Morgunblaðið - 14.11.1991, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
9
Góð ávöxtun í október
Raunávöxtun fyrir október var sem hér segir:
Kjarabréf.............8,2%
Markbréf..............8,6%
Tekjubréf.............8,1%
Skyndibréf............6,4%
i
<n>
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF
HAFNARSTRÆTI, S. (91) 28566 - KRINGLUNNI, (91) 689700 - AKUREYRI, S. (96) 11100
TEKUR ÞU AFRIT
AF TÖLVUGÖGNUM ?
Þú verður að vera viss ....
Nú fást segulbandsstöðvarnar frá Mountain á ótrúlegum verðum.
Fyrir IBM-PC samhæfðar tölvur,
PS/2 og netkerfi.
FS-4000 innbyggð sem afritar allt aó 120 MB
kr. 29.900,- stgr
FS-8000 innbyggð sem afritar allt að 250 MB
kr. 62.670,- stgr
FS-8000 innbyggð m/MACH II allt að 304 MB
kr. 86.261,- stgr ,
Eigum til fyrirliggjandi á lager
segulbönd í flestar gerðir segulbandsstöðva, ^ '(
á hreint frábærum verðum.
Mountain
Umboðsmenn um land allt!
TÆKNIVAL
Skeifan 17 - 128 Reykjavik - Simi 91-681665 - Fax 91-680664
Álver og atvinnuleysi
Frestun álvers- og orkuframkvæmda er, með og ásamt fyrirséðum afla-
samdrætti, alvarlegt efnahagsáfall. Frestunin þýðir enn frekari fram-
leiðniminnkun, skekkir forsendur fjárlagafrumvarpsins og eykur á at-
vinnuleysið. Það var þó ærið fyrir á Suðurnesjum. Þar voru 337 skráð-
ir atvinnulausir í síðastliðnum mánuði, þar af 161 í Keflavík. Stakstein-
ar glugga í dag í ummæli Alþýðublaðsins, DV og Þjóðviljans um frestun
álframkvæmda.
Fertalaat-
vinnulausra yf-
ir þrjú þúsund?
Dagblaðið Vísir segir
í forystugrein:
„F'restun álversins er
alvarlegt efnahagslegt
áfall fyrir þjóðina. Þessi
tíðindi bætast við vitn-
eskjuna um aflasam-
dráttinn á næsta ári. Því
hafði verið spáð, ’ að
framkvæmdir vegna ál-
versins mundu á næsta
ári auka framleiðsluna í
landinu um rúmt eitt pró-
sent. Þar sem svo verður
ekki verður framleiðslu-
minnkunin i landinu með
því mesta sem þekkzt
hefur síðari ár. Fram-
leiðslan gæti minnkað
um 3-4%.
Aflasamdrátturinn
gæti á næsta ári þýtt allt
að 15 milljarða samdrátt
í útflutningsframleiðslu.
Nú verður framleiðslan
að líkindum minni sem
nemur 6 milljörðum
króna, vegna frestunar
álversfranikvæmda. Rík-
istekjur gætu orðið 1,5
milljörðum mimú en ella.
Jafnframt má búast
við miklu atvinnuleysi.
Að óbreyttu hefði hugs-
anlega stefnt í atvinnu-
leysi allt að tvö þúsund
manna. Nú gæti atvinnu-
leysið náð til á fjórða
þúsund manns.”
Þjóðviljinn
leggst í álvers-
sagnfræði
Þjóðvijjinn segir í for-
ystugrein:
„Nauðsynlegt er að
rifja upp nokkur atriði
tengd áimáli Jóns Sig-
urðssonar, nú þegar
hann hefur gefizt upp.
Sveitarfélögum var att
saman þegar verið var
að ákveða staðsetningu
nýs álvers og Eyfirðing-
ar og Austfirðingar hafð-
ir að fíflum. Jón Sigurðs-
son gerði álið að pólitísku
deilumáli í tíð síðustu rík-
isstjórnar og hamaðist
með ósköpum til að fá
einhveija tillögu sam-
þykkta á Alþingi, sem svo
reyndar varð ekkert úr.
Hann fékk í fyrrahaust
iörýöfrana úr Atlantsáls-
hópnum til að koma hing-
að og undirrita eitthvert
minnisblað, viyayfirlýs-
higu, og setti á svið mikla
pólitíska leiksýningu í
Rúgbrauðsgerðinni til að
hefja sjálfan sig á stall.
Og liver man ekki kosn-
ingabaráttuna i vor, þeg-
ar iðnaðarráðherrann
flutti sig í Reykjaneskjör-
dæmi til að fljóta inn á
þing á Keilisnesálverinu?
Nú er öll dýrðarmyndin
að engu orðin.”
Oréttmætar
ásakanir
Alþýðublaðið segir
m.a. í forystugrein:
„Það eru alvarleg tíð-
indi, að fyrirtækin jirjú
sem mynda Atlantsál ...
hafa ákveðið að fresta
ótímabundið áláformum
... Þessi ákvörðun hefur
alvarleg áhrif á þjóðar-
búskap okkar á næsta
ári. I hádegisfréttum
RÚV í gær kom fram að
frestum á framkvæmd-
um við fyrirhugað álver
og erfiðleikar í sjávarút-
vegi þýði 12 milljarða
króna samdrátt á næsta
ári. Það er því ljóst, að
mæta verður hinni nýju
og erfiðu stöðu með emi
frekara aðhaldi í ríkisút-
gjöldum...”
Blaðið hefur eftir
Karli Steinari Guðnasyni,
þingmanni og formanni
Verkalýðs- og sjómanna-
félags Keflavíkur:
„Það var átakanlegt
bæði í umræðum á AI-
þingi í dag og sjónvarp-
inu í gær að sjá og heyra
stjómarandstöðuna
hlakka yfir þvi að til
frestunar [framkvæmda
við álver] hefur komið.”
Tryggvi Harðarson
segir í fréttaskýringu
Alþýðublaðsins:
„Þótt frestun bygging-
ar álvers hér á landi sé
Alþýðuflokknum, og þá
ekki síður iðnaðarráð-
herra, þungbær, er út í
hött að ásaka þá, sem
verið hafa í broddi fylk-
ingar við að ijúfa kyrr-
stöðu í atvinnumálum
landsins, fyrir það að
framkvæmdum hefur
verið slegið á frest. Það
væri álíka gáfulegt og
ætla sér að hengja Þor-
stein Pálsson sjávarút-
vegsráðherra fyrir
minnkandi fiskgengd eða
hýða björgunarsveitar-
menn þegar ekki finnst
hinn týndi ...”
Fiskstofnar
fullnýttir -
orkan vannýtt
Tryggvi Harðarson
segir og:
„Augljósasta og vafa-
Iaust raunhæfasta leiðin
til að efla hér atvinnulif
og auka þjóðartekjur er
að koma orku fallvatn-
anna í verð með einum
eða öðmm hætti. Vart
er að ætla að sjóriim
gefi öllu meira en verið
hefur á næstu ámm og
þótt tekjur af ferðaþjón-
ustu aukizt stöðugt dug-
ar það engan veginn til
að standa undir þeim
væntingum sem þjóðin
hefur til lífsgæða.
Það er engin ástæða
til að leggja árar í bát
og fyllast bölmóði þótt
framkvæmdum vegna
fyrirhugaðs álvers hafi
verið frestað að sinni.
Efling og uppbygging
atvinnulífs á sér hvorki
upphaf né endi en er
stöðugt verkefni þings
og þjóðar.”
RÉTTUR SPARNAÐUR,
LEIÐIR TIL LÆKKUNAR SKATTA!
I. Tekjuskattslækkun fæst m.a. með:
— kaupum á hlutabréfum
- innleggi á ýmsa reikninga hjá bönkum og spari-
2. Eignarskattslækkun fæst m.a. með:
- kaupum á eignarskattfrjálsum skuldabréfum s.s.
Einingabréfum 2, Húsbréfum og Spariskírteinum
ríkissjóðs.
Ráðgjafar Kaupþings hf. veita ráðgjöf um skattamál
einstaklinga í síma 689080.
Fimmtudaginn 21. nóvember n.k. verður haldinn
almennur fundur á vegum Kaupþings hf. um skatta-
mál sem ber yfirskriftina „Réttur sparnaður, lægri
skattarFundurinn verður nánar auglýstur síðar.
KAUPÞING HF
Löggilt verðbréfafyrirtœki
Kringlunni 5, st'mi 689080