Morgunblaðið - 14.11.1991, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NOVEMBER 1991
27
Uppdiktuð
sjónmengfun
eftir Jakob Björnsson
Meðfylgjandi mynd birtist í Les-
bók Morgunblaðsins 19. okt. sl.,
ásamt greinarkorni eftir GS undir
fyrirsögninni „Sjónmengun”.
Greininni lýkur með þessum
orðum: „Háspennumastrið þarna
er út af fyrir sig fallegt mannvirki
og minnir á sumt í nútímaskúlpt-
úr. En þarna á þetta mannvirki
ekki heima og verður aðeins til
að spilla útsýninu . ..”
Myndin er uppdiktuð sjónmeng-
un, búin til af ljósmyndaranum.
Með því að færa sig um nokkra
tugi metra í þá átt sem myndin
er tekin í, yfir fyrir háspennulín-
una, hefði ljósmyndarinn getað
tekið mynd af randfjöllum Lang-
jökuls án þess að nokkurt há-
spennulínumastur truflaði útsýnið.
Vera má að myndin sé tekin af
bílaslóðinni sem lögð var meðfram
línunni í upphafi. Ef svo er sýnir
það aðeins að sem ferðamanna-
vegur liggur slóðin öfugu megin
við línuna á þessum kafla. Auð-
velt væri að bæta úr því; miklum
mun auðveldara en að leggja lín-
una annars staðar.
Með sams konar rökum hefði
GS getað staðhæft að fiskvinnslu-
húsin nálægt höfninni í Vest-
mannaeyjum ættu „ekki heima á
þessum stað” vegna þess að frá
vissum sjónarhornum trufla þau
útsýni til Heimakletts, eða að
Hallgn'mskirkja sé „út af fyrir sig
fallegt mannvirki og minnir á sumt
í nútímaskúlptúr” en eigi „ekki
heima” á Skólavörðuholti vegna
þess að frá ákveðnum stöðum séð
skyggir hún á Esjuna, eða ...
Upptalningin getur orðið býsna
lögn. Vafalaust er að finna stað
þaðan sem Snæfellsjökull sést ekki
fyrir Perlunni. Með aðstoð góðs
ljósmyndara er auðvelt að búa til
„sjónmengun”.
Sjónmengun er fyrir hendi þeg-
ar illmögulegt er fyrir mannvirkj-
um, eða mjög erfitt, að finna sjón-
arhól þaðan sem njóta má fagurs
útsýnis. Því er ekki að dreifa í
dæmi því sem GS tekur. -
Hugsunarhátturinn að baki
skrifum þessum er býsna skyldur
þeim sem felst í orðtakinu „lastar-
anum líkar ei neitt...”
Höfundur er orkumálnstjóri.
Bók um
HÖRPUÚTGÁFAN hefur gefið
út bókina Draumar - fortíð þín,
nútíð og framtíð eftir Kristján
Frímann.
Á bókarkápu segir m.a. um bók-
ina og höfund hennar: „Hvað boð-
ar draumurinn þinn? Er hann við-
vörum, eða styrkir hann ákvarðan-
ir þínar í daglegu lífi? Boðar hann
góða heilsu, stóru ástina, góðan
vin, trausta atvinnu og öryggi eða
táknar hann veikindi .og aðra óár-
an, hamfarir náttúru og manna?
Flestir spyija sig um tákn drauma
sinna en oft verður fátt um svör.
Hér er bókin sem hjálpar þér að
ráða gátur draumanna, finna réttu
svörin og lykla að völundarhúsi
draumalífsins.
Höfundur bókarinnar, Kristján
Frímann, draumamaður og skáld,
er fæddur í febrúar 1950 á Pat-
reksfirði. í mörg ár hefur hann
kannað drauma, boðskap þeirra,
tákn og merki. Hann hefur ritað
drauma
Kristján Frímann
pistla í blöð og tímarit um drauma,
stjórnað útvarpsþáttum um efnið
og haldið námskeið. Þessi bók er
afrakstur rannsókna hans á
draumum og er í senn fræðandi
og skemmtileg.”
£t>;s
BRÉFA-
BINDIN
/rá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað.
5
i Múlalundur
'I SÍMI: 62 84 50
Nafn: Fjölnir Stefánsson
Starf: Skólastjóri
Aldur: 61
Heimili: Hrauntunga 31, Kópavogi
Bifreið: Mitsubishi Galant 1989
Ahugamál: Tónlist og skák
/
Mitt álit: „Eg hefkeypt Kjarabréf vegna þess að
með þeim næ ég hámarksávöxtun miðað
við lágmarksáhættu - jafnvel án þess að binda
sparifé mitt í langan tíma.“
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF.
HAFNARSTRÆTI7,101 REYKJAVÍK, S. (91) 28566
KRINGLUNNI, 103 REYKJAVÍK S. (91) 689700 • RÁÐHÚSTORGI 3, 600 AKUREYRI S. (96) 11100