 81,00 97,06 1,681 163.253
Smáþor.(ósl) 74,00 70,00 72,79 0,769 55.978
Smárþor. 84,00 84,00 84,00 0,634 53.256
Ýsa 130,00 92,00 126,43 6,251 790.305
Ýsa (ósl.) 111,00 71,00 94,45 4,286 404.806
Smáýsa (ósl.) 65,00 65,00 65,00 0,065 4,225
Smáýsa 59,00 59,00 59,00 0,007 413
Lýsa (ósl) 54,00 54,00 54,00 0,072 3.888
Blandað 65,00 65,00 65,00 0,618 40.170
Hlýri 70,00 70,00 70,00 0,106 7.420
Ufsi (ósl.) 20,00 20,00 20,00 0,053 1.060
Langa (ósl.) 71,00 71,00 71,00 0,448 31.809
Steinb.(ósL) 74,01 74,00 74,00 0,682 50.468
Keila (ósl.) 44,00 40,00 41,13 3,381 139.080
Ufsi 44,00 44,00 44,00 0,189 8.316
Steinbítur 79,00 79,00 79,00 0,239 18.882
Lúða 400,00 305,00 364,60 0,415 151.486
Langa 76,00 66,00 72,63 1,130 • 82.145
Keila 50,00 42,00 45,92 0,848 38.936
Karfi 49,00 49,00“ 49,00 0,154 7.546
Samtals 102,62 42,336 4.344.563
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 120,00 84,00 105,78 33,722 3.567.271
Þorskur(ósL) 89,00 76,00 88,71 1,104 97.931
Þorskursmár 85,00 85,00 85,00 0,160 13.600
Ýsa 133,00 87,00 119,25 11,624 1.386.239
Ýsa (ósl.) 96,00 45,00 77,06 7,791 600.406
Karfi 70,00 60,00 62,83 0,844 53.028
Ufsi 47,00 43,00 45,51 7,034 320.113
Steinbítur 80,00 68,00 74,13 0,412 30.540
Langa 90,00 62,00 85,31 1,721 146.826
Lúða 410,00 305,00 380,42 0,441 167.765
Skarkoli 65,00 65,00 65,00 1,936 125.840
Sólkoli 103,00 103,00 103,00 0,110 11.330
Keila 46,00 35,00 38,79 1,754 68.029
Saltfiskflök 220,00 190,00 0,0 0,0 1.500
Skata 70,00 70,00 70,00 0,053 3.710
Lýsa 50,00 45,00 45,72 1,729 79,045
Blandað 25,00 25,00 25,00 0,240 6.000
Blandað 53,00 15,00 38,62 0,284 10.968
Undirmál 85,00 48,00 80,04 1,991 159.356
Samtals 93,85 72,951 6.846.498
Olíuverö á Rotterdam-markaöi, síöustu tíu vikur,
28. sept. - 7. des., dollarar hvert tonn
SVARTOLIA
H---1—I----1—I----1—I---1---1—I----(—
28.S5.0 12. 19. 26. 2.N 9. 16. 23. 30. 7.D
■ ÁRSRIT Útivistar 1990, hið
16. í röðinni, er komið út. I ritinu
eru að þessu sinni fimm greinar
með efni af Suðurlandi og Vest-
fjörðum. Þorvaldur Búason og
Gísli Kristjánsson, báðir ættaðir
fra' Hvallátrum, rita grein um
gönguleiðir í Rauðasandshreppi.
Gísli Hjartarson heldur áfram
leiðalýsingum sínum um friðlandið
á Hornströndum. Að þessu sinni
fjallar hann um gönguleiðina Hest-
eyri-Aðalvík-Hornvík og eru Aðal-
vík gerð sérstök skil, einkum her-
setu Bandamanna á Sæbóli og á
Straumnesfjalli. Lýður Björnsson
sagnfræðingur ritar grein með
þjóðsöguívafi um Gedduvatn á Þor-
skafjarðarheiði. Jóhann G. Guðna-
son í Vatnahjáleigu í Landeyjum
segir frá ferð á Eyjafjallajökul árið
1935 og Albert Jóhannsson kenn-
ari á Skógum lýsir leiðinni yfir
Fimmvörðuháls og meðfram
Skógá. Loks segir Haukur Jó-
hannesson jarðfræðingur frá nýja
Jarðfræðikortinu í stuttu máli og
félagsmálin fá_ að venju rými í bó-
karlok. Ársrit Útivistar 1990 er 140
blaðsíður prýtt fjölda litmynda.
Útgefandi er ferðafélagið Útivist
en litgreiningu, filmuvinnu, prent-
un og bókband annaðist Prent-
smiðjan Oddi. Ritstjóri er Ingi-
björg S. Ásgeirsdóttir.
FIMMTAN íslenskar bækur, 7 handbækur, fræðirit, frásagmr o.fl.
og 8 íslenskar skáldsögur, voru tilnefndar til íslensku bókmennta-
verðlaunanna 1990 við hátíðlega athöfn í Listasafni Islands í gær.
Skipuð hefur verið lokadómnefnd til að velja þær tvær bækur, eina
úr hvorum flokki, sem hljóta munu verðlaunin. Vigdís Finnbogadótt-
ir, forseti íslands, afhendir íslensku bókmenntaverðlaunin 1990 eigi
síðar en 15. febrúar á næsta ári. Þær bækur sem hér eru tilnefndar
voru ásamt öðrum bókum lagðar
höfunda.
Eftirtaldar handbækur,
fræðibækur, frásagnir o.fl. hafa
verið tilnefndar til íslensku bók-
menntaverðlaunanna 1990: ís-
lenskar fjörur eftir Agnar Ingólfs-
son, Hraunhellar á íslandi eftir
Björn Hróarsson, Perlur í náttúru
íslands eftir Guðmund P. Ólafsson,
Skálholt 11-Kirkjur eftir Ilörð
Ágústsson, Islensk samtíð 1991 er
Vilhelm G. Kristinsson ritstýrði,
íslenska kynlífsbókin eftir Óttar
Guðmundsson og Islenska alfræði-
orðabókin. Tilnefningu síðastt-
öldu bókarinnar fylgir eftirtalinn
rökstuðningur dómnefndar:
„Íslenska alfræðiorðabókin er að
hluta til frumsamið verk, að hluta
til þýtt. Verkið er að mati nefndar-
innar mikilvægur áfangi í útgáfu
handbóka á íslensku og hinn frums-
amdi hluti er veigamikill. Með vísun
til þess tilnefnir dómnefndin verkið
tilíslensku bókmenntaverðalaun-
anna.“
Eftirtaldar fagurbókmenntir
hafa verið tilnefndar til verðlaun-
fram af forlögunum í samráði við
anna: Meðan nóttin líður eftir Fríðu
Á. Sigurðardóttur, Svefnhjól eftir
Gyrði Elíasson, Vegurinn upp á fjal-
lið eftir Jakobínu Sigurðardóttur,
Fótatak tímans eftir Kristínu Lofts-
dóttur, Einn dag enn eftir Kristján
Árnason, Hversdagshöllin eftir Pét-
ur Gunnarsson, Nautnastuldur eftir
Rúnar Ilelga Vignisson og Síðasta
orðið eftir Steinunni Sigurðardótt-
ur.
í lokadómnefnd íslensku bók-
menntaverðlaunanna sitja: Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir, tilnefnd af
Félagi íslenskra bókaútgefenda,
Helga Kress, bókmenntafræðingur,
tilnefnd af Háskóla íslands fyrir
hönd forseta íslands, Snorri Jons-
son, tilnefndur af Alþýðusambandi
íslands, Dóra Thoroddsen, tilnefnd
af Bandalagi starfsmanna ríkis og
bæja og Pálmi Gíslasson, tilnefndur
af Ungmennafélagi íslands.
Nefndin mun skila áliti sínu
snemma á næsta ári og verða verð-
launin afhent eigi síðar en 15. fe-
brúar.
Stjórn Hraunprýði. Sitjandi frá vinstri: Ragnheiður Aðalsteinsdóttir gjaldkeri, Ester Kláusdóttir forn,.
og Engilráð Óskarsdóttir ritari. Aftari röð f.v.: Þórunn Óskarsdóttir, Þorbjörg Ólafsdóttir, Sólveig
Eyjólfsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Hera Guðjónsdóttir og Ingveldur Einarsdóttir.
Slysavarnadeildin Hraunprýði
í Hafnarfirði á 60 ára afmæli
HINN 17. desember nk. eru 60
ár liðin frá stofnun Hraunprýði,
slysavarnadeildar kvenna í Hafn-
arfirði. Þessara tímaiiióta verður
minnst með afmælisfundi í dag,
þriðjudaginn 11. desember, í
veitingaliúsinu Skútunni í Hafn-
arfirði og hefst. afmælishátíðin
kl. 20.00.
í tilefni afmælisins gefur Hraun-
prvði út afmælisrit sem dreift verð-
ur til allra íbúa í Hafnarfirði á
næstu dögum.
Fyrsti formaður Hraunprýði var
Sigríður Sæland, ljósmóðir, en
stofnfélagar voru um 50. Lengst
gegndi formennsku í deildinni, eða
á þriðja áratug, Rannveig Vigfús-
dóttir. Núverandi formaður er Ester
Kláusdóttir og eru félagskonur hátt
í sjö hundruð.
Hraunpiýði var önnur kvenna-
deild Slysavarnafélagsins sem
stofnuð var hérlendis. Deildin hefur
alla tíð starfað af miklum krafti og
lagt fram dijúgan skerf til slysa-
varnarmála í landinu. M.a. stóð
deildin fyrir því á sínum tíma að
Björgunarsveit Hafnarfjarðar var
stofnuð og hefur stutt dyggilega
við bakið á björgunarsveit Slysa-
varnafélagsins i Hafnarfirði, Fiska-
kletti, frá þvi að hún var endurreist
fyrir 25 árum.