Morgunblaðið - 11.12.1990, Side 73
MQRGUNBLAÐIÐ iÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1990
73
AUSTURSTRÆTI22, REYKJAVIK, SIMI22925
Gestirnir eldsteikja sinn
lunda o g kokteilávexti
Góöar, nytsamar vörur á hagstœðu veröi er hagvöxtur framtíöar.
Gestir tóku hraustlega til matar síns, búnir hvítum svuntum og kokkahúfum.
SÆLKERALIF
Veitingastaðurinn Café Ópera
hélt nýlega nýstárlega kynn-
ingu á nýjungum í rekstri staðar-
ins, svokallaða Sælkerasveiflu.
Sveiflan felst í því að gestir mat-
reiða sjálfir í sætum sínum. A borð-
um eru grindur með sprittlömpum
og litlum pönnum, einni fyrir hvern
gest. Þjónar bera fram humarhala
sem forrétt sem gestir steikja upp
úr íslensku smjöri og þiggja ráð
matreiðslumanna staðarins við mat-
reiðsluna. Humarhalinn er snæddur
léttsteiktur með kaldri hvítlauks-
sósu og bráðnaði þetta- gómgæti á
alltof skömmum tíma í munni gesta.
Aðalrétturinn er nautakjöt,.
kjúklingakjöt, lundi og litlar pylsur
í beikoni ásamt grænmeti og bökuð-
um kartöflum. Einnig er hægt að
velja fiskrétti en sem fýrr eru það
gestimir sem elda sinn mat með
aðstoð matreiðslumanna. I eftirrétt
var boðið upp á pönnuköku með
rjómaís og kokteilávöxtum sem
gestir eldsteiktu í Grand Marnier.
Sannkallað lostæti. Undir Sælkera-
sveiflunni leikur Guðmundur Ing-
ólfsson þægilega meltingarsveiflu á
píanó á lægri nótunum.
Þetta er skemmtileg nýjung fyrir
þá sem hafa gaman af því að
spreyta sig á göldrum matseldar-
innar, reyna kryddtegundir og mis-
miklar steikingar eða jafnvel elds-
teikingu (flamberingu). Þá gæti
Sælkerasveiflan væri kærkomið
tækifæri fyrir ungt fólk í tilhugalífi
að sýna fram á kunnáttu sína í
þessum fræðum áður en út í alvör-
una er komið. Svo eru þeir sem
vilja hafa gamla háttinn á, láta
fagmenn um matseldina og engar
refjar. Þeir geta valið af matseðlin-
um en á honum eru yfir 50 réttir.
Auk þess er boðið upp á steinJisteik
sem hefur verið vinsæl hjá gestum
Café Óperu.
Á horni Lækjargötu og Austur-
strætis, innangegnt frá Café Óperu,
Jólafötin fást hjá okkur.
Við höfum sjaldan átt annað eins úrvaí.
KARNABÆR
SNJÓSLEÐAGALLAR
Vatnsheldir m/hettu.
Sérlega hlýir.
Kr.10.900,-
KULDAULPA
Vatnsheld m/hettu sem
hægterað takaaf.
Kr. 5.900,-
HERRA
V-HÁLSMÁLSPEYSUR
Sérlega þéttar en liprar.
Kr. 1.980,-
Einnig: Gallabuxur, m.a. yfirstærðir, frá kr. 2.690,- Fínni
herrabuxur, teryline & ull, kr. 3.900,- Mikið úrval af kuldaúlpum
frá kr. 3.900,- Skór, stígvél, sokkar, húfur, hanskar, nærföt,
regngallar o.m.fl. Allt á góðu verði.
þar sem áður var Café Strætó, hef:
ur verið innréttuð koníaksstofa. í
einu horni stofunnar, sem hefur
fengið heitið Café Romance, er eik-
arbar en tveir upphækkaðir pallar
við vegg stofunnar sem snýr út að
Lækjargötu státa af hringsófum
með ljósu leðuráklæði. Helsta prýði
koníaksstofunnar er arinn úr gyllt-
um málmi sem eykur enn á frið-
sæld stofunnar.
LEÐURSKÓR
Sérlega sterkbyggðir.
Kr. 4.900,-