Morgunblaðið - 16.12.1993, Side 26

Morgunblaðið - 16.12.1993, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1993 Forsýning á Aladín til styrktar blindum TEIKNIMYNDIN Aladdin verður forsýnd í Bíóborginni í kvöld, fimmtudaginn 16. desember, kl. 20. Allur ágóði sýningarinnar renn- ur til styrktar sjónverndarátaki Lionshreyfingarinnar. Myndin er með íslensku tali og voru leikararnir Felix Bergsson, Edda Heiðrún Backman, Laddi, Arnar Jónsson, Rúrik Haraldsson, Orn Arnason, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Magnús Ólafsson valdir til að túlka per- sónurnar á íslensku. Það þurfti ekki einasta að velja hæfustu leikara í talsetninguna; skipa þurfti kór sem stæðist ýtrustu kröfur. Jónas Þórir var ráðinn til að halda utan um kórstjóm, en til liðs við sig fékk hann Bergþór Páls- son, Guðlaug Viktorsson, Sigurð Steingrímsson, Elsu Waage, Ingu Backman og Jóhönnu Linnet, allt reynda söngvara. Textahöfundur- inn Þorsteinn Eggertsson sá um að snara söngtextanum yfír á íslensku en Magnea Matthíasdóttir sá um þýðingu á almennum texta. Teiknimyndín Aladdín hefur slegið í gegn um allan heim enda er að fínna í henni sjaldgæfa blöndu sem höfðar beint til allra aldurs- hópa. Minnstu munaði að myndin markaði tímamót í sögn Óskars- verðlaunanna, en um tíma var það hald manna að Robin Williams fengi tilnefningu sem besti leikari í aðal- hlutverki, þrátt fyrir að hann gerði ekki annað en að tala fyrir teikni- myndapersónu. Frumsýning myndarinnar verður á annan í jólum. Myndin vérður sýnd bæði talsett á íslensku og einn- ig verður hún sýnd ótalsett fyrir þá sem vilja. Athugið að myndin er sýnd í Bíóborginni, ekki Bíóhöllinni eins og auglýst hefur verið. Atriði úr myndinni Aladdín. Morgunblaðið/Sverrir Forsætisráðherra og forsvarsmenn Handverks kynntu í gær áform um eflingu heimilisiðnaðar, hand- verks- og listmunagerðar. Fjármagni veitt til efiingar heimilis- ög listiðnaði Tuttugu milljónum kr. veitt í reynsluverkefni DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra kynnti í gær reynsluverkefnið Hand- verk sem hefur það markmið að efla handverksiðnað í landinu, það er heimilisiðnað og handverks- og listmunagerð. Alþingi hefur veitt 20 miHjónum til verksins og annast Byggðastofnun umsýslu fjárveit- ingarinnar. Talið er að 800-900 einstaklingar hafi nú tekjur af gerð handverksmuna af ýmsu tagi. „Þessi vaxtarbroddur hefur komið fram fyrir atbeina duglegs fólks, en ekki hins opinbera," sagði Davíð Oddsson um það starf sem ætlunin er að efla með Handverksáætluninni næstu þrjú árin. Áætlunin var unnin í tengslum við ákvörðun Alþingis um að fela forsætisráðherra að kanna í samvinnu við fræðsluyfírvöld, sam- tök listamanna og Heimilisiðnaðarfé- lag íslands hvernig efla mætti heimil- isiðnað. Nefnd var sett á laggimar 1991 og skilaði hún áliti í nóvember 1992 og var álitinu skilað í hand- gerðri möppu. Fjármagnið sem fengist hefur til verkefnisins er hluti milljarðsins sem samið var um í kjarasamningum að varið skyldi til atvinnuskapandi verk- efna. Einnig er reiknað með að Hand- verk afli sértekna til rekstursins. Handverk verður fyrst og fremst þjónustuaðili og samstarfsvettvang- ur einstaklinga og fyrirtækja sem vinna að hönnun og gerð handverks- og listmuna. Handverk á einnig að efna til fræðslu og eflingar gæðavit- undar framleiðenda. Þá á Handverk að veita þeim, sem þess óska, aðstoð við hönnun, vöruþróun og markaðs- setningu framleiðslunnar. Þriggja manna verkefnisstjóm hefur verið skipuð og sitja í henni Helga Thoroddsen, verkefnisstjóri í Þingborg, Eyjólfur Pálsson hönnuður og Jóhanna Pálmadóttir, kennari á Hvanneyri. Áform em um að ráða nefndinni starfsmann og koma upp tengiliðum út um landið til að tryggja að starfsemin nái til sem flestra og verði sem fjölbreyttust. Meginhlutverk Rannsóknarráðs ríkisins er að efla atvinnulífið Aherslubreytingar vegna breyttra að- stæðna í efnahagslífi RANNSÓKNARRÁÐ rikisins hefur breytt áherslum sínum í ljósi breyttra aðstæðna í íslensku efnahagslífi, að sögn Vilhjálms Lúðviksson- ar, framkvæmdastjóra Rannsóknarráðs ríkisins. Ráðið telur meginhlut- verk sitt vera „að efla islenskt atvinnulif með tækniþekkingu, rannsókn- um og þróunarstarfi, og aðstoða sljómvöld við mörkun og framkvæmd stefnu á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar.“ Megináherslan er nú á það sem kemur út úr rannsóknunum í stað þess sem lagt er til rann- sóknar. Vilhjálmur segir að Íslendíngar verði að átta sig á hvemig þeir ætli að koma sér út úr þeirri kreppu sem nú plagi íslenskt atvinnulíf. í því efni yrðum við af alefli að huga að nýsköpun í atvinnulífí í ljósi breyttra skilyrða og byggja í þeim efnum á þeirri flárfestingu sem við hefðum lagt í á undanfömum árum. Aðstæð- umar kölluðu á ný vinnubrögð. Áherslu þurfí að leggja á þekkingu og fæmi í stað fjárfestingar í tækjum og mannvirkjum og bæta þurfí stjóm á verkefnum sem horfí til nýsköpun- ar. „Við þurfum að byggja á þeirri fjárfestingxi sem við höfum lagt í á undanfömum áratugum í þekkingu manna og menntun. Við þurfum að beina athyglinni að þeim auði sem býr í þekkingunni og hætta að ein- blína á auðlindimar. Um þetta snýst þessi nýja stefnu okkar og með henni höfum við skilgreint hlutverk okkar dálítið öðru vísi en áður, en í lögunum um Rannsóknaráð segir einungis að hlutverk ráðsins sé að efla rannsókn- ir og þróunarstarfsemi í landinu," sagði Vilhjálmur. Kraftarnir sameinaðir Hann sagði að í anda þessara breyttu stefnu leggi ráðið áherslu á að greina mikilvægl viðfangsefna í rannsóknum á íslandi, að sameina krafta atvinnulífs, stofnana og sljómvalda til öflugrar nýsköpunar og að auka hlut fyrirtækja í rann- sóknum og þróunarstarfi. Þessu fylgi að meira sé horft til þess hverrar niðurstöðu sé að vænta af rannsókn- unum, en ekki sé lengur horft ein- göngu á það hversu miklum fjármun- um og mannskap sé varið til rann- sóknanna. „Áður var aðaláherslan lögð á að reyna að nýta auðlindim- ar, en nú Ieggjum við áherslu á að skapa með almennari hætti betri for- sendur til að nota þekkingu til fram- dráttar fyrirtækjum og uppbygging- ar atvinnulífsins. Þetta þýðir að vís- indi, tækni og nýsköpun þurfa að vera samofín stjórn efnahagsmála og stefnu fyrirtækja. Stjómvöld og atvinnulíf þurfa að átta sig á hvem- ig við eigum að nota þekkingu til þess að styrkja samkeppnisstöðu okkar. Það verður að byggjast á grunni þess sem einstök fyrirtæki eru að gera og um leið styrkir það samkeppnisstöðu okkar sem heild- ar,“ sagði Vilhjálmur. Vöruþróun í fiskvinnslu Hann sagði að Rannsóknarráðið reyndi því að beina athyglinni að þeim sviðum þar sem eftir einhverju væri að slægjast. Það hefði áður verið gert með góðum árangri. Á árinu 1987 hefði til dæmis komið út skýrsla um frystitogarabyltinguna sem þá hefði verið í uppsiglingu og hvað hún þýddi fyrir tækni í frysti- húsum í landi. Skýrslan hefði reynst mjög sannspá hvað varðaði nauðsyn- legar breytingar á vinnslutækni í frystihúsum til að koma í veg fyrir að vinnslan flyttist út á sjó í of mikl- um mæli, en það hefði raskað hag- kvæmni milli vinnslugreina. Þar hefði verið tekið á nýjum möguleikum sem fyrirsjáanlegir voru til dæmis hvað varðaði meiri sérgreiningu í vöruþró- un. í ljósi slíkrar greiningar væri reynt að nota það fé sem væri til ráðstöfunar þar sem þörfin væri mest fyrir það og mestar líkur til að það kæmi að gagni. Hann sagði að sams konar vinna hefði farið fram varðandi möguleik- ana í fiskeldinu. Á fyrra helmingi níunda áratugarins hefði Rannsókn- aráðið látið vinna skýrslu um mögu- leika fískeldis. Niðurstaðan hefði verið sú að ekki hefði verið næg þekking fyrir hendi, við værum ekki tilbúnir og það þyrfti að vinna frek- ari rannsókna- og þróunarvinnu áður en hægt væri að leggja í stórfjárfest- ingu. Stjómvöld hefðu verið látin vita um þessa niðurstöðu, en ekki hefði verið hlustað og afleiðingamar þekktu allir. Síðan hefði verið fylgst með þróuninni með reglulegum at- hugunum á stöðunni í fískeldinu og sú síðasta væri alveg ný. Á þeim grunni ætti nú að útbúa það sem væri kallað markáætlun, en hún fælist í því að biðja þau fyrirtæki sem eftir væru í fískeldi að leggja niður fyrir sér þau markmið sem þau teldu sig geta náð í aukinni framleiðni og lækkun kostnaðar með því að stunda markvissa rannsóknar- og þróunar- Vilhjálmur Lúðvíksson Morgunblaðið/Sverrir starfsemi og með því að nýta sér niðurstöður úr fyrirliggjandi rann- sóknum. Þetta er nú í undirbúningi í samstarfí fyrirtækja og viðkomandi vísindamanna og síðan verður reynt að meta frá einum tíma til annars hvaða árangur hefur náðst og hvem- ig hann skilar sér til viðkomandi fyr- irtækja. Svipuð vinnubrögð væri hægt að hafa á öðrum sviðum. „Með þessum háetti viljum við greina mikil- væg viðfangsefni og síðan sameina krafta fyrirtækja, stofnana og vís- indamanna til að vinna að nýsköp- un,“ sagði Vilhjálmur. Samvinna um fjármögnun Hann sagði að þetta þyrfti að gera í auknum mæli á mörgum svið- um, og meðal annars skoða ný svið. Það gilti til dæmis um ferðaþjón- ustuna. Það þyrfti sennilega að leggja aukna rækt við rannsókna- og þróunarstarf þar, því áhugi á landinu gæti skilað sér á. mörgum öðrum sviðum en eingöngu í hefð- bundinni þjónustu við ferðamenn. Áhugi ferðamanna sem hingað kæmu byggðist á sérkennum lands og þjóðar og væri oft af fræðilegum toga eða byggðist á leit að óvenju- legri reynslu. Slík sérkenni væri hægt að draga betur fram með skipu- legu þróunarstarfi og rannsóknum á áhugasviðum einstakra markhópa. Vilhjálmur sagði að reynt væri að laða að fjármagn til verkefna eins og nokkur kostur væri. Á síðasta ári hefðu um 25% fjármagnsins til verk- efna komið úr Rannsóknasjóði og til viðbótar hefði tekist að fá peninga frá ýmsum aðilum, til dæmis frá Húsnæðisstofnun, Framleiðnisjóði landbúnaðarins og frá ráðuneytum allt eftir eðli verkefnanna. Með þessu tækist að auka umsvifín langt um- fram það sem fjárframlög úr sjóðnum segðu til um. Til dæmis kæmu nú um 36% af fjármagni frá fyrirtækj- unum sjálfum og fyrirtæki væru þátttakendur í þremur fjórðu þeirra verkefna sem fengju stuðning. „Tæknimenn í fyrirtæki" Rannsóknarráðið er um þessar mundir að auglýsa nýjar tegundir styrkja úr Rannsóknasjóði til fyrir- tækja sem kallast „Tæknimenn í fyr- irtæki". Ætlunin er að styrkja fyrir- tæki til þess að ráða sérfræðimennt- aða menn til sín til að byggja upp tækniþekkingu og skipuleggja rann- sókna- og þróunarstarf innan fyrir- tækjanna. Markmiðið er að hvetja þau til að bæta aðstöðu sína til að innleiða nýja tækni og nýta þau tæki- færi í samstarfi við innlendá og er- lenda aðila. Styrkirnir eru ekki ætl- aðir til starfa í hefðbundinni starf- semi fyrirtækisins og almennri stjórnun, heldur fyrst og fremst til að efla tæknilega innviði fyrirtækis- ins og getu til nýsköpunar og þannig stuðla að aukinni samkeppnishæfni til lengri tíma litið. Veittir verða fímm styrkir árlega og nema þeir hálfum launakostnaði, samkvæmt tilteknum launaflokki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.