Morgunblaðið - 14.11.1991, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NOVEMBER 1991
17
„JJLU, ER ENN VERIB Afl
GERA ÚTTEKTIR”
■ ' '
Þetta fáum við sem störfum fyrir
Norrænu ráðherranefndina oft að
heyra.
Sannleikurinn er þó sá að ýmsar
mikilvægar ákvarðanir hafa verið
teknar á þeim tveimur áratugum sem
Norræna ráðherranefndin hefur
starfað. Ákvarðanir sem hafa bein og
óbein áhrif á tilveru þína.
Engu að síður vita fæstir að nefndin
er til.
Vissir þú t.d. að aðalskrifstofa
Norrænu ráðherranefndarinnar væri
í Kaupmannahöfn?
Norrænt samstarf er komið
lan^t á ve^.
Margar þeirra breytinga sem nú eiga
sér stað í Evrópu hafa þótt sjálfsagðar
á Norðurlöndum.
Um langt skeið höfum við getað
ferðast á milli ríkjanna án vegabréfs.
Við getum sest að í hvaða Norður-
landaríki sem er, án þess að þurfa
sérstakt atvinnu- eða námsleyfi. Um
leið njótum við þeirra félagslegu rétt-
inda sem viðkomandi land býður upp á.
Allt er þetta árangur norrænnar
samvinnu.
Hvað gerum við fleira?
Við vinnum að Lættu
umfiverfi.
Umhverfismál eru ofarlega á baugi í
norrænu samstarfi.
Eins og flestum er kunnugt á
umhverfið engin landamæri. Við vitum
t.d. að stór hluti þeirrar loftmengunar
sem við búum við berst með vindum
utan frá.
t)ví hefur Norræna ráðherranefndin
sett NEFCO á fót, til að veita lán eða
ábyrgð til fjárfestinga á sviði umhverf-
isverndar. þetta hefur þegar verið gert
í t.d. Póllandi, Sovétríkjunum og
Eystrasaltsríkjunum. þar má t.d. nefna
reykhreinsunarverkefni í sovéskum
málmiðnarverksmiðjum.
Ráðkerranefnclin örvar
norrænt atvinnulíf.
Norræni fjárfestingarbankinn í
Helsingfors er gott dæmi um það.
Markmið bankans er að efla sam-
starf fyrirtækja á Norðurlöndum.
Bankinn veitir lán og ábyrgðir á
fjárfestingum og útflutningi í þágu
norræna hagsmuna.
Norræna ráðherranefndin stofnaði
Norræna iðnsjóðinn fyrir tuttugu
árum í því markmiði að efla samstarf
fyrirtækja og hvetja til tæknilegra
nýjunga og þróunar.
Við köf uin gert það
auðveldara að stunda nám á
Norðurlöndum.
Norræna ráðherranefndin hefur gegnt
mikilvægu hlutverki á sviði mennta-
mála.
Námsmenn og kennarar geta fengið
svo kallaða NORDPLUS styrki til að
stunda hluta af námi sínu við háskóla
á öðrum Norðurlöndum.
Fólk á aldrinum 18 — 26 ára getur
fengið sumarvinnu í öðru Norður-
landaríki gegnum Nordjobb. þar má
nefna t.d. vinnu í sveit í Noregi eða
öldrunarþjónustunni í Danmörku.
Unnið er að samningi sem veitir
nær öllu háskólamenntuðu fólki gagn-
kvæma viðurkenningu á prófum sem
nær til allra Norðurlandanna.
Við styðjum
rannsóknarstörf.
Norræna vísindastofnunin — NörFA
— er ný stofnun á vegum ráðherra-
nefndarinnar.
í samstarfi tekst smáþjóðum að
nýta krafta sína betur en ella. NorFA
er ætlað að bæta menntun norrænna
vísindamanna, auk þess að efla sam-
neyti og víðsýni vísindamanna með
því að gera þeim kleift að stunda nám
í öðru Norðurlandaríki.
Við kynnum norræna
mennin^u um víða veröld.
Nú er unnið að stærstu sýningu sem
nokkurn tíma hefur verið haldin um
víkingatímabilið.
Vorið 1992 verður hún opnuð
undir heitinu ”Les Vikings” í París,en
þaðan heldur hún áfram til Berlínar og
Kaupmannahafnar.
Norræni kvikmyndasjóðurinn
styrkir samnorræn kvikmyndaverkefni,
þ.á.m. má nefna "Drengina frá Sankt
Petri” og ”Svo á jörðu sem á himni!’
Við köfum trú á Eyrópu.
Auk þess að fylgjast náið með þróun-
inni innan Evrópubandalagsins
reynum við að hafa áhrif innan Evrópu.
Erlendum blaðamönnum er boðið
til Norðurlanda þar sem við hreykjum
okkur af því sem vel hefur tekist:
félagslegu öryggi, menningu okkar,
umhverfi, jafnréttismálum og þannig
mætti eflaust lengi telja.
Jafnframt höfum við tekið upp
gömul tengsl við Eystrasaltsríkin.
Norrænar upplýsingaskrifstofur hafa
verið opnaðar í Eistlandi, Lettlandi og
Litháen. Námsmenn frá þessum ríkjum
hafa fengið styrki frá Norrænu
ráðherranefndinni til að stunda nám
við menntastofnanir á Norðurlöndum.
Margt fleira er til frása^nar.
Hér hafa verið til tekin örfá dæmi um
norrænt samstarf. Að sjálfsögðu liggur
margt fleira eftir Norrænu ráðherra-
nefndina. Um það má lesa í tímaritinu
"Gránslöst” sem fólki er boðið ókeypis
til áskriftar. Hvernig væri að reyna það?
i—“ t —
Sendið mér ’Granslost’.’upplýsingarit
| Norrænu ráðlierranefntiarinnar.
Nafn: _
Heimilisfan^: .
Bástfang:
Sendið seðilinn til: Nordisk Ministerrád,
Ilnformationsafdelingen, Store Strandstræde 18, .
DK-1255 Kobenhavn K, DANMARK.
Límdu 26 króna frímerki á.
Norræna ráðherranefndin er samstarfsstofnun ríkisstjóra Norðurlandanna fimm og sjálfsstjórnarsvæðanna Færeyja, Grænlands og Álandseyja.
Samstarfið nær til flestra sviða ftjóðféiagsins, að utanrikis- og vamarmálitm undanskildum. Ákvarðanir nefndarinnar eru bindandi fyrir öli ríkin.