Morgunblaðið - 11.12.1990, Blaðsíða 48
Pi- ' oeet xmu3sm n fluo/a'jjfliflv <ngAjfíHgnHCM
48 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1990
Útgerðarfélag Akureyringa:
Sala hlutabréfa á almenn-
um markaði hófst í gær
SALA hlutabréfa á almennum markaði í síðara hlutafjárútboði
Útgerðarfélags Akureyringa á þessu ári hófst í gær. Seld verða
bréf fyrir rúmlega 33,4 milljónir króna að nafnvirði, en sölu-
gengi þeirra er 3,6. Stjórn félagsins hefur ákveðið að einstakir
kaupendur geti skráð sig fyrir kaupum á hlutafé fyrir eina millj-
ón króna að nafnvirði að hámarki. Tekið verður við óskum um
kaup hlutabréfa í þessari viku, eða fram til föstudagsins 14. desem-
ber. Aðalsöluaðilar eru Kaupþing hf. Reykjavík og Kaupþing
Norðurlands á Akureyri.
Rekstrarhagnaður félagsins
fyrir. afskriftir og fjármagnsliði
fyrstu 9 mánuðum ársins er 290
milljónir króna, en endanlegur
hagnaður félagsins á tímabilinu
er 160 milljónir, e_ða sem svarar
til 11% af tekjum. Á sama tímabili
í fyrra var hagnaður 92 milíjónir
króna eða 7% af tekjum, hagnað-
urinn hefur því aukist um 68 millj-
ónir. Lægri. fjármagnskostnaður
er aðalskýringin á auknum hagn-
aði. Rekstur félagsins hefur batn-
að á milli áranna 1989 og 1990.
Útgerðarfélagið á og rekur sjö
togara, fyö frystiskip og fimm
ísfisktogara, en ráðgert er að
leggja einum þeirra, Sólbak EA-
305, á næsta ári, en félagið keypti
Aðalvík KE fyrr á árinu fyrir 450
milljónir króna. Var það gert til
að auka kvóta félagins, en eftir
að Sólbak EA-305 verður lagt og
kvóti hans færður yfir á önnur
skip félagsins eykst heildarkvóti
þess um 10% frá því sem var í
byijun árs.
Á aðventukvöldi
Stöllurnar Helga Júlíusdóttir og Lilja Birgisdóttir aðstoðuðu við at-
höfn á aðventukvöldi í Glerárkirkju á sunnudagskvöld. Aðventukvöld
voru haldin í báðum kirkjunum á Akureyri, Glerárkirkju og Akur-
eyrarkirkju, og sækja þau jafnan fjölmargir bæjarbúar. Sú hefð hef-
ur skapast á aðventukvöldum í Glerárkirkju að tendra kertaljós í lok
samkomunnar, en mvndin var einmitt tekin við það tækifæri.
Leikfangalista
dreift á Norðurlandi
Leikfangamarkaðurinn París við
Hafnarstræti 96 á Akureyri hef-
ur sent frá sér leikfangalistann
1990. í listanum eru litmyndir
af.um 140 leikföngum.
TISSOT
GÆÐIOG
GLÆSILEIKI
Listanum hefur verið dreift um
Norðurland, frá Siglufirði til
Vopnafjarðar. Til að ná fram hag-
stæðu verði hafa verið gerð sameig-
inleg magninnkaup nokkurra aðila,
álagning bæði heild- og smásala
hefur verið lækkuð og flutnings-
gjöld eru hagstæð.
Sama verð er á vörunum á Akur-
eyri og í Reykjavík, en verslunin
tekur á sig flutningskostnaðinn af
álagningu sinni. íbúar utan Akur-
eyrar geta fengið vörurnar í póst-
kröfu eða greitt með greiðslukorti
símleiðis.
Að lesa og brosa
Fjölmargir lögðu leið sína í Samkomuhúsið á Akur-
eyri á laugardaginn, en þar var flutt dagskráin Les-
um og brosum, samfelld bókmenntadagskrá sem
efnt var til í tilefni af ári læsis sem nú stendur yfir.
Börn af dagheimilum og leikskólum sungu og grunn-
skólanemar lásu upp. Félagar úr Leikfélagi Akur-
eyrar lásu úr Gullna hliði Davíðs Stefánssonar og
Leikklúbburinn Saga sá um leiklestur sögunnar
Mjallhvít og dvergarnir sjö. Grunnskólanemar tóku
einnig Jiátt í dagskránni og á myndinni hér til hlið-
ar er Olafur Arnar Pálsson nemandi í Lundarskóla
að lesa „Skemmtilegt er myrkrið“ úr þjóðsögum
Jóns Árnasonar. Fyrir aftan hann sitja: Halldór
Arason, Ása Vala Þórisdóttir, Berglind Ragnarsdótt-
ir og Björk Jónsdóttir. Á stærri myndinni eru börn
að skoða myndir sem nemendur úr Myndlistarskólan-
um gerðu í tilefni Árs læsis.
j
* & 4 i
v N t s\ I. '
'WmMM \ 1 *•
' Morgunblaðið/Rúnar Þór
A * * #
Hraðfrystihús Olafsfjarðar og UtgerðarfélagOlafsfjarðar;
Sæberg kaupir hlutabréf
bæjarins í fyrirtækjunum
Fyrirtækið hefur eignast um 70% í HÖ
SKRIFAÐ verður undir samninga um sölu hlutabréfa Ólafsfjarðar-
bæjar í Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar og Útgerðarfélagi Ólafsfjarð-
ar í dag, þriðjudag, en kaupandi hlutabréfa bæjarins er Sæberg
hf. í Ólafsfirði. Sæberg keypti á föstudag hlutabréf Hlutafjársjóðs
í þessum félögum. Fyrirtækið gerir út togarana Sólberg og Mána-
berg.
Ólafsfjarðarbær átti um 17% í
Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar og um
30% í Utgerðarfélagi Ólafsfjarðar.
Hlutaíjársjóður átti um 49% hlut
í HÓ. Eftir kaupin á hlutabréfum
sjóðsins og bæjarins hefur Sæberg
eignast um 70% í Hraðfrystihúsi
Ólafsfjarðar, en fyrirtækið átti
tæp 5% í félaginu fyrir. Þau 30%
sem eftir standa eru í eigu margra
smærri hluthafa, en Trygginga-
miðstöðin er þeirra stærstur, á 5%.
Bjarni Kr. Grímsson bæjarstjóri
í Ólafsfirði sagði að sala hluta-
bréfa bæjarins í fyrirtækinu væri
liður í heildarlausn varðandi mál-
efni fyrirtækjanna og með henni
væri ákveðinni óvissu eytt. Menn
vonuðu að með þessari sölu yrði
styrkari stoðum rennt undir at-
vinnulífið í bænum.
„Við teljum Ólafsfjarðarbæ í sjálfu
sér ekki eiga að taka þátt í at-
vinnurekstri .hér í bænum, sveitar-
félögin í landinu hafa verið á fullu
inni í atvinnurekstri með misjöfn-
um árangri og fengið á stundum
fyrir ferðina. Að því leytinu erum
við með hreinna borð þegar einka-
fyrirtæki vill taka á sig þessa
ábyrgð og hefur til þess burði.
Gunnar Sigvaldason fram-
kvæmdastjóri Sæbergs sagði að
menn væru með ýmis áform í
huga varðandi uppbyggingu fyrir-
tækisins í framtíðinni, en endan-
legar ákvarðandir hefðu ekki verið
teknar þar um. Við kaup á hluta-
bréfum Hlutaíjársjóðs í fyrirtæk-
inu var gert samkomulag um að
Sæberg auki hlutafé í Hraðfrysti-
húsi Ólafsfjarðar um 50 milljónir
á næstu tveimur árum. HO er
aðaleigandi Útgerðarfélags Ólafs-
fjarðar, sem gerir út togarann
Ölaf Bekk, en félagið á einnig
frystihús, rækjuverksmiðju og
mjölverksmiðju.
iHer inn á lang
JL flest
heimili landsins!