Morgunblaðið - 16.12.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.12.1993, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1993 Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og ASÍ Vilji starfs- mannaræður - segir formaður Starfsmannafélagsins SJÖFN Ingólfsdóttir, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborg- ar, segir að ekki sé um stundarhagsmuni stéttarfélagsins að ræða varðandi ósk starfsmanna Strætisvagna Reykjavíkur hf. um að vera áfram aðilar að Starfsmannafélaginu. Það væri eindreginn vilji starfsmannanna að vera í félaginu en í bréfi sem forseti Alþýðusam- bands Islands hefur ritað sljórn Starfsmannafélagsins er framganga félagsins í málefnum starfsmannanna átalin. „Við erum ekki að ræða um stundarhagsmuni einhvers stéttar- félags, hagsmuni Starfsmannafé- lagsins eða einstakra félaga innan ASÍ,“ sagði Sjöfn. „Við erum að tala um vilja fólksins. Þama eru á annað hundrað manns sem hafa sett fram þann eindregna vilja að fá að vera í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar. Það er fyrir þetta fólk sem við emm að vinna. Sannarlega samkvæmt þeirra ósk og í fullu samráði við það. Við munum því halda áfram að taka ákvarðanir í samráði við þeirra ósk- ir en ekki fara eftir hagsmunum sem kunna að liggja frammi varðandi sjálft félagið." Önnur staða Bréf ASÍ barst Starfsmannafé- laginu fyrir helgi. „Það er vissulega komin upp önnur staða með því að bréfmu hefur verið komið á fram- færi við borgarráð og aðra aðila þar sem stuðnings var að vænta. Það er ljóst að þama em stórir aðilar sem greinilega hafa hag að því að standa saman um málið," sagði Sjöfn. Hún sagði að ASÍ hefði verið svarað bréflega í gær en vildi ekki tjá sig um efni þess að svo stöddu. Fundur var haldinn í Starfs- mannafélaginu í gærkvöld, á hann mættu um 60 manns. Á fundinum var ákveðið að ef afla þyrfti verk- fallsheimildar yrði það gert með alls- heijaratkvæðagreiðslu. „Ekkert hefur verið ákveðið hvenær eða hvort það verður gert,“ sagði Sjöfn. í fréttatilkynningu sem BSRB sendi frá sér í gær er lýst fullum stuðningi við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, starfsmenn SVR hf. og vilja þeirra til að vera áfram í félaginu og vinnubrögð ASÍ gagnrýnd fyrir „að leggja forsvars- mönnum SVR hf., VSI og meiri- hluta borgarráðs lið við að grafa undan féíagslegri stöðu starfs- manna SVR hf. og stéttarfélags þeirra," eins og segir í tilkynning- unni------------------------------ Hífð af botni Morgunblaðið/Sverrir TRILLAN Ólína frá Stokkseyri var í gær hífð af hafsbotni og upp á yfirborð við Grandagarð í Reykjavík- urhöfn. Þar lá hún við festar þegar hún sökk. Frumvarp um Þróunarsjóð sjávarútvegsins lagt fram Féiagsmáianefnd Aiþingis -m/r* i />• i • i Utsvarverði Ma kaupa fiskviniislu- 8,4-9,2% stöðvar til ársloka ’96 í FRUMVARPI því sem Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra hefur lagt fram á alþingi um Þróunarsjóð sjávarútvegsins kem- ur fram að sjóðnum er heimilt að kaupa fiskvinnslustöðvar fram til ársloka árið 1996. Stjórn sjóðsins ber að taka mið af markaðs- verði sambærilegra eigna en þá skal kaupverð aldrei verða hærra en 75% af fasteignamati og 25% af verðmæti framleiðslu- tækja samkvæmt mati sjóðsins. Skilyrði er að vinnslustöð hafi fullgilt vinnsluleyfi frá Fiskistofu. HAGKAUP jtífin byrjtt Jólatilboö í AUGLÝSINGABLAÐI, sem dreift er með Morgunblaðinu í dag, kynnir Hagkaup vöruúrval sitt í máli og myndum. Eins og fram hefur komið í frétt- um munu tekjur sjóðsins felast í annarsvegar þróunarsjóðsgjaldi af úthlutuðum kvóta og nemur gjald þetta 1.000 krónum á hvert þíg. tonn. Eigendur fískiskipa sem eru stærri en 10 tonn greiða árlega gjald til sjóðsins sem nemur 750 krónum af hveiju tonni en þó skal gjaldið aldrei nema hærri upphæð en 285.000 kr. Ennfremur munu eigendur fiskvinnsluhúsa greiða sérstakt gjald og og skal stofn þess vera fasteignamatsverð í árs- lok á fasteign sem nýtt er til fisk- vinnslu en gjaldið skal nema 0,75% af gjaldstofni. Gjald sem ekki nær 10.000 krónum skal fellt niður við álagningu. Yfirtaka sjóða Eitt af því sem vakið hefur hvað mestar deilur um Þróunarsjóðinn er yfírtaka hans á skuldbindingum Atvinnutryggingarsjóðs og Hlut- afjárdeildar Byggðastofnunnar. í frumvarpinu segir að Þróunarsjóð- urinn skuli taka við eignum og skuldbindingum þessara sjóða að frádregnum 950 milljón króna end- urlánum ríkissjóðs til Atvinnu- tryggingarsjóðs sem ríkið tekur að sér að greiða. Ennfremur skal ríkissjóður leggja Þróunarsjóðnum til lán, að upphæð 4 milljarðar kr. á árunum 1993,1994 og 1995. Þann 31. ágúst s.l. var áætlað að höfuðstóll Atvinnutryggingar- sjóðs væri neikvæður um 1.578 milljónir króna. Hvað varðar Hlut- afjárdeild ráðast endanlegar skuld- bindingar Þróunarsjóðs af því hvaða verð fæst fyrir hlutdeildar- skírteini hennar en áætlað er að þetta muni nema um 350 milljón- um króna. Styrkur til úreldingar hækkaður Styrkur vegna úreldingar fiski- skipa er hækkaður að mun með frumvarpinu og skal að hámarki nema 45% af húftryggingarverð- mæti en þó aldrei hærri en 75 milljónir kr. til einstaks skips. Óheimilt verður að greiða úrelding- arstyrki fyrr en fyrir liggur vottorð Siglingarmálastofnunar um að skipið hafí verið afskráð. Þá er Þróunarsjóðnum heimilt að stuðla að þátttöku íslenskra aðila í sjávarútvegsverkefnum er- lendis. MEIRIHLUTI félagsmálanefnd- ar Alþingis leggur til að útsvar sveitarfélaga verði á næsta ári ekki lægra en 8,4% og ekki hærra en 9,2% af skattskyldum tekjum greiðenda. Nú er útsvar að há- marki 7,5% en ekkert lágmark. Hækkun útsvarsprósentunnar er til að bæta sveitarfélögum upp það tekjutap sem varð þegar aðstöðu- gjald var fellt niður á þessu ári. Jafn- framt lækkar skattprósenta tekju- skatts. í greinargerð félagsmálanefndar segir að veigamestu rökin fyrir að setja ákvæði um lágmarksútsvar séu að mismunur á útsvarsprósentu sveitarfélaganna verði minni og út- svarsgreiðslur fólks jafnari. Kosning framundan á Alþingi í bankaráð Sjálfstæðisflokkur fær formennina GERT er ráð fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn fái formennsku bæði í bankaráði Landsbanka og Búnaðarbanka eftir að Alþingi hefur kosið ný bankaiáð ríkisbankanna nú fyrir jólaleyfi. Á móti fær Alþýðuflokkurinn tvo fulltrúa í bankaráði Landsbank- ans. Ekki liggur fyrir samkomulag milli minnihlutaflokkanna á Alþingi um skiptingu fulltrúa í bankaráð ríkisbankanna. í dag Handverk 20 milljónum verður varið til efling- ar heimiiis- og listiðnaði 26 Jackson var nær dauða en lífi Móður popparans hefur verið tjáð að líf Jacksoós hafí hangið á blá- þræði vegna lyfjamisnotkunar 34 Laun lækna Niðurstaða Ríkisendurskoðunar er sú að meginþorri lækna þiggi laun á mörgum stöðum í heilbrigðiskerf- inu 36—37 Leiðari ________________________ GATT-samkomulag í höfn 36 jnoretmblabib vmsnpnjaviNNuiiF Spöhtrfter t.OOOmiHjónn lAnsbfa n) ir/nanlvidk t!!lliBnpi5: // -jjjtí* --'I LL .HL iigjzj&x 'I*.■.?-- -r-j— j§gæpPP»E ..'.'tiJi.-W.-v~.*. ViÖskipti/Atvinnulíf ► Lífeyrissjóðir iána Speli millj- arð -18 milljarðar í bankabréfum - Oddi iðnfyrirtæki mánaðarins - Smáflugfélög ógna bandarísku flugrisunum Dagskrn ► Jólasaga Dickens - Ofbeldi í sjónvarpi í Kólumbíu - Vinsæl- asta sjónvarpsstjarnan í Banda- rílqunum - Missti af hlutverki vegna Melrose Place Gengið var frá því á þingflokks- fundi Sjálfstæðisflokksins í gær, að Kjartan Gunnarsson framkvæmda- stjóri flokksins verði formaður bankaráðs Landsbankans, en hann hefur verið varaformaður ráðsins undanfarin ár. Pálmi Jónsson al- þingismaður verður formaður bank- aráðs Búnaðarbankans. Þá kemur eitt bankaráðssæti til viðbótar í hlut flokksins, sem Frjálslyndir hægri- menn höfðu áður, og kemur það í hlut Áma Mathiesen alþingis- manns. Alþýðuflokkurinn fær tvo fulltrúa í bankaráð Landsbankans, Önnu Margréti Guðmundsdóttur, bæjar- fulltrúa í Keflavík, og Hallstein Frið- þjófsson, formann Verkalýðsfélags- ins á Seyðisfirði, en hafði áður einn, Eyjólf K. Siguijónsson, sem jafn- framt var formaður ráðsins. Anna Margrét var varamaður Eyjólfs í bankaráðinu. Þá verður Haukur Helgason, skólastjóri í Hafnarfirði, áfram fulltrúi Alþýðuflokksins í bankaráði Búnaðarbankans. Fyrir liggur að núverandi minni- hlutaflokkar á Alþingi missa eitl sæti í bankaráði Landsbankans er fá í staðinn sæti fulltrúa Borgara- flokksins í bankaráði Búnaðarbank- ans. Framsóknarflokkurinn hefui eftir sem áður einn fulltrúa í hvori bankaráði, Steingrím Hermannssor í Landsbanka og Guðna Ágústssor í Búnaðarbanka, en hvorki Kvenna- listinn né Alþýðubandalag vilja gefí eftir sæti sitt í bankaráði 'Lands- banka. Kvennalistinn fékk Kristínu Sig- urðardóttur kjörna í bankaráðic fyrir fjórum árum með atbeinc Sjálfstæðisflokks og Lúðvík Jóseps- son var kjörinn fyrir hönd Alþýðu bandalags. Hvorugur flokkurinr vill gefa eftir sæti sitt en Kvenna- listanum stendur til boða auða sæt- ið í bankaráði Búnaðarbankans gef þær Landsbankann eftir. Kvenna- listinn vill að sætaskipan í banka ráði Seðlabankans komi einnig inr í myndina. Þar eiga bæði Alþýðu- bandalag og Framsóknarflokkui fulltrúa, en í það ráð verður ekk kosið fyrr en næsta vetur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.