Morgunblaðið - 11.12.1990, Blaðsíða 70
70
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1990
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
VALDIMAR RANDRUP,
áðurtil heimilis í Bröttukinn 12, Hafnarfirði,
andaðist á elliheimilinu Grund aðfaranótt 8. desember.
Börn, tengdabörn og barnabarn.
t
Ástkær móðir og tengdamóðir,
KRISTÍN JESPERSDÓTTIR,
Suðureyri,
andaðist í Landakotsspítala laugardaginn 8. desember.
Kristján Normann, Gréta Þórs.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR GUNNARSDÓTTIR,
áður Bræðraborgarstíg 55,
lést að morgni 9. desember í hjúkrurlarheimilinu Skjóli.
Börn, tengdabarn,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir og tengdamóðir,
SVAVA SVEINSDÓTTIR,
lést sunnudaginn 9. desember sl.
Magnús G. Rristjánsson,
Ásgeir H. Magnússon, Jóna Sigurðardóttir,
Jón Hákon Magnússon, Áslaug G. Harðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
STEINDÓR KRISTINN STEINDÓRSSON
skiþaafgreiðslumaður,
Hólmagrund 7,
Sauðárkróki,
andaðist í Sjúkrahúsi Skagfirðinga,.Sauðárkróki, 8. desember.
Sólrún Steindórsdóttir,
Kári Steindórsson,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Þórir Aðalsteins-
son - Minning
Fæddur 1. janúar 1968
Dáinn 3. desember 1990
Jólin nálgast og minningin um
fæðingu frelsarans er í algleym-
ingi. Undirbúningur jólanna er haf-
inn og einstaklingar hlakka til að
eiga ánægjuleg jól í faðmi íjölskyld-
unnar. Framtíðin virðist vera björt
og allir kætast. Á einu augnabliki
getur þó öll þessi mikla gleði snúist
upp í andstæðu sína. Framtíðará-
form hrynja og heimurinn er ekki
sá sami og fyrr.
Mánudaginn 3. desember fórst í
hörmulegu slysi góðvinur okkar,
Þórir Aðalsteinsson.
Þóri kynntumst við haustið 1984
þegar við allir hófum nám við Versl-
unarskóla íslands. Fljótlega tókst
með okkur vinskapur sem haldist
hefur síðan. í okkar hópi var Þórir
jafnan fulltrúi gleðinnar og fram-
taksseminnar. Þó svo að Þórir hafí
verið rólegur og yfirvegaður að
eðlisfari var ætíð stutt í góða kímni.
Ófáar eru þær gleðistundir sem við
áttum saman.
■Þórir var einn af þeim mönnum
sem vilja hafa mörg járn í eldinum
og alla möguleika opna. Lýsir það
honum vel að jafnhliða flugmanns-
námi sínu var hann að vinna og
viðloðandi nám við Háskóla íslands.
Nú þegar okkur verður hugsað
til baka koma upp í hugann, hver
á fætur annarri, minningarnar og
minningabrotin um þær stundir sem
við áttum með Þóri. Okkur verður
hugsað til bridsspilanna, veiðiferð-
anna og allra þeirra atvika, stórra
og sm'arra, sem koma fyrir í góðra
vina hópi. Einnig minnumst við
þeirra vikna sem við áttum með
Þóri í ferðalagi útskriftarnema
Verslunarskóla Islands vorið 1988.
Þórir setti sér snemma það mark-
mið að verða flugmaður. Að því
markmiði vann hann ötullega og
mörgum stundum eyddi hann úti á
flugvelli eða á lofli í flugvél sinni.
Nokkrar ferðir fórum við með Þóri
og höfðum gaman af. Alltaf bárum
við fyllsta traust til Þóris því hand-
brögðin voru örugg og fasið fum-
laust.
Af kynnum okkar við Þóri er
okkur ljóst að þar fór maður sem
lifði lífinu lifandi og hafði ekki
áhyggjur í dag af vandamálum
morgundagsins. Með Þóri er geng-
inn góður drengur og traustur vinur
sem við munum ávallt minnast. Við
vottum aðstandendum Þóris okkar
dýpstu samúð.
Andri Á. Grétarsson,
Ágúst Jónsson,
Guðmundur H. Erlendsson,
Jón Arnar Baldurs,
Sigurður Páll Hauksson.
Bróðir minn var mér yndislegur
bróðir. Við áttum oft margar glaðar
og skemmtilegar stundir saman.
Ég er þakklát fyrir hjálpsemina
þegar ég átti í erfiðleikum, bæði
með námsverkefni og einnig í hinu
daglega umstangi. Ég minnist þess
þegar hann bauð mér og vinkonu
minni í mína fyrstu flugferð í flug-
vél sinni og leyfði mér að stýra flug-
vélinni með sér. í sól og blíðu bæði
skemmti hann mér og fræddi. Ég
skil vel að flugið hafi verið hans
helsta áhugamál. Það er skemmti-
legt að geta flogið og séð hvað allt
er öðruvísi og fallegt úr lofti. En
þrátt fyrir að flugið sé skemmti-
legt, fallegt og fróðlegt, þá veldur
það mér nú miklum sársauka, því
það er búið að taka hann frá mér.
Elsku bróður mínum þakka ég
fyrir fallegar og góðar stundir: Ég
veit að góður Guð gætir hans og
verndar.
Allt eins og blómstrið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt með fijóvgun hreina
fyrst um dags morgunstund,
á snöggu augabragði
af skorið verður fljótt
lit og blöð niður lagði, .
líf mannlegt endar skjótt.
Ólöf
Okkur langar í fáum orðum að
minnast vinar okkar, Þóris Aðal-
steinssonar, en mánudaginn 3. des-
ember barst okkur sú hörmulega
frétt að vinur okkar væri Iátinn.
Við kynntumst flestir Þóri í
grunnskóla, en strax á þeim árum
sáum við að hann var góðum gáfum
gæddur og hæfileikaríkur á ýmsum
t
Eiginmaður minn, faðir, afi og langafi,
EINAR J. SKÚLSON
fyrrverandi forstjóri,
Garðastræti 38,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum 8. desember.
Kristjana Þorkelsdóttir,
Skúli Einarsson,
Ingifríður Ragna Skúladóttir,
Alexia ír Magnúsdóttir.
t
Móðir mín,
VALGERÐUR K. TÓMASDÓTTIR,
til heimilis í Furugerði 1,
Reykjavík,
lést á heimili sínu 2. desember sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Björg Ágústsdóttir.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir og amma,
HALLDÓRA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Keldulandi 17,
sem lést í Landspítalanum 2. desember, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju í dag, þriðjudaginn 11. desember, kl. 10.30.
Ágúst Sesselíusson,
Kristín Ágústsdóttir
og barnabörn.
+ Faðir okkar, GÍSLI R. STEFÁNSSON, Hátúni 6, Reykjavík, lést 29. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Aðstandendur.
t Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir, KARL Á. ÚLFARSSON læknir, er lést 1. desember, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag", þriðjudaginn 11. desember kl. 15.00. Henrietta 1. Haraldsdóttir, Charlotta Karlsdóttir, Jósefine Karlsdóttir, Charlotta Ó. Þórðardóttir, Úlfar Gunnar Jónsson Hulda Hrönn Úlfarsdóttir, Edda Sólveig Úlfarsdóttir.
+ Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA S. GÍSLADÓTTIR, áður til heimilis í Furugerði 1, lést í Hafnarbúðum miðvikudaginn 5. desember. Útför hennar fer fram frá nýju kapellunni í Fossvogi fimmtudaginn 13. desember kl. 15.00. Halldóra Jóhannesdóttir, Kristján Kristjánsson, börn, tengdadætur og barnabarn.
sviðum, til dæmis á sviði skáklistar-
innar, en hann var með betri skák-
mönnum í Snælandsskóla og yfir-
leitt í skákliði skólans. Hann tók
virkan þátt í íþróttalífi skólans og
þá aðallega á sviði knattspyrnunnar
og flest æskuárin æfði hann með
knattspyrnufélaginu ÍK.
Eftir grunnskólann lá leið hans
í Verslunarskóla íslands og lauk
hann þaðan stúdentsprófi vorið
1988, samhliða skólanum lagði
hann stund á flugnám af miklum
dugnaði. Eftir stúdentspróf hóf
hann nám í Háskóla íslands en
hætti fljótlega og ákvað að snúa
sér alfarið að flugnáminu, en dugn-
aður Þóris vakti oft eftirtekt bæði
í starfi og námi.
Þórir hafði ákveðnar skoðanir en
var jafnframt hlédrægur og fámáll,
en var vinur vina sinna, enda voru
kynni okkar af Þóri mjög góð og
við fráfa.11 hans er stórt skarð
höggvið í vinahópinn og munum við
minnast hans með söknuði um
ókomin ár.
Foreldrum hans og systur vottum
við okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Faðir lífsins, faðir minn,
fel ég þér minn anda í hendur.
Foldi geymi fjötur sinn.
Faðir lífsins, Drottinn minn,
. hjálpi mér í himin þinn
heilagur máttur, veikum sendur.
Faðir lífsins, faðir minn,
fel ég þér minn anda í hendur.
(Sig. Jónsson frá Arnarvatni)
Jóhann, Benedikt, Guðni,
Hrafn, Valdimar, Olgeir,
Tjörvi og Jóhanna.
Enginn má sköpum renna. Þetta
kom upp í hugann þegar okkur
barst harmafregnin um lát Þóris.
Hann var svo ungur að árum og
átti allt lífið framundan. Við bekkj-
arsystkini hans minnumst góðs vin-
ar og félaga og allra þeirra stunda
sem við áttum saman.
Nú er ið fagra iífið liðið,
lengur ei bærist hjarta milt,
óskipað rúm og autt er sviðið,
aldrei það skarð mun verða fylt;
mannkosta lifir minning ein
mætari hverjum bauta-stein.
(Kristján Jónsson, Ljóðmæli, útg. 1911.)
Með innilegustu samúðarkveðj-
um til hinna nánustu.
Bekkjarsystkini úr 6. bekk
X, Verslunarskólanum.
BLOM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
bSófmciucil
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 689070.